Þjóðviljinn - 25.10.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.10.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 25. október 1951 Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. \___________________________________________________________________/ Sjaldan mun riokkur ríkisstjórn hafa orðið að þola iafn einstæða ráðningu og íslenzka afturhaldsstjórnin í útvarpsumræðunum í fyrrakvöld. Einar Olgeirsson rakti þar lið fyrir lið á sérstaltlega eftirminnil&gan hátt hvernig ríkisstjórnin hefur ráðizt gegn hagsmunum almennings á öllum sviðum þjóðlífsirss og er að gera sárustu fátækt að hlutskipti alþýðuheimilainna á nýjan leik, og h&ildsala- ráðherrann Björn Ólafsson fékk þá húðstrýkingu í þsim orðaskiptum að lengi mun undan svíða. Málsvörn stjórnar flokkanna var svo fátækleg og staglkennd að annað eins hefur ekki heyrzt áður hér á landi. enginn ráðherra Framsóknarflokksins þorði að taka til máls og Björn Ól- afsson gafst upp í miðri umræðu! Enda var á-tandið þannig í gær á stjórnarheimilinu að Morgunblaðið rétt getur umræðnanna af magnaðri ólund, Tímamenn höfðu °kki einu sinni geð í sér til að minnast á þær, heldur létu eins og engar umræður hafi farið fram! Þegar har'ð- svíruðustu stjórnarklíkurnar eru svo miður sln má geta til hvernig öðrum fylgismönnum stjórnarflokkanna líður. Alþýðuflokkurinn hafði beðið sérstaklega um þess- ar umræður og búið sig vel undir þær. Gylfi Þ. Gíslason hélt óvenjugóöa ræðu og hafði, aldrei þessu vant, beitt aCstoðu sinni sem hagfræðingur til aö safna ýmsum upplýsingum í þágu almennings. En í viðskiptunum. við Alþýðuflokkinn áttu stjórnarflokkarnir sitt eina tækifæri í umræðurium. Þeir rifjuðu ofureinfaldlega upp ástand- iö 1 vaidatíð fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins og minntu á hvernig Alþýðuflokksbroddarnir hsfðu þá haft hina al- gerustu samstöðu með hinum afturhaldsflokkunum í1 á- rásunum á almenning. Alþýðuflokkurinn varð að gjalti andspænis sínum eigin verkum eins og alltaf fyrr. en stjórnarflokkarnir keyptu þá hirtingu því verði að hýða jafnframt sjáifa sig, því Alþýðuflokkurinn var vissulega ekki einráöur í forsætisráðherratíð Stefáns Jóhanns! Umræðurnar í fyrrakvöld sönnuðu svo að ekki verður um villzt að afturhaldsforsprakkamir treystast ekki einu sinr.i sjálfir til að verja stjórnarstefnuna, leikarahæfileik- ar þeirra hrökkva ekki til að láta í ljós hrifningu yfir á- standi og horfum í íslenzku þjóðlífi. Enda eru ummæli íslenzku þjóðarinnar um ríkisstjómina öll á eina lund, hverjum flokki sem menn hafa talið sig tilheyra. Sá mað- ur finnst nú ekki á íslandi sem mælir ríkisstjórninni og stefnu hsnnar bót. þeir sem eínlægastir eru í' trúnaði sín- um við valdaklíkuna velja sér þögnina aö hlutskipti, en annars eru Framsóknarmenn og Sjálfetæð’ismenn yfir- leitt engu síður harðorðir en sósíalistar. En eins og Ein- ar Olgeirsson benti á í lokaræðu sinni er það ekki nóg að menn formæli stjórninni í orði; meirihluti íslenzku þjóð- arinnar verður að g&ra sér ljóst að hann kaus sjálfur yfir sig þetta ástand með fylgi sínu við þríflokkana. Sósíalistaflokkurinn varaði þjóðina við öllu því sem mí er komið á daginn fyrir kosningarnar 1949, en meirihluti þjóðarinnar trúði ekki þ&im aðvörunum. Nú eru aðvaran- irnar orönar að sárri vitneskju. og nú ber hverjum heio- arlegum, viti bornum manni að draga af því sínar álykt- anir. Eina huggun afturhaldsflokkanna er sú að vonleysi og svartsýni sé nú að móta þjóðina í æ rlkara mæli og af þeim ástæðijm þurfi ékki að óttast harðnandi andstöðu hennar, og nú þarf almenningur að sýna að sú huggun styðst ekki við rök. íslenzk alþýða getur háð hina hörð- ustu baráttu á tveim vígstöðvum. Annarsvegar með fjölda- samtökum sínum, fyrst og fremst verkalýðssamtökunum, scm sýndu í vor yfirgnæfandi styrk sinn á minnisstæð- asta hátt. En til þess iþarf aö tryggja þar forustu í sam- læmi við hagsmuni og aðstöðu allrar aibýðu í stað þeirra handbenda sem nú fara með vclcl. Hinn þátturinn er stjórnmálabaráttan. efling Sósíalistaflokksins, sem einn ber fram kröfur alþýðunnar í viöskiptum við ríkisstjórn- ina. Og þess sér nú víöa merki- að fylgi Sósíalistafiokks- ins fer mjög vaxandi, m.a. í þeirri staðreynd aö á þessu ári hafa Þjóövilj'anum cætzt á sjötta lumdrað nýir kaup- endur. Ríkiestj'órnin mun vissulega fá að finna það að fslenzk albýða.sættir sig ekki af frjálsum vilja við að þola stsfnu fátæktar, atvinnuleysis og niðurlægingar. íbúðarhúsnæði eða sctuliðssjoppur. Halld. Ól. sendir eftirfarandi pistil um húsnæðismálin og setuliðssjoppurnar :i „Fyrir all- mörgum árum hlýddi ég k Bjarna á Laugarvatni tala í út- varp. Lét hann svo ummælt m. a. að ekki væri ástæða að am- ast við auösöfnun einstakra manna, ef þeir kynnu að nota fé sitt réttilega, þ. e. til al- menningsheilla. Þessi orð fund- ust mér viturleg og festust þau í minni mér. — Þau hafa oft 'nvarflað að mér í seinni tíð, þegar ég sé óþarfa fjárfestingu sumra manna og fyrirtækja, eins og t. d. hinar svonefndu „sjoppur" eða „bara“, sem ná spretta upp að nýju, iíkt og á stríðsárunum. ★ Étið, drukkið, jótrað og reykt. 1 sjoppunum eða börunum er selt sælgæti, gosdrykkir, tóbaik, kaffi og að sjálfsögðu rjómaís. Unglingar sækja -eftir þessum vörum, en hollar eru þær ekki að sama skapi. Marg- ir bararnir eru með miklum íburði, og er talið að innrétting og húsgögn sumra þeirra hafi kostað hundruð þúsunda króna. Þarna hittist æskufólkið. Það tyldrar sér á háa kollstóla, líkt og alifuglar á prik. Það er etið og drukkið, jórtrað og reykt. Upp á síðkastið eru bar- arnir miðstöð setuliðskynninga, en það er raunar Borgin og fínni staðir líka. ★ Sælgætisbarar leyfðir en íbúðarbyggingar bannaðar. Mér er spurn, hví þessir auð- menn, sem innrétta bqra fyrir milljónir króna, láta sér ekki detta í hug eitthvað nyt.sam- legra. Veitingastaðir eru nógu margir, enda mun fjölgun þeirra líklega koma þeim, sem fyrir eru, til að hætta að bera sig og borga skatta. Hins veg- ar vantar íbúðarhúsnæði. Þús- undir manna, karlar og konur, börn og gamalmenni, búa í köldum og óvistiegum skálum eða hreysum. Þetta fólk þráir ekkert meira en að fá ieigt þak yfir höfuðið. Sumt hefur efni á að byggja, en þiað fa>r ekki leyfi fjárhagsráðs, þó það hafi sótt árum saman. Er ekki eilthvað meira en iítið bogið við þetta keríi? Gerir fjárhags- ráð skyldu sína, þegar það ieyf- ir sæigætisbara en bannar í- búðabyggingar? Og er ekki eitthvað öfugt við bessa auð- menn sjálfa, sem kjósa að eiga rjómaís- og tyggigúmmísjoppur frekar en húsakynni til ie;gu handa fjölskyldum á götunni? Lærdómsríkur út- réikningur. Vill ekki einhver, t. d. Jó- 'han-n Hafstein, reikna út, live margar íbúðir væri unnt ?.ð reisa handa þragga-íbúum fyr- ir það fjármagn, sem t, d. Silli og Valdi hafa fest í Adlon-bar- ana? Það gæti orðið lærdóms- ríkt. Þessir ríkisbubbar, sem viija heldur græða á hégóma- girnd og barnaskap ungs fólks en svara þöríum samtíðar sinn- ar, cru það fyrirbrigSi, sem flestu öðru fremur kemur heil- brigt hugsandi fólki til að h.ata það skipulag, sem *við bii- um við. — Halld. ÓI“. Fordæmi starfsmanna á Klöpp. Dagblöðin skýrðu frá því í gær að starfsmenn Olíustöðv- arinnar á Klöpp hefðu skotið saman 530 kr. og fært Krabba- meinsfélaginu til kaupa á Ijós- lækningatækjum þeim sem fé- lagið hyggst að kaupa en skort- ir nokkurt fé til enn. Hér er um fagurt fordæmi að ræða, sem aðrir vinnustaðir ættu að taka sér til fyrirmyndar. Kaup- in á þessum tækjum er mikið og aðkallandí nauðsynjamál og það væri sannarlega ekki gott til afspurnar ef félagio skorti lengi fé til þess að geta eign- azt tækin. Það skiptir ekki mestu máli að upphæðin sé liá frá hverjum einstökum, því með nægilega mörgum smáupphæð- um næst áfanginn sem stefnt er að. Og Krabbameinsfélagið verðskuldar að mæta almenn- um stuðningi og veldvild í því mikilsvería starfi gem það hef- ur tckið sér fyrir hendur að vinna að almeimingi til heiila. Elmskip Brúarfoss fór frá Rotterdam í gær til Gautaborg-ar og Reykja- víkur. Dettifoss er á Húsavík; fer. þa.ðan til Hríseyjar, Dalvíkur og Akureyrar. Goðafoss fór frá New York 19. þrn, til Rvíkur. Gullfoss fór frá Khöfn 23. þm til Rvíkur. Lagarfoss er á Þórsliöfn; fer það- an til Borgarfjarðar, Seyðisfjarðar, Reyðarfjaðar og Rvíkur. Reykja- foss er í Hamborg. Selfoss fór frá Þingeyri i gær til Ólafsfjarðar og Húsavikur. Tröllafoss fór frá Ha’ifax 18. þm. til Rvíkur. Bravo fór frá Hull 23. þm. til Rvíkur. Vatnajökull kom til Rvíkur 23. þm. frá Antwerpen. Skipadeild SÍS Hvassafell átti að fara frá Gd- ansk i gær áleiðis til íslands, með viðkomu í Khöfn. Arnarfeil iest- ar ávexti í Almeria á Spáni. Ríkisskip Hek'a er á Austfjörðum á norð- urleið. Esja er væntanleg til R- vikur í da.g að vestan úr hring- ferð. Herðubreið er í Rvík. Skjald- breið fer frá Reykjavik i kvöld til Húnaflóahafna Þyrill fór frá Reykjavik í gær vestur og norður. Ármann var i Vestmannaeyjurn í gær. XSFISKSALAN: 1 fyrradag seldi Hvalfell afla sinn í Grimsby, 3320 kit fyrir 8033 pund. Sama dag scldi Svalbairur í Grimsby, 3648 kit fyrir 9237 pund. Á mánudaginn seldi Isólf- ur 2300 lcit fyrir 7730 pund í Iiull. Flugfélag Xslands: Innanlandsflug: I dag er ráð- gert að, fljúga til Akureyrar,’ Vest- mannaeyja, Reyðarfjarðar, Fá- skrúðsfjarðar, Blönduóss og Sauð- áVkróks, — Á morgun eru ráðgerð- ar flugferðir til Akureyrar, Vest- mannaeyja, Kirkjubæjarklausturs, Fagurhólsmýrar og Hornafjárðar. — Miililandaflug: Gullfaxi kom frá Prestvík og Kaupmannahöín í gær. Loftleiðir h. f.: 1 dag verður flogið til Aliur- eyrar og Vestmannaeyja. — Á morgun er áæt’að að fljúga tii Akureyrar, Sauðárkróks, Siglufj. og Vestmannaeyja. Fró rannsóknarlögreglunni S. 1. mánudagsnótt var gerð ti’- raun til að stela bifreið er stóð fyrir framan húsið Bergstaðastræti 27. Meða'n á þeirri tilraun stóð gekk einhver maöur þarna fram- hjá og bað sá, or var að reyna að koma bifreiðinni í gang, hann að ýta bílnum með sér, en hinn neit- aði og sagði: „Ég hjálpa þér ekki af því að þú ert svo fullur". — Þennan mann langar rannsóknár- lögregluna til að ta’a við. Þess skal að lokum getið að manninum tókst ekki að stela bilnum. Sextugur er i dag Lárus Knud- sen, verkamaður, Bakkastig 10, Reykjavík. 8.00—9.00 Morgun- útvarp. — 10.10 Veðurfr. 12,10-13.15 Hádegisútvarp. . — 15.30 Miðdegisút- varp. — 16.25 Veð- urfregnir. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.30 Einsöngur: B. Milner syngur og leikur brezk þjóðiög (plötur). 20.45 Dagskrá Kvenfélagasambands Xslands. — Erindi: Frá námsdvöl i Danmörku (Steinunn Guðmundsdóttir hús- mæðrakennari). 21.10 Tónleikar: Dianah Shore og Frank Sinatra syngja (plötur). 21.25 Frá útlönd- um (Jón Magnússon fréttastjóri). 21.40 Sinfónískir tónleikar (plöt- ur): Pianókonsert i Es-dúr eftir Lizt (Brailowsky og Philharmon- iska hljómsveitin í Berlin leika; Julius Prúver stjórnar). 22-.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Framhald sinfónísku tónleikanna: Sinfónía nr. 5 eftir Carl Nielsen (Sinfóníuhljómsveit danska út- varpsins; Erik Tuxen stjórnar). 22.45 Dagskrárlok. Þeir sem fengu muni á handíða- og listmuna-sýningu MIR geta vitj- að þeirra næstu daga til helga,r í lesstofu MIR, Þingholtsstræti 27. BreiðfirSingafélagið hefur félags- vist i Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 8 30. Á eftir félagsvistinni verða gömlu dansarnir Saumanámskelð sem hefst 6. nóv. á vegum þvottakvennafélagsins Freyju er jafnt fyrir utanfé'ags- konur. — Ágætt tækifæri til að sauma fyrir jólin. Hlutavelta kvennadeildar Slysa,- varnaféiagsins. Eftirta'dir csóttir vinningar er komu upp á hlutaveltu kvenna- deildar Slysavarnafélagsins í Réylcjavik óskast sóttir sem fyrst í verz'un Gunnþ. Halldórsdótt- ur: Nr. 13936, 24036, 24272, 15644 14584, 13737, 22634, 17556, 6S89, 23070, 17454 og 10449. — Kvenna- deild Slysavarnaféíagsins í Reykja- vík. Ljósatími bifreiða og annarra ökutækja er kl. 18.15—8.10. Næturlíeknir er i læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum. —• Simi 5030. Næturvörður er í Ingó’fsapóteki. — Simi 1330. Skáicritið, 9.-10. tbl., er komið út. Efni: Lands'iðs- keppnin 1951, Lár- us Johnsen skák- meistari Islands. Skákir frá landsliðskeppninni. Að- alfundur Skáksa.mbands Islands 1950. Endurminningar um A. A. Aljeohin. Af evlendum vettvangi. Skákdæmi. — Læknablaðið, 1.—2. tfcl. er komið út. Eíni: Mjóbaks- verkur, eftir Bjarna Jónsson. Um skóialækningar, eftir Baldur Johm- sen. Reglur um ’yf jagreiðslur sjúkrasamlaga, eftir Óskar Þ. Þórðarson. Stöi’f L. R. milli aðal- funda 1950—'51. Aðalfundur L. R. Ör crlendum lseknaritum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.