Þjóðviljinn - 25.10.1951, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.10.1951, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. október 1951 — ÞJÓÐVILJINN —- (5 if Alþýðublaðið hefur hafið hatraman áróður gegn þeirri tilíögu sósíalista á þingi að ríkisstjórnin verji 15 milljónum króna úr mótvirðisjóði til lánveitinga út á smáíbúðir sem bygg- ing var hafin á 1947 eða síðar. Er í tillögunni miðað 'við íbúðir sem eigi séu stærri en 100 fermetrar að góiffleti, og lánin mega nema 25 þúsundum króna út á hverja íbúð til 10 ára með 4% érsvöxtum. ★ Alþýðublaðið segir nú dag eftir dag um þessa tillögu að liún sé „káiktillaga", „vanhugsuð“, „hrein sýndartillaga“ — og beitir sem sagt öllum orðaforða sinum til að berjast gegn því að þeir sem ráðizt hafa í byggingu smáíbúða af eigin ramm- leik en með litlum efnum geti fengið nokkra opinbera hjálp í sjálfsbjargarviðleitni sinni. Hafa margir af lesendum Al- þýðublaðsins komið að máli við Þjóðviljann og bent á þessa furðulegu afstöðu blaðsins. Þjóðviljinn sér ekki ástæðu til að ræða við Alþýðublaðið um frumvarp þetta, það hefur þegar vakið mjög almenna athygli og vinsældir og mun verða fyigzt af eftirtekt með afdrifum þess á þingi. Auk þess sakar ekki þó Alþýðublaðið haldi áfram að hamast gegn samþykkt þess, það afhjúpar enn einu sinni Alþýðublaðsklikuna og skilning hennar á hagsmunamálum alþýðunnar. ★ Eina. lausnin sem Alþýðuflokkurinn sjálfur sór er bygg irg verkamannabústaða, og er eina tillaga hans á þingi i hús- næðismálum um það efni. - Er áframhaldandi bygging verka- mannabústaða auðvitað mesta nauðsyn og sjálfsagt að styðja það mál, en hitt vita allir að sú framkvæmd er engin heildar- lausn á húsnæðismálunum og aðeins lítið brot húsnæðisleys- •ingjanna hér í Reykjavík tengir nokkrar vonir við þær fram- iívæmdir. Alþýðublaðið lýsir tillöigu sósíalista um lán til smá- íbúða og veii'.;amannabústaðatillögu Alþýðuflokksins sem alger- um andstæðum og sé nauðsynlegt að drepa tilléjgu sósíalista ef samþykkja eigi tillögu Alþýðuflokksins! Sódalistar líta hins vegar á tillögur þessar sem hliðstæður, báðar eru nauðsynjamál sem sjálfsagt er að samþykkja. i( Alþýðublaðið segir að tillaga sósíalista um lán til smá- íbúða sé eina tillaga þeirra í húsnæðismálunum. Þetta eru vís- vitandi ósa.nnindi. Aðaltillaga sósíalista 'hefur verið borin fram ú hverju þir.gi undanfarið og iiggur enn fyrir. Hún er sú að lög- in um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis taki fullt gildi á ný. Samlcvæmt þeim lögum sem samþykkt voru 1946 fyrir atbeina sósíálista áttu bæjar- og sveitarfélög annarsvegar og ríkissjóð- ur hins vegar að gera samstillt átak um að útrýma að fullu öllu heilsuspillandi húsnæði, bröggum, saggakjöllurum, hana- bjálkaloftum og skúrum með byggingu ódýrra leiguibúða í stór- um stíl. TJpphaflega átti að framkvæma þessa áætlun á fjórum árum, og ,hún var miðuð við þarfir þess fólks sem verst er statt, þcss fclks sem getur ekki ráðizt í byggingar sjálft, sem getur tkki einu sinni keypt ibúð í verkamannabústöðum vegna peninga leysis. Kjör þessa fólks eru langbrýnasta viðfangsefnið í hús- næðismálum — en Alþýðublaðið þykist ekki einu sinni vita að frumvarpið liggur fyrir þingi, slí’.tur er áhugi þess á málefnum þeirra sem verst eru staddir. ★ Og þögn Alþýðublaðsins um þetta mál er einnig skiljan- Jeg. Lcgin voru upphaflega samþykkt 1946 í tíð nýsköpunar- stjórnarinnar. Framkvæmd samkvæmt ákvæðum þeirra var haf- in næsta ár í Reykjavík og á ísafirði — en síðan ekki söguna meir. Á þingi 1947—48 var flutt á þingi tillaga um að l%in skyldu úr gildi felld, •— og hverjir voru flutningsmenn þeirrar tillögu ? Það var fyrsta stjórn Alþýðuflokksins, Stefán Jóhann Stefánsson og Emil Jónsson, og allir þingmenn Alþýðuflokksins greiddu abkvæði með þeirri tillögu, gegn hagsmunum hinna bág- stöddu. Og Alþýðuflokksklíkan hélt sömu afstöðu í húsnæðis- málunum alla tíð meðan 'hún var í ríkisstjórn. Og þá bar ekki heldur mikið á áhuganum fyrir verkamannabústöðunum. Þvert á móti var stofnað fjáransráð til að banna fólki að byggja og öll byggingarstarfsemi varð brot af því sem áður var. -k Skrif Alþýðublaðsins um húsnæðismálin þessa dagana sýna að þrátt fyrir lýðskrumið skortir fullkomlega allan skilning á þörfum liúsnæðisleysingjanna Blaðið hamast gegn því að smá- íbúðafólkið fái nokkra hjálp, blaðið berst með þögninni gegn því að lögin um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis taki gildi á ný. Al- þýðublaðsklíkan var svo lengi í opinskáum faðmlögum við auo- mannastéttina og kunni svo vel við sig þar að undir hinni nýju sauðagæru ,,stjórnarandstöðunnar“ glit.tir hvarvetna í úlfshárin, gnmla fjandskapinn gegn öllum nauðsynjamálum alþýðunnar. Athugasemd Á sunnudaginn var birti Þjóð- viljinn dálítið einkennilega frétt um Kensington-steininn marg- ræmda. Vcgna þess að sumir muna skammt aftur og rang- hermi eru stundum lífseigari en sannleikur er rétt að benda á.þessar staðrevndir: William Thalbitzer er ekki rúnafræðingur, heldur fyrrver- and; nrófessor í gi'ænlenzku. 2) Ker.ningar hans um .Kens- ington-steininn eru engan veg- inn nýjar' heldur þriggja ára gamlar og hafa fyrir löngu ver- ið hraktar lið fyrir lið af rúna- fræðingum. Má um það lesa m. a. ritgerð eftir einn fremsta rúnafræðing Norðurlanda, dr. Sven B. F. Jansson, í Skírni 1950. 3) Mjög vil’andi er að haga svo oröum að ætla megi að að- eins einhver einn . „afbi’igði- leiifi“ hafi valdið því að fræði- menn hafi talið Kensington- steininn falsáðan. Til þess ligg- ur fjöidi raka, sem hvert um ojrr qt'o. fulU‘'?2rr'ancli, rjotur hver sem vill sannfærzt um þao af ritgerð Jansson. Jakob Benediktsson. r Hörður Agústsson og Orri I Morgunblaðinu í dag, þriðju- daginn 23. október, birtist greinarstubbur eftir Jón Þor- leifsson, alias Orra, um mál- verkasýningu Harðar Ágústs- sonar. Er grein þessi með slík- um ólíkindum að skilningsleysi og óvilja í garð ungs og fram- sækins málara, að hana má ekki grafa með þögninni. Um hið fuilkomna skilnings- leysi Orra á eðli nútím^ mynd- listar vitna þessi orð hans bezt: „Það veldur nokkrum vonbrigð- um að hann hefur að mestu lagt á hilluna að mála sam- stæður með fólki og húsum, eða hliöstæðu efni, sem íslenzk list er alls ekki ofhlaðin af“. Það veldur vonbrigðum, segir liann, þegar málari, sem er staddur á frjósamasta slceiði ævi sinnar, hjakkar ekki í sama farinu til lengdar, heidur þrosk- ast og ræðst á ný viðfangsefni. Og ein gildasta ástæðan til þess ara vonbrigða er sú, að íslenzk list er „alls - ekki ofhlaðin“ af myndum með fólki og húsum. Þvílík ástæða! Hversvegna seg- ir hann Herði ekki frekar aö fara að mála myndir af stræt- isvögnum eða fíium í Cirkus Zoo, — slíkt hlýtur að vanta alveg tilfinnanlega í íslenzka list!! Siðan segir Orri: „Hinsvegar er bráðum nóg komið af hug- mynda samsetningum alóhlut- ræns viðhorfs (?), sem hinir ungu menn virðast keppast við að taka hver eftir öðrum, og er náttúrlega framamli áhrif, og þá fyrst og fremst frönsk á- hrif, sem samrýmast varla ís- lenzkum hugsunarhætti, enda nauða ósjálfstætt og bein- línis íekið eftir öðrum lista- mönnum“. (Lbr. mín). Hér er með. öðrum orðum fárast yfir því, að Hörður noti hugsýnir og drauma sína sem ívaf mynd- anna og fylli þær sinni eigin til- finningu gagnvart umheiminum. Hann á bara að nota hús og kannske smáskammt af fólki, svo Orri þurfi ekki að velta vöngum vfir því „hvað það eigi áð vera“. Og svo þessi óguð- lega synd, að það séu „náttúr- lega framandi áhrif“. Hvað hefur gefið íslenzkri iist á þess- Hörður Ágústsson: Ancllitsmynd (Teikning) ari öld gróðurmagn sitt, ef það eru ekki framandi áhrif ? Hvar væru hinir gömlu meistarar okkar staddir, þeir Árgrímur, Jón Stefánsson og Kjarval, ef þeir hefðu aldrei komizt út fyr- ir landsteinana til þess að bergja af brunni erlenarar listar? Og svo bætir Orri við þessari furðu legu setningu, að „framandi á- hrif, og þá fyrst og fremst frönsk áhrif, samrýmist vnrla islenzktim hugsunarhætti". — Hvað er „íslenzkur hugsunar- háttur“ í mynd’.ist? Er það ,.ís- lenzkur hugsunarháttur" öðru fremur að mála Þingvelli eða kerlingu í peysufötum? Og hlýtur hitt að teljast glæpsam- lega óþjóðlegt að mála útiend epli í útlendri skál e£a danskt landslag, eins og Jón Þorleifs- son hefur iðulega sjálfur gert? Eða er það inntakið, tilfinning- in í myndinni, sem Orri 'á við? Er það þá „óísienzkur hugsun- arháttur" þegar Hörður Ágústs- son málar eina mynd sína í hrifningu ..erlends" sólarlags ? Hann hefði eflaust frekar átt að má'a „íslenzka" þjóðlega sól! Eða er bað tæknin, sem hann á við? Ef svo, þá væri öll islenzk myndlist þessárar aid- ar ósamræmanieg „íslenzkum hugsunarhætti“, því hún bygg- ir öll á tiieinkun erlendrar myndtækni, og hafa fáir máiar- ar okkar gengið þar lengra en Jón Þorleifsson sjálfur. Og loks segir Orri, að við- horf ungra máiara sé „oft bein- línis tekið eftir öðrum lista- mönnum“. Af hverju ætti ung- ur máiari að læra, ef hann tæki ekkert eftir öðrum ? Eru það tilmæli Jóns, að ungir mái- arar loki sig inni, snúi sér und- an, þegar þeir sjá mynd, brynji sig gegn nýjum áhrifum ? Öðru- vísi verður setning hans vart skilin. Hvar. væri framvindan í menningu heiinsihs, ef hún frjóvgaðist ekki sífelldum víxl- áhrifum manna, tileinkun nýrra hugmynda og nýrrar tækni ? Hvers vegna kostum við íslend- ingar kapps um áð koma sem flestum úngum menntamönnum okkar og málurum utan til náms? Einmitt til þessa: að þeir geti drukkið af nýjum straumum, fiutt heim með sár ný viohorf. Ef við gætum það ekki, þá væri ísienzk menning cg þarmeð íslenzk myndiist dauðadæmd. Síðan er það verk- efni listamannsins að gera á- hrifin, sem hann hefur orðið fyrir, að efnisvið sjálfstæðrar myndsköpunar. og það finnst mér Herði Ágústssyni hafa tek- izt vel. Ég læt þá útrætt um þessá grein Orra. En mér finnst hin- um eldri málurum okkar liggja nær að örva yngri starfsbræðúr sína og reyna að mæta þeim með skilningi en að bera á þá sakir og kasta að þeim hnút- um. Islenzk myndiist á við nóg- an misskihiing að stríða. þótt málararnir beri ekki eid að hon- um innbyrðis. Að lokum vil ég skora á alla, sem hafa ekki enn séð sýningu Harðar, að nota þessa síðustu ciaga til þess að kynnast myud- um hans. Þær búa yfir djúpum litatöfrum, það er eins og litirn- ir vaxi innan frá og eigi ræt- ur sínar í gróðurreit langt að baki yfirborðsins, magnaðir heitri hræringu og innilegum draum. 23.10. ’51. Björn Th. Björnssoa. Nefnd skipuð til aS endnrskoSa án þess að minnzt sé á máliS vi 8 Alþingi jöfina Eikisstjórnin hefur meö bráöabirgöaíögum afnumiö þær hömlur sem voru í bankaiöggjöfinni við því a3 ríkis- stjórnir megi vaöa í seölabanka landsins og taka þax ótakmörkuö lán. Engin blaóaskrif hafa orðið um málið né skýringar veriö á því gefnar, og þegar ríkisstjórnin lagði frumvarp fyrir Alþingi til staðfestingar þessum bráðabirgðalögum. létu ráðherrarnir ekki svo lítið aö fylgja málinu úr hiaði með nokkrum orðum (svo notað sé þingmannamál). Hefði málið farið umræðulaust til 2. umr. og nefndar cf Einar Olgeirsson heföi ekki bent á hve óviðkunnanleg ráöstöfun þaö væri að ríkisstjórn næmi úr gildi með braðabirgðalögum elnmitt þau atriði bankalcggjafarinnar sem ostt heföu verið til aö veitá ríkisstjórnum nokkurt að- hald á þessu 'sviði. Greinm úr lögum um Lands- banka Islands fr,á 15. apr. 1928 scm ríkisstjómin nam úr gildi með brá ðabirgðalögum nú rnilli þinga, er þannig: „Seðlabankinn niá eígi veita ríidrsjóði önnur lán cn bráfa- birgðalán til allt að þriggja mánaða í einu og ckki hærri upphæð e:i svo að nemi þ. af stofnfó bankans. Allar ciíkar skulcUr rikissréðs r1rrlu ‘ir^ldd- ar að fullu fyrir lok hvers reii’rningsárs." % Einar átaldi þessa aðferð ríkisstjórnarinnar til að veita sjáifri sár ótakmarkafia heimild til lántöku í seðlabanka lands- ins. Það sé ákaflega óviðkunn- anlegt að gera slíkt með bráð'a- hirgðalögum. Nú hefði verið skipuð nefnd til að endurskoða aila banka- lcggjöf landsins, án þess að minnzt væri á þá nefndarskipun við Al’pingi. Þessar aðferðir ríkisstjómarinnar gegn banka- löggjöf landsins bentu eindregið til að hér væri framandi hönd rð ver'ú, ríki.vctjórninni væri fyrirskipað nf erleíidum hús- bændum að breyta þar til, svo þeir ættu hægara með' eftirlit og stjórn á þessum málum Is- lendinga.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.