Þjóðviljinn - 07.02.1952, Síða 5
4) — ÞJÓÐVILJIHN — Fimmtudagur 7. f-ebrúar 1952
Fimmtudagur 7. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5
þJÓOVIUINN
Útgefandi: Samelnlng-arflokkur alþýSu — Sóaialistaflokkurlnn.
Bitstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfús3on.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðiistig
19. — Simi 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 18 á mánuði i Reykjavik og nágrenni; kr. 16
annarstaðar á landinu. —— I>ausasöluverð 1 kr. eintakið,
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Hagnýting atvinnuleysisins
Atvinnuleysinu er nú hampað sem röksemd þegar tog-
íirasjómenn gera enn eina tilraun til að hrinda í fram-
kvæmd frumstæðustu réttlætiskröfum' sínum, svo sem
þeirri að þeir fái 12 stunda hvíld eftir 12 stunda strit. Við
þá er sagt: Þetta er ábyrgðarleysi og ómennska að gera
kröfur um kjarabætur méðan þúsundir manna ganga at-
vinnulausir. í landi. Með þessu móti er jöfnum höndum
reynt að draga kjarkinn úr sjómönnum og sundra alþýðu-
stéttunum innbyrðis^ Stjórnarvöld Reykjavíkur gerast
meira að segja svo frökk að halda því fram að það myndi
ekki standa á þeim að láta bæjartogarana leggja upp
Reykjavík til að draga úr atvinnufcysinu — ef sjómenn
bæru ekki fram kröfur sinar um 12 stunda hvíld á sólar-
hring og leiðréttingu á versta misréttinu í kaupgreiðslum!
Með öðrum orðum: Fyrst er skapað atvinnuleysi í landi,
til þess m. a. að kúga sjómenn til að láta af réttlætiskröf-
um sínum, og siðan á að gera tilraun til að kenna sjó-
mönnum um atvinnuleysið, ef þeir neita að láta kúska sig!
Stéttarþroski íslenzkrar alþýðu er þó slíkur að þessar
blekkingar munu ekki heppnast. Hitt er svo annað mál
að það væri glæpsamlegt, ef stjórnarvöldin létu koma til
stöðvunar á togaraflotanum, eins og ástandið er í landinu.
Það fæst enginn íslendingur til að trúa því að nauðsyn-
legt sé að láta frekar koma til verkfails og stöðva skipin
en að sjómenn fái að hvíla sig 12 tíma á sólarhring. Það
mun enginn fást til að trúa því að slík lágmarkshvíld sé
árás á hið margumtalaöa jafnvægi stjórnarvaldanna eða
steypi efnahag þjóðarinnar í voða. Og kaupkröfur sjó-
manna eru svo sanngjamar og eðlilegar áð um þær verður
ekki deilt.
Öllum sanngjömum útgerðarmönnum mun vera þetta
ljóst. Verði engu að síður látið koma tii átaka hljóta þar
aö vera að verki annarleg áhrif, vilji stjórnarvaldanna til
að auka atvinnuleysið enn, magna neyðina á alþýðu-
heimilunum.
Veðurfar og atviuna
Blað forsætisráðherrans heldur því enn fram í gær að
ekkert atvinnuleysi sé í Reykjavík, heldur aðeins atvinnu-
skortur sem stafi af óblíðri veðráttu og muni lagast' af
sjálfu sér strax og tíð batnar án nokkurra aðgerða stjórn-
arvaldanna. Samkvæmt þeirri kenningu standa íslend-
ingar enn á því stigi frumstæöustu þjóða að vera alger-
lega háðir náttúruöflunum í öllum athöfnum sínum, að
standa uppi varnalausir ef eitthvað bregður frá venjulegu
árferði. Allir íslendingar vita þó að þessi kenning er raka-
laust þvaður. íslendingar em þvert á móti komnir á það
stig tækni að hægt er að tryggja öllum Reykvíkingum at-
vinnu, alla tíma árs, jafnvel þegar erfitt er að vinna úti-
vinnu. Enda .hefur áöur verið erfitt tíðarfar á íslandi,
en aldrei slíkt atvinnuleysi síðan fyrir um það bil tveim
áratugum.
Ríkisstjórnin getur ekki skotið sér undan ábyrgðinni
með slíkum falskenningum. Það er ekki veðráttunni að
kenna að helmingi fæi*ra fólk vinnur nú að iðnaði en á
sama tíma 1 fyrra, heldur ríkisstjórninni. Það er ekki veðr-
áttunni að kenna að ekkert er unnið í á annað hundrað
fokheldum íbúðum í Reykjavík, heldur ríkisstjórninni.
Það er ekki veðráttunni að kenna að meginhluti togara-
flotans hefur siglt framhjá íslandi með afla sinn til Bret-
lands eöa Danmerkur, heldur ríkisstjóminni. Og þannig
mætti lengi telja. Þegar bæjarstjórn Reykjavíkur neitar
að fjölga í bæjarvinnunni ber hún ekki fyrir sig veðráttu
heldur peningaskort — það eru ekki til peningar til að
hagnýta framleiðsluorku Reykvíkinga!!
Stjórnarvöldin bera ein alla ábyrgð, og reykvískur verka
lýður verður að draga þau til ábyrgöar. Ein mikilvægasta
aðgerðin til þess er að mæta til atvinnuleysisskráningar-
innar sem lýkur í dag og tryggja að hún gefi þó einhverja
fiugmynd um ástandið í baenum.
Gáfnapróf
Fastir liðir ein3
venjulega. KI. 18.30
Dönskukennsla II.
fl. — 19.00 Ensku-
kennsla; I fl. 19_25
Tónleikar; Dans-
lög. 19.40 Lesin dagskrá næstu
viku. 20.20 Islenzkt mál (Bjarni
um bess að stjórnarvöldin virð- vuhjáimsson cand. mag.) 20.35
ast heldur hafa kosið þögn Tónleikar: Kvartett í Es-dúr eft-
en rökræður um það. En ég ir Dvorák (Björn Ólafsson, Jósef
trúi því ekki, áð samtök stúd- Felzmann, Jón Sen og Einar Vig-
Við byrjum í dag með dálitlu
gáfnaprófi. — Menn hafa veitt
því athygli upp á síðkastið að enta * séu haidin sömu smá- fússon leika). 21.05 Skólaþáttur
kommr eru undarlegm blettir mennckunni gagnvart frjálsum inn <Helgi Þoriáksson kennari).
a hU3. Utu um allan þæinn, lltl- umræðum ein þessi gt jórn. 21.30 Einsongur Kirsten Flagstad
ir gullr blettir gerðlr af somu , J, ° rí b / t ^gnv. 21.45 Upplestur: Gerður
------: .:-------arvoia, neiaur mum pau pverr Hjörieifsdóttir íeikkona íes ljóð
moti taka malið ^ upp a eftjr Jónas Hallgrímsson og Davíð
vettvang Og láta urn Stefánsson. 22.10 Sinfónískir tón-
málningunni einsog slökkvihan-
ar og umferðarstaurar. Það
, - __.*____. -_______smn vciuau6 v-vft ““ öreiansson. zz.uj siniomsKir i
iata y .lð upp y . S það f jalla samkvæmt málfrels- ieikar (pl.): a) Fiðlukonsert
um rökin fyrr tilveru þessara
bletta, hvernig á þeim standi,
og nú vil ég leita eftir áliti
ykkar í málinu. Þið getið sent
svörin skriflega eða munrilega,
hvort heldur þið viljið.
ishugsjónum hins akademíska. 4 í D-dúr (K218) eftir Mozart (J.
Szigeti og Philharmoníska hljóm-
sveitin í London leika; Sir Thom-
as Beecham stjómar), b) Sinfónía
nr. 4 í A-dúr op. 90 (Italska sin-
fónían) eftir Mendelssohn (Scala-
„ . , , . hljómsveitin í Mílanó leikur; E.
°,g_S,emna 1 Samavsbrefl.,Se^ir Panizza stjórnar). 23.00 Dagskrár-
lok.
Góð útvarpserindi
\>''V
Hjónunum Ragn-
heiði og Sigurði
Hafstað stjórnar-
ráðsfulltrúa fæddn
ist dóttir 2. febrú-
ar síðast liðinn.
Aðalfundur Þvottakvennafélags-
stúdentinn: „. ... Ég vil svo
Salerni í áætlnnarbílinn að iokum vekja athygli lesenda
Stokkseyringur skrifar: — a erindum þeim sem Halldór
„Ekki alls fyrir löngu kom Halldórsson dósent er farinn að
fram uppástunga um það í n0a 1 úývarpið. Erindi þessi
iviici Tímanum, að salerni yrðu sett fíaha um íslenzk orðtök, upp-
hér í í áætlunarbíla þá, sem hingað runa Þeirra °S frummerkingu,
ganga austur yfir fjall, því að °S virðist Þeim ætlaðnr vikn-
full nauðsyn sé slíks, einkum ]eSur ,tími a sunnudögum eftir _______________________
í rysjóttu tíðarfari vetrarins. hádegisútvarp. Ef dæma skal ins Freyja sem frestað var vegna
Ætla ég ekki að stela rúmi af fyrsta erindinu, þá er þarna óveðurs, verður haidinn föstudag-
Þióðvilians i lansran rökstuðn- einmitt a ferðinni utvarpsefni, inn 8. þ.m. á Þórsgötu 1 kl. 8.30
,?g lýrirí™'ZÍkkIZhafiii «» Iwtendmgum m»» e.h. - K»»„, ,J8,m=»»,3.
hálfpartinn vænzt þess að und- hugleikið, _ skemmtHegt:, fróð- .
ir þessa uppástungu yrði tekið ^gt og ljoslega framsett. Auk 1 L^abuðmm
annars staðar á prenti; og nú Þess hotl!m .Vlð aiilr gott af
p6Ím lærdomi som pau færa. lííeknavarðstofan Austurbæjar-
— Ég hvet alla til að fylgjast skólanum. Sími 5030. Kvöldvörður:
þama með. — stúdent". Jóhannes Björnsson. Næturvörð-
ur: Þórarinn Guðnason.
hef ég að lokum orðið til þessa
sjálfur, þó að lítil sé leikni mín
við blaðaskrif. .. . En þetta er
sem sagt uppástunga sem nýt-
ur allmenns fylgis bér fyrir
austan. — Stokkseyringur“.
Langarvatn og
Samóa-eyjar
Ég hitti nýlega mann sem
var að koma frá því að senda
blaðastranga. austur að, Laug-
1 kvöld kl. 8.30 verður efnt til
kirkjukvölds í Hallgrímskirkju.
Þar koma fram eins og áður í
vetur ræðumenn, einsöngvarar og
kirkiukórinn. Annar ræðumanna
að þessu sinnl verður sr. Guðm.
Sveinsson frá Hvanneyri. Erindi
sitt nefnir hann: Fornleifafræðin
og gamlatestamentið. Hinn ræðu-
Fimmtudagur 7. febrúar (Ríkarð maðurinn verður Örn Friðriksson
ur). — 38. dagur ársins. — Tungl stud. theol., érindi hans ber fyrir-
arvatni í pósti. Hann hafði í hásuðri kl. 22.27. — Árdegisflóð söngina: Er rétt að hrófla við
næstum orðið frá að hverfa kl. 3.10. Síðdegisfióð kl. 15.32. — fornum kenningum og siðum
©55
kirkjunnar?
Ríkisskip:
Hekla er á Austfj. á suðurleið.
Bergmál, febrúar-
hefti 1952. Úr efn-
isyfirliti: A r°s-
rauðu skýi, eftir
T. Tuxedo; Brúar-
vörðurinn, eftir P.
Frank; Slæmur dagur, eftir Kit
Royston; Hetja, eftir Michael
dag 4. des.
í síma 2781.
n.k. kl. 10—12 f.h.
með strangann aftur ósendan, Dágfjara: ki. 9.22 og ki. 21.44
sökum þess að burðargjaldið
reyndist svo miklu hærra en
hann bjóst við; hann átti varla , .... .
„ . , , .. * Þynll var a Vestfj. 1 gærkvold a
fyrir þvi. Eg er nu bumn að norðurleig Ármann
var í Vest-
gleyma hvert gjaldlð var, en mannaeyjum í gær. Oddur átti að
það var geysihátt. Maður þessi fara fra Rvík ; gær til núnafióa.
er kunnugur • víða um lönd, og
hann sagði að póstgjöld hér EIMSKIP:
innanlands væru tiltölulega Brúarfoss fór frá Rvik 1.2. til Hervey; Brúðkaupsnóttin, eftir
margfalt meiri en utanlands- Rotterdam. Dettifoss fór frá Hull Pethick; Úr heimi kvikmyndanna,
cnn'din csem <?pnnilecra stafaði 6-2- ti] Álaborgar, Gautaborgar og Heiiabrot, krossgáta, spakmæli,
á tvi', T viðkomandi yfir- K.W.vih.r Go^o,, « R- os ,ví„
, , - , . vik i kvold til New York. — og eg veit ekki hvað og hvað.
VOld þættust 1 fyrra dæminu Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn
mega hafa hlutina einsog þeirn 52. til Leith og Rvikur. Lagarfoss Austfirðlngamót verður haldið
sýndist, en rækju sig hinsvegar for frá Antverpen 3.2. til Reykja- 15. þm.- í Sjálfstæðishúsinu.
á alþjóðasamþykktir í seinna víkur. Reykjafoss fer frá Reykja Skemmtiskrá með nýjum hætti,
dæminu. „Ég efast um það sé vík í kvöid tii Huii, Ant- án borðhaids.
mikið dýrara að senda svona verpen og Hamborgar. Selfoss fór
blaðastranga til Samóa-eyja í frá Gautaborg 5.2. til Siglufj. og Bólusetning gegn barnaveiki.
Kyrrahafi heldur en austur á Reykjavikur. Tröllafoss fór frá Pöntunum veitt móttaka þriðju-
» J , .. ... » „ N.Y. 2.2. til Reykjavikur.
Laugarvatn , sagði maðurmn.
Samóa-eyjar munu vera ein-
hverstaðar hinumegin á hnett-
inum.
Ræðir Stúdeníafélagið
hemámið ?
Stúdent skrifar: „Ég Ies í
blöðunum, að Stúdentafélagið
hyggst nú bráðum taka enn
upp venjuna frá tveim síð-
ustu vetrum, að efna til nm-
ræðufunda um ákveðin mál-
éfni. Er það vel, því að fund-
ir þessir hafa vakið mikla at-
hygli, enda hefur þeim oftast,
ef ekki alltaf, verið útvarpað
til þjóðarinnar af stálþræði • • • •
Nú veit ég ekki. hver efni
félagið hyggst núna taka til
umræðu. En ég leyfi mér hér
með að gera þá uppástungu,
að umræðuefni fyrsta fundar-
ins verði hernámið, eða her-
Frledrich Engels: Uppruni
fjölskyldunnar elnkaelgnar-
innar og ríkisins.
1 tengslum við rannsóknir
L. H. Morgans.
Ásgeir Blöndal Magnússon
þýddi. Reykjavik. Bókaút-
gáfan Neistar 1951.
Um sama leyti og bókaút-
gáfufélög landsins flytja þau
hörmulegu tíðindi, að ekki sé
sala í öðru en lélegum bókum,
að það sem venjulega kallast
'bókmenntir seljist ekki, held-
ur bókaútgáfan Neistar áfram
'þeirri stefnu að gefa út kosta-
ríkar bækur, bætiefnaríkar bók-
menntir, án þess að hirða um
ríkjandi stundarsmekk bóka-
markaðarins, sem virðist ekki
geta lagt sér annað til munns
en skemmdar bókmenntalegar
niðursuðuvörur. Neistar virð-
ast ætla að halda áfram þeirri
iitgáfu, sem mörkuð var með
Samsærinu gegn Ráðstjórnar-
ríkjunum og Kommúnistaávarp-
inu, og nú kemur enn út eitt af
hinum sigildu ritum marxism-
ans: Upphaf fjölskyldunnar,
einkaeignarinnar og ríkisins,
■ eftir Friedrich Engels, í ágætri
þýðingu Ásgeirs Blöndals Magn-
ússonar. Uppruni fjölskyldunn-
ar kom út í fyrsta. sinn 1884
og er eitt af höfuðritum hins
vísindalega sósíalisma. Það er
því mikill fengur íslenzkum
bókmenntum, að rit þetta er
komið út á íslenzka tungu, svo
hart sem það er undir tönn til
þýðingar. í ritinu úir og grúir
af nöfnum og hugtökum, sem
ýmist eru nýsmíði eða hafa
ekki verið tungunni töm. Þýð-
andinn hefur í ýmsum efn-
•um orðið að nema íslenzkri
tungu nýtt land í riti þessu,
og er það eitt mikils virði.
Þess skal strax getið, að Ás-
geiri Blöndal hefur tekizt þýð-
ingin ágæta vel. Nýsmíðar hans
í máli eru flestar haglega gerð-
ar og hann nær víðast hvar
hinum létta, liðuga stíl höfund-
ar’ns. En þó skal öllum þeim,
sem ætla sér að lesa bókhia,
á bað bent, að menn verða að
Jeggja dálítið á sig við lestur
su.mra kaflanna. einkum kafl-
ans um fjölskylduna. Hafi
menn náð valdi á þeim kafla
verða aðrir hlutar bókarinnar
auðveldir hverjum manni. Það
léttir einnig imdir lestur bók-
oj'innar, að henni fylgir ýtar-
ieg og ljós efnisskrá og nafna-
skrá og loks orðalisti um fræði-
orð með samsvarandi heitum á
þýzku. Mönnum skal ráðlagt
að kynna sér vel þennan or$a-
lista í sambandi við textann.
Bókin er mjög vel gerð að öll-
um ýtri frágangi og útgáfu-
fyrirtækinu til mikils sóma.
Er auosætt af öllu, að ekkert
hefur verið til sparað a'ð gera
liana eins ve! úr garði og kost-
ur var á, enda ritið svo merki-
ans komið út á
legt, að ósæmilegt væri að
kasta höndunum til útgáfu
þess.
Friedrich Engels skrifaði Upp-
runa fjölskyldunnar í elli sinni
en þó eru ekki nein ellimörk
á stíl né framsetningu. En efni
það, sem bókin fjallar um,
hafði verið lítt rannsakað fyrr
en á síðustu áratugum 19. a'ld-
ar. Forsaga mannkynsins hafði
-fram að þessu að mestu verið
óskrifað blað, og eftir að Eng-
els leið hefur miklum efnivið
verið safnað til að endurskapa
vísindalega forsögu mannkyns-
ins. Engels fylgdist af miklum
áhuga allt til dauðadags með
nýjum rannsólcnum á þessu
sviði, en á síðustu æviárum
hans var þá þegar svo mikið
vitað um hina óskráðu sögu
mannanna, að hann gat tek-
izt það mikla verk á hendur
a'ð skrifa riss af félagslegri
þróunrirsögu mannkynsins á
frumskeiði þess og fram til
þess tíma, er mennirnir tóku að
skrá sjálfir söguleg afrek sín
og dáðir. Uppruni fjölskyld-
unnar er félagsleg frumsaga
mannkynsins og skýrir á skarp-
legan og sannfærandi hátt ým-
is torskilin féiagsleg fyrir-
brigði.
Höfundar hins vísindalega
sósíalisma, Marx og Engels,
höfðu í söguhyggju sinni gert
urinn verði rikjandi valdastétt
í þjóðfélaginu og afnemi hinn
borgaraíega eignarrétt, þ. e.
geri eignarrétt auðvaldsins á
stéttabaráttuna að meginuppi-1 framleiðsl’utækjum og auðlind-
stöðu kenningar sinnar. I upp-
hafsorðum Kommúnistaávarps-
ins héldu þeir því fram, að öll
saga mannlegs þjóðfélags hefði
til þessa verið saga um stétta-
baráttu. Þeir höfðu rannsaka'ð
tilveruskilyrði stéttanna í .sögu
mannanna og komizt að þeirri
niðurstöðu, að afstaða mann-
anna til framleiðslutækjanna og
auðsuppsprettulindanna skipti
mönnum í stéttir, réði eignar-
rétti einna stétta og eignaleysi
annarra. Þessi stéttarskipting
hefði verið söguleg nauðsyn,
er grundvallaðist fj'rst og
fremst á því, að afkastageta
mannlegrar vinnu hefði verið
svo rýr, að þjóðfélagið hefði
ekki getað þróazt nema í stétta-
skiptingu og stéttabaráttu. En
á dögum hins borgaralega þjóð-
félags, þegar stéttaskiptingin
er með öreigum og auðvaldi,
vaxa smám sama.n söguleg skil-
yrði fyrir afnámi stéttanna
vegna hins mikla frjómagns fé-
lagslegrar vinnu. Stéttaand-
stæður verkalýðs og auðvalds
fela í sér möguleika á afnámi
stéttaskiptingarinnar yfirleitt,
en þó því aðeins að verkalýð-
um að sameign alls þjóðféiags-
ins. Þá töldu þeir Marx og
Engels forsögu mannkynsins
lokið, en stéttlaust þjóðfélag
mundi hefja göngu sína á jörð-
unni og þróast um ókomnar
aldir að nýjum og óþekktum
hætli.
En bað vaknaði brátt sú
spurning, hvort stéttabaráttan
hefði í raun og veru geisað alla
stund hér á jörðunni. Var
stéttaskiping og stéttabarátta
jafn gömul mannkyninu? Borg
aralegir vísindamenn létu sér
það gott heita, að stéttabar-
átta hefði jafnan geisað með
mönnunum, því að þar með
væri óbein sönnun færð fram
fyrir því, að svo mundi verða
meðan maðurinn byggði þenn-
an hnött. Borgarastéttin gat
m. ö. o. hagnýtt sér stétta-
baráttukenninguna til afsökun-
ar stéttarvöidum sínum um
alla framtíð.
Það var ekki fyrr en á síð-
ara hluta 19. aldar, að vísindin
gátu skipað manninum í sinn
rétta sess í heinri dýranna, Vís-
indin tóku að velta fyrir sér
Það var hitasvækja og logn siðari hluta
. , , . , , _ dags. Allt stiknaði, og svitinn á andliti
verndin einsog fy SJen ur Þes ^ Hodsja Nasreddins þornaði áður en hann
hafði ráðrúm til að strjúka hann af sér.
arar ráðstöfunar vilja nefna
hana. Um þetta efni er því
miður flest órætt ennþá, sök-
Hrærðum huga sá hann gamalkunnar göt-
ur, gistiskála og taænaturna. Það hafði
ekkert breytzt í Búkhara þau tíu ár sem
hann hafði verið landflótta.
Hundarnir lágu enn í móki við vatns-
þrærnar, og ung spengileg kona laut fram
og sökkti fagurrenndri könnu í dökkt
,, vatn.ið.
Hliðið að hinum fræga skóla, Medressen
Mir Arab, þar sem lærdómsmennirnir
reyndu að sanna nauðsyn þess að útrýma
til allt að sjöunda liðar öllum þeim sem
ekki aðhylltust trú Múhameðs, var enn jafn
harðlokað.
sambandi manna og dýra og
reyni að gera sér grein fyrir
þróun mannsins úr dýraríkinu.
Hugmyndir þróunarkenningar-
innar tóku að orka á sögu- og
þjóðfélagsrannsóknir og fór þá
ekki hjá því, að menn rækju
sig á ýmis torskilin fyrirbrigði.
Marx og Engels skildu það
fljótlega, að þeirra eigin sögu-
hyggja, sem hafði þróun fram-
leiðsiuaflanna og framleiðslu-
háttanna, þ. e. stéttabarátt-
unnar að leiðarhnoða, mundi
geta varpað ljósi á ýmsar stað-
reyndir í frumsögu manna, er
borgaralegir vísindamenn fengu
eklci botnað neitt í eða fengið
samhengi í. Svo mikið var þó
víst af niðurstöðum rannsókna
á sögu fornra þjóða og frum-
stæðra þjóða samtífiarinnar, að
sú kenning fékk ekki lengur
staðizt, að stéttaskiptingin væri
jafngömul mannkyninu. Á
morgni mannlífsins voru ekki
til öreigar og auðmenn, ekki
lénsmenn og ánauðugir bænd-
ur, ekki þrælar og þrælaeig-
endur. I upphafi mannkynssög-
unnar ríkti ekki stéttaskipting
né ópersónulegt rikisvald.
Mannkynið hafði lifað árþús-
undum saman á einu afdrifa-
ríkasta þróunarskeiði lífs síns
án stéttabaráttu og án sér-
staks ríkisvalds. Stéttaskipt-
ing og stéttabarátta voru því
ekki eilífar fylgjur mannkyns-
ins, öðru nær. Stéttaskiptingin •
er aðeins sögulegur áfangi á
þroskaferli mannkynsins á þró-
un þess frá uppréttri tvífættri
mannskepnu til hins stéttlausa
þjóðfélags kommúnisma.
Uppr.uni fjölskyldunnar eft-
ir Engels fjallar um þetta
merkilega stéttlausa skeið
mannfélagsins og skýrir or-
sakir þess, að þetta þjóðfélag,
sem hvílir félagslega á blóð-
sifjaböndum og ættsveitum,
en atvinnulega á sameiginlegri
vinnu og sameign hinna mikil-
vægustu framleiðslutæ.kja, leys-
Framhald á 7. síðu,
Fyrirspurnir
ítrekaðar
Ég beindi fyrir skömmu
tveim vinsamlegum fyrirspurn-
um til Sjómannadagsráðs varð-
andi ágóðann af skemmtunum
Truxa á siðasta ári. Nú hefur
Þorvarður Björnsson gjaldkeri
ráðsins svarað mér, og olli svar
hans mér fullkomnum von-
brigðum. Gjaldkerinn segir að
ég geti komið sjálfur á skrif-
stofu ráðsins og fengið þar
skýringar, en eins og ég gerði
honum grein fyrir upphaflega
er þetta ekkert einkamál mitt;
það er mál allra þeirra sem
lagt hafa fram sinn skerf til
dva'ariieimilisins og eiga þeir
heiir.tingu á að fá opinbera
vitneskju um árangurinn af
fraœlögum sínum. Fæ ég ekki
skilið hvað Sjómannadagsráði
gæti verið að vanbúnaði. Því
spyr ég enn:
Hver var heildargróðinn af
skemmtnnum Truxa og félaga
hans á síðasta ári ? Hversu
mikill hluti þess heildargróða
rann til dvalarheimilis aldraðra
sjómanna?
Spurningar mínar eru bom-
ar fram í fyllstu vinsemd, en
ég hygg að Sjómannadágsráði
sé hollast að svara þeim greini-
lega og vífilengjulaust, vilji
það halda hylli almennings hér
eftir sem hingað til.
Sjómaður.
Skíðagerðin Fönn getur fullnægt
þörfum landsmanna um skíðakaup
Skíðagerðin Fönn getur framleitt öll þau skíði sem lands-
menn þurfa að nota. Hún hefur nú starfað í tvö ár og framleið-
ir skíði við allra hæfi. Verð skíðanna sem hér eru smíðuð þolir
fyllilega samanburð við skiði sem innflutt eru frá öðrum lönd-
um.
Þessa daga hefur Skíðagerð-
in Fönn sýningu á framleiðslu
sinni í glugga Málarans í
Bankastræti, en umráð þess
glugga hefur Félag íslenzkra
iðnrekenda fyrir innlendan iðn-
að. Blaðamenn ræddu í fyrra-
dag við Gufina Jónsson fram-
kv.stj. „Fannar“ og skýrði
hann frá því að- á s.l. ári hefði
„Fönn“ framleitt 22S0 pör af
skíðum og gæti á 5—6 mán-
uðum framleitt skíði til að
fullnægja eftirspurninni hér á
landi. Framleiðir yerksmiðjan
skíði af mismunandi ger'ðum
og gæðum, við allra hæfi. Efn-
ið sem hún notar er hickory,
birki, askur og fura, og ei
efnið flutt inn frá Bandaríkj-
unum, Þýzkalandi og Svíþjóð.
Þolir fy’lilega samanburð
Sem fyrr segir framleiðir
verksmiðjan allar venjulegar
tegundir skíða, gönguskiði,
stökkskíði, svigskiði. Ennfrem-
ur framleiðir verksmiðjan skíði
með plastbotnum, er kemur í
stað innbrennslunnar áður og
þykja hálli. Innlenda fram-
leiðslan þolir fyllilega saman-
burð við erlenda hvað verð
snertir, og það þótt sldði væru
flutt inn á réttu gengi en ekki
fyrir bátagjaldeyri.
A næsta ári mun verða hafin
framleiðsla á samsettum skíð-
um. Ennfremur er til athugun-
ar að hefja útflutning á skíð-
um, en það byggist fyrst og
fremst á því hve góðra véla
verksmiðjan hefur getað aflað
sér.
7 tegundir af skiðastöfum
Þá framleiðir verksmiðjan X
Framhald á. 6. siSu.