Þjóðviljinn - 24.04.1952, Side 3

Þjóðviljinn - 24.04.1952, Side 3
i r ;c Fimmtudagur 24. apríl 1952 — ÞJÓÐVIUINN Ritstjóri: Þóra Vigfúsdóttir Traust forystukona Viðtal við Guðrúnu Finnsdóttir íslenzka verkalýöshreyfingin á mörgum merkum og duglegum konum á aö skipa, sem hafa fómað tómstund- um og lagt alla sína krafta fram í baráttunni fyrir bætt- um kjörum alþýðunnar og réttlátara þjóðskipulagi. Verka lýðshreyfingin geymir nöfn ótal kvenna, sem hafa gegnt ábyrgöarmiklum forustuhlutverkum innan samtaka al- þýöunnar og leitt til sigurs hverja launabaráttuna á fætur annarri. Ein af þessum konum er Guörún Finnsdóttir, formaður Félags afgreiöslustúlkna í brauða og mjólkur- búðum (A.S.B.), en hún átti sextugs afmæli í gær. Hver kannast ekki viö Guðrúnu Finns, hinn prúöa og hógværa formann A.S.B. sem allsstaðar vinnur sér traust og virðingu. Einbeitt og einörð ber hún fram kröfur félags sins og vinnur hvern sigurinn af öðrum fyrir bættum kjömm starfssystra sinna. Hún er hin trausta forystu- kona sem aldrei bregzt. A SUMARDAGINN FYRSTA Sumardagur/nn fyrsti heilsar okkur í dag með öllum sínum fyr- irheitum og „kær er öllum koman þín, en kærust norður í höfum“. Sumardagurinn fyrsti hefur æv- inlega verið fyrst og fremst hátíð barnanna. Hér í höfuðborginni hafa þau árum saman sett svip sinn á bæinn þennan dag. Það er vissulega fögur sjón að sjá þenn- an barnaskai n ganga í skipulögð- um fylkingum með litlu islenzku flögginn sín í hendinni brosandi og glöð yfir dýrð dagsins. Og það er þennan dag ársins að Barnavinafélsgið Sumargjöf vinn ur í þágu þess fjölþætta starfs sem það hefur með höndum. Má í þvi sambandi minna á vöggu- stofurnar sem það starfrækir og stefnir að að fjölga, þar sem mæð- ur geta komið fyrir vöggubörnum BÍnum einhvern hluta d'ags, ef þeim liggur á. En sumardagurinn fyrsti, þessi fyrsti vorboði gróðurs og vákn- andi lifs, leiðir einnig hugann nú að þeim háskalegu aðstæðum, sem skapazt hafa, framar öllu þeirri æsku sem er að vaxa úr grasi, við komu hins erlenda her- iiðs inn í landið. Hverri móður rennur ekki kalt vatn milli skinns og hörunds þegar stjórnarblöðin eru að lofa með hátíðleik foreldr- um þessa bæjar, betri fangelsum á Keflavíkurílugvelli fyrir telp- urnar þeirra og auknu ísienzku lögregluliði þar til að vernda er- lenda herinn fyrir ágangi þeirra? Þetta er ekki illur draumur eða marti-öð eða eitthvað sem stend- ur í skopblöðum til að koma fólki til hlæja. Nr;i, þetta er úrræði þeirra stjórnarvalda sem hafa gefið erlendu herveldi ótakmark- aðan aðgang að landi okkar og ó- takmarkaðan aðgang að hverjum stað eða bletti, hversu helgur sem hann er í augum okkar — ef hann er álitinn að dómi erlendra herliðsins vel fallinn til hernaðar- aðgerða. Og okkur er ekki heldur hlíft við því að eitt dagblað bæj- Mikið þykir mér leiðinlegt að þú skulir vera svona ákveðin í að tala um þetta afmæli mitt í Kvennasíðunni. Árin hafa hing- að til streymt yfir mig í kyrþey og því á nú alit í einu að fara að hafa einhvern þys og umtal, segir Guðrún, þegar hún veit erindið. Ertu Reykvíkingur? Og nei, ekki aldeiiis. Eg er Hún- vetningur í sðra ætt og Barð- strendingur í hina. Eg flutti til Reykjavíkur 1922, svo ég er nú búin að vera hér í 30 ár. arins, Tíminn, hefur það nýlega í flimtingum að unglingstelpa hafi flækzt í hári sínu á gaddavírs girðingu Keilavíkurflugvallarins þegar hún var að reyna að stelast inn í næturklúbbagleðskap hinna erlendu manna. Hve langt er síð- an þessir unglingar, sem þjóðfé- lagið hefur blátt áfram hrakið út á glapstigu, gengu brosandi og áhyggjulausir með flöggin sín sumardaginn fyrsta og höfðu ekki hugmynd um að þeir sem báru ábyrgð á framtíð þeirra, stjórnar- völdin, voru að afhenda landið er- lendum her? Konur! Heitum þvi í dag að taka höndum saman, hvar í flokki sem við stöndum, að standa vörð um það bezta sem við eigum, börnin okkar, og hefja markvissa baráttu móti þeim svika- og eyði-' leggingaröflum, sem eru að af- menna íslenzku þjóðina. Hve lengi befurðu starfað við Mjólkursamsöluna? Eitthvað í 28 ár og það var alveg af tilviljun, eins og oft vill verða í lífinu, að ég fór í þessa atvinnu. Eg var ekki vel heilsu- hraust og ætlaði að fá mér létta vinnu. Eg gerði mér upphaflega alls ekki grein fyrir hvað af- greiðslustarf ið í mjólkurbúðum er lýjandi, hvað því fylgir miklar stöður og erill, og það er ef til vill undarlegast að ég skyldi velja þessa atvinnu þar sem ég var í eðli mínu frábitin öllum verzlun- arstörfum. Eg var hvorki á þeim árum frekar en ég er nú hrifin af verzlun né verzlunarmátanum yfirleitt, en ég hef þó eigi að síður stundað þetta starf og staðið fyrir innan búðarborðið í 28 ár. Svona getur maður hrakizt út í and- stæðu við það sem maður hefur ef til vill hugsað sér. Þú ert formaður í A.S.B.? Já, ég hef verið það í 10 ár, en þessi félagsskapur er nú að verða 20 ára. A.S.B. var stofnað, eins og þú veizt, ao frumkvæði Lauf eyjar Valdimarsdóttur og var hún f ormaður þar til eitthvað ári áður en hún lézt. Markmið þessa félagsskapar var að bæta kjör starfsstúlknanna í brauða- og mjólkurbúðum en'þau voru bág um það leyti sem fé lagið var stoinað. Þá voru kreppu og atvinnuleysistímar og kjör al- mennings erfið í alla stað. En fé- lagi okkar tókst þótt ungt væri furðu fljótt með samtakamætti okkar að fá kjörin bætt, t. d. styttri vinnutíma og ýms hlunn- indi sem ekki höfðu þekkzt áður. Og ég verð að segja að það var efnilegur hópur, sem stóð að stofnun ASB, og stúlkurnar þær vissu vel hvað þær vildu. Á her- námsárunum þegar vinna var nóg og stúlkur gátu valið um kaup- háar atvinnugreinar var stöðugt verið að skipta um í búðunum, unglingar rétt yfir fermingarald- ur komu tíma og tíma, stöðvuðust aldrei til lengdar við afgreiðsl una — komu og fóru, eins og far A kvih* mynda- sýningu Gleðilegt sumar ! Hver eru þau áhrif, sem kvikmyndir hér í Reykjavík skilja eftir í • barnssálinni ? Kvikmyndir, sem ekki eru við barna hæfi, en börnin fá að flykkjast á fyrir þrábeiðni og suð, fyrir utan venjuleg rök, sem foreldramir gefast • upp fyrir: „Bæði hún Sigga og hann Geiri mega fara“. Og ég veit að mörgum dettur hið sama í hug. Barnssálin er mót- tækileg og sálarfræðín kenn- ir varfærni í umgengni við hana. Þriggja til fjögurra ára' börn sjást hér oft í bíóum, annáð hvort með eldri syst- kinum eða foreldrum. Svo ung böm eiga áreiðanlega nær aldrei erindi á bíó. Þau hafa ekki vit á að skemmta sér við það sem fram fer og mest hætta á að þau verði hrædd og uppnæm, sem síðar kemur fram í myrkfælni, martröð, ó- reglulegum svefni o. fl. Sænska blaðið Morgonbris tók þetta efni til meðferðar s. 1. vetur og komst að þeirri niðurstöðu, að í Svíþjóð væri sáralítið um kvikmyndir við hæfi bama. Blaðið harmaði að félagsmálum í Svíþjóð skyldi ekki lengra komið en svo, að 3—6 ára bömum skuli leyft að sækja bíáin. Bömin hafa á- kaflega næma réttlætistilfinn- ingu og hefja hávær mótmæli þegar atvik í myndum misbjóða! réttlætiskenndinni. Þetta er. aðeins eitt atriði af f jöldamörg um, sem rétt gerðar kvikmyná ir fyrir böm forðast að láta: koma fyrir, en áðrir hirða að sjálfsögðu ekki um. Höfundur, Framhald á 6. síðu. « fr tn fuglar, en við reyndum eigi að siður að halde félaginu vel vak- andi og v>nna fyrir kjarabótum. Því alltaf var ágætur hópur í fé- laginu, sem bar hag þess fyrir brjóstinu og óhætt er að segja að allt félagsstarfs hvíldi á, og það er fyrst og fremst þessum fé- lögum mínum að þakka að félagið heldur áfram að gegna því hlut- verki, sem það setti sér í upphafi, að vinna að bættum kjörum og öryggi fyrir stúlkur sem stunda þessa atvinnugrein. Og ég vil taka það fram hér að persónulega hef- ur það ævinlega verið mér á- nægjuefni að vínna að félagsmál- um með þeim hópi starfssystra minna sem ég tel að félag okkar eigi tilveru sína fyrst og fremst •að þakka. Þú hefur verið í félaginu frá stofnun þess? Já, ég gekk í það strax, og var varaformaður þangað til ég tók við formennskunni fyrir 10 árum. Hafið þið liaft nokkra menn- ingarstarfsemi með höndum í fé- laginu? Já, eiginlega má segja það. Við stofnuðum söngkór innan fé- lagsins og saumanámskeið hafa einnig verið haldin, en á hernáms- árunum var erfitt að halda uppi hvorutveggja, því eins og ég sagði áðan var allt á flugi og ferð á þeim árum og erfitt að halda hóp- inn. En við sem höfum forystu í ASB höfum cft ræl^ um að á- nægjulegt væri að taka upp slíka starfsemi aftur. Nú er aftur kom- >n meiri kjölfesta í félagið. Hvernig erti nú kjör stúlkna við þessi störf í dag? Eg get t. d. nefnt að fyrstu 3' mánuðina fá stúlkur 900.00 í grunnkaup, en það verður með' núverandi vísitölu 1332 kr. Eftir eitt ár fá þær með núverandi vísi- tölu 1776 kr. á mánuði, og svo höfum við taxta sem ég held aS ekkert verkalýðsfélaganna hafi, nema ef til vill verzlunarmanna- félagið, við fáum eftir fimm ár 1924 krónur á mánuði. En for- stöðukona fær í viðbót 150 kr. í grunn á mánuði. Sækjast stúlkur mikið Cftir þessu starfí uú? ’ Nú er-framboðið meira en hægfi er að sinna. Síversnandi ástand og atvinnuleysi á sinn þátt í því. En það er eí'tirtektarvert hvað stúlkur almennt, og þær þurfa ekki að vera gamlar til þess, gera sér glögga grein fyrir hvaða kjör. þeim eru boðin. Sumarfrí hjá okkur er nú 14 virkir dagar ogl eftir 10 ára starf fáum við 1S virka daga. Veikindafrí á fullum. launum er 45 dagár ef um sam- felldan sjúkleika er að ræða. Eins fáum við sloppaþvott frían og eru það einnig talsverð hlunn- indi. Stúlkur í brauðsölubúðum fá aukagreiðslu fyrir helgidaga- vinnu. Þegar litið er til baka, seg- ir Guðrún, sjáum við að samtök okkar hafa fært okkur ýmsa sigra. Án þeirra værum við tvístr- aður her sem ættum allt undir náð húsbóndans. Við vinir og samherjar Guðrún- ar óskum henni allra heilla á komandi árum og islenzku verka- lýðssamtökin megi njóta krafta hennar sem lengst. 1 Þ.V. j

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.