Þjóðviljinn - 17.06.1951, Blaðsíða 1
Sunnudag'ur 17. júní 1951
argangur
133. tölublað
fSnkkunnn
Féíagar, munið að koma í
skrifstoíuna og greiða ílokks
gjökl ykkar skilvíslega. Skrif
stofan er opin daglega frá
kl. 10—7, nema á laugardög-
um frá kl. 10—12.
Þlngkosningarnar í Frakklandi
í dag löghelgað kosningas vindl
Sfjórnarflokkarnir hafa samvinnu vi3 ný-
fasista de Gaulle gegn kommúnistum
í dag fara fram þingkosningar í Frakklandi, hin
ar fyrstu síðan 1946. Kosnir verða 544 þingmenn
í 103 kjördæmum. tveir til 11 í hverju.
Kosningarnar fara fram samkvæmt nýjum kosn
ingalögum, sem sett voru ti.l þess að reyna að ræna
Kommúnistaflokk Frakklands þingsætum. Á síðasta
þingi voru kommúnistar stærsti flokkurinn, höfðu
168 þingmenn kosna í Frakklandi og fengu 28,2%
greiddra atkvæða í kosningunum 1946. Þær kosn-
ingar voru hlutfallskosningar, hver flokkur hlaut
þingsæti í samræmi við atkvæðaíölu s-ína, en það
fyrirkomulag hefur nú verið afnumið með nýju
kosningalögunum.
Réne Pleven, forsætisráðherr
ann, sem lagði frumvarpið áð
kosningalagabreytingunni fyrir
þingið, sagði í þingræðu, að ef
nýjar kosningar færu^ fram sam
kvæmt hlutfallsfyrirkomulaginu
kæmu kommúnistar öflugri en
áður í þingsalinn, að þeim lokn-
um. Þessu !á nú að afstýra með
lögheiguðu kosningasvindli, sem
á fáa sína líka. Herriot þingfor
seti, sem átti mikinn þátt i
setningu nýju kosningalaganna,
kallaði þau „óskapnað" í þing-
slitaræ'ðu sinni.
Fbkkur með 25%
alkvæða gæti feattið
meirihhifa á þingsS
Samkvæmt nýju kosningalög-
unum geta flokkar boðið fram
hver sinn lista, en þó haft með
sér kosningabandalag. Kjós-
andi þarf ekki að verða þessa
var, hann krossar við sinn
flokkslista á kjörseðlinum, þar
kemur hvergi fram, að hann er
raeð því að greiða atkvæði
bandalagi hinna fjarskildustu
flokka. Til þess að kcsna á kosn
jngabandalagi milli lista nægir
ti’kynning frá a'ðilum til kjör-
stjórnar á hverjum stað.
í kjördæmum, þar sem kosn-
ingabandalag fær 50% eða
raeira greiddra atkvæða, hlýtur
það öll þingsætin. sem kosið
cr um, og þau skiptast eftir
hlutfallsreglum milli framboðs-
listanna, sem að bandalaginu
standa. Þetta fyrirkomulag get-
ur haft hinar fáránlegustu af-
ieiðingar. Það getur til dæmis
skeð, áð flokkurf sem fær ein-
ungis 25% atkvæða í öllu land-
inu nái hreinum meirihluta á
þingi, ef hann cr í sigursælu
kosningabandalagi í öllum kjör-
dæraum.
ÞHgsæfi fvrir 5%
afkvæða. ekkerf
• fyrir 49%!
Eigi að kjósa 10 þingpaenn í
kjördæmi og kosningabandalag
vinni það, þarf flokkur í banda-
lagínu ekki a’ö fá nema 5% at-
kvæða til að koma manni að.
En flokkur, sem byði fram gegn
kosningabandalaginu í sama
kjördæmi, fengi engan mann
kjörinn þótt hann hlyti 49%
atkvæða, eða tífalt fleiri en
sá, sem kæmi manni að.
Fái ekkert kosningabandalag
hreinan meirihluta í kjördæmi,
skiptast þingsætin þar eftir
hlutfallsreglum.
Einsog til að undirstrika
svindltilganginn með hinum
nýju kosningalögum mæla þau
svo fyrir, að hreinar hlutfalls-
kosningar skuli gilda i tveim-
héruðum Frakklands, Seine og
Seine et Oise. Þessi héruð ná
yfir París og úthverfi henn-
ar, og þar á að kjósa 75
þingmenn. Þau er undanskil-
in meirihlutafyrirkomulaginu
vegna þess, að miklar líkur eru
til að kommúnistar fái þar
meirihluta greiddra atkvæða og
fengju því öll þingsætin, ef
sömu reglur giltu um þau og
aðra landshluta! •
GauIIisfar og stiórnar
flckkarnir í
bandalagi
Sósíaldemokratar og borg-
araflokkarnir, sem stóðu að
setningu nýju kosningalaganna,
létu í fyrstu i veðri vaka, að
þeim væri beint gegn nýfasist-
um de Gaulle hershöfðingja
cngu síður en kommúi.istum.
Annað varð þó uppi á teningn-
um í framboðunum. — Enginn
stjórnarflokkanna hefur nokk-
ursstaðar gengið til samstarfs
við kommúnista, en í 12 kjör-
dæmum eru stjómarflokkarnir
og flokkur de Gaulle í kosn-
ingabandalagi, og i ýmsum kjör
dæmum eru dulbúnir gaullist-
ar í bandalagi vi'ð stjórnar-
flokkana. Það var ekki á stjórn
arflokkunum heldur á gaullist-
um, sem strandaði að úr kosn-
ingabandalagi yrði þeirra á milli
enn víðar.
I 12 kjördæmum hafa engin
kosningabandaiög komizt á, í
kjördæmum, sem kjósa 36S
þingmenn, hafa allir stjórnar-
Jacques Duclos
flokkarnir komið sér saman í
kosningabandalög.
Stefna friðai og
velmegunar
Siðan kosningabaráttan í
Frakklandi hófst 28. maí, hafa
flokksforingjarnir ferðast um
iandið þvert og endilangt og
Framhald á 7. síðu.
IransMar heimta
mgu
Miklar viðsjár eru nú í Iran
vegna þrjózku enska auðfélags
ins Anglo Iranian að afhenda
illa fengin ,,réttindi“ sín.
I gær fóru 40 þúsundir manna
kröfugöngu í Teheran og krafð
ist fólkið þess að þjóðnýting
olíulindanna og olíuvinnslustöðv
anna yrði framkvæmd tafar-
laust.
Formaður þjóðnýtingarnefnd-
arinnar lýsti yfir í gær áð ekki
yrði samið við Anglo Iranian
fyrr en það hefði greitt írönsku
stjórninni 75% af olíutekjum
félagsins frá 12. júní að telja.
Hátíðahöldin í dag:
Þjóðhátíðaruefnd skorar á fólk að
fjölmenna í skruðgöngurnar I
Hátíðahöldin í dag hefjast kl.
1,15, en þá er gert ráð fyrir
að fólk safnist saman í skrú'ð-
göngurnar, vesturbæingar á
Hringbraut við gamla kirkju-
garðinn, en austurbæingar við
Sundhöllina. Hefur þjóðhátíð-
arnefnd eindregið mælzt til
þess, að félagasamtök komi í
gönguna með félagsfána og að
foreldrar komi með börn sín.
Hátíðahöldin við Austurvöll
hefjast með guðsþjónustu. Að
henni lokinni mun forseti Is-
lands leggja blómsveig að
þlðÐVILUNN
303
íslendingar skoruðu mark
í gær í áskrifendasöfnun
sinni fyrir eina íslenzka dag-
blaðið — Þjóðviljann. —
Gærdagurinn varð nýr
metdagur, því að J)á bættust
Þjóðviljanum 13 nýir áskrif
endur og heildartalan hækk-
aði í 303.
Þar með hefur sú áskorun
Njarðardeildar verið fram-
kvæmd að ná heildarmarki
söfnunarinnar fyrir 17. júní,
eða 14 dogum fyrir tilskilinn
tíma!
Með þessum glæsilegu und
irtektum liafa íslendingar
sýnt, hveriiig ]ieir meta Þjóð
viljann og baráttu hans fyr-
ir frelsishugsjónum þess
manns, sem öll þjóðin minn
ist í dag'.
AlÞingishúsqarðurinn
opinn 12—7 daglega
Alþingishúsgarðurinn verður
opnaður almenningi í dag og
verður hann opinn eins og tvö
undanfarandi sumur hvem dag
•kl. 12—7.
Það var að tilhlutun Fegrun-
arfélagsins að garðurinn var
opnaður almenningi sumarið
1949 og varð haiin þegar mikið
sóttur. Garðurinn er friðsæl)
og fallegur staður í hjarta bæj
arins, þar er nóg af bekkjum
og skjólgott.
Broddaklíkan ærist:
Reynfr að Iiræða lieiðarlega Fram-
sóknarmeim með brottrekstrum
Tíminn skýrir frá að „stjórn-
ir“ Framsóknarfélags Reykja-
víkur og Félags ungra Fram-
sóknarmanna í Keykjavík hafi
ákveðið að reka Berg Sigur-
björnss., frambjóðanda vinstri
Framsóknármanna • Mýrasýslu
úr félögunum.
Það er broddaklíkan í Fram
sókn, logandi hrædd við það að
nokkur maður rísi upp í Fram
sóknar f'I okknum og bendi á
hvæ iangt flokksforystan er
leidd í faðmlögum við svartasta
íhald landsins, nú siðast með
samþykki við nýju hernámi Is-
lands, sem „rekur“.
Hitt cr ólíklegt að Hermanni
Jónassyni, Eysteini og öðrum
afturhaldspokum Framsóknar
takizt að hræða heiðarlega
Framsóknarmenn frá skoðun
sinni með brottrekstrum. Þeir
munu finna það að Framsókn
liefur ekki öll selt sig á mála
íhaldsins og Bandaríkjanna.
styttu Jóns Sigurðssonar. Þá
flytur Guðrún Indriðadóttir á-
varp fjallkonunnar og Stein-
grímur Steinþórsson ræðu af
svölum Alþingishússins. — Kl.
3,30 hefst íþróttamót, kvenna-
knattspyrna og leikfimissýn-
ing á íþróttavellinum. I kvöld
er svo skemmtun á Arnarhóli.
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur, Fóstbræður og Karlakór
Reykjavíkur syngja, borgar-
stjórinn flytur ræðu, Guðmund-
ur Jónsson syngur einsöng, KR-
ingar sýna leikfimi, Lárus
Pálsson les ættjarðarljóð og
Þjóðkórinn syngur undir stjórn
dr. Páls ísólfssonar. Hátíða-
höÉiunum lýkur síðan með
dansleikjum á þremur. stöðum í
bænum: Lækjartorgi, Lækjar-
götu og Hótel íslands lóðinni.
Hátíðahöldin undanfarin ár
hafa farið vel fram, varla sézt
drukkinn maður á götunni og
framkoma fólks yfirleitt verið
með þeim hætti er sæmir þjóð-
hátíðardegi íslendinga. Vonar
þjóðhátíðarnefnd að svo verði
enn.
Situr þing
verkamannasam-
Framkvæmdanefnd Alþjóða
flutningaverkamannasambands-
ins (sem er deild úr Alþjóða-
sambandi verkalýðsfélaganna),
hefur boðið Birni Bjarnas.vni
að sitja þing sitt sem haldið
verður í Vín 16.—19. júlí n.k,
Björn Bjarnason var sem
kunnugt er fulltrúi íslands á
stofnþingi Alþjóðasambands
verkalýðsfélaganna og hefur
mætt á þingum þess síðan.
Björn hefur ákveðið að taka
boðinu.
Menntaskólanum var sagt
upp í gær og útskrifuðust 97
stúdeníar.
I næsta blaði verða birt nöfn
nýju stúdentanna.