Þjóðviljinn - 24.01.1951, Blaðsíða 6
8
ÞJÖÐV'ILJINN
Miðvikudagur 24. janúar 1951.
Régii
Framhald af 5. síðu.
egrid til andstöðir við. Osr hva?
verT'Ur ká úr virðir.srm',ni fwjr
eldra. fólki, ef uimið er mark-
vísf að því í. blöðum að koma
í -ve.g fs'rir uppeldisáhrií kenn-
aranra?
'Ekf'i væri úr veví.fíir'r Vík-
verip. að revn.a að kynna sér
rækilega það sem hann deilir
á í stað þess aS hlaima eftir
hverakyns fleipri. F'a. hefur
hann nokkurn timo verið í
ik-ennslustund eða við skemmt-
un í Austurfcæ.iarskó>num t. d..
þeim skó’anum, sem hann. deilir
harðast á?
Um röðun á fcömum ©fla. cg
fátt að ræða, ég veit að það
mun verp, n'Okku” " ' ' hve
etranglega kenna.rarnir fylgja
þeirri reglu. Vr ca'ausi rr erfið-
ara að kenna bömum taktfasta
cg Fúipulega rör.«ru i landi. sem
ekki. hefur hem.kyldu, rg þar
af leiíondi engar hcræf'ngar
eða hersýningar. Vfkverjj -^alar
um ðrvggi'iástæ'Vr í i'c’u
eambandi. En heldur hann í
alvöru að hægt sé, ef hæ4ta er
á ferðúm, að hemja böm í
fö-tvm, skipu’egum röðum t.
d. út úr skóla, sem kvihnað
hefiir í ?
Það er engin hætta á því
að revkvisk b:m gleymi fánan-
um sínnm, svo oft hn.fp þau
hann fvrir augum, þó að hann
cé ek'-i hafðnr í hverri skóla-
eto.fn. Fn hvað «kyldurr,a’” "sð
föðurlandið snertir .... æ, Vík-
verji góður, ætli það verði ekki
fengst af bundið við vit. vil.ia
cg getu einstaklingsins. hve vel
þær skj’ldur eru ræktar. Eu
stundum virðist það vera
flokksmál að glejTns þem.
Hvað guði viðvTcn.r. þá má
•miim?.. Víkverja á, a.ð hvað sem
K. F.- Sanðáikzéks
Framhald af 3. síðu.
Iíður kristindómseinlægni hans
annarsstaðar og hefur atvinnu-
Ieysið með sinum hðrmur.gurr
sott svip sinn á. bæiarlííið. I
bæiarstjórninni ræður aftur-
hald’ð öllu, eg virðist atvinnu-
leysið lítil áhrif hafa á ]’r
herra, er þa.r sitja þjóna.n*'
anðvalrlinu. Á s.l. sumri bar
sérstaklega mikið á atvinnu-
leysi meca.l unglinga og hefur
Æ F.-deiIdin á Sauðárkróki þeg
ar sett fram ikröfiir um að á
komandi sumri verði af bæjar-
ins hálfu komið á unglijga-
vinnu. —
Æskulýð-ssíðan þakkar Júlíusi
Friðrikssyni fyrir þessa stuttu
frásögn af starfí hinnar ungu
Æ.F.-deiIdar og óskar meðiim-
um hennar heilla í starfi þeirra.
sjálfs, þá muni hojiurn ekki
allsendis ókunnugt um að
mammon skipi hærri seas í hug-
uni ýmissa samherja han.s en
ákjósanlegt væri frá sannkristi-
legu sjónarmiði. Um barnakenn
arana er það að segja, að þeir
eru fráleitt mammonsdýrkend-
ur, því að annars hefðu. þeir
valið sér annað ævistarf.
Víkverja óska ég þess svo
að lokum, að hann sofi ekki
svo vært á veiferðarmálum
æskunnar að ha.nn japli sí cg
æ upp úr svefninum á marg-
þvældum skömmum um barna-
kennslu. Á sama, nöldrinu verða
allir dauffleiðir.
Reykjavík, 20. janú«r 1951.
Móðir í Austnrhænninri.
Framhald af 8. síðu.
Hin-svegar hefur það í hverri
emustu kaup- og kjaradeilu
^jandskapast út í verkamenn
og samtök þeirra, cg barizt fyr
ir ósigri þeirra.
Það er ekki hægt að fá
gleggri lýsingu á tilgangi B-
listans í Dagsbrún en með hól-
skrifum Morgunblaðsins um
ha.nn.
Meðmælj Mcrgunbiaðsins
með B-listanum segja fullum
fetum, að með honum eigi að
reyna að leggja Dagsbrún und-
ir atvinnurekendavaldið, kúga
verkamenn til auðsveipni við
þverrandi kaupmátt, vaxandi
atvinnuleysi og neyð, og svifta
verkamenn þannig einu vörn
sinni í erfiðri hagsmunafcar-
áttu.
Verkamannasamtökin eru
ekki stofnuð til þess aft
þjóna atvinuurekendum he!d
ur til þess að vernda hags-
muni og lífskjör verka-
rnanna gaguvart atvinnarek'
endum.
Þes.s vegna getur enginn
verkamaður, sem vill hafa
samtök sín óháð atvinnurek
endutn, stutt þann lista, sem
morgunblaðið getur ekki nóg-
samlega hælt.
Og þess vegna nœns Bags
brúi armeim 'am næstu hclgi
vísa, B-Iistanum heim til sín,
hetm til atvinnurekendavalds
ins,. og fylkja sér einhuga
um stjórn Sigurðar Guðna-
souar.
AUir Dagsbrúúarmenn
þurfa að vinna að því, að-
Sigurður Guðnason verði í
10. skiptið kosinn með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða.
Undlr eilífðarstjörnum
Eftir A.J. Cronin
1
D A G U K
pabbi aidrei getað losnað við þá firru að Sallý
hefði leikhæfileika. Hann hafði aldrei þareytzt á
að draga hana á alls konar leiksýningar; hvatt
hana til að líkja eftir leikkonunum, farið með
hana á skemmtistaði, í stuttu máli sagt, gert
sig að athlægi. Og til að bæta gráu ofan á svart
hafði hann fengið telpuna til að taka þátt í einni
af samkeppnunum hjá Empire. Það var eitthvað
það litilmótlegasta sem hægt var að hugsa sér.
Það var leiðinlegt til þess að vita. en Sallý
hafði unnið í þessari samkeppni.... Hún hafði
ekki einungis fengið fyrstu verðlaun, heldur
hafði hún hrifið þessa simplu áhorfendur í svo
ríkum mæli að stjómendurnir höfðu ráði'ð hana
til sín í viku. Og áður en vikan var liðin, hafði
Sallý fengið tilboð um sex vikna leikför með
Paype-Gould félaginu.
Æ, óg svo hafði Sallý verið svo skyni skropp-
in að taka á rnóti tilboðinu, hugsaði Jenný döp-
ur í brag'ði. Því að Sallý hafði sagt já, hafði
sagt skilið við hinn göfuga síma og öll hans
hlunnindi, og brugðið sér í leikför. Og þá var
Sallý auðvitað búin að vera.
Hún hafði ekkert haft að gera í f jóra mánuði;
engin tilboð fengið um leikferðalög, hún hafði
enga.n samning vi'ð Empire og ekki neitt af
neinu tagi. Og hvað símann snerti, þá voru henni
þar öll sund lokuð. Það var leiðinlegt. En sím-
inn var göfug stofnun, og þar tíðkaðist ekki að
taka aftur við fólki sem hafði forsmáð veitt
hlunnindi. Já, andvarpaði Jenný, nú sér hún
sína sæng út breidda, veslings stúlkan.
Og þó væri áreiðanlega skemmtilegt að hafa
Sallý hjá sér um tíma, já, og auk þess væri það
fallega gert gagnvart veslings stúlkunni. Þáð
mundi áreiðanlega mælast vel fyrir.
Sallý kom til Sleescale undir lok nóvember-
mánaðar, og systir hennar tók hjartanlega á
móti henni. Jenný var ástúðleg, faðmaði elsku
Sallý að sér, ljómaði af innileik: „Að hugsa
sér“ og „þetta er alveg eins og í gamla daga“
kvað við, kryddað með flissi og gamansemi.
Hún opnaði nýja gestaherbergi'ð, bar upp heitt
vatn og hrein handklæði, mátaði hatt Sallýar:
„Ó, elskan, ei hann ekki dásamlegur“. Davíð
var feginn, það var óralangt síðan hann hafði
séð Jenný svona káta.
En hrifningin hvarf hlægilega fijótt; það
var þreytandi að hlaupa upp á loftið, flissin
þögnuðu, og allt hið nýja og hrífandi við elsku
Sallý hvarf á brott. „Hún hefur breytzt svo
mikið, Davíð“, sagði Jenný döpur í bragði þeg-
ar vika var liðin. „Hún er ekki sama litla
stúlkan og hún .var áður fyrr. Þú veizt, að
ég hafði aldrei mikið álit á henni. . . .“.
Davíð fannst Sallý ekki hafa breytzt mikið
að ö’ðm leyti en því að hún var orðin hæglát-
ari og hafði þrozkast. Ef tii vill fannst henni
nóg um elskulegheitin í systur sinni. Ef til
vill gerði atvinnuleysið henni þungt í skapi.
Hún hafði sigrazt á framhleypni sinni. Augna-
ráð hennar var hugsandi. Hún hjálpaði til i
húsinu með því að sendast og ræsta. Hún krafð-
ist engra skemmtana, og allt fumið og bægsla-
gangurinn í Jenný gerði hana aðeins enn þögulli.
Einstöku sinnum þegar þau höfðu loki'ð við að
borða kvöldmat og hún sat uppi á borði og dingl-
aði fótunum, lét hún það eftir sér að verða eins
og hún átti að sér, eða þan-nig tók Jenný til
orða. Þá lét hún móðan mása, sagði frá ævin-
týrum símim meðan hún ferðaðist um, sagði frá
DAVlB
veitingakonurn, leikstjórum, melétnum búnings-
klefum, heimsku sinni og taugaóstyrk og mis-
tökum sínum. Hún hlífði ekki sjálfri sér. Hún
gat gert grín að hverjum sem var, svo að á-
heyrendur hénnar ætluðu að rifna af hlátri, og
nú gerði hún grín að sjálfri sér. Bezta sagan
hennar, um það þegar hún var flautuð niður í
Sliiphead — það var eftirlætissaga Jennýar —
hlífði ekki henni sjálfri, en hún sagði hana lát-
laust og fjörlega, án allrar beizkju. Hún liirti
lítið um ytra útíit sitt, notaði aldrei púður eða
fegrunarlyf, stóð alveg á sama með hvaða
sápu hún þvoði sér, stakk andlitinu alltaf nið-
ur í kalt vatn á morgnana, átti lítið af fötum
og hirti ekki sérlega vel um þau, þveröfugt við
Jenny, sem var alltaf að breyta og lagfæra,
pressa og hafði mestu rö'ð og reglu á öllu. Húrí
átti brúnan göngubúning, sem hún var næstum
alltaf í; hann fór ekki af hennar líkama, eins
og Jenný tók til orða. En Sallý hafði þá ’reglu
að kaupa lítið, slíta því út og kaupa svo aft-
ur. Hún átti enga sparikjóla, enga sunnudags-
hatta, engin ,,draumfalleg“ nærföt. Hún gekk
í látlausum prjónasilkibuxum og í flatbotnuðum
skóm. Hún var lítil vexti og dálítið feitlagin. Hún
var látlaus og eðlileg hvar sem á hana var lit-
ið.
Davíð var ánægður yfir dvöl hennar í húsinu,
endaþótt hann væri aftur farinn að hafa á-
hyggjur af vaxandi önuglyndi Jennýar. En dag
nokkurn, fyrsta desember, þegar hann kom heim
úr skólanum, kom Jenný honum á óvart með
því að koma á móti honum gláðari og fjörugri
en nokkru sinni fyrr.
„Geturðu gizkað á hver er í Sleescale?" spurði
hún og augu hennar ljómuðu.
Sallý var að leggja á borð og hún sagði dap-
urlega:
„Buffalo Bi)I“.
„Uss, þegiðu“, sagði Jenný. „Þú hefur alltað
haft horn í síðu hans, frekjan þín. Þú getur
aldrei gizkað á það, Daví'ð, hugsaðu þér, það
er Jói“.
,,Jói“, endurtók Davíð. „Jói GowIan?“
„Já einmitt“, Jenný kinkaði kolli ljómandi af
ánægju. „Og þú getur ekki trúað hvað hann
er fínn og strokinn. Það gekk alveg fram af
mér þegar ég rakst á hann í Kirkjustræti. Auð-
vitað þekkti ég hann ekki; mér féll ekki sérlega
vel við hann þegar við þekktumst áður fyrr, en
hann kom til móts við mig og fór að spjalla
vi'ð mig. Honum hefur farið ótrúlega mikið fram,
skal ég segja þér“.
Sallý leit á systur sína.
„Á ég að skera niður kjöt handa Davíð?“
spurði hún.
„Nei, nei“, sagði Jenný viðutan. „Hann fær
bara te_ núna, við geymum kjötið þangað til í
kvö’d. Ég bað Jóa um að Hta inn, ég vissi að'
þig mundi langa til áð hitta hann, Davíð“.
„Já — auðvitað11.
„Það er ekkj af því að mig langi til þess
sjálfa, eins.og- þú veizt. En ég hefði þó haft
gaman af því að sýna herra Jóa Gowlan að
það geta fleiri komizt áfram en hann. Þú getur
reitt þig á að ég skal stjaiia við herra Jóa með
bláa postullínsstellinu, knipplingadúknum, köldu
kjöti og baunum. Það var verst að hann skyldi
ekki koma í þorskinn í gær, þá hefði ég getáð
notað nýja fílabeinsfiskisettið mitt. Jæja, það
er allt í lagi, ég fæ lánaðan steikarahnífinn hjá
frú Grét og þá verður þetta prýðilegt“.
„Hvers vegna færðu ekki þjón til að ganga
um beina“, greip .Sallý fram í með saklej'sis-
svip.
Jenný roðnaði og beit á vörina.
„Þú ert vanþakklát stelputuðra að standa
/þarna og hiiýta í mig. Ég er hrædd um áð ég
)hafi verið allt of góð við þig þegar allt kem-
•ur til alls. Að hugsa sér að þú skulir standa
þarna og gera gys að mé’r, af því að ég býð
karlmanni til kvöldverðar á mitt eigið heimili.
Hamingjan góða. Eftir allt sem ég er búin að
gera fyrir þig. Þú getur farið heim til þín telpa
mín, ef þér líkar eitthvað illa“.
„Ég get gjarnan farið heim ef þú vilt“, sagði
Sallý. og sótti teið handa Davíð.
Jói leit inn um sjöleýtið. Hann var í Ijós-
brúnu fötunum sfnum, með úrfestina, glæsilega
hattinn og var dæmalaust alúðlegur. Hann var
hvorki hávær né raupsamur, Jói hafði neyðzt til
að leita til átthaga sinna, og endaþótt hann