Þjóðviljinn - 04.09.1951, Page 4
’A) — ÞJÓÐVILJINK — Þriðjudagur 4. september 1951
ÞlÓÐVIUINN
Otgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, SigurBur Guðmundsson (áb.)
Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafseon, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustlg
19. — Sími .7500 (þrjár línur).
Áakriftarverð kr. 16 á mánuðl. — Lausasöluverð 75 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
\-----------------------——------------------------
Sekasti skattaránsflokkurinn
Síðan marsjallflokkarnir fóru að' stjórna landinu í
innilegri samvinnu, ýmist allir saman eöa meö Alþýöu-
flokkinn í „ábyrgri stjórnarandstöðu" samkvæmt „skyn-
samlegu samkomulagi allra borgaraílokkanna“, hefur
tolla- og skattbyrðin á almenningi veriö þyngd gifurlega.
Allir minnast þess, aö tímabil bandarísku stefnunnar í
íslenzkum stjórnmálum hófst meö álagningu tollaklyfj-
anna 1947, sem stjórn Stefáns Jóhanns stóð fyrir meó
fullu samþykki hinna stjórnarflokkanna, Sjálfstæöis-
flokksins cg Framsóknar. Alla tíð síðan hafa tollar og
skattar veriö hækkaöir eöa framlengdir á hverju þingi,
þótt aldrei hafi keyrt svo gjörsamlega um þverbak sem
í tíö núverandi afkirhaldsstjórnar, og er söluskatturinn
þar frægastur aö endemum.
Um þessa ránsstsfnu í skatta- og tollamálum hafa
marsjallflokkarnir allir staöiö trúlega vörö. í öllum ríkis-
stjórnum marsjalltímabilsins hefur þó Sjálfstæöisflokkur-
inn ráðiö mestu um stefnuna og lengst af átt fjáimála-
ráöherrann. Hinir afturhaldsflokkarnir, Alþýöuflokkur-
inn og Framsókn, hafa nánast starfaö á istjórnarheimilinu
sem auðsveip og hlýðin hjú, sem í einu og öllu fara aö
fyrirskipunum húsbóndans, Sjálfstæöisflokksins. Hann
hefur g:fið fyrirmælin og hinir hlýtt í fyllstu auðmýkt
og undirgefni.
Þaö 'mega því teljast mikil undur aö höfuömálgagri
þess flokks, s:m öllu hefur ráöið um stefnuna í skatta- og
tollamálum síóustu ára, skuli telja sér fært aö láta í þaö
skína að skattarániö og tollaklyfjamar hafi duniö yfir
almenning án tilverknaöar og gegn vilja Sjálfstæöis-
flokksins. En þaö er einmitt þetta sem Morgunblaðið
hefur af veikum mætti reynt síöustu dagana 1 vandræð-
úm sínum við aö finna einhverjar afsakanir fyrir álagn-
ingu óreiöuútsvaranna í Reykjavík og flótta borgarstjór-
ans suður til Spánar og Tyrklands. Vildi Morgunblaöiö
með þessu sýna fram á að ekki væri um meiri hlífö að
ræöa hjá ríkinu en Reykjavíkurbæ.
En þetta bragö tekst ekki hjá Morgunblaöinu. Þaö
cr óhugsandi fyrir það að ætla aö telja almenningi trú
um, að skattaránið og tollaklyfjarnar séu óviðkomandi
Sjálfstæðisflokknum. Þar ber flokkur þess sömu ábyrgð-
ina og á aukaútsvörunum, sem hann hefur skammtaö
Reykvíkingum og ætlar aö nota til þess áö halda uppi
sömu óhófseyðslunni, sukkinu og bitlingastarfseminni og
viögsngizt hefur að undanförnu. Hinir drepþungu skattar
og tollar eru, eins og aukaútsvörin, fyrst og fremst verk
Sjálfstæðisflokksins, þótt hann hafi við álagningu toll-
anna og skattanna notið fyllsta atfylgis og stuðnings
samstarfsflokka sinna, alveg á sama hátt og Framsóknar-
ráðherrarnir hjálpuðu honum til að lyfta bagga óreiðu-
útsvaranna á herðar Reykvíkinga fyrir skemmstu, þegar
Steingrímur Steinþónsson var látinn leggja blessun sína
yfir aukaniðurjöfnunina, þrátt fyrir gífmyrði Tímans og
Þóröar Bjömssonar.
Sé nokkur flokkur starfandi í þessu landi sem meö
réttu á skilið heitið .,skattaránsflokkur“ þá er þaö Sjálf-
stæöisflokkurinn. Síðan hann fór aö ráða mestu eða öllu
í stjórn landsins hafa allar álögur á almenningi fariö
sfhækkandi. Hann samþykkti meö glööu geöi Alþýöu-
‘flokkstollana frægu, skattahækkanirnar, gengislækkun-
ina, bátagjaldeyrisbraskið og söluskattinn. Meö öllum
þessum ráðstöfunum hefur veriö farið ránshendi um
fjármuni alþýðunnar cg millistéttanna. Söluskatturinn
einn. sem Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti meö Framsókn
aö framlengja enn á síðasta Alþingi, þótt allar forsendur
fyrir innhsimtu hans væru niöur fallnar, færir nú ríkis-
sjóöi á hálfu ári 37 millj. króna, sem er hreinn rekstrar-
afgangur hjá ríkinu. Þetta fé er fyrir forgöngu Sjálfstæöis-
flokksins og Eysteins Jónssonar sótt í vasa aöþrengds al-
mennings og illa stæðra atvinnufyrirtækja, sem mörg
eru komin fjárhagslega á fremstu nöf fyrir aögeróir
stj órnarf lokkanna.
Flokkur sem hagar stefnu sinni og starfi á sama hátt
cg Sj álfstæðisflokkurinn ætti sannarlega aö fara varlega
Innlánsdeikl KRON
KRON-féiagi skrifar: „Kæri
Bæjarpóstur. — Viltu vera svo
góður að birta frá mér örfóar
línur um mál, sem ég hef mik-
inn áhuga fyrir, og biðja les-
endur þína að íhuga það gaum-
gæfilega. — Fyrir nokkrum
dögum fékk ég bréf frá KRON,
þar sem félagsmenn eru minnt-
ir á innlánsdeild félagsins og
hvattir til að geyma sparifé
sitt í henni. Ég verð að viður-
kenna, þó skömm sé frá að
segja, að mér var ókunnugt um
þessa stofnun innan félagsins,
en varö strax ljóst við lestur
bréfsins að hér er um stórt og
mjög þýðingarmikið mál að
ræða.
Hvi'ð er KRON
Á tímum hinnar skefjalausu
fjáridógsstarfsemi (sem Rann-
veig sveikst um að berjast
gegn), þegar öll orka valdhaf-
anna og yfirstéttarinnar fer í
það að féfletta fólkið með öll-
um hugsanlegum ráðum svo
sem stjómlausri dýrtíð, báta-
gjaldeyrisbraski, afnámi alls
verðlagseftirlits o. fl. o. fl., þú
er það bókstaflega lífsnauð-
syn að efla KRON sem allra
mest. Eins og nú er komið er
KRON eina verðlagseftirlitið
sem alþýða Reykjavíkur hefur
á áð treysta, og grunur minn
er sá og reyndar vissa, að ef
KRON hefði ekki notið við nú
að undanförnu, þá væri verð á
ýmsum vörum mun hærra en
það er og má það þó sannar-
lega ekki verra vera. Og það
er ég sannfærður um að áhlaup
það, er braskarastéttin í Reykja
vík gerði á KRON í fulltrúa-
kosningunum í vetur, hefur
fyrst og fremst haft þann til-
gang að brjóta niður þetta eina
tæki er fólkið á sér til varnar
gegn verzlunarokrinu, svo að
braskarastéttin gæti notið sín
til fulls í einokunarstarfsemi
sinni.
Fjármagnið aflið
í okkar þjóðfélagi er það
þannig, eins og í hverju auð-
valdsþjóðfélagi, að fjármagnið
er aflið sem mestu ræður. Sá
sem hefur mest fjármagn hef-
ur mesta og bezta aðstöðu á
hvaða sviði sem hann starfar.
Og þegar við íhugum það, að
KRON á í höggi við forríka
heildsalastétt, sem hefur full-
ar hendur fjár, þá er um ójafn-
an leik að ræða. — Nú vitum
við það, að KRON liefur eflst
mikið að undanförnu frá ári til
árs, og á nú orðið miklar eign-
ir, enda hefur félagið verið
undir traustri og öruggri stjórn
en þrátt fyrir það að svo sé,
þrátt fyrir það að gengi félags-
ins fer alltaf vaxandi þá finnst
mér að það hljóti að vera aug-
ljóst öllum, er eitthvað þekkja
til viðskipta, að KRON hefði
getað áorkað miklu meiru ef
félagið hefði meira fjármagn
undir höndum. Að hafa mikið
úrval af vörum í öllum búð-
um krefst mikils f jármagns þeg-
ar vöruverð er orðið jafn ó-
heyrilega hátt og nú er. Margir
bæjarhlutar bíða eftir nýjum
KRON-búðum, sem nauðsynlegt
er að koma á stofn strax og
tök eru á, en það er fjármagn-
ið sem ræður því hve fljótt það
tekst. KRON gæti farið út i
margvíslegar framkvæmdir, sem
félagið hefur ekki gefið sig að
ennþá, en vissulega tilheyra
landnámi samvinnuhreyfingar-
innar, en allt markast þetta af
fjármagninu, sem félagið ræð-
ur yfir. Niðurstaðan hlýtur því
að vera sú, að því meira fjár-
magni sem félagið ræður því
meiri árangri getur það náð
fyrir félagsmennina.
•
Eru bankarnir loltaðir
fyrir KRON?
Mér er sagt, en ekki veit ég
það með vissu, að bankarnir séu
lokaðir fyrir KRON, og satt að
segja þykir mér það ekkert ó-
trúlegt þótt svo sé eins og á
þeim málum er haldið nú til
dags. Hverjir ráða bönkunum?
Ríkisvaldið. Hverjum þjónar
ríkisvaldið ? Auðmönnunum í
landinu, heildsölum og öðrum
slikum. Og er þá ekki fengin
Framhald á 6. síðu.
* *
Vestmannaeyja (2 ferðir), Isa-
fjarðar, Akureyrar, Hólmavíkur,
Búðardals, Patreksf jarðar, Bildu-
dals, Þingeyrar, Flateyrar og1
Keflavikur (2 ferðir). Frá Vest-
mannaeyjum verður flogið tii
Hellu og Skógarsands. — Á morg’-
un er áætlað að fljúga tii Vest-
manneyja, ísafjarðar,* Akureyrar,
Sigufjarðar, Sauðárkróks og
Keflavikur (2 ferðir).
Morgunblaðinu
segist þannig frá
24. f.m.: „Liðsfof-
ingjar (kommún-
ista) . . . lásu til-
kynninguna af . .
. . blöðum, sem sýnilega höfðu
verið útbúin i góðu RÚMI".
Kannski það liafi verið hjóna-
Eimslcip
Brúarfoss fór frá Milos 22. ág.;
var væntanlegur til Huli 2. sept.
Dettifoss kom til Rvíkur 31. ág.
frá New York. Goðafoss kom til
Gdynia 2. sept.; fer þaðan til Ham-
borgar, Rotterdam og Gautaborg-
ar. Gullfoss fór frá Rvík 1. sept.
til Leith og Khafnar. Lagarfoss
er á Vestfjörðum; lestar frosinn
fisk. Selfoss er i Rvík. Tröilafoss
kom til New York 25. ág. frá
Rvík
Ríkisskip
Hekla er væntanleg til Reykja-
víkur á hádegi í dag frá Glasgow.
Esja var á Fáskrúðsfirði i gær á
norðurleið. Herðubreið er í Rvilt;
fer þaðan í dag til Snæfellsnes- og
Breiðfjarðarhafna. Skjaldbreið er
í Rvík. Þyrill var í Hrísey í gær.
Ármann er í Rvik; fer þaðan á
morgun til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar.
Flugfélag ísiands
1 dag eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar (2 ferðir), Vestm.-
eyja, Blönduóss, Sauðárkróks og
Siglufjarðar. Á morgun er áætlað
að njúga til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, Hellisands, Isa-
fjarðar, Hólmavíkur og Siglufjarð-
nr. — Gullfaxi fór í gærkv. til
London og Nizza, en þangað flutti
hann skipshöfnina á hið nýja skip
Eimskipafélags íslands. Vélin er
væntanleg aftur kl. 23,30 í kvöld.
Loftleiðir
1 dag er ráðgert að fljúga til
- , «s W
í hræsnisskrif gegn skattaráninu, sem skipulagt er fyrir
forgöngn hans sjálfs. Óvinsældir aukaútsvaranna veröa
sannarlega ekki bættar meö því aö minna á þann höfuö-
þátt, sem Sjálfstæöisflokkurinn hefur átt 1 aö íþyngja
alþýöu og miliistéttum meö óbærilegum tolla- og skatta-
klyfjum síðan marsjallstefnan varö einráð í stjórn
landsins.
HjónunumÞórunni
> „N ' Sigurjónsdóttur og
w Jóhanni Björns-
1 Wtil ' syni, Skipasundi 14
i Æ v fæddust tvíburar
fimmtudaginn 30.
ágúst, sveinbarn og meybarn, 14
mcrkur hvort. — Hjónunum Elmu
Skúladóttur og Sverri Jónatans-
syni, t>órsgötu 19 fæddist 14 marka
dóttir föstudaginn 31. ágúst. —
Nýlega. opinberuðu
trúlofu nsina ung-
frú Margrét Ste-
fánsdóttir (Jóh.ss.
lögregluþjóns) og
Óli Haukur Sveins-
son (Sæmundss. yfirlögregluþjóns).
— Nýlega opinberuðu trúlofun sina,
ungfrú Guðrún Frimannsdóttir og
Helgi Ottó Carlsen, Höfðaborg 5.
Tímaritið Úrval
júlí-ágúst hefti er
komið úti. Efni:
Draumaverksnriðj-
an Hollywood. Kirt
illinn, sem skapar
manninn. Vorþytur i blóði, smá-
saga. Dularfullt bergmál úr djúp-
um hafsins. Bellibrögð hádegis-
baugsins. Indiand á báðum átt-
um. Tilraunir með sólgleraugu.
Lyf, sem örva vöxt alidýra. Öld
viðbragðsvélanna. í heimsókn hjá
egypzkum bónda. Bylting í gerð
bénzínhreyfla. Túlípanæðið. Merk-
ustu nýjungar i vísindum 1950.
Hví hneigjast sumir unglihgar til
áfbrota? Geta tölur. blekk.t? Kan-
ínuplágan í Ástralíu. Ilmurinn og
visindin. Þá er kafli úr bókinni:
Þegar hjartað' ræður —, ævisaga.
frönsku skáldkonunnnar George
Sand eftir Fiances Winwar.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband ung-
frú Hallveig .01-
afsdóttir frá
Eyrarbakka og
Óskar Guðfinnsson, sjóm., Mar-
argötu 1. Heimili þeirra verður að
Bakkastig 5. — Nýlega voru gef-
in saman í hjónaband ungfrú Elín
Þorvarðsdóttir, Hringbraut 51 og
Jón Elíasson sjómaður. Heimili
þeirra verður að Jófríðarstaðavegi
10, Hafnarfirði.
^ 8,00—900 Morgun-
útvarp. 10,10 Veð-
urfregnir. 12,10 til
13,15 Hádegisútv.
15,30 Miðdegisútv.
16,25 Veðurfregnir.
19,30 Tónleikar: Óperettulög (pl.)
19.45 Auglýsingar. 20,00 Fréttir.
20,20 Tónleikar: Strengjakvartett.
í D-dúr (K.499) eftir Mozart; —
Budapest kvartettinn leikur (pl.)
20.45 Erindi. Frá lördum Múham-
eðs, síðara erindi (Bened. Gröndal
ritstj.) 21,15 Ljóðskáldakvöld: Upp
lestur og tónleikar. 22.10 Vinsæ!
lög (pl.) 22,30 Dagskrárlok.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki. — Sími 1616.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni. — Sími 5030.
Bólusetnlng gegn bamaveiki
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 4. september n. k. kl 10
til 12 f. h. í síma 2781.
■>
Ungbarnavernd Líknar Templara.
sundi 3. Opið þriðjudaga 3,15—-4 og
fimmtudaga 1,30—2,30.
RINN f
er opinn alla virka daga kl. 1—T
og á sunnudögum kl. 1—10.