Þjóðviljinn - 08.07.1951, Síða 4
4)
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 8. júlí 1951
ÞlÓÐViLJINN
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línui').
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
>___________________________1------------------——/
Hámark hræsninnar
„í dag helga Bandaríkin sig að nýju þc-im hugsjón-
um, er sköpuöu grundvöllinn aö lýðveldisstofnun vorri.
Vér helgum oss aö nýju trú vorri og trausti á þeim rétt-
indum, sem guð heíur gefiö öllum mönnum.
„Þessi réttindi liáfa verið gerö kunn á ýmsum tím-
um, á ólíkum tungum og á margan hátt. Oss voru þau
kunngjörö í sjálfstæöisyfirlýsingu vorri á þennan hátt:
„Þaö ér álit vort, aö það sé auösætt og ótvírætt, aö
allir menn séu fæddir jafnir, að skapari þeirra hafi veitt
þeim ákveöin, óskoruö réttindi, en þar á meöal eni lífið,
írelsið og leitin aö. lífshamingju.“
Svo fagurlega kcmst Truman Bandaríkjaforseti aö
prði í ávarpi sem hann sendi frá sér á 175 ára afmæli
Bandaríkjanna fyrir nokkrum dögum, en ávarpið var
sent út á marsjallíslenzku af utanríkisráöuneytinu hér
og m.a. lesið í heild í ríkisútvarpinu og birt í marsjall-
blöðunum.
En á sama tíma og Truman buröaðist við aö setja
saman þessar göfugmannlegu setningar um hugsjónir
Bandarikjastjórnar, var allt hiö volduga lögreglukerfi
þessarar sömu stjórnar ao hefja hundeltingu á fjórum
bandarískum þegnum, miöstjórnarmönnum Kommúnista-
ílokks Bandaríkjanna. Sjö miðstjórnarmenn höföu þegar
verið settir í fangelsi, en þessir fjórir höfðu ekki fundizt.
Hvaö höföu þessir menn til saka unniö? Sök þeirra
var ein og aðeins ein. Þeir höföu gerzt svo ósvífnir að
halda fram skoöunum sem brutu í bága við hagsmuni
bandarlska auövaldsins og berjast fyrir framkvæmd þeirra
skoöana á lýöræðislegan hátt. Dómstóllinn sem dæmdi
þá haföi engav aðrar sakir en þær aö sakborningarnir
héldu fram kenningum Marx og Leníns. Þeir höföu bar-
izt fyrir framkvæmd sósíalismans, þeirrar stefnu sem er
beint áframhaid þeirra hugsjóna sem mótuöu sjálfstæðis-
yíirlýsingu Bandaríkjanna fyrir 175 ámm.
Og á meðan blóöhundar lögregluvaldsins snuöruðu í
Icit að mönnum þeim sem gerzt höfðú svo djarfir aö taka
sjálfstæöisyfirlýsinguna bókstaflega, hélt fatasalinn í
embætti forsetá áfram:
„Eigi leitumst vér við aö þröngva öðrum til þess aö
taka upp háttu vora. Eigi leitumst vér heldur viö aö auka
auð vorn á kostnaö annarra."
Um söinu mundir var liöið eitt ár síðan Bandaríkin
hófu ofbeldisárás sína á Kóreu, til þess aö þröngva kór-
verskri alþýðu til að beygja sig undir vald bandaríska auð-
valdsins. Á því ári höföu bandarískir auðhringar grætt
meira en nokkvu sinni fyrr f sögu sinni á moröum og tor-
tímingum þar eystra.
Einnig um sömu mundir voru þrjú ár liöin síðan
marsjall-„hjálpin“ kom til framkvæmda, aðferð Banda-
ríkjanna til að leggja undir sig fjárhagskerfi þjóöanna í
Vesturevrópu. Við íslendingar vitum manna bezt aö þau
þrjú ár hafa með öllu kippt undirstööunni undan efna-
hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar, þannig aö valdamenn-
irnir í Wall Street ráða nú öllu sem þeir vilja ráöa um
lífskjör og athafnir almsnnings hér á landi. Og söm
hafa áhrifin prðiö hjá öörum þeim þjóðum sem notið
liafa þessarar sérstæðu hjálpsemi Bandaríkjanna.
★
En hverju máli skiptir veruleikinn, þegar Bandaríkin
hafa áróðurskerfi sitt í lagi! Þá geta ótal blöö og útvarps-
stöðvar haldiö því fram aö allir menn séu jafnir í Banda-
ríkjunum á sama tfma og negrar eru ofsóttir á sama
liátt og Gyðingar í Þýzkalandi nazismans. Þá er hægt
að básúna þaö yfir heiminn að Bandaríkin séu háborg
frelsisins á sarna tíma og menn eru fangelsaðir og eltir
cf blóðhundum fyrir aö halda fram skoðunum sínum.
Þá er hægt aö setja saman háfleyg ummæli um göfgi og
ósérplægni milljónaranna í Wall Street á sama tíma og
veriö er aö gera æ fleiri þjóöir af ófrjálsum bandarískum
nýlendum.
Athyglisverð auglýsing.
Eftirtektarverð auglýsing
birtist i fimmtudagsblaði Þjóð-
viljans frá Efnagerðinni Stjam
an. Þetta fyrirtæki tilkynnti að
það gæti ekki auglýst hina
margeftirspurðu framleiðslu
sína, Stjörnu-búðinga, þar sem
það hefði ekki getað fengið
innflutningsleyfi fyrir hráefn-
um í þá. Jafnframt tók fyrir-
tækið fram, að Stjörnu-búðing-
ar myndu verða 60—80% ódýr-
ari en þeir búðingar sem fluttir
eru nú inn frá Hollandi, og
hefðu ekki reynst betri. Lengri
var tilkynningin ekki, en hún
var nógu löng og skilmerkileg
til þess, að hún ætti að vekja
menn til umhugsunar um, hvem
ig ástandið er orðið í atvinnu-
og viðskiptamálum þjóðarinnar,
undir forustu núverandi ríkis-
stjórnar.
Allt fyrir „jafnvægið“.
Og hvað segir þessi litla aug-
lýsing okkur. Hún segir okkur
þann sannleika, sem öllum ætti
að vera kunnur, að ríkisstjórnin
er með þólitík sinni að drepa
íslenzka iðnaðinn. Iðnaðinum er
neitað um nauðsynlegustu hrá-
efni til að vinna úr og ekkert
um það skeytt þótt framleiðsl-
an dragist saman, fyrirtækin
stöðvist, og fólkið sem við þau
vinnur missi atvinnu sina. I
þessu sambandi skiptir það
engu fyrir ríkisstjórnina og
innflutningsyfirvöld hennar
þqtt sannað sé og margreynt,
að framleiösla íslenzka iðnaðar-
ins geti verið og sé langtum
ódýrari en sambærileg erlend
iðnaðarvara, sem flutt er til
landsins fullunnin. Allt skal til
þess unnið að geta svift iðnað-
inn möguleikum til vaxtar og
þroska, og fólkið sem við hann
vinnur atvinnu sinni. Þetta er
ein leiðin sem ríkisstjórnin fer
til sköpunar jafnvægisins, sem
hún og hagspekingar hennar
keppa að, þ. e. minnkaðrar at-
vinnu og skertrar kaupgetu
hins vinnandi fólks.
Sundlaug í vesturbæn-
um.
að líða mörg ár þangað til
þessu áhugamáli okkar verður
hrundið í framkvæmd. Ég tel
að við vesturbæingamir eigum
fullan rétt á, að tillit sé tek-
ið til óska okkar og þarfa í
þessu efni. En ef svo kyniii nú
að fara, mót von minni, að
einhver dráttur yrði enn á
byggingu sundlaugar fyrir
þennan t bæjarhluta, þá er það
algjör lágmarkskrafa okkar að
bærinn komi hér einhversstað-
ar upp almenningssólbaðsskýli.
Hér er hvergi nokkur blettur
sem almenningur getur á frjáls
an hátt gengið að og notað til
sólbaða. Við höfum fundið sárt
til þess á góðviðrisdögunum und
anfarið hvað okkur vantar á
þessu sviði. Ég vona að þess
verði ekki langt að bíða að
þetta áhugamál okkar nái fram
að ganga. Við þurfum að fá
sólbaðsskýlið án frekari tafar,
og ætti það sannarlega ekki að
vera bænum ofviða. — Vestur-
bæingur".
* ★ *
Eimskip
Brúarfoss kom til Antwerpen 4.
þm.; fer þaðan til Hull of Rvíkur.
Dettifoss er í N. Y. Goðafoss og
Selfoss eru í Rvík. Gullfoss fór
frá Rvík í gær til Leith og K-
hafnar. Lagarfoss kom til Lysekii
6. þm. frá Húsavík. Tröllafoss er
i Hull; fer þaðan væntanl. 10. þm.
til London og Gautaborgar. Barj-
ama fór frá Leith i gær til R-
víkur.
Skipadeild SIS
Hvassafell losar salt á Bakka-
firði. Arnarfell lestar saltfisk í
Ólafsvík. Jökulfell fór í fyrradag
frá Valpariso í Chile áleiðis til
Guayaquil i Ecuador.
Ríkisskip
Hekla kom til Glasgow um há-
degi í gær. Esja var væntanleg til
Akureyrar í gærkv. Herðubreið
er í Rvík. Skjaldbreið var á Skaga
strönd síðdegis i gær. Þyrill er
norðanlands. Ármann átti að fara
frá Rvík í morgun til Vestmanna-
eyja.
,,Vesturbæingur' ‘ skrifar: —
Vlig langar til áð biðja Bæjar-
óstinn að vekja athygli á máli,
:m við hér í vesturbænum höf-
m mikinn áhuga fyrir. En það
• bygging sundlaugar og sól-
iðsskýlis einhversstaðar í vest
rbænum. Mér er kunnugt um,
5 þessu máli hefur oft verið
-eyft í bæjarstjórn undanfar-
ídi ár, í sambandi við af-
’eiðslu fjárhagsáætlunar bæj-
dns, en það ekki náð fram að
mga. Tel ég það illa ráðið.
eykjavík er orðin stór bær og
arlægðir allar fara vaxandi.
ið er t. d. býsna langt fyrir
tkur hér í vestasta hluta bæj-
ins að fara inni í Sundhöll
a sundlaugar, ef okkur dettur
hug að skreppa í sund. Að-
aða okkar í þessu efni myndi
:rða allt önnur og bet.ri ef
rggð væri sundlaug hér í vest
bænum.
Sólbaðsskýíi.
„,Ég vona að ekki þurfi enn
Fiugfélag fslands
1 dag er áætlað að fljúga til Ak-
ureýrar (kl. (9,15 og 16,30), Vest-
mannaeyja og Sauðárkróks. — Á
morgun eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar (kl. 9,15 og 16,30),
Vestmannaeyja, Ólafsfjarðar, Norð
fjarðar, Seyðisfjarðai', Kirkjubæj-
arklausturs, Hornafjarðar, Siglu'-
fjarðar, Kópaskers og frá Akúreyri
til Siglufjarðar, Ólafsf jarðar og
Kópaskers. — Gullfaxi er vænt-
anlegur kl. 20,15 í kvöld frá K-
höfn og Osló. Meðal farþega er
norska knattspyrnuliðið Váler-
engen.
Loftleiðir h. f.
1 dag er ráðgert að fljúga til
Vestmannaeyja og Keflavíkur (2
ferðir). Á morgun á að fljúga til
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Akur-
eyrar, Hellissands og Keflavíkur
(2 ferðir).
I gær voru gef-
in saman x
hjónaband af sr.
Þorsteini Björns
syni Kristín M.
Böðvarsdóttir
og Hinrik Finns
son. Heimili þeirra verður á Lauf-
ásvegi 24. — S. 1. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af séra
Jóni Thórarensen ungfrú Krist-
björg Hjartardóttir og Einar F.
Hafberg. Heimili þeirrá er á Öldu-
götu 41. — 1 fyrradag voru gefin
saman í hjónaband Erla Páls-
dóttir og Hörður Hjartarson: —
Heimili þeirra er á Lindargötu 63.
—- 1 dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Gai'ðari Þbr-
steinssyni Ólafía Laufey Guð-
mundsdóttir og Þorkell Aðalsteins-
son. Heimili þeirra verður í Sand-
gerði.
son, sjómaðui’,
S. 1. föstudag opin-
beruðu trúlofun
sína ungfr. Magða-
lena Ólafsdóttir,
Laugarnesveg 58
og Björn Björns-
Langholtsvegi 45.
Hafdísi Eggerts-
n ,_> pj " dóttur og Valentín-
Aí us' Guðmundssyni,
í \ Mávahlíð 19, fædd-
[ v ist 14 marka dótt-
ir 6. júlí s. 1.
Happdrætti Iláskóla Islands
Dregið verður i 7. flokki n. k.
þriðjudag. Endurnýjun fer frarn
á morgun, og ættu menn að gæta.
þess að gleyma ekki að endrn-
nýja.
'ili Vi-'IS Laugarneskirkja.
Messa kl. 11 f. h.
■rJ|PP|j Sr. Garðar Svavars
llHHpg kirlcja, Messa kl. 2
e. h. Sr. Garðar
Svavarsson. Nesprestakall. Messa
fellur niður vegna viðgerða bæði á
kapellu Háskólans og Mýrarhúsa-
skóla. Sr. Jón Thórarensen.
theol.
til
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni. — Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki. — Simi 1616.
Helgidagslæknir er Alfreð Gisla-
son, Barmahlíð 2. — Sími 3894.
Fastir liðir eins og
venjulega. Kl. 10,30
Prestvígslumessa í
Dómkirkjunni. —
Biskup vígir Björn
H. Jórisson cand.
Árnesprestakalls í
Strandaprófastsdæmi. — Sr. Jón
Auðuns dómprófastur þjónar fyrir
altari. Sigurbjörn Einarsson próf.
lýsir vigslu. Aðrir vígsluvoftar:
Ásmundur Guðmundsson prófessor
og séra Jón Guðnason skjalavörð-
ur. Hinn nývígði prestur prédikar.
14.00 Þýzk messa í Dómkirkjunni
(séra Horst Schúbrig prófastur i
Hessen). 15,15 Miðdegistónleikar.
16.15 Fréttaútvarp til Islendinga
erlendis. 18.30 Barnatími (Þor-
steinn Ö. Stephensen). 19,30 Tón-
leikar (pl.) 20,20 Frá Þjóðleikhús-
inu: Óperan „Rígólettó" eftir Giu-
seppe Verdi. Hljómsveitarstj.: dr.
Victor Urbancic. Leikstjóri: Sim-
on Edwardsen. Söngvarar: Stefán
íslandi, Guðmundur Jónsson, Else
Múhl, Kristinn Hallsson, Guðt
munda Elíasdóttir, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, ffivar Kvaran, Gunn
ar Kristinsson, Einar Sturluson,
Sigurður Ólafsson, Elín Ingvars-
dóttir, Karl Sigurðsson og Hanna
Helgadóttir. Ennfremur söngmenn
úr karlakórnum „Fóstbræður". —
22,35 Fréttir og veðurfregnir. 22,40
Danslög (plötur) til 23.30.
Útvarpið á morgun
Fastir liðir eins og venjulega.
13,00—13,30 Óskalög sjúklinga
(Björn R. Einarsson). 19,30 Tón-
leikar: Lög úr kvikmyndum (pl.)
20,20 Útvarpshljómsveitin; Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar. 20,45
Um daginn og veginn (séra Eirík-
ur Brynjólfsson á Útskálum). 21,05
Einsöngur: Gerhard Húsch syngur
(pl.) 21,20 Erindi: Undrabarnið í
Lúbeck; síðara erindi (séra Sig-
urðui' Einarsson). 21,40 Tónleikar
(pl.) 21,45 Frá Hæstai'étti (Hákon
Guðmundsson hæstaréttarritari).
22,10 Létt lög (pl.) til 22,30.