Þjóðviljinn - 12.09.1951, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 12. september 1951 — 16. árgangur — 206. tölubl.
ÆFH Pélagsfundur verður
n. k. föstudag kl.
8,30 að Þórsgötu 1. — Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á 10. þing ÆP,
2. Kosning uppstillinganefndar. 3,
Prá Berlínarmótinu. 4. Félagsmál,
— Skorað er á félaga að fjöl-t
menna. — Stjórnin.
Hefur ríkisstjórn íslands gngnað fyrir
brezku yaldboði um landhelgismálið?
Islendingar eiga ekki að viðurkenna rélt Haagdómstóls-
ins til að dæma sjáifsákvörðunarrétt þjóða um
landhelgi sína ólögmætan
Brezkir ráðherrar hafa skýrt frá því á þingi að brezka
stjórniu hafi farið þess á leit við ríkisstjórn íslands að engar
ráðstafanir yrðu gerðar til stækkunar íslenzkri landhelgi fyrr
en alþjóðadómstóllinn í Haag hefði fellt úrskurð í deilu Norð-
manna og Breta um fjögurra mílna liandhelgi við Noreg.
Islenzka ríkisstjórnin hefur ekki verið að hafa fyrir því
#að láta Islendinga fylgjast með þessum nýju tilraunum brezk'a
stjórnarinnar til ósvífinnar íhlutunar um Iandhelgismál Islands,
beldur látið eins og oftar fréttirnar um þær berast utan úr
löndum. Nú hefur hins vegar ríkisstjórn Islands að því «r virðist
beygt sig fyrir þessari erlendu íhlutun og ákveðið að gera ckkert
í málinu fyrr en Haagdómurinn er fallinn. Það tilkynnir hún í
i réttatilkynningu í gær.
Það mun álit flestra Islendinga og er yfirlýst afstaða fleiri
þjóða að aiþjcðadómstóllinn í Haag sé ekki rétti aðiKnn til að
dæma um rétt þjóða að ákveða upp á eindæmi stækkun land-
helgi sinnar. Tilraun brezku stjórnarinnar að tengja Iandhelgis-
mál Islands úrskurðinum í Haag, bdðar ekkert gott fyrir má!-
stað íslendinga. Islendingar eiga ekki að viðurkenna að Haag-
dómstóllinn geti dæmt sjálfsákvörðunarrétt þjóða um landhelgi
sína ólögmætan.
Þjóðviljanum barst i gær
þessi „fréttatiikynning frá ut-
anrikisráðuneytinu“:
„Þar sem dómur i landhelg-
ismáli því, sem nú er fyrir
Haag-dómstólnum milli brezku
og norsku ríkisstjórnanna, hlýt-
ur að hafa þýðingu um hverj-
ar aðgerðir sóu vænlegastar til
árangurs af Islands hálfu til
friðunar á fiskistofninum við
landið, hefur ríkisstjórnin falið
þeim hrd. Gizuri Bergsteinssyni
og þjóðréttarfræðingi Hans G.
Andersen að vera við munn-
legan flutning málsins, sem
hefst í Haag hinn 25. þ. m. og
gefa ríkisstjórninni síðan
skýrslu um hann og viðhorf
málsins. Við dómi í málinu er
búist um n. k. áramót.
Að svo vöxnu máli þykir því
rétt að taka ekki ákvörðun
um frekari aðgerðir skv. lög-
unum um vísindalega verndun
fiskimiða landgrunnsins og beit-
ingu reglugerðarinnar skv. þeim
lögum gagnvart öðrum en þeim,
sem hún þegar tekur til, fyrr
en sýnt er, hvernig málið horf-
ir við eftir méðferð landhelg-
ismáls Breta og Norðmanna í
Haag.“
Meðal heiðursgesta á alþjóða
æskulýcsmótinu í Berlín var
mesta núlifandi skáld Tyrkja,
Nazim Ilikmet, sem í fyrra var
sleþpt úr lialdi eftir þrettán
ára fangelsisvist, er hann varð
að þola vegna stjórnmálaskoð-
ana sinna.
Lögreglustjóri bannar útsölur!
Bútasalan hjá Álafossi heldur þó áfram
Klæðaverksmiðjan Álafoss hefur undanfarið haft út-
sölu í verzlun sinni í Þingholtsstræti. Hafa ágætisvörur
verið seldar þar fyrir hálfvirði og hafa margir bæjarbúar
notað sér tækifærið til að gera þar kjarakaup.
Lögreglustjóri hefur nú tilkynnt að bannað sé að hafa
útsölur á tímabilunum frá 5. sept. til 10. jan. og frá 10.
marz til 20. júlí. Þetta mun vera samkvæmt lögum frá 1933
— en sem menr. minnast ekki í íljótu bragði að hafi verið
framkvæmd, a. m. k. ekki s. 1. áratug.
Þótt útsalan hjá Álafossi hætti, samkvæmt fyrirskipun
lögreglustjóra, heldur bútasalan áfram og ættu bæjarbúar
að nota sér hana, nú þegar allar vörur hækka svo að segja
daglega, því þar fá þeir fyrsta flokks innlenda framleiðslu
fyrir hálfvirði.
Iransstgórn sendir Bretum úr-
slitakosti með Harriman
Búizt var við því í gærkvöld, að úrslitakostir Irans-
stjórnar til Breta i olíudeilunni yrðu sendir á hverri
stundu.
Vitað varr. að sendiherra Ir-
ans í Washington hafði veríð
skipað að vera við því búnum
að færa Averell Harriman, sem
Truman Bandaríkjaforseti sendi
til Irans til að reyna að miðla
málum, úrslitakostina. Irans-
stjórn hefur ákveðið, að biðj-i
Harriman að koma úrslitakost-
unum á framfæri í London.
Úrslitakostimir eru á þá leið,
að Bretum er tilkynnt, að 350
Bretum, sem enn eru í olíu-
hreinsunarstöðinni í Abadan,
verði vísað úr landi, ef brezka
stjórnin hafi ekki innan 15
daga borið fram nýjar tillög-
ur í olíudeilunni. Talið er, að
auk þess sé í orðsendingu Ir-
ansstjórnar mótmælt þeirri á-
kvörðun brezku stjórnarinnar,
að hætta að greiða innstæður
Irans í Bretlandi í dollurum, ef
þess er óskað.
Sugar Ray og
Turpin keppa
I kvöld fer fram í New York
hnefaleikakeppni, sem beðið
hefur verið með mikilli eftir-
væntingu. Þá reynir Banda-
ríkjamaðurinn Sugar Ray P.ob-
inson að vinna aftur af Bret-
anum Randy Turpin heimsmeist
aratitilinn í millivigt, sem hann
tapaði til hans í sumar. Út-
varp frá keppninni á 1500 m
frá London hefst klukkan tva
eftir miðnætti í nótt eftir ís-
lenzkum sumartima.
NÝTT MET HEIMSMEISTÁRANNÁ:
Vísitalan 148 stig
Kauplagsneínd og hagstofan hafa nú
reiknað út vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík 1. september og reyndist hún
148 stig, miðað við grunntöluna 100 1.
marz í fyrra.
Heimsmeisturunum í dýrtíð hefur því
tekizt að bæta enn heimsmet sitt verulega,
því 1. ágúst var framfærsluvísitalan 144
stig og heíur þv( hækkað um 4 stig á einum
mánuði.
„NjósnaréítarliöW” i Noregi
rminu alveg út í saitdimi
Undirréttur Osló hefur einróma. sýknaö son fyrr-
verandi yfirmanns norska flotans af ákæru urn njósnir
fyrir Sovétríkin,
Þegar að því kom á laugar-
dag í fyrri viku, að kveða átti
upp dóm yfir Per Edvard Dani-
elsen lautienanti, var réttar-
salurinn troðfullur.
Sýknuninni fagnað
Þegar Aasgaard lögmaður
hafði lesið dómsniðurstöðuna
tóku áheyrendur að klappa, en
hættu þegar hann minnti þá á,
að það væri brot á virðingu
réttarins að láta í ljósi vel-
þóknun eða vanþóknun á dðms-
úrskurði.
I forsendum dómsins segir,
að ákæruvaldið hafi ekki fært
fram sannanir fyrir því, að
Danielsen hafi á nokkrum af
þrem fundum sínum með Kos-
jeleff flotafulltrúa við sendiráð
Sovétríkjanna, látið honum í
té upplýsingar, sem halda hefði
átt leyndum fyrir erlendu ríki.
Ekki hefur heldur verið sannað,
að ákærði hafi haft í hyggju
að koma slíkum upplýsingum
Stjömulifíræði-
stöð í Kasakstan
á framfæri nó að hann hafi
safnað upplýsingum um hern-
aðarleg málefni.
Hinsvegar segir í forsendum,
að með því að hitta Kosjeleff
á laun hafi Danielsen komið
mjög óheppilega fram og geti
hann því sjálfum sér um kennt
að mál var höfðað gegn honum.
Ráðstefnur hafnar
1 gær var annar dagur við-
ræðna utanríkisráðherra Vest-
urveldanna í Washington. Sátu
þeir á fundi allan daginn Ache-
son og Morrison. Talið er, að
þeir hafi einkum rætt Asíu-
mál, Iran og Kóreu. Viðræð-
urnar í fyrradag munu hinsveg-
ar hafa snúizt um Þýzkaland.
Halli 2 milljj•
dollara á hlst•
MOSKVA, (Telepress). Sovét-
stjörnufræðingurinn G. A. Tík-
hoff hefur lagt grundvöll að
nýrri vísindagrein — stjörnu-
líffræði. 1 bók, sem vísindafé-
lagið í Kasakstan er að gefa
út, skýrir hann frá rannsókn-
um, sem hann hefur gert og
hafa sannfært hann um að líf
sé á reikistjömunum Mars og
Venusi. Hann telur einnig mögu
legt að smásæjar lífverur þríf-
ist á stóru reikistjörnunum
Júpíter, Satúrnusi, Úranusi og
Neptúnusi og byggir það á nið-
urstöðum sovétvísindamanna að
þær geta lifað við mikið frost.
Vísindastofnun með sérstökum
stjömuturni verður reist í
Kasakstan sunnarverðu til að
rannsaka líf á stjörnunum. —
Verður það fyrsta stjörnuiíf-
fræðistofnun í heimi.
Ríkisreikningar Bandaríkj-
anna sýna, að í apríl í vor var
greiðsluhalli ríkissjóðsins um
tvær milljónir dollara á ldukku-
stund. Útgjöld, aðallega til her-
væðingarinnar, námu 100 millj.
á dag að meðaltali en tekjur að-
eins 53 milljónum. Þetta er
mesti greiðslulialli, sem nokkru
sinni hefur verið í Bandaríkj-
unum á friðartímum og búizt er
við, að hann eigi enn eftir að
aukast.
Atkvæði
hermanna ótalin
Eftir var í gær að telja at-
kvæði hersins í kosningunum í
Grikklandi. — Einræðisflokkur
Papagos fyrrverandi yfirhers-
höfðingja, hafði fengið um 35%
atkvæða en miðflokkarnir til
samans um 45%. Þrátt fyrir
það að kosningarnar voru víða
falsaðar og ófrjálsar fékk lýð-
ræðisbandalag vinstri flokk-
anna um 10% atkvæða. Nokkrir
daga líða áður en búið verður
að telja hermannaatkvæðin.