Þjóðviljinn - 13.06.1951, Qupperneq 3
Miðvikudagur 13. júní 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3
T"
ss
3339
Þorri skólaæskunnar atvinnulaus
Æskan verður að gefa sig fram
til skráningar
Skólaæskan stendur nú uppi algerlega varnar-
laus gegn atvinnuleysinu ,sem afturhaldið hefur
leitt yfir hana. Hundruð fullfrískra, vinnufærra
pilta og stulkna hafa þegar lokið prófum sínum
til þess eins að reika um atvinnulaus, foreldrum
sínum til angurs og ama. Sljóleiki og vonleysi
sezt að þessari æsku og eykst með hverjum degi
atvinnuleysis, með hverri árangurslausri tilraun,
sem gerð er til að komast í viðunandi sumarvinnu.
— Atvinnuleysið er meira nú í vor, en það hefur
verið þrjú undanfarin vor. Samt bregður svo ein-
kennilega við, að þessi hundruð atvinnulausra
ungmenna leynast alltof vel í henni Reykjavík í
aag. íhaldið, höfundur atvinnuleysisins, á ennþá
gott með sveín vegna atvinnumálanna. Æskan
hefur enn ekki fundið leið til að kveða svo að
kröfum sínum um atvinnu að íhaldið verði and-
vaka. Þó er kröfuherinn sannarlega orðinn nógu
stór. En honum heíur ekki tekizt að sameina sig,
hann er enn ekki hæfur til að berjast fyrir frum-
rétti sínum: Atvinnu. Þó eru ráð tiltæk, sem hægt
er að nota til að ýta við og.þjarma að íhaldinu,
vekja það af svefninum.
‘v. v
UndirbúnJngurinn undir Berlínarmótið er mjög langt kominn í
flestimi löndum heims og er dagskráin alltaf að aukast og
>'erða íjölbreyttari með hverri vik'unni, sem líður. — Æska
frá Cyprus mun kom með dansflokka og söngkóra. Frá Skot-
larnlj koma þrjú knattspyrnulið og frá Indlandi kemur fljótasti
hlaupari Asíu. Sovétmeistariun í kúluvarpi Lipp mun einnig
koma til Berlínar. — 1 hverri borg A.-Þýzkalands er nú unnið
að því að búa til minjagripi til að gefa hin'um erlendu gestum,
og eru sumir þeirra mjög frumlegir og táknrænir. — Myndin
hér að ofan' er af hvítasunnugöngu þýzkrar æsku í Berlín 1950.
I - i!
Berlínarfarar
I athugið!
Berlínarfararnir eru alvarlega áminntir um að j;
j: skila hið fyrsta 3 passamyndum ásamt upplýsingum ;j
j; um passanúmer og 1000 króna innborgun til Eiös jj
j: Bergmanns, Skólavörðustíg 19, sími 7500. jj
Bráðlega verður haldinn fundur með væntan- jj
I; legum þátttakendum, þar sem ferðalagið og undir- jj
!; búningurinn verða rætt ýtarlega. jj
jj NEFNDIN. jj
Æskan fargar nú hverri vik-
unni á fætur annarri fyrir ekk-
ert. Hún á að nota hina týndu
daga til að finna hagnýt, hríf-
andi ráð til þess að láta ráða-
mennina vita, að sinnuleysi
þeirra um atvinnumál æskunn-
ar er nokkuð sem ekki verður
þolað refsingarlaust. Skólaæsk-
an verður að finna leiðina til
að gera kröfurnar um vinnu að
síbylgju í eyrum þess íhalds
sem ber ábyrgð á núverandi
atvinnuástandi. í staðinn fyrir
mas og nudd inná heimilum
verða að kveða við háværar
krclfur um vinnu, hvar sem
æskan er stödd, kröfur sem
æskan verður að gera að höfuð
máli sínu og samtaka sinna af
hvaða tagi sem þau annars eru.
Þetta verður æskan að gera,
ef hún vill ekki að íhaldið
grafi hana lifandi, geri hana
að sljóum aumingjum og þjóf-
um eins og því tókst að gera
fleiri unglinga að á síðasta ári
heldur en nokkru sinni áður frá
því fyrir stríð.
★ HINN ATVTNNULAUSI
SPYR: HVAÐ ER
HÆGT AÐ GERA?
I fyrsta lagi ber að gefa
sig fram við Ráðningarskrif-
stofuna og Vinnumiðlunarskrif-
stofuna og láta skrá sig þar.
Vinna ötullega að því að fá
atvinnulausa kunningja og
s'kólasystkini til að gera slíkt
hið sama. Með því fást opinber-
ar skýrslur yfir atvinnulaust
námsfólk. Þær skýrsiur þéna,
sem öflugt áróðursgagn fyrir
þau málgögn, sem vilja styðja
atvinnukröfur skólaæskunnar.
Það er langt frá því að „ekki
hafi þýðingu" að gefa sig fram
til skrásetnÍBgar, þótt engin
.vinna fáist við það, eins og
sumir af einskæru skilnings-
leysi halda fram. Það vantar
um fram allt öruggar skýrslur
um atvinnuástandið, skýrslur
til að hrista framan í íhaldið
án afláts, skýrslur, sem skóla-
æskan getur útvegað með því
einu: Að gefa sig fram.
I öðru lagi: Sérhverjum at-
vinnuleysingja ber að minna í
sífellu á sitt atvinnuleysi og
skólasystkina sinna. Honum ber
áð minna á tengslin milli sumar
starfsins og vetrarnám&ns,
hvernig verið er að svipta hann
möguleikunum til náms, hvern-
ig verið er að neyða hann til
að liggja sem ómaga upp á
foreldrum og kunningjum með
atvinnuleysinu. Þegar íhalds-
maðurinn og aðrar afturhalds-
LANDNEMINN hefur nú kom-
ið út samfellt í 3 ár á veg-
um Æskulýðsfylkingarinnar,
blaðið hefur stöðugt verið að
auka vinsældir sínar, með
því að auka fjölbreyttni,
hvað efnisval snertir. Áskrif-
endum að blaðinu Iiefur
stöðugt farið fjölgandi, en
þrátt fyrir það er nauðsyn
á flciri áskrifendum og hef-
ur Landncmanefndin ákveðið
að safnað verði ekki minna
en FIMM HUNDRUÐ nýjum
áskrifendum á þessu ári.
Allar deildiv Æskulýðsfylk-
ingarinnar verða að gera
allt, scm þær mega, íil að
safna áskrifendum og er
enginn vafi, að ef allir leggja
fram sitt starf, þá verður
létt að saina fimm hundruð
sprautur eru samkv. forskrift
frá áróðursstofnunum Banda-
ríkjanna að lýsa, hvernig Stalín
sé þá mínútuna að þvinga lífið
úr sárasaklausum manni fyrir
austan Úral, þá ber þér að
minna á ofansagða hluti, þ. e.
hvernig íhaldið er að þvinga
þig til að hætta námi, hætta
að vinna þér lifibrauð, hvernig
það neyðir þig til að liggja
upp á vinum og vandamönnum,
sem eiga nóg með sig. Með
því að minna á þetta ertu strax
stiginn út úr bandarísíkri áróð-
nrsflækju, búinn að setja
sprautuna út af laginu, búinn
að taka mál á dagskrá, sem hef
ur meginþýðingu fyrir þig og
hundruð annai'ra, sem eins er
komið fyrir. Þetta er sannar-
lega nægilega einfalt. En þessu
vilja beztu menn gleyma og
vaða þess í stað elg banda-
rískrar vitleysu, sem íhaldið
útbýtir til að fá menn til að
gleyma veruleikanum í kringum
sig, tala sig frá honum.
★ AÐRAR LEIÐIR OG
„RÁÐSTAFANIR"
ÍHALDSINS.
Við vitum að engri vinnu-
miðlun, sem sinnir sérstaklega
atvinnuleysiskröfum þúsunda
skólafólks í Reykjavík, hefur
verið komið á fót. Að slík
vinnumiðlun fyrir skólafólk
skuli ekki vera til er smánar-
blettur á Reykjavík. Ihaldið
hefur sinnt þörfum nokkurra
tuga unglinga háttstandandi
embættismanna og burgeisa. Sú
vinnubót hefur ekkert að segja
fyrir skólaæskuna úr verika-
iýðs- og millistétt; hún dugar
aðeins til að pabbadrengur við-
komandi embættismanns eða
burgeiss, sé ekki fyrir bón-
kústi vinnukonunar heima hjá
sér. Það er vinnumiðlun fyrir
þá aðeins, sem sízt þurfa vinnu
með. Þetta er þröngt klíku-
starf, sem heggur ekki í nám-
unda við lausnina á því alvar-
askrifendum :;ð hinu vinsælx
íímariti ungra sósíalista.
FYLKINGIN í Reykjavík hefur
ákveðið að safna 200 áskrif-
endum fyrir, L júlí. Til að
ná þessu marki Æ.F.R. vant
ar aðeins lierzíuimininn, eða
urn 60 áskrifendur. En við
meg’um ckki láta liennan ár-
angur verða til þcss, að við
sláum slöku við söfnun
nýrra áskrifenda. Við verð-
um að láta þennan árangur
verða okkur hvatning til
virkra starfa í þágu Land-
nemans, hver einasti félagl
verður að leggja sig fram
við söfnun nýrra áskrifenda.
LANDNEMINN er eina æsku-
lýðsblaðið, sem gefið er út á
Islandi, allt æskufólk ætti
því að lesa Landnemann.
Sýnið vinum ykkar og kunn-
ingjum Landnemann og íáið
þá til að gerast áskrifendur.
í Landnenxanum gefst ís-
lenzku æskufóiki kostur á
að kynnast flestum hinum
yngri rithöfundum og skáld-
um íslendinga, þýddum
skáldsögum, ljóðum og rit-
gerðum, auk ýmsu öðru efni
til fróðleiks og skemmtunar.
TAKMARKIÐ er að Landnem-
inn nái tíí alls seskufóiks í
landinú og eins og segir í
ávarpsorðum 1. tbl. 1. árg.
Landnemans: „Ritinu er
ætlað það híutverk að vinna
aiþýðuæskuna á íslandi tii
fylgis við sósíaiismaim, svo
og að fiytja þeirri æsku ýmis
legt af riíuðu orði til fróð-
leiks og skemmtunar." —
Fylkingarfélagar um iand
allt, starfið fyrir Landnem-
ann, safnið áskrifendum og
munið að takmarkið er: ekki
færri en fimm liundruð nýir
áskrifendur að Landneman-
um á þessu ári. Fyltóngar-
félagar í Reykjavík munið,
að í Reykjavík er fyrsta
takmarkið 200 áskrifendur
fyrir 1. júlí. Hafið samband
við skrifstofu Æ.F. að Þórs-
götu 1. Herðum söfnunina
og vinnnm Ötullega að því
að hinu setta marki vCrði
náð.
Málgagn Æskulýðsfylk-
ingarinnar — sambands
ungra sósíalista
RITSTJÓRAR:
Guðlaugur E. Jónsson
Halldór B. Stefánsson
Sig Guðgeirsson (áb.)
V---------------- ;_________>
Framhald á 6. síðu.
Safnið áskrifendum að
LANDNEMANUM