Þjóðviljinn - 17.10.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 17. október 1951------
s-----:---------------------------------------------N
HiöeviuiNN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson Cáb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Biaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
V_________________________________________—---------•'
Sögufölsun
í forustugrein Alþýðublaðsins í gær er m.a. komizt
þannig að orði um hvíldartíma togarasjómanna:
,.En alþingi lét bæði síðastliðið haust og vetur líða
án þess að hafast nokkuð að í hvíldartímamálinu, enda
þótt'Alþýðuflokkurinn bæri þá ENN fram frumvarp sitt
um lögboðna ' tóif stunda hvíld á togurunum á öllum
veiðum.“
Með einu litlu orði — ENN — er rsynt að halda
þeirri skoðun að lesendunum að Aiþýðuílokkurinn hafi
borið fram tiilögu um tóif stunda hví.ld árum saman á
alþingi og ENN einu sinni í fyrra. Sannleikurinn er sá
að Alþýðuflokkurinn bar fram þá tillögu í fyrsta skipti
á síðasta þingi, og hann bar hana fram eftir að frum-
varp sósíalista haföi ENN einu sinni- verið lagt fram,
því það var upþhaflega flutt 1942. Einnig í ár báru Al-
þýðuflokksbroddarnir fram tillögu sína eftir að frum-
varp sósíalista hafði verið lagt fram, og prentararnir í
Gutenberg þurftu ekki að leggja á sig mikið erfiði vegna
tillögunnar því hún var orðrétt samhljcða frumvarpi sós-
íalista! Þetta eru staðreyndir, en Albýðublaðið er að
reyna að fá staðfesta sögulega föl -un. í gær voru rifjaðar
upp hér 1 blaöinu nokkur sannindi um afstöðu Alþýðu-
flokksbroddanna og í dag skal minnt á atburð sem
gerðist fyrir þremur árum og sett hefur smánarblett á
sögu íslenzkra alþýðusamtaka.
★
Það er áliðið kvölds 19. nóvember 1948. Það er verið
aö ljúka Alþýðusambandsþingi. og leiðtogar Alþýðuflokks-
ins eru gleiðir og gle.nntir, því þeim hefur tekizt í sam-
fylkingu við fulltrúa atvinnurekenda að sölsa til sín
völdin í heildarsamtökunum með lögleysum og ofbeldi og
vopnaða lögreglu að bakhjarli. Alþýðuflokksbrcddarnir
eru svo glenntir að þeir nenna ekki að halda uppi láta-
látum, heldur koma til dyranna eins og þeir eru klæddir,
aldrei þessu vant.
Fyrir fundinum liggur svohlióðandi tillaga: ,.Legg
til að 21. þing Alþýðusambands íslands skori á Alþingi
þaö er nú situr að samþykkja frumvarp þeirra Hermanns
Guðmundssonar og Sigurðar Guðnasonar um hvíldar-
tíma háseta á togurum er flutt var á Alþingi 1946.“ Flutn-
ingsmaðurinn er togarasjómaður. Elías Guðmundsson. en
hann er ekki viðstaddur afgreiðsluna vegna þess að hann
stendur í sínu 16 stunda striti á hafi úti.
Einn af fyrstu ræðumönnum er Sæmundur Ólafsson,
varaformaður Siómannafélags Reykjavíkur. Hann lýsir
yfir því'að ekki komi til mála að samþykkja þessa tillöau,
frumvarpið um 12 stunda hvíld sé fjarstæöa meðan ekki
®é búið að setia lög um hvíld annarra siómanna og verka-
manna í landi! Á eftir honum kemur Ólafur Friðriksson,
ritari Sjómannafélags Reykjavíkur, og lýsir yfir því .meö
hita að þeir sem vilji 12 stunda hvíld sjómanna séu , ,sendi-
tíkur kommúnista“, og frumvarp þsirra Hennanns og Sig-
urðar sé borið frarn sa.mkvæmt erlendum fyrirskipunum!
Og síðan koma agentar Alfoýðublaðsklikunnar einn af
öðrum og segja hug sinn allan í sigurvímunni og skora
á menn að reísa nú Kóminform eftirminnilega með því
að fella tillöguna um 12 stunda hvíld. Fortölur og rök-
semdir sameiningarmanna hafa engin áhrif á Alþýðu-
flokksbroddana.
Síðan fer fram atkvæðagreiðsla að viðhöfðu nafna-
kalli. Úrslit hennar verða þau að það sr FELLT að skora
á alþingi að samþykkja frumvarpið um lengingu hvíldar-
tímans á togurum. Það er fellt með 121 atkvæði gegn 117.
★
Alþýðublaðið sem talar um að Alþýðuflokksbrodd-
arnir berjist ENN fyrir þessu mikla nauðsynjamáli sjó-
manna, heldur að þessi atburður og aðrir slíkir séu
gleymdir. Og einhverjir af lesendum blaðsins kunna aö
hafa gleymt þeim. En sjómenn hafa ekki gleyrnt þekn
og þeir munu ekki gleyma þeim. Sjómenn muna hrein-
skilni Alþýðubláðsklíkunnar 1943 og þeiy vita fullvel að
afstaðan nú er mótuð af hræðslu cg cngu cðru. Þegar
sigur vinnst í barátíunni uxn 12 stunda hyíld fá sjómenn
sigurlaun sín þrátt fyrir fjandskap Aiþýðuflokksbrodd-
a’ina meöan þeir megnuðu og þorðu.
Sláturkaup
Reykvíkinga
Gömul sveitakona skrifar: -—
,,Sláturfélag Suðurlands rekur
umfangsmikla sölu á slátur-
vörum til bæjarbúa á hverju
hausti. Reykvíkingar eru marg-
ir gamlir sveitamenn og kunna
vel að meta það að geta birgt
sig upp af slátri fyrir veturinn.
En eins og annað sem kaupa
þarf til heimilanna er slátrið
dýrt og neyðist almenningur þvi
til að takmarka kaup sín á
þessum ágætu matvælum meir
en en annars væri og æski-
legt er. Eigi að síður kaupa
bæjarbúar mikið af þessari vöru
og munu þau heimili ekki mörg
sem neita sér með öllu um
sláturkaup á haustin.
★
Slátrin rýrð
,,í mínu úngdæmi var alltaf
reiknað með 1 potti af blóði
úr lambinu og 2 pottum úr
fullorðinni kind. Þá þekktist
heldur ekki annað en allt tii-
heyrandi fylgdi hverju siátri.
Nú er hér orcin breyting á,
sem engin ástæða er til að taka
með þögn og þolinmæði, sízt
þegar verðið á slátrinu er tekið
með í reikninginn. Hjá Slátur-
félaginu fær msður aðeins %
úr potti af blóði með hverju
slátri, engin nýru, enga fætur
og ekki ,,gollurhús“. Með þessu
hafa slátrin verið rýrð allmik-
ið og fólk er neytt til að kaupa
sérstaklega viðbót af blóði vilji
bað fá fullan skammt út úr
kaupunum. Svona er á öllum
sviðum reynt að hafa fé út
úr fólkinu. Það virðast engin
takmörk fvrir því sem talið er
fært að bjóða almenningi. —
Gömul sveitakona".
Gróðafýsnin
. að verki
Gamla sveitakonan hefur rétt
fyrir sér. Það er gömul venja
að reikna með 1 potti af blóði
úr lambi og 2 úr fullorðnu fé.
Og áður fyrr þekktist ekkí
annað en fætur og nýru fylgdu
hverju slátri. Það er óver.j-
andi með, öllu áð rýra slátfir.
á þann hátt sem nú tíðkast hjá
slátursölunum hér. Fólkið greið-
ir vissulega fullt verð fyrir
siátrin og á kröfu til að fá þau
óskert. Og vitanlega er það
gróðafýsnin ein sem liggur ao
baki svona verzlunarháttum. —
Slátursalarnir draga t. d. fæt-
urna undan til þess að selja
þá sérstaklega til sultugerðar.
Sala á sviðasultu gefur áreið-
anlega kjötbúíunum góðan arð,
því ekki er bitinn gefinn af
þeirri vöru fremur en öðru.
Það virðist lítil takmörk fýrir
því sem neytendum er talið
bjóðandi en lítt er það. skii.i-
anlegt að Sláturfélagið og aðr-
ir sem slátursöluna arínast
skuli telja sér sæmandi að við-
hafa slíka pretti sem þessa í
viðskiptum við almenning.
★
Aðeins í smásölu
Húsmóðir skrifar: ,,Ég varð
ekki lítið undrandi í fyrradag
þegar ég ætlaði að kaupa tvo
kjötskrokka í Búrfelli og fékk
þau svör að nú væri kjöt ekki
selt lnar lengur í heilum skrokk-
um heldur aðeins í smásölu.
Ég ski! ekki þessa ráðstöfun.
A sama tíma og verulegt magn
kjötframleiðslinnar e” selt úr
landi til Ameríku og Islending-
ar búa við tilfinnanlegan kjöt-
skort mikinn hluta ársins virð-
Í3t nú eiga að stefna að þvi
að gera fólki sem örðugast og
dýrast að birgja sig upp af
kjöti til vetrarins. Ég héit
satt að segja að fólki væri
ekki of gott á þessum tímum
vaxandi dýrtíðar og erfiðleika
, að eiga kost á að kaupa kjöt i
heilum skrokkum eins og verið
hefur á undanförnum árum. —
Húsmóðir".
★
Sláturfélagið hefur ekki
enn tekið upp hinn
nýja sið
Eftir að ég fékk bréf hús-
móðurinnar hringdi ég í slát-
ursölu Siáturféiags Suðurlands
og spurðist fyrir um hvort
það hefði einnig tekið upp sama
sið og Búrfell að neita að
selja almenningi kjöt nema í
smásölu. Svo er ekki. Slátur-
félagið selur kjötið í heilum
skrokkum eins og verið hefur,
og væntanlega sér félagið sér
fært að halda þeirri venju á-
fram öllum almenningi til hag-
ræðis.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunn. — Sími 7911.
Allt um íbróttir,
septemberheftið,
1951, er komið út.
Efni: Tugþr.aut
Reyk j avíkurmóts-
ins. Pressu’iðið
lék mun betur en landsliðið. Val-
ur bar sigur úr býtum á Reykja-
víkurmótinu. B-mótio. Merkasti
hnefaleikaviðburður ársins. Sept-
embermótið. Bezti árangur Is-
lendinga í frjálsum íþróttum sum-
arið 1951. Pyrsta frjálsiþróttamót
Norðurlands. Ra.bbað um hitt og
þetta. Góður árangur Arnar Clau-
sen í Aþenu og Frakklandi. Meist-
aramót Akureyrar. Iþróttamót
UIVB. Frjálsíþróttamót á Isafirði.
Myndir frá tugþraut meistara-
mótsins. Islenzkir iþróttamenn
XII. Eiríkur Haraldsson. Svíar
unnu drengjalandskeppnina milli
Svíá, Finna og Norðmanna. Is-
lendingar sigruðu í samrorrænu
sundkeppninni. Áhugi æskunnar
fyrir iþróttum og líkamsrækt verð
ur að vera lifandi og almsnnur.
Reykvikingar unnu utanbæjar-
menn í sundkeppni. Akranes vann
Val 2:1. Frjáisíþróttamót á Siglu-
firði. Utan úr heimi.
Ágústu Pálsdóttur
og Valtý Nikulás-
fe—'" iy —■ sýni,' Sörlaskjóli 54
\ jtt'l fæddist 14 marka
r M v sonur . í -gær (16.
október).
Áheit til Sólheimadrengsins frá
S og G. og E. kr. 50.00. N. N. kr.
50.00.
Eimskip
Brúarfoss kom til Grimsby 14.
þm.; fer þaðan til Amsterdam
og Hamborgan, Dettifoss er í
Rvik. Goðafoss er í New York.
Gullfoss er í Leith; fer þaðan k'.
2 í dag til Khafnar. Lagarfoss
fer frá Akureyri í dag til Húsavík
ur. Reykjafoss er í Hapiborg. Sel-
foss er í Reykjavík. Tröllafoss
fór væntanlega frá New York í
gser til Halifáx og Reykjayikur.
Bravo lestar í London og Hull
til Reykjavíkur. Vatnajökull fór
frá Antwerpen í gærkvöld til Rott-
erdam og Reykjavíkur.
Skipadelld S.I.S.:
Hvassafell er væntanlegt til Gd-
„ansk i kvöld, frá Helsingfors.
Arnarfel! kemur væntanlega til Ib-
iza í kvöld frá Genova.
yps j 19,30 Þingfréttir. —
Tónleikar. 20.30 Út
varpssaganr „Epla
tréð“ eftir John
Galsworthy; I.
(Þórarinn Guðna-
son læknir). 21.00 Tónleikar: Lög
eftir Karl O. Runólfsson (plötur).
21.20 Erindi: Um starfsemi geð-
veikraspítalans á K’eppi (Helgi
Tómasson dr. med.). 21.45 Djass-
tónleikar. 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Danslög. 22.30 Dag-
skrárlok.
Loftleiðir
I dag verður flogið til Akureyr-
ar, Hólmav., ísafjarðar og Vest-
mannaeyja. Á mcrgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar og Vestm,-
eyja. >
Nýlega voru
gefin saman i
hjónaband af
sr. Gísla Brynj-
ólfssyni, ung-
frú Jóhanna
Sveinsdóttir frá Dynjanda í Nesj-
um og Jóhann A’bertsson, hafn-
sögumaður frá Lælcjanesi í Nesj-
um. — Nýlega voru gefin saman
í hjónaband á Siglufirði, ungfrú
Árdís Jónsdóttir, Siglufirði, og
stud. med. Birgir Jóhannsson
(héraðslæknis Kristjánssonar í
Ólafsfirði). — Nýlega voru gefin
saman í hjónaband á Húsavík,
ugfrú Iljördis Sævar og Helgi
Árnason, vélstjóri á e.s. Brúar-
fossi. -— Heimili þeirra er á Öldu
s’óð 1, Hafnarfirði.
g- Fundur kl. 8,30 í kvöld
á venjul. stað..Stundvísi.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum.
Sími 5030.
Skemmtun Skotlandsfara, sem
Ferðaskrifstofan gengst fyrir, er
í kvöld kl. 8.30 í Sjálfstæðishús-
inu. Meðal skemmtiatriða er revýa
úr Skotlandsför og einnig koma
þar fram skemmtikraftar frá Sjó-
mannadagskaþarettinum.
Níræð er í dag ekkjan Sólveig
Magnúsdóttir frá Votamýri á
Skeiðum, nú til heimilis á Selja-
vegi 9, Reykjavík
LESSTOFA
mf fit Þin^-
holtsstræti ® B ® 27, opin
daglega frá kl. -5—7 og 8—10 e. h.
Komið
með kjólinn til
okkar
capressa
Grettisgötu 3
Hveríisgötu 78