Þjóðviljinn - 21.03.1952, Blaðsíða 1
Félagar! Gæti3 þcss að glata
ekkl flokksrcttindum vegna
vanskila. Greiðið því flokks-
gjöldin slcilvíslega í byrjun
hvers mánaðar. Skrifstofan er
opin daglega kl. 10—12 f. h. og
1—7 e. li. Stjórnin.
Föstudagur 21. marz 1952 — 17. árgangur — 67. tölublað
Brezka stjómin yfirvegar regiugerðina
um verndun fiskimiðanna við Island.
Talsmaður brezka utanríkisráðuneytisins skýrði
írá því í gær, að brezka ríkisstjórnin hefði til yfir-
vegunar reglugerðina nýju um verndun fiskimið-
anna við ísland.
Talsmaðurinn sagði, að enn
væri of snemmt að láta í Ijós
ndkkra opinbera, brezka af-
stöðu til reglugerðarinnar.
Formaður félags brezkra
togaraútgerðarmanna sagði í
gær, að reglugerðin um vernd-
un fiskimiðanna við ísland
væri þungt áfall fyrir brezku
togaraútgerðina.
Formaður félags norskra út-
igerðarmanna, sem gera út á
tslandsmið, segir í viðtali við
Dagbladet, að eins og nú horfi
muni reglugerðin engin áhrif
hafa á veiðar Norðmanna við
uni H, C.
Andersen railli-
Dönsk blöð skýra frá því að
til tals hafi komið að danska
utanríkisráðuneytið beri fram
mótmæli vegna meðferðar
bandaríska kvikmyndakóngsins
Goldwyns á ævisögu H. C.
Andersens í kvikmynd, sem
hann er að gera. Skopleikarinn
Danny Ivaye er látinn leika
ævintýraskáldið og í kvikmynd-
inni er öllu snúið öfugt, ævi
skáldsins, verkum hans og
staðháttúm í Danmörku.
Island, vegna þess að undan-
farin ár hafi síldin verið svo
djúpt undan Norðurlandi að
veiðin hafi að mestu verið ut-
an hinnar nýju landhelgislínu.
Öðru málj gegni, ef síldin fari
aftur að sækja nær landi, þá
horfi óvænlega fyrir síldveið-
um Norðmanna við Island.
Frakkar og ÞjóS
verjar semja
Utanríkisháðherrar Frakklands
og Vestur-Þýzkalands hafa
orðið ásáttir um að hefja við-
ræður sín á milli um Saarhér-
að og verður því ekki af þvi
að kærur um afstöðu beggja
ríkja til héraðsins komi fyrir
Evrópurá'ðið.
Fer Svíþjéo úr
Undén, utanríkisráðherra,
Svíþjóðar, lýsti yfir á fundi
ráðherranefndar Evrópuráðs-
ins í París í gær, að vafasamt
væri hvort Svíþjóð gæti haldið
áfram aðild að ráðinu ef sam-
þyk'.ít yrði tillaga Edens, utan-
ríkisráðherra Bretlands, um að
tengja ráðið fyrirhuguðum
Vestur-Evrópuher og Schum-
anáætluninni um sameiningu
þungaiðnaðar Vestur-Evrópu.
Undén sagði, að þegar Svíar
hefðu gerzt aðilar að ráðinu
hefðu þeir haldið, að ákvæði
stofnskrár þess um að það megi
ekki láta sig hermál skipta
yrðu haldin.
Samhamulag
um eftir-
litsstaði
Algert samkomuiag varð í
Panmunjom í gær um þá staði
í Kóreu, þar sem hafa skal
eftirlit með liðsflutningum til
landsins eftir að vopnahléi hef
ur verið komið á. Bandaríkja-
menn féllu frá kröfu sinni um
eftirlit í Pyongvang, höfuð-
bcrg Norður-Kóreu.
Á efri myndinni sjást stúlkurnar í vefnaðardeildinni við vef-
stóla sína. — Á neðri myndinni eru nemendur trésmíðadeiid-
arinnar að starfj — (Ljósm. Vignir). — Sjá grein á 8 síðu
Ein of kynþóftakúgunorlögum
S-Afrikustjórnar dœmd ógild
Komin er upp dsila milli hæstaréttar Suöur-Afríku
og ríkisstjórnar landsins.
Hæstiréttur Suður-Afríku
kvað í gær upp dóm um að ó-
gild séu lög þau, sem þing-
meirihluti þjóðemissinnastjóm-
ar Malans setti um að taka út
af hinni almennu kjörskrá í
Höfðafylki kynblendinga hvítra
manna og svartra og leyfa
þeim aðeins að greiða atkvæði
um sérstaika frambjóðendur.
Eru hæstaréttardómaramir
fimrn sammála, um ,að sam-
kvæmt stjórnarskránni hafi
þurft tvo þriðju atkvæða á
þingi til að siík lagabreyting
væri lögleg.
Utan Höfðafylkis hafa kyn-
blendingar aldrei haft kosning-
arrétt og hvorki þar né ann-
arsstaðar í Suður-Afríku hafa
svertingjar, sem eru nær þrír
fjórðu landsbúa, kosningarrétt.
Malan forsætisráðherra
sagði á þingi í gær, að það
væri óþolandi að dómsvaldið
gæti ónýtt gerðir löggjafar-
valdsins og myndi stjórn hans
innan skamms tilkynna ráð-
stafanir til að ráða bót á því.
Neyðarástand
vegna fannkyngis
Neyðarástandi, hefur verið
lýst yfir í Nevadaríki í Banda-
ríkjunum vegna fádæma fann-
kyngis. Vofir horfellir yfir sex
hundruð þúsundum búpenings
og 1000 manns eru einangraðsr
frá umheiminúm.
Siglúsar Sigurhjart-
arsonar minnzt
á fundi bæjarsíjórnaE Reykjavíknr í gær
íslenzki fáninn var í gær breiddur á gafl fundarstaðar
bæjarstjórnar Reykjavíkur. Auk bæjarfulltrúa voru
mættir nokkrir af starfsmjönnum bæjarins og varafull-
trúum Sósíalistaflokksins.
Áður en genglið var til dagskrár flutti forseti bæjar-
stjórnarinnar Hallgrímur Bene'diktsson eftirfarandi ræðu.
„Háttvirtu bæjarfulltrúar!
Enn liefur sviplega skarð ver
ið höggið í okkar hóp. Sl. laug-
ardag 15. marz lézt Sigfús Sig-
urhjartarson, bæjarfulltrúi, að
heimili sínu. Banamein hans
var hjartaslag.
Sigfús Annes Sigurhjartar-
son var fæddur að Urðum í
Svarfaðardal 6. febrúar 1902
og því rétt fimmtugur, þegar
hann fellur frá. Hann varð
stúdent 1924, lagði síðan stund
á guðfræðinám og tók emb-
ættispróf í guðfræði 1928.
Sigfús lieitinn gerðist þá
kennari við Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga og gegndi því
starfi til 1939, er hann gerði
blaðamennskuna að aðalstarfi
og varð ritstjóri Þjóðviljans,
en áður hafði hann ritað mikið
fyrir Alþýðublaðið og verið rit-
stjóri „Nýs Lands“.
Jafnframt þessu var hann
sakir mannkosta sinna valinn
til að gegna margvíslegum
trúnaðarstörfum.
Þannig var hann aðeins 29
ára að áldri kosinn Stórtempl-
ar Stórstúku Góðtemplara og
starfaði sem slíkur í 3 ár að
hann baðst undan endurkosn-
ingu, en ávallt síðan átti hann
sæti í framkvæmdanefnd Góð-
templararegl unnar.
Þá var Sigfús Sigurhjartar-
son formaður útvarpsráðs 1935
—’39, meðlimur tryggingar-
Eisenhower á
báSum áffum
Eisenhower hershöfðingi lýsti
yfir í París í gær, að hið mikla
fylgi,' sem hann fékk í próf-
kosningum um forsetaefni í
Minnesotaríki í Bandaríkjunum
hefði knúið sig til að endur-
skoða þá ákvörðun sína að
gera ekkert sjálfur til að sækj-
ast eftir útnefningu sem for-
setaefni republikana.
Truman forseti sagði blaða-
mönnum í gær, a'ð Eisenhower
væri frjálst að segja af sér yfir
hershöfðingjaembætti A-banda-
lagsins hvenær sem hann vildi.
ráðs, og 1942 var hann kosinn
alþingismaður, og átti sæti á
Alþingi til 1949 sem landskjör-
inn þingmaður og þingmaður
Reykjavíkur.
Hinn 15. marz 1942 var
Sigfús heitinn kosinn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur og endur-
kosinn 1946 og 1950, og hafði
hann því nákvæmlega verið
bæjarfulltrúi í 10 ár, þegar
hann lézt. Hann var kosinn í
bæjarráð 19. marz 1942 og síð-
an árlega endurkosinn, síðast
7. febrúar s.l. — Sigfús heit-
inn átti sæti í forstöðunefnd
Námsflokka Reykjavíkur frá
1942, var varamaður í útgerð-
arráði frá 1950 og kosinn í
stjórn Eítirlaunasjóðs Reykja-
víkurborgar 1951.
Það var mjög eðlilegt, að
samherjar Sigfúsar heitins
vildu hafa hann í fararbroddi,
því að hann var sérstaklega
vel skýr og greindur, áhuga-
samur og gekk með ósérplægni
og dugnaði að hverju því
starfi, sem honum var falið.
En ekki mun það sízt hafa
aukið vinsældir Sigfúsar heit-
ing í hópi samherjanna, að
hann var bæði ritfær og vel
máli farinn.
Sigfús Sigurhjartarson var
ötull baráttumaður og gat, ef
því var að skipta, hitnað í
skapi, en kunni þó allajafna
vel að greina aðalatriði frá
aúkaatriðum. Álít ég, sem var
annarar skoðunar í stjórnmál-
um en Sigfús heitinn, að hann
hafi viljað vel í starfi sínu og
verið einlægur í skoðunum.
Við lát Sigfúsar Sigurhjart-
arsonar vil ég f.h. allrar bæj-
arstjórnarinnar votta ekkju
hans, tveim dætrum við nám
erlendis og syni í Gagnfræða-
skóla, einlæga samúð okkar í
þeirra miklu sorg.
Að svo mæltu vil ég biðja
alla viðstadda að rísa úr sæt-
um í virðingarskyni við mikil-
hæfan látinn samstarfsmann."
Djúp og virðuleg þögn ríkti
nokkra stund að lokinni ræðu
forsetans. — Fimm mál voru
á dagskrá og voru þau öll af-
greidd án umræ'ðu.
Minningarathöfn um
Sigfús Sigurhjartarson,
bæjarfulltrúa og fyrrverandi alþingismann,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík laug-
ardaginn 22. þ. m. og hefst kl. 2 eftir hádegi.
Athöfninni verður útvarpað.
Blóm og kransar afbeðnir.
Sigríður Stefánsdóttir
Adda Bára Sigfúsdóttir Hulda Sigfúsdóttir
Stefán Sigfússon