Þjóðviljinn - 17.06.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJGÐVILJINN — Sunnudagur 17. júní 1951
þJÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (þrjár linur).
Ásjfriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Lýðveldið s]ö ára
Sjö ár eru liðin síðan einhuga þjóð endurreisti lýðveldið að
Lögbergi við Öxará. Það er lærdómsríkt að renna huganum
yfir farinn veg og sjá afleiðingarnar af verkum núverandi vald-
hafa í Ijósi reynslunnar.
Það var stórhuga þjóð, sem skóp lýðveldið og hóf ný-
sköpun atvinnulífsins. Árin 1944—46 skera sig úr öðrum árum
í þróun íslenzka þjóðfélagsins. Allir, sem vetlingi gátu valdið,
unnu. Óttanum við atvinnuleysið var bægt frá alþýðuheimil-
unurn. Alþýða manna hafði borið sigur úr býtum í kapphlaupi
kaupgjaldsins við dýrtíðina: Eaupmáttur tímakaupsins var 50%
hærri en fyrir stríð. Það var unnið mikið. Aldrei hefur verið
byggt eins mikið á íslandi og þá. Og með öflun hinna stórvirku
atvinnutækja var lagður grundvöllur að öruggri afkomu þjóðar-
innar, ef þjóðin héldi efnahagsfrelsi til að nýta þau tiL fulls
og halda áfram á sömú braút. Stórhugurinn, sem einkenndi
þjóðina i öflun nýrra atvinnutækja handa þjóðarheildinni, birt-
ist hjá einstaklingunum í auknu áræði í því að reyna að verða
efnahagslega sjálfstæður sjálfur — eignast íbúð, smá-atvinnu-
tæki o. s. frv. — Að vísu voru áhrif voldugrar yfirstéttar á
ýmsum sviðum dragbítur og óreiðuvaldur í framfarabaráttunni,
en þrátt fyrir hið mikla vald afturhaldsins tókst fyrir harð-
•fylgi Sósíalistaflokksins og verkalýðssamtakanna að viðhalda
samfylkingu við víðsýnustu- öfl borgarastéttarinnar á þessu
skeiði.
Og níðingslegri dlraun amerískra auðdrottna til að sölsa
undir sig til 99 ára þrjá hluta Islands 1. okt. 1945 var svarað
neitandi að vilja' stórhuga, sameinaðrar þjóðar.
Svo kúguðu amerísku níðingarnir marshallflokkana þrjá til
Keflavíkursamningsins 5. okt. 1946 með hótunum um að fara
ekki burt með herinn að öðrum kosti. Og þessir ræfilsflokkar
hófu gpnguna inn á braut svikanna og uppgjafarinnar, í stað
þess að kæra amerísku syikarana opinberlega fyrir samnings-
svikin. Og nú blasa við afleiðingarnar af þeim svikum, er þá
voru hafin.
Klíka harðsvíraðra amerískra peningafursta og hershöfð-
ingja drottnar yfir landinu í krafti leppa, sem þeir halda uppi
með fjárgjöfum.
Vægðarlaus einokun hinna amerísku og íslenzku valdhafa
einkennir atvinnu- og verzlunarlífið. Amerískir bankar létu
fella gengi íslenzkrar krónu, svo dýrtíðin hefur nú sigrað í
kapphlaupinu við kaupgjaldið. Ríkisvaldið er af einokunarklík-
unni hagnýtt sem tæki til þess að auka dýrtíðina á almenningi
sem sárast. Samtímis hefur ríkisstjórnin af ráðnum hug skipu
lagt atvinnuleysi, til þess að draga úr kaupgetu almennings
og halda niðri kaupgjaldinu. Samræmdar hemáðaraðgerðir
eru framkvæmdar af ríkisstjórn og Landsbaaka til þess að
hindra fólkið í að hagnýta vinnuafl sit.t til fulls og auðga
þjóðfélagið: bæði bannað að byggja íbúðarhús, nema með sér-
stöku leyfi amerísks leppráðs, og lánveitingar til íbúðarhúsa
svo að segja hindraðar. Lánsf járkréppa er skipulögð samkvæmt
amerískum fyrirmælum, til þess að rýja bjargálna millistéttir
og verkalýð, en safna öUum auð þjóðfélagsins í hendur örfárra
áuðmanna að amerískri fyrirmynd. Útflutnings- og innflutnings-
verzlun harðfjötruð I höndum ríkisstjórnar, til þess að draga
úr framleiðslu, tryggja erlendum auðhringum forréttindi til ís-
lenzkra afurða undir framleiðsluverði og einokunarherrunum
völdin yfir efnahagslífinu. — Þannig er nú af amerískum ein-
okunarleppum verið að eyðileggja afkomu alþýðuheimilanna og
efnahagsfrelsi íslendinga.
Og sömu leppar hafa ikallað amerískan her in.n í landið,
samkvæmt kriífu auðdrottnanna vestra og veitt þeim öll þau
sérréttindi í landinu, sem þeir hafa óskað. Sjálfstæði landsins
er þannig fótumtroðið.
Með því að kjósa flokka eins og Ihaldið, Framsókn og Al-
þýðuflokkinn, heí’ur islenzka þjóðin kallað yfir sig atvinnu-
leysið, dýrtíðina, lánsf járkreppuna, liernámið. Allar kúgunarráð-
•stafanir amerísk-íslenzka einokunarvaldsins allt frá því að
ræna af þeim fáú aurum, sem húsmóðirin liefur til að kaupa
mta fyrir, og til þess að ræna oss Islendinga fóstúrjörðinni,
Frelsun Islands undan yfirgangi og hernámi ameríska auð-
valdsins, frelsun alþýðuiwiar af klafa atvinnuleysis og dýrtíðar,
kaupkúgunar og fátæktar, frelsun þjóðarinnar úr klóm harð-
svíraðasta einokun»rvaids, — allt verður það að vera verk
Fyrir sjö árum.
I dag er þjöðhátíðardagur Is-
lendinga, fæðingardagur Jóns
Sigurðssonar forseta'og stofn-
dagur lýðveldisins, sem íslend-
ingar stofnuðu á Þingvölium
17. júní 1944, eftir að sjö alda
áþján létti af þjóðinni.
Það ,Var mikill fagnaðardag-
ur þegar lýðveldið var stofnað
á íslandi. Svo að segja öll
þjóðin gekk til þess verks af
einhug og festu. Þá var vOr
í lofti og hugur. þjóðarinnar
gagntekinn af fögnuði. Aldrei
hafa Islendingar verið jafn
samtaka og aldrei hefur þjóðin
stefat jafn ákveðið að einu
marki og við undirbúning lýð-
veldisstofnunarinnar. Allur á-
greiningur um dægurmál var
lagður til hliðár. Þjóðin fagn-
aði öll endurheimtu frelsi eftir
sjö alda áþján og niðurlæg-
ingu.
manni við matborð Marshalls.
Þeir hafa kallað yfir alþýðuna
örbyrgð atvinnuleysis og
skorts. Og þeir hafa afhent
Frón erlendu herveldi til árás-
ar undirbúnings á þá frjáisu
Evrópu, sem risið hefur úr
rústum' tveggja heimsstyrjalda.
— Þessvegna verða Islending-
ar að búa við þá þungu skap-
raun á þessum þjóðhátíðardegi
að land þeirra er vettvangur
bandarísks innrásarliðs, sem
ógnar frelsi, menningu, tungu
og manndómi þessarar fámennu
þjóðar. Þung er sú sök sem
hvílir á þeim Islendingum er
að slíku verki hafa unnið.
Eimskip
Brúarfoss er í Hamborg. Detti-
foss fór frá Sandi um hádegi í
gær 16.6. til Stykkishólms og fsa
fjarðar. Goðafoss fór frá Kaup-
mannahöfn á hádegi í gær
til Hambórgar. Gullfoss fór
frá Kaúpmaninahöfn á . hádegi
í gær 16.6. til Leith og Reykjavík-
ur. Lagrarfoss kom til Hull 15.6.,
fer þaðan 16.6. til Reykjavíkur.
Selfoss er í Reykjavík. TrÖllafoss
fór frá Halifax 11.6. til Reykja-
víltur. Katla fór frá Húsavík 15.G.
til Djúpavíkur og Reykjavúkur. .
Skipadeild SÍS
Hvassafell er í Ibiza,- Arnarfeil
kemur til Denia í dag frá Ibiza.
Jökulfell er á leið frá Guayaquil
í Ecuador, til New Orleans.
Enin munu þeir sverja.
Stórhugur og nýsköpun.
Það var í fullu sam.ræ'mi við
það hugarfar, sem ríkti al-
mennt með þjóðinni í sambandi
við stofmm íslenzka lýðveldis-
ins, að- andstæðar stéttir tóku
síðar sana ár höndum saman
til þess að lyfta grettistökum
á sviði atvinnumálanna og efna
hagslégrar endurreisnar. Mynd-
un nýsköpunarstjórnarinnar, og
þau stórvirki sem hún vann,
var rökrétt og’ eðlileg þróun
eftir að fjötrar hinnar fornu
kúgunar voru að fullu brostnir.
Styrkur verkalýðshreyfingar-
innar og flokks hennar, Sósíal-
istaflokksins, var hin nauðsyn-
lega forsénda fyrir því að þetta
tókst, þrátt fyrir ákveðna and-
stöðu valdamikilla afia í þjáð-
félaginu, sem vildu beina þró-
uninni í allt annan farveg og
trúðu á hrun og kreopu.
I dag munu þeir sem sekir
eru, um svikin við hugsjón lýð-
veídisins ávarpa þjóðina, beita
hátíðlegu orðskrúði og sverja
frelsi hennar enn dýra eiða. For
sætisráðherrann talar, maður-
inn sem veitir því ráðuneyti
forstöðu sem svívirðilegast hef-
ur fótum troðið lög og stjórnar
skrá þjóðarinnar og látið sem
Alþingi væri ekki til. Borgar-
stjórinn í Reykjavík trónar á
Amarhóli, maðarinn sem sór
sjálfstæði Islands ævarandi
hollustu 1946, en hefur síðan
hlýtt af vesalmannlegri auð-
sveipni hverri fyrirskipun
fBandaríkjastjórnar um nýjar
tilsiakanir og afhendingu lands-
réttinda. Það eitt mun skorta
á, frá sjónarmiði Bandaríkja-
leppanna, að sjálfur McGaw
hernámsstjóri Isiands flytji að-
alræðuna á þjóðhátíðardegi Is-
lendinga.
Ríkisskip
Hekla er vaentanleg- til Reykja-
víkur um hádegi.í dag frá Gias-
gow. Esja verður væntanlega á
Akureyri 5 dag. Herðubreið er
væntanleg til Reykjavíkur í kvöld
frá Vestfjörðum. Skjaldbreið er
á Húnaflóa. Þyrill er væntanlegur
til Reykjavíkur í dag aS; vestan
og norðan. Ármann var í Vest-,
mannaeyjum í gær. - -
RINW
Munið sýninguna „IslanJ í aug-
um barna“ I Listvinasalnum við
Freyjugötú.
Barnaheimilið Vörboði. ' i
Börn, sem dvelja eiga á heimil-
inu í sumar komi.. til læknisskoð-
unar 5 Líkn, sem hér segir: Á
mánudag 18: júní kl. 1.30.'e.h. —
Börn nr. 1—40, á miðvikudag 20.
júní kl. 4,30 e. h. Börn nr. 41—81.
Farangur barnanna afhendist mið-
vikudag 20. júní kl. 9' fyrir há-
degi, við Austurbæjarskólann. —
Börnin fara fimmtudaginn 21. júní
kl, 1.30 e. h. frá Austurbæjarskól-
anum. Nefndin. .
t
Dagur þjóðaruiuar.
Freisi íslands
fótum troðið.
Þeim stórhug og þeirri bjart-
sýni sem greip um sig meðal
allra landsmanna við stöfnun
lýðveldisins og á timabili ný-
sköpunarinnar hafa á skömm-
um tíma verið greidd þung
högg og clrlagarík. Lýðveidið
hefur verið svikið og svívirt af
sömu mönnum sem sóru því
dýrasta eiða á morgni þess.
Þeir afhentu framandi hernað-
arstórveldi Keflavíkurflugúöll,
þeir s-viku land og þjóð inní
árásarbandalag gráðugustu auð
valdsstórvelda veraidárinnar,
lögðu hið unga lýðveldi í faðm
blóðugustu nýiendukúgara sög-
unnar. Þeir sviku hugsjón ný-
sköpimar og atvinnulegrar upp-
byggingar. Þeir fjötruðu þjóð-
ina við efnahagskerfi einokun-
arstórveldanna, sviftu hana
fjárhagslegu sjáifsforræði og
hafa gert hana að beininga-
Þótt allt það sem Islending-
um er heigast hafi verið fótum
troðið og svívirt af svikulum
valdhöfum mun íslenzka þjóðin
sjálf vaka á verðinum og
strengja þess heit, að linna
ekki baráttu sinni fvrr en land
hennar er aftur frjálst. Dag-
urinn í dag, 17. júni, er einmitt
dagur .slíkra heit3trenginga.
Baráttan fyrir endurheimt efna
hagslegs og stjórnarfarslegs
sjálfstæðis þjóðarinnar verður
fyrst og fremst verk alþýðunn-
ar og annarra þjóðlegra, ó-
spiiltra afia, hvar í stétt sem
þau er að finna. Minnumst
þess í dag, á fæðingardegi Jóns
Sigurðssonar, að oft hefur syrt
að í sögu „og lífi þjóðarinnar,
en hún þó haldið lífi sínu og
sæmd og komið hert og sterk-
ari. úr eldrauninni. Svo mun
enn verða, þótt spilltasti hluti
höfðingjastéttar landsins hafi
kosið sér það cmurlega hlut-
skipti, að bregðast málstað
hennar á örlagastund, og ganga
á mála hjá erlendu kúgunar-
valdi..
. 1 gær voru
gefin saman x
hjónaband af;
sr. Jóni' Thórar
ensen, Kristín
Salomonsd. og
Hallgrímur Pétúrsson, Stóra-Ási
á Seltjárnarnesi. Heimili þeirra
vérður að Stóra-Ási. — 1 gær voru
gefin saman í hjónaband af séra
Jóni Thórarensen xxngfi'ú Birna
Magnfisdóttir og Einar Magnús-
son stud. econ. Heimili þeirra verð
ur að Egiisgötu 14. — 1 gær voru
gefin saman í hjónabánd x
Strandakii-kju af séfa. Helga
Sveinssyni, ungfrú Eydís Bjarnad.
frá Þorkelsgerði í Selvogi og Rói-
bert Nikulásson fx-á Vopnafirði. ’
Heimili ungu hjónanna verður að
Langholtsvegi 186. — 1 gær voru
gefin saman af séra Emil Björns-
syni þrenn hjón: . Gyða. AksfelSd.
(frá HHsey) og Jón Þorbjörn Ein-
arsson, málari. Heimili þeirra ar
að Vesturvaliágötu - 7. — ' Sigrún
Sigurðardóttir tannsm. og-Sigurð-
ur Magnússon framkv.stj. I.B.R.
Heimili þeirra er að Freyjugötu
42. — Rannveig Jónsdóttir og
Sigurður Stefánsson sjómaður.
Heimili þeirra er að Urðarstíg 14.
\\LV
Hjónunum Ester
^ , Rut Ástþórsdóttur
” w —■ og Halldóri Magn-
7 \~ ússyni, Hvamms-
i M t vík í Kjós, fæddist
15 marka sonur
15. þessa mánaðar.
%
fjöldans sjáifs, sem vaknar til meðvitundar um’ vald sitt og
rétt og sér hvernig lrnnn hefur verið svikinn.
Hver 17. júní er eggjun til þjðarinnar um slíka þjóðarvakn-
ingu: til varnar og sóknar fyrir lýðréttindin og lífskjör fólks-
ins, fyrir menningu og frelsi þjóðarinnar, undir kjörorði for-
ingjaos mikla:
EIGI VÍKJA! ”
12.00 Nýr útvarps-
sendir stöðvarinn-
ar á Vatnsendahæð
telcinn til notkun-
ar: Ávarp: Gunn-
laugur Briem verlt
fireðingur. 14.00 Útvarp frá þjóð-
hátíð í Reykjavík: a) Guðsþjón-
usta í Dómkirkjunni. Séra Jón
AÚðUns prédikar. Dómkirkjukór-
jnn7og Stefán íslandi óperusöngv-
FramiL & 6, síðu. j