Þjóðviljinn - 11.02.1951, Page 4
3
Þ I .L .J +
SunouJaggr Jl. ^íebsúgr.;,J.:951jf
u tgefandi: tíameimngarílokkur alþýöu — Soaíaliataflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason,
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár linur).
Askriftarverð: 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.,
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Á síöasta hausti birti Morgunblaöiö í nokkra daga
hinar fagnsóöarríka.stu greinar um áhuga íhaldsflokksins
á því aö menn fengju frelsi til aö byggja smáíbúöir handa
sjálfum sér. Skömmu seinna kom fram á þingi þings-
ályktunartillaga frá nokki'um íhaldsþingmönnum þar
sem fariö var fram á að slíkt frelsi yrði látiö í té. Einnig
tóku íhaldsþigmenn bátt í aö flytja frumvarp sama efnis
ásamt sósíalistum og einum þingmanni Alþýöuflokksins.
Frumvarp þetta vsr síöan samþykkt í neðri deild og fór
rétta boöleiö til efri deildar. Þar geröust hins vegar þau
tíöindi aö einhver annarlsg öfl skárust í leikinn meö
þeim árangri að málió hefur ekki fengizt afgrsittt.
Þessi annarlegu öfl eru nú kcmin fram í dagsljósiö
éins og rakið var í blaöinu í gaer. í bréfi>*frá Fjárhagsráöi
um þingsályktunartillögú íhaldsmannanna segir svo:
„Fjárhagsráði hefur skilizt aö vegna tilrauna
til þess aö iá aö nota fé úr mótviröissjóði verði að
f. takmarka árloga fjárfestingu við ákveðið hámark
og það sé fullkomið skilyrði fyrir því að leyfi fáist
til þess að nota mótviröissjóð. Ef fariö væri eftir
tiilögu þessvri myndi það gera ómögulegt að sýna
F forráðainönum mótvirðissjóðs fram á, hver fjár-
F festingin væri, þar sem takmarkanirnar næöu aö-
eins til hluta hennar.“
Mótviröissjóðurinn er sem kunnugt er þannig til
kominn að þar er safnað saman andviröi allra þeirra
„gjafa‘.‘ sem marsjallstofnunin lætur okkur í té. Sjóöur
þessi er nú aö veröa voldugasta fjármálavald hér innan-
lands. Samkvæmt marsjallsamningnum má ekki nota
•eyri úr þessum sjóöi nema meö leyfi Bandaríkjanna og
þetta ákvæði merkir 1 framlcvæmd aö öll fjárfesting er
háö samþykki bandarískra ráöamanna. Því aðeins fást
þeir til aö sleppa fé úr mótvirðissjóönum að hver einasta
framkvæmd, stór og smá, sé borin undir þá.
Og nú lýsir FjárhagsráÖ yfir: þaö er ekki hægt aö
veita einstaklingum frelsi til aö byggja sér kofa yfir höf-
uðiö, þar sem einhver hús kynnu þá aö sleppa fram hjá
hinu bandaríska eftirliti!
Enginn þarf aö efa aö fyrirmæli hinna bandarísku
ráöamanna veröa látin gilda ssm lög. FrumvarpiÖ sem
áður er nefnt er strandaö í efri deild og þingsályktunar-
tillagan sofnar nú eflaust svefninum langa í sameinuöu
þingi. Og Morgunblaðið er hætt aö birta greinar um á-
huga íhaldsflokksins fyrir því aö menn fái frelsi til aö
koma sér upp smáíbúöum.
Það er alkunna hvernig byggingarvinnan hefur drag-
izt saman síðan Bandaríkjamenn hófu eftirlit með fjár-
.festingu á íslandi. Á síðasta ári var aöeins hafin bygging
nokkurra tuga nýrra íbúöa í Reykjavík, en árið 1946
voru fullgeröar tæplega 700. Fyrir nokkrum dögum
skýröu samtök trésmiða frá því aö um 150 smiðir væru
nú atvinnulausir. Hliðstætt atvinnuleysi er nú meðal
málara og múrara og algert atvinnuleysi meöal bygg-
ingarverkamanna.
Þetta atvinnuleysi er bein afleiðing hins bandaríska
eftirlits. Þaö eru erlendir menn sem skipa fyrir um þaö
hversu margar íbúöir megi byggja og sú ákvöröun sker
jafnframt úr um hitt hvsrsu margir geti haft atvinnu
viö byggingarframkvæmdir og hversu margir veröa aö
búa í bröggum og skúrum og saggakjöllurum.
Þetta eru staðreyndir sem fólk verður aö festa sér
vel í minni:
Það er samkvæmt bandarísku valdboði að húsnæðis-
eyrndin fer nú daglega í vöxt.
Það er samkvæmt bandarísku valdboði að bygging-
ariðnaðarmenn og byggingarverkamenn búa nú við at-
vinnuleysi og sáran skort þúsundum saman.
Það er samkvæmt bandarísku valdboði að meira aö
segja sá snefill af „framtaki einstaklingsins“ er kæfður
að menn fái sjálfir að basla í því að koma upp þaki yfir
höfuðið.
Og Iandráðaflokkarnir allir beygja höfuð sín í auð-
jnýkt fyrir rödd hins vestræua húsbónda.
Berhentir sjómenn
afla gjaldeýrls
K.L. skrifar!:
„Sjómennina í Sandgerði vant-
ar vinnuvettlinga. Þeir verða
að gera að berhentir. Þessar
fregnir fiuttu blöðin í gœr, og
ég sé ekki að stjórnarblööin,
'Morgunbl, og Tíminn skamm-
ist sín riéitt fyrir þessa. nýj-
usþi lýsingu á stjórnarfari
Sjálfstæðisflokksins. og Fram-
sóknarflokksins. Þetta er þó
óvenjulega síáandi mynd. Þau
íslenzku fyrirtæki sem fram-
leiða vinnuvetlinga fá ekki
hráefni til þess. Gjaldeyrinum
sém sjómenn áfla, og ætlazt
er til að þeir afli berhentir, er
hent í braskara sem flytja inn
með- það í huga á hverju þeir
græði mest, en ekki hitt hvað
íslenzkri alþýðu sé lífsnauðsyn
að fá innflutt til daglegra
þarfa. Það er víðar en í Sand-
gerði sem sjómenn og verka-
menn vantar vinnuvetthnga,
þeir láta bara. alltof sjaldan
til sín heyra.slík gegndar-
lausa vanræksiu á ekki að láta
líðast. Sjái yfirvöldin ekki að
sér í þessu efni verða sjómenn
og landverkamenn að grípa til
róttækra ráðstafana“.
•
Bréfaskóli Sósíalista-
floltksins
Sósíalistar á íslandi eiga enn
svo lítið af sósíalistískum rit-
um á íslenzku að vansæmd er
að, því fyrir aðra eins bóka-
þjóð, — og jafnöfluga sósíal-
istahreyfíngu og hér hefur þró-
azt. Nú er unnið að því að bæta
úr þessari þörf, en það tekur
langan tíma að koma út hin-
um nauðsynlegustu fræðiritum
sósíalismans.
En þeim mun meiri þörf er að
nota vel það sem til er, flest
höfuðrit sósialismans eru ekki
vel lesin nema þau séu oft les-
in og vandlega, menn verða að
eignast þau. Hér skal aðeins
bent á tækifæri að afla sér
sósíalistískrar fræðslu sem er
í senn auðvelt og ódýrt að not-
færa sér, en það er Bréfaskóii
Sósíalistaflokksins. Hann er á
byrjunarskeiði, aðeins eitt nám-
NR. 34.
skeið í .gangi, en það fjallar um
mál sem er lykill til skilnings
á því þjóðfélagi sem við lifum
í; námskeiðið er um kreppurn-
ar. Þátttaka kostar aðeins 30
krónur, og með bréfaskólafyr-
irkomulaginu verður námsefnið
aðgengiiegra og auðveldara en
að stunda námið bjálparlaust
af bókum.
Þekking er nauðsyníeg.
:Tjr> T'C - .
Einkum.ættu unglr sósíalist-
ar, hvar sem er á landinu, að
notfæra sér þá námsmöguleika
sem Bréfaskólinn býðvjr. Það
er ekki hægt að taka veruleg-
an þátt í baráttu .hinnar sósí-
alistísku hreyfingar nema að
hafa vopnað sig þekkingu af
nægtabrunnum hinna sósíalist-
ísku fræða. :— Bréfaskóli Sósíal
istafl. gætí orðið mörgum
ungum manni býrjun og leið-
sögn í þeirri þekkingarleit.
★★ ★
Lárétt: 1 pexa — 4 gróöurblett-
ur — 5 keyrði — 7 vend — 9 auð
— 10 ber — 11 huldumann —
13+15 skrifa — 16 drasl.
Lóðrétt: 1 samt — 2 heldur sér
vel — 3 sérhljóðar — 4 rífur —
6 greinarmcrki — 7 lítil — 8 rán-
dýr — 12 kerald — 14 troðningur
— 15 þyngdareining.
Lausn nr. 33.
Lárétt: 1 messa — 4 ný — 5 ná
— 7 úða— 9 pól -+ 10 una — 11
för — 13 ræ — 15 et — 16 ræddi.
Lóðrétt: 1 mý -r- 2 síð — 3 an
— 4 ngpur — 6 ávalt — 7 úlf
— 8 aur — 12 önd — 14 ær —-
15 ei.
Elmskip
Brúarfoss fór frá Hull 8.2. til
Reykjavíkur. Dettifoss fer frá R-
vík 12.2. til Akraness og vestur
og norðui'. Fjallfoss kom til Berg
en 9.2. fer þaðan til Frederikstad
og Kristiansand. Goðafoss fór frá
N.Y. 7.2. til Reykjavíkur. Lagar-
foss kom til Grimsby 9.2. fer það-
an til Hull, Bremerhavon og Ham
borgar. Selfoss kom til Hamborg-
ar 9.2. fer þaðan 10.2. til Antverp
en og Reykjayíkur. Tröllafoss
kom til N.Y. 2.2., hefur væntan-
lega farið þaðan 9.2. til Reykjavik-
ur. Auðumla er í Hull, íermir vör-
ur til Reykjavíkur.
Ríkisskip
Hekla er væntanleg til Akureyr
ar í kvöld. Esja fór frá Reykjavík
í gær austur um land til Siglufj.
Herðubreið er á leið frá Augtfj.
til Reykjavíkur. Skjaldbreið er í
Reykjavík. Þyrill var væntanlegur
til Hvalfjarðar seint í gærkvöld.
Ármann fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestma,nnaeyja. Oddur
fór frá Reykjavik i gærkvöld til
Skagafjarðar- og Eyjafjarðar-
hafna.
Skipadeild S.l.S.
Arnarfell er í Denia á Spáni.
Hvassafell er í Lissabon.
Leiðrétting: 1 frásögn blaðsins
í fyrradag af íslenzku listsýning-
unni í Osló átti að standa að
myndir Gunnlaugs Schevings
hefðu fengið einna bezta dóma. ,
Háskólaf yrirlestu r.
Sænski sendikennarinn frú Gun
Nilsson flytur fyrirlestur í I.
kennslustofu háskólans mánudag-
inn 12. febrúar um ljóðskáldið
Far Lagerkvist. — Fyrirlesturinn
hefst kl. 8.30 e.h. og er öllum
heimill aðgangur.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
heldur aðalfund sinn annað kvöld
kl. 8.30 i Tjarnarcafé. — Sjá aug-
iýsingu á öðrum stað i blaðinu.
Helgidagslæknir: Kristján Þor-
varðsson, Skúlagötu 54. Sími
4341.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki,
sími 1330.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Landssamband blandaðra kóra
gengst fyrir skemmtun í Vctrar-
garðinum í kvöld. Söngfólk úr
sambandskórnum er látið sitja fyr
ir við útvegun aðgöngumiða, fyrir
sig og gesti sína. Aðgöngumiðar
er hægt að panta í síma 6710.
Húnvetnlngafýl. lieldur skemmti
samkomu í Tjarnnrcafé n. k.
fimmtudag 15. þ.m. Spiluð. vefðúr
Framsóknarvist, flutt . erindi og
dansað, Skemmtunin þyfst kl.-8.80
i e.h.
Sl. föstudag i opin-
beruðu trúlofun
sina, ungfrú. Erla
Kristjánsd., Miklú-
ftrauí .40 og Frosti
Bjarnason, Lauga-
tfiig 3. —■ Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Kristbjörg
Björnsdóttir, Brekku, Glerárþorpi
og Aðalsteinn Hjaltason, R.útsstöð-
um, Eyjafirði.
Nýlega vorú
gefin saman í
hjónaband aí sr
Bja'rna JónS-
syni, Áslaug
Jónsdóttir hár
greiðslukona pg Sveinn Björnsson,
forstjóri. Heimili brúðhjónanna,
verður að Leifsgötu 27. — Ný-
lega voru gefin saman í hjóna-
band á Akureyri ungfrú Erla
Austfjörð og Hörðui' Þorfinnsson
bakari. — Nýlega voi u gefin sam
an í hjónaband af sr. Kristjáni
Róbertssyni, uiigfrú Sigurborg
Jakobsdóttir, Reykjavik' og Hörð-
ur Steinbergsson, Strandgötu 23,
Akureyri.
Kl. 13.00. Erindi
eftir C.D. Darling-
tón prófessor: Um
líf á öðrum plánet
um (Hjörtur Hall-
dórsson mennta-
skólakennari þýöir og flytur).
15.30 Miðdegistónleikar. 16.30 Fráv
opnun íslenzku myndlistarsýning-
arinnar í Osló 27. janúar s.l. Ræðu
menn: Lars Moen fræðslumálaráð-
herra Noregs, Gísli Sveinsson
sendiherra, Ulrich Hendriksen for-
maður norska listamannasam-
bandsins og Valtýr Stef.ánsson
ritstjóri. 18.30 Barnatími (Þorst.
Ö. Stephensen): a) Þriggja . ára
telpa syngur. b) Ævintýri: ,,A1-
finnur álfakóngur og Trítill son-
ur hans“ — niðurlag (Ragnhildur
Steingrímsdóttir leikkona). c)
Samleikur á munnhörpu og gítar.
d) Ævintýri: „Litli bróðir og litla
systir" (Stefán Jónsson námsstj.).
19.30 Tónleikar: Walter Gieseking
leikur á píanó. 20.20 Tónleikar.
20.45 Kínabréf til Islendinga ’frá
Jóhanni Hannessyni kristniboða
(Sigurbjörn Einarsson prófessor
les). 21.20 Kórsöngur: Polytekn-
ikkojen Kuoro (karlakór finnska
verkfræðiháskólans) syngur. Söng-
stjóri: Ossi Elokas. Einsöngvarar:
Kim Borg, Matti Lehtinen Qg
Antti Koskinen. Á söngskránni:
Finnsk lög. (Söngurinn tekinn á
segulband á hljómleikum í Austur-
bæjarbíói 15. október s.l.). 22.05
Danslög. 23.30 Dagskrarlok.
Útvarpið á niorgim:
20.20 Útvarpshljómsveitin; Þórar
inn _ Guömundsson stjórnar. 20.45
Um daginn og veginn (Halldór
Kristjánsson blaðamaður). 21.05
Einsöngur: Elsa Sigfúss syngur.,
21.20 Erindi: Júdas frá Kariot
(séra Pétur Magnússon). 21.45
Tónleikar. 21.50 Frá Hæstarétti
(Hákon Guðmundsson hæstarétt-
arritari). 22.10 Passíusálmur nr.
19. 22.20 Létt lög. 22.45 Dagskrár-
lok.
Nú þorir enginn
frainar aö minn-
ast á Bjarna Ben.
seiit dómsmálaráð-
herra síðan hann
liélt því fram á
Alþingi að ef menn hrytu lög og
reglugerðir nögu víða, iiðgu oft
og nógu lengi, ka-niist hefð á lög-
brotin og allt væri í stakasta lagi.
Enda niun í ráði að lireyta em-
bættislieiti lians og verði þaö hér
eftir: Hæstvirtur Bjarni Ben.,
fylliríis- og utar.ríkisráðherra.
Leiðréttingar við próf í Háskóia
Islands.
Jón P. Eniil?, cand. jur., hiaut
X. einkunn, 224% stig (ekki 230yo),
Jón Ó. Hjörleifsson, cand. oecon.,
hlaut I. einkunn, 254stig (ekki
154%). — Þá hefui' þess ekki ver-
ið getið, að Runólfur ÞjOrarinsson,
lauk kennaraprófi í íslenzkum
fræðum í september 1950 og hlaut
I. einkunn, 119% stig (meðaleink-
unn 11.92).