Þjóðviljinn - 23.08.1951, Page 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 23. ágúst 1951
IINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Rltstjórar: Magnús Kjartansson. SigurBur Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Askrlftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. elnt,
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Óttinn viS staðrsyndirnar
Málgögn bæjarstjórnarmeinhlutans, Morgunblaðið og
Vísir, hafa ekki getað leynt ótta sínum við afleiðingar
þsss óhæfuverks ''haldsins, að stofna til aukaniðurjöfn-
unar á miðju fiárhagsári, gegn rökstuddum og ein-
dregnum mótmælum almennings, sem þegar styn-
ur undan þeim gifurlegu greiðslum, sem honum er ætl-
að að inna af hendi í óreiðuhít íhaldsins.
Morgunblaðið nefur tekið þann kostinn að forðast
umvæður um málið eins og heitan eldinn. Það hefur
reyr.t að velja sér annað umræðuefni meðan ólgan er
mest og málið ferskast. Hafi það verið neytt til að leggja
orð í bslg, hefur tal þc-ss allt verið hjáróma og utangarna.
Þegar öllum heilskyggnum mönnum er ljóst að spilaborg
Reykj avíkur-íhalds ins er að hrynja og veruleiki fjár
málaöngþveitisins blasir við hverjum bæjarbúa, þá held-
ur Morgunblaðið samt unpteknum hætti og talar um
glæsilega fjármálastjóm íhaldsins og „traustan fjárhag
Reykjavíkur“, eins og skrum „Bláu bókarinnar“ séu
staðreyndirnar um fjármálastjórn bæjarstjómaríhalds-
ins en ekki niðuijöfnun þeirra 6 millj. kr. í aukaútsvör-
um sem nú hefur verið ákveðin af íhaldinu með sam-
þykki Framsóknarráðherrans Steingríms Steinþórssonar.
Ádeilunni á gegndarlausa fjársóun íhaldsins. óstjórn
þess og óreiðu í bæjarrekstrinum öllum hefur Morgun-
blaðið ekki boriö við að svara. Það hefur viðurkennt
óstjórnina með þögninni og talið hana hæfa bezt óverj-
andi málstað íhaldsins.
Það hefur ekki vikið einu orði að þeim sparnaðar-
tillögum sem fram hafa verið bornar. Vegna hvers?
Vegna þess að jafnvel Morgunblaðinu er ljóst að þær
eru á fyllstu rökum reistar og eiga almennt fylgi bæjar-
búa.
í raun og vera hefur Morgunblaðið gefizt upp við
að verja íhaldsmálstaðinn og alla óstjórnina, sem þrífst
undir handarjaðri skjólstæðinga þess.
En heildsalablaðið Vísir hefur reynt að beita annarri
aðferð. Það hefur einfaldlega logið kalt og rólega að
lesendum sínum, að íhaldið hafi framkvæmt nákvæma
rannsókn á öllum möguleikum til meiri hagsýni og
sparnaðar í rekstri bæjarins og stofnana hans, og að
.,cl! úrræði bafi verið athuguð til þrautar, áður en á
kvföið var að efna til aukaniðurjöfnunar.“
Ailir, sem fylgzt hafa með gangi þessara mála vita
að þessi staðhæfing heildsalablaðsins er vísvitandi ósann-
indi og líka rakaiaus.
íhaldsmeirihlutmn felldi allar tillögur sósíalista um
sparnað. m.a. á hinum óhóflegu bílastyrkjum og bíla-
kostnaði, sem nam s.l. ár hvorki meira eða minna en
815 þús. kr.
íhaldsmeirihlutmn felldi að draga nokkuð úr þeirri
ótrúlegu fjárhæð; sem árlega er varið til veizluhalda og
risnu.
íhaldsmeirihlutmn felldi að láta rannsaka hvemig
á þeirri óhæfu stendur að áhaldahús bæjarins hirðir
285 þús. á ári fyrir ,,leigu“ á hökum, skóflum og'náð-
húsum til gatnagerðarinnar.
íhaldsmeivihlutinn felldi að fresta samþykkt aukaniður-
jöfnunarinnar og láta fara fram athugun á leiðum
til spamaðar á hinum sívaxandi skrifstofukostnaði bæj-
ai ins, sem orðinn er með öllu hóflaus.
íhaldsmeirihlutinn vildi enga rannsókn, enga athug-
un á sparnaðarmöguleikum. Hann vildi fá að halda
óáreittur áfram sukk-nu og óreiðunni og sækja til þess
aukin fjárframlög í vasa skattþegna bæjarins.
En hvers vegna er ])á heildsalamálgagnið að stað-
hæfa aö „öll úrræði hafi veriö athuguð til þrautar, áöur
en ákveðið var að cína til aukaniðurjöfnunar“. Skyldi
það ekki vera vegna þess, að jafnvel Vísir veit að þessi
krafa á almennan hljómgrunn meðal allra Reykvíkinga,
þótt íhaldið hafi hafnað henni með fyrirlitningu?
Það er óttinn við staðreyndirnar, sem hefur rekið
heildsalablaðið til að beita lyginni í vörn fyrir vonlaus-
an málstað íhaldsins.
Sagði allt biilvað
Völundur skrifar — „Ég
hltti kunningja minn einn fyrir
nokkrum dögum. Hann stjórnar
iðnfyrirtæki. Ég spurði hann
frétta, eins og gengur þegar
menn hittast. Hann sagðist
segja allt bölvað. Nú hvað er
eiginlega að, varð mér að orði
hefur eitthvað sérstakt komið
fyrir, eða gengur þitt fyrir-
tæki ekki sæmilega. „Þetta hef-
ur rétt flotið fram að þessu,“
svaraði kunningi minn, en ég
sé ekki fram á annað en sölu-
skattur ríkisstjórnarinnar ætli
að ríða þessum rekstri, sem ég
hef með höndum, gjörsamlega
að fullu. Og þegar svo er kom-
ið, eftir alla fyrirhöfnina við
að koma þessu á sæmilegan
grundvöll, getur maður tæpast
hælt ástandinu".
hreinasta óhæfa og til þess
framkvæmd að heimsmeistarinn
geti gortað í þingbyrjun í haust
af glæsilegri fjárhagsafkomu
hjá ríkissjóði. Aðferðin er ofur
einföld: Almenningur í landinu
og atvinnufyrirtækin eru rúin á
hinn ósvífnasta hátt, til þess að
svala metnaði heimsmeistarans
og stuðningsmanna hans. Ætli
það þætti þokkalegt búskapar-
lag hjá bónda í sveit, sem hefði
þá aðferð við búreksturinn að
svelta skepnurnar til þess eins
að sýna fyrningar að vori? Ég
býst við að slíkt þætti ekki
eftirbreytnisverð búmennska.
En söluskattsinnheimta núver-
andi ríkisstjórnar er nákvæm-
lega af sama toga spunnin. Þar
er bókstaflega enginn munur á.
— Völundur"
Skatturinn í ár
30 þúsundir kr.
Eg innti hann nánar að því
hvað söluskatturinn, sem hann
á að standa skil á til Eysteins
Jónssonar í ár næmi hárri upp-
hæð. Hann sagði það 30 þús-
undir króna. Og hann trúði mcr
fyrir því, að fengi hann ekki
víxil í bankanum, sem nú væri
orðið næsta 3rðugt, lægi tæp-
ast annað f>TÍr en láta lög-
regluna innsigla hjá fyrirtæk-
inu og hætta starfrækslunni.
„Við höfum ekki þann afgang
að hægt sé að standa undir
þessu öllu lengur.“ Hann bætti
því við sem raunar liggur í
augum uppi, að svona er ástatt
fyrir fjöldanum öllum af
smærri atvinnufyrirtækjum.
Söluskattur Eysteins og Sjálf-
stæðisflokksins er beinlínis að
setja þau á höfuðið.
• •
Innheimt í verzluninni
En það eru ekki aðeins at-
vinnufyrirtækin,, sem eru að
sligast undir söluskattinum.
Hann hefur átt drjúgan þátt
í að hækka nauðsynjavörur alls
almennings og stóraukið dýr-
tíð í landinu. Almenningur
greiðir Eysteini Jónssyni, heims
meistara í skipulagðri dýrtíðar-
aukningu, sinn hluta af sölu-
skattinum um leið og lífsnauð-
synjarnar eru keyptar í kaup-
félaginu eða hjá kaupmannin-
um. Það er handhæg innheimta
fyrir ríkisstjómina. Fólkið get-
ur illa án lífsnauðsynjanna ver-
ið og þessvegna þarf ríkis-
stjómin ekki að beita neytend-
ur sömu hörkutökunum og
vofa yfir þeim smærri atvinnu-
rekendum, sem ekki eiga fyrir
söluskattinum. En buddán getur
líka sagt stopp hjá neytendun-
um og þá verður að draga
v-ið sig vörukaupin. Tóm pyngja
kemur þá í stað innsiglisins frá
lögreglunni.
• •
Hvað gengur þeífa k:ngi ?
En hvað lætur fólk bjóða sér
þessa óhæfu lengi án iþess að
mynda samtök til varnar ? Ætla
atvinnufyrirtækin að láta setja
sig á höfuðið, eitt og eitt, og
hafast ekkert að? Öllum er
ljóst að þessi skattheimta er
RIKISSKIP:
Hekla er í Reykjavík og fer það
an kl. 20,00 á laugardagskvöld til
Glasgow. Esja er i Reykjav: Herðu
breið fór frá Reykjavík i gær aust
ur um land til Siglufjarðar. Skjald
breið er í Reykjavik og fer þaðan
á morgun til Skagafjarðar og Eyja
fjarðarhafna. Þyrill er í Faxaflóa.
Ármann var í Vestmannaeyjum í
gær.
Skipadeiid S.I.S.:
Hvassafeii lestar síld fyrir norð
urlandi. Arnarfell átti að fara frá
Stettin í dag, á’eiðis til Kaup-
mannahafnar. Jökulfell kom til
Guayaquil 21. þm., frá Valpara-
EIMSKIP:
Brúarfoss fer væntanlega frá
Milos 22. þm. til Hull. Dettifoss cr
í N.Y. Goðafoss er i Keflavik
væntanlegur til Rvikur í fyrramál
ið 23.8. Gullfoss fór frá Leith 21.8.
til Kaupmannahafnar. Lagarfoss
er i Reykjavík. Selfoss er i Rvík.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 15.8.
til N.Y. Hesnes fer frá Reykjavík
i dag 22.8. til útlanda.
Loftleiðir h. f
1 dag verður flogið til Vestm.-eyja
(2 ferðir),lsafjarðar, Akureyr-
ar og Keflavíkur (2 íerðir). ,--
Frá Vestmannaeyjum verður flog-
ið til Hellu. — Á morgun er ráð-
gert að fljTiga til Vestmannaeyja,
lsafjarðar, Akureyrar, Sigiufjarð-
ar, Sauðárkróks, Hólmavíkur, Búð
ardals, Hellissands, Pati-eksfjarðar,
Bildudals, Þingeyrar, Flateyrar og
Keflavíkur (2 ferðir).
FLUGFÉLAG ISLANDS:
Innanlandsflug: 1 dag er ráðgert
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannneyja, Ólafsfjarðar, Reyð
arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Blöndu
óss, Sauðárkróks, Siglufjarðar og
Kópaskers. — Á morgun er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (2
íerðir), Vestmannaeyja, Kirkjubæj
arklausturs, Fagurhólsm., Horna-
fjarðar og Siglufjarðar. — Frá Ak-
ureyri verður flugferð til Aust-
fjarða. — Millilandaflug: Gullfaxi
fer til Osló og Kaupmannahafnar
á laugardagsmorgun.
er opinn alla. virka daga kl. 1—7
og á sunnudögum kl, 1—10.
Frá skóiagörðum Reykjavíkur.
1 dag kl. 12 verður farið í berjaför
frá skólagörðunum við Lönguhlíð.
Börnin eru beðin að hafa með sér
nesti. — Komið verður í bæinn
um kl. 8.
G E R P I R,
6.-7. tbl. 1951, er
komið út. Efni: Um
vor við Skrúð,
kvæði eftir Knút
Þorsteinss. fráÚlfs
stöðum. Hrafnkatla hin nýja og
Sigurður Nordal prófessor, eftir
Aðalstein Jónsson, Vaðbrekku. Um
strönd og dal: Samkórinn Bjarmi
á Seyðisfirði. — Heimsókn Bjarma
til Neskaupstaðar. — Veturinn
1950—1951. —- Vegamál. Skógarferð
eftir Kristján Benediktsson, Ein-
holti. Kyr.nisför til Noregs, eftir
Árna Vilhjálmsson, Siðu-Hallur,
eftir Sigurð Vilhjálmsson og 1
Gerpisröstinni.
ypf ^ 19,30 Tónleikar:
Danslög. 20,30 Ein-
söngur: Robert Wil
son syngur. 20,45
Dagskrá Kvenrétt-
indafélags Isl. 21,10
Tónleikar. 21,20 Frá útlöndum (Ax
el Thorsteinson). 21,35 Sinfónískir
tónleikar Symphonie Espagnol fyr
ir fiðlu og hljómsveit eftir Lalo
(Huberman og Philharmoníska
hljómsveitin i Vínarborg leika;
George Szell stjórnar). 22,00 Frétt
ir og veðurfregnir. 22,10 Fram-
hald sinfónisku tónleikanna: Sin-
fónia nr. 1 i B-dúr op. 38 (Vor-
sinfónian) eftir Schumann (Sinfón
íuhljómsveitin i Boston leikur;
Serge Koussevitzky stjórnar). 22,40
Dagskrárlok.
Vaxmyndasafnlð er opið í Þjóð-
minjasafninu alla daga kl. 1—7 og
sunnudaga kl. 8—10.
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Ólöf Sigurð
ardóttir forstöðu-
kona á Staðarfelli,
og Hjörtur Þóratv
insson, kennari frá
Reykhólum. — Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Lára Ólafs-
dóttir, Blönduhlíð 6 og Kristmund
ur Sörlason, Tjarnargötu 39. ----
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina ungfrú Halldórú Gisladóttir,
Óðinsgötu 16 og Ástþór Markús-
son, skipverji á Goðafossi., Nýlega
hafa opinberað trúlofun sína ung-
frú Iris Kristjánsdóttir, Njálsgötu
30 og Þorsteinn Sigurðsson vél-
stjóri, Brunnstíg 4, Hafnarfirði
— Nýlega opnberuðu trúlofun sína
Guðbjörg F. Torfadóttir, Hvítadal
Dalasýslu og Sigurður Ágústson,
Njáisgötu 85
Þaö er naumast
að Gummi Daníeís
son orkaði örvandi
á frásagnargleði
Pólværjans, ssm
sakadómari var bú
inn að gefast upp við. Væri ekki
liægt að láta Gumma liafa við-
tal við Sigurð Jónasson, forstjóra
um olíumál?
Ljósatíml bifrelða og annarra
ökutækja er frá klukkan 22,50—
04,15.
SÖFNIN:
Landsbók'asafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga
nema laugardaga kl.10—12 og 1—7.
Þjóðskjalasafnið er opið kl. 10—12
og 2—7 alla virka daga nema laug-
ardaga yfir sumarmánuðina kl.
10^—12. — Þjóðminjasafnið er lok-
að um óákveðinn tíma. — Lista^
safn Einars Jónssonar er. opið kl.
1,30—3,30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafnið er opið kl. 10—10
alla virka daga nema laugardaga
kl. 1—4. — Náttúrugripasafnið er
opið kl. 10—10 á sunnudögum kl.
2—3. — Listvinasalurinn, Freyju-
götu 41, er lokaður um óákveðinn
tíma.
Ungbarnavernd Líknar Templara
sundi 3. Opið þriðjudága 3,15—4 og
fimmtudaga 1,30—2,30.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni. — Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki. — Sími 1760.
Skrifstofa ÆF verður framvegis
opin alla virka daga frá kl. 8—10
e.h. nema á laugardögum.