Þjóðviljinn - 07.02.1952, Qupperneq 8
Seldu í janúar fyrir 13,3 mllljónfr kr.
Fiskverð í Bretlandi fallið nm lielming
í janúar fóru togararnir samtals 29 söluferðir til Eng-
lands og var afli þeirra samtals 78 þús. 527 kit og seldiist
hann fyrir 292 þús. 691 sterlingspund, eða um 13,3 millj.
króna.
Fiskverð hefur nú fallið um helming í Bretlandi á síð-
asta hálfum mánuði.
IIJOÐVIUINM
Fimmtudagur 7. febrúar 1952 — 17. árgangur — 30. tölublað
Samþykktir atvinnuleysisfundarins
1 blaðinu í gær var sagt frá einni samþykkt atvinnuleysis-
fundarins í Iðnó í fyrrakvöld, kröfunni um að togararnir leggi
afla sinn á land hér til vinnslu og kröfunni um 200 manna fjölg-
un í bæjarvinnu. Hér fara á eftir aðrar samþykktir fundarins.
Afli togaranna er heldur að
glæðast,, og var t.d. sæmileg
aflahrota í fyrradag, en samt
er hann enn tregur, sem sést
á þvi að togararnir þurfa allt
upp í hálfan mánuð til veiði-
ferðar.
Fyrstu dagana í þessum mán-
uði hafa þessir togarar selt:
Sólborg 3175 kit fyrir 9534 £
Hallveig
Fróðadóttir 2786 kit fyrir 7511£
Helgafell 3367 kit fyrir 9593 £
Surprice 3232 kit fyrir 6568 £
Úranus 3424 kit fyrir 7516 £
Svalbakur 3690 kit fyrir 8905 £
í gærmorgun seldu Júní
3055 kit fyrir 8430 pund og
Geir um 3500 kit fyrir 9364
pund. Keflvíkingur seldi ná-
lega 3000 kit fyrir um 6700
pund, en ekki höfðu borizt ná-
kvæmar tölur í gær af þeirri
sölu. Neptúnus seldi um helm-
ing af afla sínum í gær um
1600 kit fyrir um 4600 pund.
Hinn helminginn selur hann í
dag.
I dag munu ennfremur selja
þessir togarar: Jón Baldvins-
son, Jón forseti, Hafliði og Öl-
afur Jóhannesson.
Bæði Júní og Geir voru með
ágætan fisk þótt hann seldist
ekki fyrir hærra verð. T.d. var
Geir með um 1000 kit af ýsu og
Ketill Jensson söng í Gamla
bíói á þriðjudagskvöldið var
fyrir yfirfullu húsi og við á-
gætar viðtökur áheyrenda. F.
Weisshappel var við flygilinn.
Á efnisskránni voru fjögur ís-
lenzk og sjö erlend lög.
Þessi ungi Reykvíkingur er
nafnkunnur síðan hann kom
fram sem einsöngvari með
Karlakór Reykjavíkur fyrir
þremur árum og hélt utan til
söngnáms . Ríkar vonir hafa
verið bundnar við þroska hans
í list sinni, og tvímæli um rétt-
mæti þeirri eru tekin af héðan
í frá, þótt sumar eigi enn þá
framtíðina fyrir sér að rætast.
Skipt hefur um rödd hans á
þessum skamma tíma, svo að
hún er nú ein hin fegursta
sinnar tegundar ■— hár tenór
og töfrabjartur í mýkt sinni og
fyllingu, leiknari í vöfunum og
lausari úr álögum erfiðismun-
anna en vænta mátti og býr
yfir ríkari blæbrigðum en söng-
varinn hefur þó enn á valdi sínu.
Það fer því allt að réttum
rökum að raddþjálfun hefur
gengið fyrir þroska sumra
annarra eiginda sem skapandi
söngvara eru nauðsynlegar, og
eðlilegur sviðgeigur og viðjar
skólans og fyrirmyndanna
hömluðu að vonum persónuleg-
um og frjálsum listflutningi.
En þær viðjar hefur hann
brotið af sér fyrr en varir; og
áð þess verði skammt að bíða
mátti t.d. greinilega sjá á túlk-
im hans á aríunni úr óperu
Giordanos, Andrea Chenier,
sem hann söng eins og sá sem
valdið hefur. Þá voru heldur
hefði því fengið um 20 þús.
pund fyrir þann afla þegar fisk-
markaðurinn var hæstur um
daginn.
Tveir menn, Walter heitinn
og Guðmundur J-B. Ólafsson,
voru inni í tankinum með raf-
suðuvél að leggja síðustu hönd
á viðgerð tanksins. Skyndilega
kemur Guðmundur inn á skrif-
stofu Olíufélagsins, en það átti
bílinn, og hafði hann brennzt i
andliti af loga sem hann sagði
áð allt í einu hefði blos’sað upp
inni í tankinum. Var þá þegar
farið á vettvang að huga að
Walter, en enginn eldur var þá
í tankinum. Var rafsuðuvélin
tekin úr sambandi. Er ekki vit-
að hvert Walter hafði vikið
sér á meðan, en svo virðist
sem hann hafi farið eitthvað
ekki slæm skilin sem hann
gerði Musica proibita eftir
Gastaldon, El lamento di Fed-
erico eftir Cilea eða aukalag-
inu einu eftir Massenet. Um
meðferð hans á íslenzku lög-
KETILL JENSSON
unum (Sig. Þórðarson, Sigfús
Einarsson, Sigv. Kaldalóns, Páll
ísólfsson og Árni Björnsson)
var eftirtakanlegt, hvað fram-
burðurinn var skýr og fagur,
þegar frá eru taldir blástur-
slitnir sérhljóðar (innskots-h)
og hljóðvilla, sem aðeins brá
fyrir. Hefðbundin túlkun hans
á Gígjun'ni var þannig hin á-
heyrilegasta, sömuieiðis á Ave
María Sigurðar Þórðarsonar.
Miður tókst með litla lagið
1 dag skín sól, sem er af öðr-
um og viðkvæmari toga spunn-
ið.
r’ramhald á 6. <aí3u.
Síldveiét
Norðmamia
Laugard. 2. febr. var síld-
veiði Norðmanna 4.297.300 hl.,
sem var hagnýttur þannig: Is-
að 259.110. — Saltað 420.844.
Til niðursuðu 35.804. — I
bræðslu 3.519.501 hl.
inn í verkstæðishúsið eða
geymslur, komið síðan aftur,
sett rafsuðuvélina í samband
og ætlað að halda verki sínu
áfram. En eftir nokkrar mín-
útur tóku menn eftir reyk frá
bílnum. Hafði því enn blossað
upp eldur, og lá Walter látinn
inni J tankinum þegar að v.ar
komið.
Það skal tekið fram áð ekki
hefur verið flutt olía í þessum
bíl síðan í sumar, og var tank-
urinn dauðhreinsaður. Hefur
verið unnið að viðgerð tanksins
öðru hvoru í haust og vetur,
og ekkert óvenjulegt komið
fyrir.
Gert var áð sárum Guðmund-
ar Ólafssonar á Landspítalan-
um, og fór hann síðan heim
til sín. Mun rannsóknarlögregl-
an yfirheyra hann í dag.
Walter Ágústsson var um
fertugt. Lætur hann eftir sig
konu og tvö börn.
Heita þeir Lýður Kristinn
Jónsson, Selbúðum 6, fæddur
árið 1933; og Kristján Frið-
riksson, Höfðaborg 32, fæddur
árið 1935. Viö frásögn Þjóð-
viljans í gær má bæta því að
fólkið, er Einar hitti, telur
að hann hafi leitað eftir fé-
lagsskap þess, og það hafi
aldrei boðið honum að slást í
hópinn. Grennslaðist Einar
fljótlega eftir því við fólkið
hváða möguleikar mundu vera
á því að selja tékka þann er
hann væri með, og var reynt
á mörgum bílstöðvum, án á-
rangurs. Við hús á Bergstaða-
stígnum gerði Einar upp bílinn
sem þau höfðu leigt. Síðan var
haldið áfram gangandi, en á
horni Skothússvegar og Lauf-
ásvegar skarst í odda með Ein-
ari og þeim Lýði og Kristjáni,
og bjóst Lýður skjótlega til að
„leggja í“ Einar. En það er
sannað að Einar færðist undan
slagsmálum, en ér hann hlaut
að taka á móti hafði hann
Lýð þegar undir og leitaðist
við að tala um fyrir honum.
Þá kom félagi Lýðs honum til
hjálpar, svo sem greint var frá
Bærinn gangi eftir
sínu og leggi á*
móti
„Alménnur fundur um at-
vinnumál, haldinn í Reykja\ík,
Heimanmundunnn
Rússnesk kvikmynd, Heiman-
mundurinn, sem Stjörnubíó hef
ur sýnt að undanförnu við góða
aðsókn og vinsældir, verður
sýnd þar í síðasta sinn í kvöld.
Þetta er söngva- og gaman-
mynd, tekin í hinum undur-
fögru agfa-litum, sem _ Rússar
kunna manna bezt lagið á.
Samáðarkveðjiir
Báðar þingdeildir írska þings-
ins samþykktu hinn 30. janúar
svohljóðandi þingsályktun(:
„Þingið ályktar að votta
ríkisstjórn íslands og ís-
lenzku þjóðinni djúpa sam-
úð sina í tilefni af andláti
herra Sveins Björnssonar,
forseta Islands".
Aðalfundur Prentmyndasmiða-
félagsins var haldinn í gær-
kvöldi. Þessir voru kosnir í
stjóm: Sigurbjörn Þórðarson,
formaður; Benedikt Gíslason,
ritari; Jón Stefánsson, gjald-
keri; og meðstjórnandi Grétar
Sigurðsson.
í gær, og börðu þeir Einar í
rot. Svipti Lýður síðan kápu
hans sundur, og léttu þeir fé-
lagar ekki fyrr en þeir höfðu
rænt Einar öllu fémæti. Sendi
Lýður mann með tékkann niður
í Búnaðarbanka, en þar var
tékkinn tekinn, þar sem Einar
hafði þegar tilkynnt um ránið.
Og hefur hann nú fengið fé
sitt aftur.
Ekki er annars getið en
stúlkumar sem voru með í
þessu ævintýri hafi horft hinar
rólegustu á er riddarar þeirra
hömuðust að Einari. En þegar
því var lokið kom hin kven-
lega líknsemi til sögunnar.
Báru þær Einar burt úr snjó-
skaflinum, og komu honum
þægilega fyrir á húströppum í
grenndinni. Og skildu síðan
ekki við hann fyrr en þær
höfðu gengið úr skugga um að
hann væri með lífsmarki!
Rannsókn í hinu málinu er
haldið áfram.
Lýður Kristinn Jónsson bif-
reiðarstjóri, Grettisgötu 73,
biður um að sér sé ekki rugl-
að saman við árásarmanninn
með sama nafni.
6. febr. 1952, skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíhur, að ganga
nú þegar eftir sínum hluta af
fé því er Alþingi samþykkti að
verja til atvinnuaukningar í
kaupstöðum og kauptúnum
Iandsins. Jafnframt skorar fund
urinn á bæjarstjórn Reykjavík-
ur að leggja fram fé á móti því
fjárframlagi er bærinn fær frá
ríkinu til atvir.nuaukningar.“
Iðnaðinum verði
tryggt hráefni og
rekstursfé
„Almennur fundur um a.tr
vinnuleysið, haldinn 5. febr.
1952 í Iðnó, skorar á ríkisstjórn
ina að gefa innflutning til iðn-
aðarins algerlega frjálsan, að
tryggja iðnaðinum nægilegt
rekstrarfé og að takmarka að
verulegu leyti innflutning þeirra
erlendra iðnaðarvara sem fram-
leiddar eru í landinu.“
Aflétt stöðvun
húsbygginga
„Fundur haldinn af atvinnu-
málanefnd og Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík, þriðjudaginn 5. febr. 1952,
skorar á ríkisstjórnina og aðra
valdhafa að gera nú þegar rót-
tækar ráðstafanir til að reisa
við og byggja upp á ný húsa-
byggingaiðnaðinn í landinu með
skipulagningu á hagkvæmum
byggingum og hagkvæmum
lánum til þeirra.“
Skorað á togara-
eigendur að ganga
að kröfum sjc-
manna
„Þar sem atvinnuleýsi er nú
mjög mikið hér í bæ og annars-
staðar á landinu, en úrbætur
velta mjög á því að sjávarút-
vegurinn geti gengið ótruflað-
ur skorar fundurinn mjög al-
varlega á togaraeigendur að
verða við sanngjörnum kröfum
sjómanna, svo konúzt verðj hjá
vinnustöðvun.“
Þorskveiði
Xorðmanna
Laugard. 2. febr. var þorsk-
aflinn 8.610 lestir. Áflinn var
hagnýttur þannig: 773 lestir í
herzlu, 4.640 lestir í salt, 3.197
lestir ísað og í frystingu. Afla-
magnið er miðað við slægðan
og hausaðan fisk.
(Frá Fiskifélagi íslands).
Söngvari kveður sér hljóðs
Banaslys á Reykja-
víkurflugvelll
Laust fyrir hádegi í gær varð það sviplega slys á Reykja-
víkurflugvelli að eldur kom upp í tanki olíubíls sem ver-
ið var að gerá við, og beið annar viðgerðamaðurihn,
Walter Ágústsson, Mávahlíð 24, bana.
Annað árásarmálið upplýst
Lögreglan hélt í gærdag áfram rannaókn árásarmálanna
tveggja sem greint var frá hér í blaðinu í gær. Lauk rannsókn
í máli Einars Björnssonar, Flókagötu 6, og voru það tveir ung-
ir piltar hér í bænum er árásina gerðu.
Atyimiuleysisskránmgin heldur áfram í dag en lýkur ld. 5 e.h. —
Hún fer fram í Hafnarstræti 20 ld. 10—12 f.h. oa 1—5 e.h.