Þjóðviljinn - 23.08.1951, Page 3
Fimmtuiagur 23. ágúst 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Allt hœkkar
nema ríkisstjórnin
smækkar
VERÐHÆKKANIR þær sem
orðið hafa tvö síðustu árin hafa
margar hverjar komið svo
smátt og smátt að við höfum
ekki ailtaf veitt því eftirtekt,
en síðustu mánuðina virðist
dýrtíðin í landinu rísa eins og
iholskefla sem enginn treystir
sér lengur að reisa rönd við.
VIÐ húsmæðurnar stöndum
ráðalausar að láta kaupið
hrökkva fyrir brýnustu þörfum.
Frá því í maí í vor hafa allar
nauðsynjavörur undantekning-
arlaust hækkað meira eða
minna. Hækkun trygginga-
gjalda, lyfja og strætisvagna
gjalda eru einnig hlutir sem
ikoma tilfinnanlega við fólk, en
látum okkur halda okkur við
nokkrar nauðsynjavörur og at-
huga hvað þær hafa hækkað
síðustu 2-3 mánuðina.
Nýlega hækkaði kaffipakkinn
enn þá einu sinni, snemma í
vor var hann.... 8,40 nú 10,45
Strásykur..... 4,60 nú 5,25
Molasykur .....5,16 nú 5,50
Hrísgrjón..... 4,70 nú 6,00
Hveiti.........2,80 nú 4,10
1 heilhveitibrauð 2,25 nú 2,70
Grænsápa 1 pk. . 7,50 nú 10,00
HÉR er aðeins stiklað á
nokkrum liðum til þess að sýna
að við alþýðukonurnar þurfum
ekki að undrast, þótt kaupið
hrökkvi ekki til; jafnvel þótt
það hækki örlítið. Almenningur
er ofurseldur dýrtíðinni. Menn-
írnir sem lýstu því yfir við
síðustu alþingis- og bæjar-
stjórnarkosningar að þeir ætl-
uðu að stöðva dýrtíðina, berjast
fyrir nýjum ibúðum og lækkandi
sköttum ef þeir aðeins yrðu
kosnir og kæmust á þing
stjórna landinu nú. Urga ekki
kosningaloforð þessara herra í
eyrum ykkar, góðu konur? Eig-
um við að halda áfram að taka
öllu með þögn og þolinmæði,
hvað miklum sköttum og á-
lögum, sem á okkur er dembt?
ÍEr ekkí kominn tími til að við
gerum okkur í fullri alvöru
grein fyrir af hverju þessi ó-
stjórn í landinu stafar? Höf-
um við ekki sem helmingur
kjósenda lvft litlum köllum upp
í ábyrgðarmiklar stöður, og
,súpum við og heimili okkar
: c-kki seyðið af því nú?
STÓR kvenfélagasambönd og
kvenfélög hafa margsinnis mót-
mælt dýrtíð og svartamarkaðs-
braski í landinu, en slíkar sam-
þykktir verða næstum brosleg-
! ar og bera engan árangur, sé
þeim ekki fylgt eftir með al-
vöru og einbeittni. Sameinaðar
hafa íslenzkar konur lyft mörgu
Grettistakinu þjóðinni til
. þroska. Hver vill halda því
fram að kvennasamtökin gætu
ekki látið meira til sín taka í
þessum málum.
Um íslenzkan listiðnað
Bréf frá Kaupmannahöfn
Á stríðsárunum var flutt inn
til Reykjavíkur mikið af ófögr-
um leirmunum, sem ég veit ekki
hvaða villimönnum hafa verið
ætlaðir upphaflega, og fylltust
margar búðir af þessu og tæmd
ust aftur, en kvenfólkið var að
staðnæmast fyrir utan glugg-
ana og heyrðist vera að veg-
sama í háum tónum dýrðina
fyrir innan. Nú þykist ég vita
að þessir fílar með einhvers-
konar hræðilega hnútaveiki um
allan kroppinn, þessir „plattar“
með myndum af heimsfrægum
stjórnmálamönnum logagýltum,
muni standa og hanga enn á
mörgum vegg og á margri hillu
og vera augnayndi margri góðri
húsmóður, skárt og heiður
síns húss, og langtum hærra
metnir en nokkrum hefði getað
til hugar komið, þegar verið
var að framleiða þetta af ó-
tuktarskap handa villimönnum.
Það var haldin hérna í vor
sýning á norskum listiðnaði í
hinu sama húsi og Jónas Hall-
grímsson háði dauðastrið sitt,
fárveikur síðustu nóttina og
næsta óliklegur til að hafa ver-
ið að lesa skáldsögu (hver sem
kann að hafa spunnið þetta
upp) Ég gekk þarna einu sinni
og fannst hver hlutur öðrum
eigulegri og skemmtilegri og
þó að hver þeirra væri frum-
smíði sem ekki á enn marga
sína líka, var verðið mjög skap-
legt. Þó nokkuð sé umliðið man
ég enn vel eftir mörgu, einkum
myndavefnaðinum. Þar var
veggtjald ofið af Hannah Rygg
en, ágætri listakonu norskri og
vel frægri um Norðurlötnd. Ég
vil skora á íslenzku kvenfé-
lögin að þau hlutist til um að
hennar, en rósaverkið, sem hún
flosaði og krosssaumaði, er enn
verið að burðast við að stæla
á íslandi.
Á stríðsárunum (1939-1945)
hljóp mikill vöxtur í ýmislegt
á íslandi, þ.á.m. sjálft fólkið;
bæ'kur urðu óhandleikanlega
stórar, stólar og sófar og önn-
ur húsgögn beigdust út á alla
kanta og íbúðimar þrefölduð-
ust að stærð eða vel það. En
náttúran, sá mikli listamaður
segir að svo megi ekki til
ganga, að dautt eða lifandi nái
að vaxa í óhófi, henni þykir
meðalhófið fegurst, allt það,
sem fer fram úr brýnni þörf
bannar hún.
Á sýningu þessari var svo
að sjá að náttúran hefði feng-
ið að hafa hönd í bagga með
listafólkinu, svo hagkvæmt og
hæfilegt virtist allt vera. En
það þýðir ekki að lýsa hlut-
unum með orðum, ég vil aðeins
geta þess að mér virðist að
íslenzkur listiðnaður hefði orð-
ið hjáleitur þarna, með undan-
tekningum þö, en þetta er því
meiri óþarfi sem ágætar list-
gáfur búa með þjóðinni og list-
smekkur margra manna batnar
ár frá ári. En þó að oss sé'
áskapaður skilningur á því
hvað fagurt er og hvað ekki,
virðist mér sem ekkert nám sé
lengra en listnámið. Margar ný-
stárlegar myndir eru fyrst ráð-
gáta fyrir augað, en þá skalt
þú ekki gefast upp, heldur
skoða betur, og þrautseigja þín
mun fá ríkuleg laun. Og hafi
einhverjum orðið það á í ein-
feldni að halda, að heimili sé
því betra sem það er stærra,
húsgögn þess því betri sem þau
FaUegur
síðsumarsfrakkl.
Athugið
að kragann
nota sem
Hettu
ef svalt er
í veðri.
MATAK-
UPP-
SKRIFTIR
Krækiberjasaft
1 1 krækiberjasafi
400 gr sykur
Betra er að berin séu vel
þroskuð. Þau eru hreinsuð og
þvegin úr köldú vatni og sett
í krukku. Krukkan er látin
ofan í pott með vatni og hitað
þangað til að öll berin eru
sprungin. Berjunum er hellt í
línpoka, sem hengdur er á slá
eða grind. Það má ekki hræra
í berjunum heldur láta síga úr
þeim án þess. Það tekur lengri
tíma, en saftin verður tærari
og betri þannig.
I 1 1 af krækiberjasafa er
sett 400 gr af sykri og það
soðið í 20 mín. við hægan eld.
Froðan veidd vel ofan af. Saft-
inni 'hellt sjóðandi heitri í
heitar fiöskur. Tappi settur í
og lakkað yfir. — Geymist á
köldum stað.
Krækiberjasaft með
benzoesýru (hrá)
1 kg. krækiber
% gr benzoesýra
%—xh kg sykur
5 gr vínsýra
HH
haldin verði í Reykjavik sýning
á veggtjöldum Hannah Rýggen
og verkum annarra ágætra lista-
kvenna norskra, ef það er
mögulegt og ef unnt væri að
vekja íslenzkar hannyrðakonur
af svefninum í sínu hundrað-
æra krosssaums-rósagerði. Eng-
in kona á Islandi mundi fást til
að bera klæðnaði Karólínu Am-
elíu drottningu Kristjáns VIII.
og tæplega að kaupa „langstól-
inn“ hennar, chaiselongue
Hannyrðir í
nútímaskiln-
ingi. — Felatta
teiknuð og
saumuð af
finnsku lista-
konunni Kalju
Mustakollio.
taka meira pláss, menn því
betri sem þeir vega meira, þarf
þó ekki að vera öll von úti
um hann, einnig hann getur
lært að athuga betur, skoða bet-
ur, skilji betur. En þeim sem
segja fyrirvaralaust að mynd
eftir meistarann Braque eða
Svavar Guðnason sé „1 jót“ og
„vitleysa" getum við ekki hjálp-
að; út úr blindni þeirra er
engin leið því þeir „vita“ og
trúa engum nema sér.
Ég vil leggja til að haldin
verði í Reykjavík sýning slík
sem hér var um að ræða, feng-
in frá nágrannalöndum úrvals1-
hlutir til nytsemdar og prýði,
húsgögn, tjöld, dúkar, silfur-
munir o.s. frv. Einangrun sú
sem komið hefur verið á á Is-
landi á síðustu árum má ekki
verða langvinn. Það var fyrir
sig þó að við staðnæmdumst
öldum saman í einangrun við
Islendingasögur, og unaðslegan
tréskurð og útrennur frá 14.
öld. En að staðnæmast við
Churchill logagiltan og mamm-
út-sökkvabekki frá Bandaríkj-
unum (svo kalla ég sófa sem
maður sekkur í) það er lakara,
þó ekki sé nema í 5 ár. Við
verðum að sjá hvað aðrar þjóð-
ir kunna fyrir sér og skilja hvar
við stöndum.
Málfríður Einarsdóttir
Krækiberin eru hreinsuð og
þvegin vel úr köldu vatni. Sett
í leirkrukku. 1 af vatni er
soðið, í því er vínsýran brædd,
vatnið kælt. Þegar það er vel
kalt er því hellt yfir berin, bíði
í tvo daga. Hræra þarf í berj-
unum við og við. Öllu úr krukk-
unni er hellt í línpoka, saftin
látin síga úr berjunum, án þess
að hrært sé í þeim og síðan’
mæld. I hvern líter af saft er
látið minnst % kg sykur, en
í sykurinn er áður blandað
benezoesýrunni, sem áður er
brædd í heitu vatni. Síðan er
hrært í saftinni heila klukku-
stund og síðan er henni hellt á
flöskur sem skolaðar eru úr
b. n. upplausn. Flöskurnar eru
geymdar á köldum .og dijmnum
stað.
• v.
Bláberjamauk með
litlu sykri !
1 kg bláber ’
375 gr.sykur
Bláberin verða að vera ný-
tínd og ókramin. Bezt eru að-
albláber. Þau eru hreinsuð og
þvegin vel, vatnið , látið síga
af þeim. Sett í gleraðan pott
með sykrinum. Soðin í 15—20
mín. Þá er maukið sett sjóð-
andi heitt í vel heitar gler-
krukkur. Pappír vættur í b. h.
upplausn og bundið yfir krukk-
urnar.
Maukið geymist á köldum
stað og ekki í of mikilli birtu.
Komast má af með minni sykur,
jafnvel 200 gr í 1 kg. ________j
[Ritstjóri: ÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR )