Þjóðviljinn - 23.09.1951, Qupperneq 4
4) — ÞÓÐVILJINN — Sunnudagur 23. sept. 1951
PJÓÐVIIJINN
Otgefandl: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritatjórar: Magnús Kjartansson, SigurOur Quðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. •
Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskrlftarverð kr. lt> á mánuði.' — Lausasöluverð 75 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans hj.
\ _________________________________________________✓
Ábyrgðarleysi þríflokkanna í
landhelgismálinu
Hverjum þeim sem síðar msir kynnir sér sögu ís-
lenzkra landhelgismála hlýtur að koma kynlega fyrir
sjónir skrif Morgunblaösins, Tímans, Alþýöublaðsins og
Vísis undanfarna daga, en þau blöð viröast túlka afstöðu
Sjálfstæöisflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokksins til
þessara mála,
Komið er fast að örlagadegi í baráttu íslendinga í
landhelgismálinu. Hinn illræmdi kúgomarsamningxir.
brezki samningurinn um þriggja mílna fiskveiöalandhelgi
viö ísland, fellur úr gildi eftir nokkra daga, 3. október
1951. Meö samningi þessum. er Danastjórn gerði 1901
voru réttindi samin af íslendingaim til langs tíma, með
hinum verstu afleiðingum. Öll íslenzka þjóðin fagnar því
að hann fellur úr gildi. Flestir íslendingar munu hafa
talið sjá’fsagt, að þegar þeirn áfanga væri náð, yrði án
tafar hafin samstillt sóknarlota af íslendinpa hálfu t.il að
stækka landhelgina og vernda fiskimiðin. Öll þjóðin, fólk
og blöð allra flokka, fögnuðu þeim áfanga er gerður var
með ákvörðuninni frá vorinu 1950 um fjögurra mílna
iandhelgi fyrir Norðurlandi, frá Horni til Langaness, enda
þótt viö hana loddu hin auðmýkjandi sérréttindi Breta
að fiskiskip beirra mættu enn í heilt ár miða við þriggja
mílna landhelgi einnig þar, þó íslendingar og aðrar
þ.jóðir yröu að hlíta banní við botnvörpu- og dragnótaveiði
innan fjögurra mílna landhelgi. En allir munu hafa talið
víst. að 3. október 1951 yrðu einnig þessi auðmýkjandi
forréttindi istóryeldisins að engu. ásamt kúgunarsamn-
ingnum sem þau voru talin byggjast á.
Þá koma vonbrigöin. í allt sumar, ef ekki lengur,
lrefur ríkisstjórn íslands veriö að velta fyrir sér kröfum
brezku stjómarinnar um framhald þessara forréttinda,
og jafnframt hefur þessi „Alþýðuflokksstjórn“ Bretlands
véfengt rétt íslendinga til að stækka landhelgina og gera
með því nauösynlegar í'áðstafanir til verndar fiskimiðun-
um. Og ,,Albýðuflokksstjórnin“ heimtar að íslendingar
gcxi ekkert í þessum málum nema bera réttmæti þess
undir erlendan dómstól, sem reynzt hefur Bretastjórn
vikalipurt verkfæri, nú síöast í olíudeilunni við íran.
Um þessar kröfur brezku ,,Alþýðuflokksstjórnarinnar“ fá
íslendingar ekki að vita nema af frásögnum brezks ráð-
herra og villandi málflutningi erlendra bláða.
En rétt fyrir örlagadaginn 3. október, er kúgunar-
samningu.rinn brezki á aö renna út, birtir nkisstjóm
íslands tilkvnningu, þar sem hinar brezku kröf-
ur eru tilkynntar sem afstaða íslenzkra stjórnarvalda.
Forréttindi Breta til þriggja mílna landhelgi fyrir
Noröurlandi framlengd cg lofaö að gera ekki neitt til
stækkunar landhelgi íslands fyrr en Haagdómstóllinn
hafi kveðið upp úrskurð í landhelgismáli Norðmanna og
Breta.
í staö sóknarlotu samstilltrar þjóðar í þessu mikla
lífsbjargarmáli kemur vssælt undanhald ríkisstjórnar ís-
lands og þriggja stjórnmálaflokka, Sjálfstæðrsflokksins,
Framsóknar og Alþýðuflokksins, fyrir erlendu valdboði.
í stáð þsss að vara þjóðina við frekjuframkomu brezku
,.Alþýðuflokksstjórnarinnar“, vísa kröfum hennar á bug
og framkvæma alþjóðarvilja um ráðstafanir til stækkunar
landhelgi íslands kringum allt land, setur ríkisstjórnin
allt málið 1 hættu. Og b’öð þriggja stjórnraálaflokka
hliðra sér hjá að ræða málið, og reyna að drekkja at-
hygli þjóðarinnar á því sem er að gerast í æsiskrifum
um landhelgisbrot Rússa!
Annað eins ábyrgðarleysi, í jafn miklu alvörumáli og
stækkun landhelginnar, hlýtur að verða síðari tíma
mönnum nær óskiljanlegt. Það þarf nána þekkingu sam-
tímamanns á núverandi stjórnarvöldum íslands og undir-
lægjustefnu þeirra gagnvart erlendum stórveldium tiþ að
skilja hvers vegna þau á slíkri örlagastundu tefla land-
helgismáli íslendinga í tvísýnu.
Ætlaði ekki að trúa
eif>in augum
Húsmóðir skrifap: „Ég ætl-
aði varla að trúa mínum eigin
augum þegar ég las það í Þjóð-
viljanum, að heilbrigðisnefnd
hefði orðið að láta framkvæma
hreingerningu með lögreglu-
valdi hjá Alþýðubrauðgerðinni í
Reykjavík.
★
Stærsta brauðgerðarhús
bæjarins
„Þetta er svo alvarlegt og
óhuggulegt að ég get ekki orða
bundizt. Ráðamenn brauðgerð-
arhússins hunza fyrirmæli heil-
brigðisnefndar um hreinlæti,
neita að hlýða settum heilbrigð-
is- og þrifnaðarreglum, þrjózk-
ast og halda dauðahaldi í sóða-
skapinn, svo að grípa verður til
lögregluvalds til þess að gcra
hreint. Og þetta er stærsta
brauðgerðarhús bæjarins, sem
mér telst til að hafi 15 útsöl-
ur, auk aðalútsölunnar sem er
í brauðgerðarliúsinu sjálfu.
★
Hvað gerist þarna
innanhúss?
„Þessi óvenjulegi atburður
hlýtur að vekja upp þa spurn-
ingu, hyað gerist þarna inn-
anhúss. Hversvegna er gripið
til þess að gera þarna hreint
með lögregluvaldi. Það hlýtur
einfaldlega að stafa af því, áð
þarna hefur verið um sóðaskap
að ræða, sem ekki hefur tekizt
að fá lagfærðan með góðu. Og
sóðaskapur á slíkum stað sem
þessum er bannaður, enda tal-
inn hættulegur, ekki vegna þesá
sérstaklega að skíturinn sé ljót-
ur, ekki vegna þess að hlutirnir
séu fallegri hreinir en óhrein-
ir, heldur fyrst og fremst vegna
þess áö þarna eru framleidd
matvæli, kökur og brauð, sem
þúsundir Reykvíkinga kaupa og
nevta daglega. Þessar matvör-
ur eru eins og allir vita mjög
vandmeðfarnar, en eru nokkr-
ar líkur til að skilningur for-
ráðamanna brauðgerðarhússins
sé annar og betri eftir það
sem fram hefur komið nú í sam-
bandi við skort á nauðsynlegu
hreinlæti í brauðgerðinni ?
★
Heilbrigðisnefnd á
þakkir skilið
„Þáð er vissulega virðingar-
vert af heilbrigðisnefnd að láta
ekki undan síga fyrir þeirri
forneskjulegu þrjózku, sem hún
sýnilega hefur mætt í Alþýðu-
brauðgerðinni. En spurningin er
bara sú hvort þessi eina hrein-
gerning, framkvæmd með lög-
regluvaldi, er nægileg. Er það
nóg ef maður er sóðalegur við
starf, sem krefst fyllsta hrein-
lætis og aðgæzlu, að rokið sé
til cinu sinni og hann þvcginn ?
Sé máðurinn sóðskur og geti
ekki séð sig um hönd við á-
minningu og ábendingu þá held
ég að litlar líkur séu til að
hann endurfæðist til nauðsyn-
legs hreinlætis þó hann fái eina
skyndiböðun. Það er því að
mínu áliti engin tryggine; feng-
in fyrir því að hreinlæti hafi
haldið innreið sína í Alþýðu-
brauðgerðina, þott heilbrigðis-
nefnd hafi einu sinni latið gera
þar hreint undir lögreglueftir-
Krafan er: Trygging
fyrir fullkomnu
hreinlæti
Almenningur hiýtur að krefj-
ast þess að fyllsta hreinlætis
sé gætt þar sem matvæli eru
framleidd og meðhöndluð, ekki
sízt þegar sú framleiðsla fer
fram í jafn stórum stíl og hér
mun um að ræða. Og það næg-
ir ekki að vinnuplássið sé gert
hreint. Það þarf áð tryggja
að fullkomið daglegt hreinlæti
sé viðliaft frá hinu smæsta til
hins stærsta handtaks. Þeir
sem ekki geta orðið við þeirri
sjálfsögðu og eðlilegu kröfu
eiga ekki að fá leyfi til að hafa
framleiðslu og dreifingu mat-
væla til almennings með hönd-
um. Þeir um það livernig þeir
þjóna sjálfum sér, aimenningur
hér í bæ krefst annarrar og
betri þjónustu. — Húsmóðir".
Björnssyni, ungfrú Guðrún Elín-
borg Guðmundsdóttir, Nönnugötu
12 og Eyjólfur Tómasson,- Stór-
holti 12. — Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af séra Þor-
steini Björnssyni, ungfrú Þóra
Jónsdóttir og Þorsteinn Hreggviðs
son. Heimili þeirra er að Þórs-
götu 5. — Nýlega voru gefin sam-
an i hjónaband ungfrú Valborg
Árnadóttir . (Vilhjálmssonar lækn-
is á Vopnafirði) og Ingi Björn
Ha’ldórsson (Asgrímssonar kaup-
félagsstj. s. st.) Heimili þeirra
er á Týsgötu 1. — Nýlega voru
gefin saman i hjónaband ungfrú
Olga Hrafnhildut' Sigurjónsdóttir,
verzlunarmær og Baldur Kr. Her-
maníusson, verkamaður, Nökkva-
vogi 7.
ihnk
Ríldssklp
Hckla var á Akureyri í gær á
vesturleið. Esja fer frá Reykjavík
á morgun austui' um land í hring-
ferð. Herðubreið fór frá Reykja-
vík k'. 21 í gærkv. til Vestfjarða.
Skjaldbreið verður væntanlega á
Akureyri í dag. Þyrill er á Vest-
fjörðum á norðurieið. Ármann var
i Vestmannaevjum í gær.
Eimskip
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss er í London; fer þaðan til
Boulogne, Antwerpen, Hamborgar
og Rotterdam. Goðafos3 kom til
Rvikur í gær. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn í gær til Leith
og Reykjavíkur Lagarfoss fer
frá New York 26. þm. tii Rvikur.
Reykjafoss fór frá Séte i Suður-
Frakklandi 20. þm. ti'. Dordrecht
í Hollandi. Selfoss er í Reykja-
vik. Tröllafoss er i Reykjavík.
Fiugfélag fslands li.f.
1 dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar og Vestmannaeyja.
Á morgun eru áætlaðar f.’ugferðir
til Alrureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Ólafsfjarðar, Neskaup-
staðar, Seyðisfjarðnr, Siglufjarð-
ar og Kópaskers. — Guilfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur frá
Kaupmannahöfn kl. 18,15 i da.g:
Flugvéiin fer til London k'. 8,00
á þriðjudagsmorgun.
Loftleiðir h.f.
1 dag er áætlað a.ð fljúga til Ak-
ureyrar. Á morgun á að fljúga til
Isafjarðar, Akureyrar og Hellis-
sands.
Haustfermingarbörn í Dómkirkj-
unni komi til viðtais í kirkjuna
sem hér segir: Til séra Jóns
Auðuns fimmtudaginn 27. sept. kl.
5 og til sr. Óskars J. Þorláksson-
ar föstudaginn 28. sept. kl. 5.
Helgidagsiæknir er Óskar Þ. Þórð-
arson, Flókagötu 5, sími 3622.
1 gær voru gef-
in saman í
hjónaband af
sr. Jakobi Jóns-
syni ungfrú Ja-
kobína Hafliða-
dóttir og Óskar Sveinsson prent-
ari. Ileimili 'þeirra verður á Klapp-
arstig 13. — J gær voru gefin sam-
an i hjónabond af séra'Jóni Auð.
uns, ungfrú Jóhanna Elín Er-
lendsdóttir og Bragi Sigurðsson.
Heimili . þeirra verður að Vatns-
stig 16. — 1 gær voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Þorsteini
er opinn alla virka daga kl. 1—7
og á sunnudögum kl. 1—10.
Máiverkasýning Alfreds Jensens
í Þjóðminjasafnshúsinu verður
opin fram á n. k. fimmtudag. 1
dag og á morgun er hún opin kl.
13—-22, en aðra daga kl. 13—19.
i
MESSUR 1 DAG:
CltVi'a Nesprestakall.
Messa í Fossvogs-
kapellu kl. 2 c. h.
—- Sr. Jón Thót'r-
arensen. Dómkirkj-
an. Messa k’. 11
f. h. —■ Sr. Óskar J. Þorláksson.
Laugarneslúrkja. Messa kl. 11 f.
h. —- Sr. Garðar Svavarsson.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn. Messa
kl. 2 e. h. — Sr. Emil Björnsson.
HallgrímskirUja. Messa kl. 11. —
Sr. Jakob Jónsson. Ræðuefni:
Kærleiksskuldin. (Minnist þess að
hafa sálmabækur með).
Brúðusýningin í Iðnó verður opin.
kl. 1—9 e. h. í dag.
Úrslitakapp'eikir í baustmóti_
Meistaraflokks fara fram i dag'
kl. 2 e. h. og keppa þá Fram —
Víkingur og strax á eftir K.R. —
Valur.
Hjóntfmim Hólm-
rQ ' fríði Finnsdóttur
W Aj ^ og Ingólfi Páls-
J \ syni Reykhólum
\ Austur-Barð. fædd-
ist 13 marka son-
ur þann 20. þessa mánaðar.
Nætnrlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. --
Sjmi 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330.
Fastir liðir eiþs
og venjulega. Kl.
11,00 Messa í Dóm-
kirkjunni (sr. Ósk_
ar J. Þorláksson).
15,15 Miðdegistón-
leikar (pj.): a) NBC-hljómsveitin
leikur létt iög; Katims stjórnar.
b) Jussi Björling syrigur lög eftir
Strauss, Foster, Puccini o. fl. c)
„Grand Canyon", svíta eftir Ferde
Grofé (André Kosteianetz og hljórn
sveit hans leika). 16,25 Fréttaút-
varp til Islendinga erlendis. 18,30
Barnatími (Baldur Pá’mason); a)
Ferðasaga eftir fimmtán ára dreng
(B. P.) b) „Stökkull í firðinum",
saga eftir Jónas Árnason (Pétur
Pétursson les). c) Kvæði eftir Ste-
fán Jónsson kennara (B. P.) d)
Tónleikar. 19,30 Tónleiliar: Pader-
ewsky leikur á píanó (plötur).
20,20 Einsöngur:’ .gtefán Islandi
óperusöngvai'i syngur; Fritz
Weisshappel leikur undir: a)
„Horfinn dagur" eftir Árna.
Björnsson. b) „Þey, þey og ró ró“
eftir Björgvin Guðmu’idsson. c)
„Svialín og hrafninn" í útsetn-
ingu Kar.’s O. Runólfssonar. ■—-
Fritz Weisshappel ieikur einleik á
píanó. — d) „AmariUi" eftir Cacc-
ini. e) „Chio mai vi possa" eftir
Hándel. f) Aría úr óperunni
„Tosca" eftir Puccipi. g) Aría úr óp.
„Perlukafararnir" eftir Bizet, 20,50
Erindi: Frá Noregi; siðara erindi.
(Steindór Steindórsson mennta-
skólakenriari). 21,20 Sinfóníuh'jóm-
sveitin; Albert Klahn stjórnar:
a) Lagasyrpa úr óperunni „Héro-
diade" eftir Massenet. b) „Drauma-
ur Ratcliffs" eftir Mascagni. c)
„Fiðri'dið" eftir Leopold. 21,45 Er-
Framhald á 6. síðu.