Þjóðviljinn - 13.05.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 13.05.1952, Blaðsíða 8
á Borginni aflétt Tiikynningin var rifin niSur og verður ekki $etf upp aftur Jóhannes á Borg hefur guggnað á blökkumannabanni sínu. Bannyfirlýsingin er hengd var upp í anddyrinu á laugardaginn hefur verðin tekin nliður og samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa lögreglustjóra mun Jóhannes á Borg ekki hafa í hyggju að hengja hana upp aftur. Þetta er í annað sinn sem réttlætiskennd ahnennings knýr þenna hóteleiganda til þess að láta af þeirri ósvífnf að meina lituðum mönnum aðgang til jafns við aðra menn og innleiða hér blökkumannahatur.. HióÐviumN Þipiðjudagur 13. maí 1952 — 17. árgangur — 105. tölublað I kvöld er síðasta tæikifærið til að sjá í Iðnó Allra sálna messu, leikna af Leikfélagi Hafnarfjarðar, og óvíst er að fleiri sýningar á ieiknum verði í Hafnarfirði á þessu vori, en Leikfélag Hafnarfjarðar mun ætla að ferðast eitíhvað með leik- inn út á land. Myndin hér að \ ofan er úr leiknum og sýnir Huldu Kun- ótfsdóttur sem Katrínu og Sigurð Kristinsson sem Mikael. Réttarhney kslið Eins og Þjóðviljinn hefur áð- ur sagt frá vakti þetta bann reiði og fyrirlitningu fjölda manna. Á sunnudaginn fór Sig- urður Magnússon löggæzlu- maður rakleitt á Borgina, reif tilkynninguna niður, afhenti yfirþjóninum nafnspjald sitt og bað hann skila því til Jóhannes- ar að kæra sig fyrir þetta — ef hann þyrði. — Þjóð- viljinn hefur fregnað um ýmsa fleiri er höfðu sama í hyggju og ætluðu að rifa tilkynningu þessa niður ef hún hefði verið hengd upp aftur. Sá hann ofsjónir?! Áhorfandi sem var úti á Austurvelli hefur lýst þessum atburði allsögulega, þegar hann sá til Sigurðar fara inn í Borgina og koma brátt út aft- ur — og þjónar á hælum hon- um. Og vafalaust hafa það ekki verið ofsjónir að hann sá Jó- hannesi bregða fyrir með byssu og stóran hund! (Jóhannes mun hafa ætlað á fuglaveiðar). Verður ekki endurtekið. Sigurður mun hafa verið kærður fyrir lögreglunni fyrir tiltæki sitt og Jóhannes átt við- ræður við lögregluna um það, sem lyktuðu á þá lund að Sig- urður fær ekki ákæru og Jó- hannes ætlar ekki að reyna að framkvæma kynþáttabann á Borginni eftirleiðis. Þetta er i annað sinn. Þetta er í annað sinn að Borgin reynir þá ósvíífni að banna mönnum af þeldökkum Hafea engar sannanir TJtanríkismálanefnd fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings birti í gær niðurstöðurnar af vitnis- burði æðstu manna her- og ut- anríkismála varðandi frumvarp- ið um fjárveitingu til hernaðar- aðstoðar. Segir nefndin að af framburði ráðherranna og her- foringjanna sé ljóst að Bar.da- ríkjastjórn hafi engar sannanir fyrir þv9 að sovétstjórnin álíti styrjöld óumflýjanlega né hafi ákveðið að hefja árásarstyrj- öld. Hinsvegar sé her Sovét- ríkjanna öfliugur og hernaðar- aðstoðin til Vestur-Evrópu eigi að tryggja það að ef til stríðs komi verði það háð eins fjarri ströndum Bandaríkjanna og mögulegt er. Sorgardagur í Túnis 1 gær var liðið 81 ár frá því Frakkar undirokuðu Túnis og hin bannaða sjálfstæðishreyf- ing Túnisbúa hvatti landsmenn til að gera daginn að almenn- um sorgardegi. Árásir voru víða .gerðar á Frakka og leppa þeirra, aðallega sprengjuárásir. kynþáttum aðgang að veitinga- húsinu. Um 1930 var Indverj- um neitað um afgreiðslu þar og vakti það þá eins og nú óhemju reiði hjá almenningi. Þeir Hendrik Ottósson, Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson, Tóm- as Guðmundsson og sr. Ást- valdur beittu sér þá gegn þeim kynþáttaofsóknum er þá átti að hefja. Varð það að samkomu- lagi að gestir Borgarinnar voru látnir greiða atkvæði og sam- þykktu gestirnir gegn sárafá- um mótatkvæðum að öll þjóð- erni skyldu hafa jafnan aðgang Vonandi lætur Borgin sér þennan síðasta atburð að kenn- ingu verða og reynir aldrei framar þá ósvífni að láta gesti gjalda þjóðemis síns. Blaðið segir að Bretar hafi komizt yfir eintak af skýrslu um hernaðaraðstöðuna í Evrópu, sem Fechteler hafi sam ið fyrir öryggisnefnd Banda- rikjanna, en í henni eiga sæti forsetinn og æðstu menn utan- ríkismála og landvarna. Erezka flotamálaráðuneytið, rem hef- ur deilt við Fechteler um yfir- stjórn flota A-bandalagsríkj anna . á Miðjarðarhafi kom skýrslunni á framfæii við Le Mor.clo, sem er viour'.'ennt trúverðuga str. Lorgarablað Frakklands. Fechteler segír í skýrslunni að styrjöld sé óhjákvæmileg ekki síðar en 1960. Sovéfherinn geti lagt Vestur-Evrópu undir sig á þremur dögum og kafbáta- floti Sovétríkjanna rofið sigl- ingar yfir Atlanzhaf á átta Fékk 2]a ára fangelsi EEins og menn muna varð bílstjóri einn hér í bænum fyr- ir harkalegri árás í vetur er farþegi hans lét hann aka sér suður í Kópavog, réðst þar að honum með rörtöng og hugðist ræna hann víni er árásarmað- urinn grunaði hann um áð hafa í fórum sínum. Árásin mistókst, en hins vegar hlaut bílstjórinn mikinn áverka og var frá vinnu um hríð. I undirrétti er nýlega fallinn dómur í máli mannsins er árás- ina gerði. Hlaut hann 2ja ára fangelsisdóm, og var sviptur kosningarétti og kjörgengi til allra opinberra starfa. Einnig var honum gert að greiða all- an málskostnað. Hann hefur setið í gæzluvarðhaldi frá 26. febrúar í vetur, og dregst varðhaldsvistin frá refsingar- tíma hans. Maðurinn hefur fengið frest til áfrýjunar. Verða látnir standa reikn- ingsskap Ulbricht, varaforsætisráð- herra austurþýzku stjórnarinn- ar, sagði blaðamönnum í Berlín í gær, að allir þeir, sem stuðl- uðu að því að koma á hernaðar- bandalagi milli Vestur-Þýzka- lands og Vesturveldanna myndu síðar verðá að svara til saka fyrir þýzkum alþýðudómstól- um. Hann sagði að ef af hern- aðarbandalaginu yrði myndu Austur-Þjóðverjar verða að her væðast. Afleiðingarnar af hern- aðarbandalaginu fyrir Vestur- Berlín myndu koma í Ijós dag- inn eftir að bandalagssamning- urinn yrði undirritaður. Á sunnudaginn réðst lög- regla vesturþýzku stjórnarinn- ar með skothríð á 30.000 manna æskulýðsfund gegn hernaðar- bandalaginu við Vesturveldin í borginni Essen. Einn maðúr var skotinn til bana en margir særðust. mánuðum. Bandarikjamenn verði því að feggja meginá- herzlu á að halda yfirráðunum á Miðjarðarhafi og koma sér upp stöðvum í Miðausfurlönd- um til að hef ja þaðan gagnsókn inní Sovétríkin. Le Monde birti skýrsluna á föstudaginn í siðustu viku en Fechteler fékkst ekkert til að segja um hana fyrr en í gær er hann bar á móti að hafa samið nokkra slíka skýrslu. Gefraunaspá Úrslitin um helgina: Fram og Víkingur 2:0 — Valur og KR 4:2 — Hálsing- borg og Malmö 1:0 — Örebro og Norrköping 1:1 — Djur- gárden og Göteborg 0:1 — Atvideberg og Degerfors 1:1— Skeid og Odd ? : ? — Örn og Ar Aad 3:3 — Víkir.g og Vál- erengen 0:0 — iBrann og Ask- er 0 : 1 ■— Sparta og Fredrik- stad 0:3 — Lyn og Sarpsborg 2 : 1. 5. leikvika — Leikir 16. til 18. maí 1952: Kerfi 24 raðir: Fram og Valur 2 — KR og Víkingur 1x3 — Válerengen og Brann 1 — Asker og Viking 1 x — Arstad og Skeid 2 — Sandefjord og Lyn x 2 — Göte- borg og Gais 1 — Ráá og Háls- ingborg 1 x — Degerfors og Jönköping 1 — Elfsborg og Át- vidaberg 1 — Malmö og Örebro 1 — Norrk. og Djurgárden 1. Prins vann 21 skák Á sunnudaginn tefidi holl- enzki skákmaðurinn Prinz fjöl- tefli við 33 menn í Mjólkur- stöðinni. Prinz vann 21 skák, gerði 8 jafntefli en tapaði 4. f gærkvöld hófst fyrri skák- in í einvígi hans og Baldurs MöIIers. Framhald af 1. síðu. að honum er tilkynnt, að refs- ingin verði framkvæmd. (4 mánaða fangelsi óskilorðs- bundið). Málsvarnarlaun skipáðs t-als- manns ákærða Hreggviðs Stef- ánssonar í héraði, Ragnars Ól- afssonar hæstaréttarlögmanns, kr. 300.00, greiðist úr ríkis- sjóði. Málsvarnarlaun skipaðs talsmanns i héraði hinna á- kærðu Guðmundar Björgvdns Vigfússonar og Kristófers Sturlusonar, Áka Jakobssonar héraðsdómslögmanns, kr. 500. 00, greiðist úr ríkissjóði. Á- kærði Stefán Oddur Magnús- son greiði málsvarnarlaun skip- aðsta talsmanns síns í héraði, Áka Jakobssonar héraðsdóms- lögmanns, kr. 300.00. Að öðru leyti skulu vera óröskuð ákv. hins áfrýjaða dóms um greiðslu málsvamarlauna í héra'ði. Málflutningslaun skipaðs verjanda í Hæstarétti hinna á- kærðu Guðmundar Björgvins Vigfússonar, Hreggviðs Stef- ánssonar og Kristófers Sturlu- sonar, hæstaréttarlögmanns Ragnars Ólafssonar, kr. 4000. 00 greiðist úr ríkissjóði. Málf lutningslaun skipaðs verjanda i Hæstarétti ákærða Sigurðar Jónssonar, hæstarétt- arlögmanns Sveinbjörns Jóns- sonar, kr. 1500.00 greiðist úr rikissjóði. Ákærðu Jón Múli Árnason, Magnús Jóel Jóhannsson, Ólaf- ur Jensson og Stefán Ög- mundsson greiði in solidum málflutingslaun skipaðs verj- anda síns i Hæstarétti, Egils Sigurgeirssonar hæstaréttarlög- manns, kr. 12000.00. Ákærðu Garðar ÓIi Halldórs- son, Gísli Rafn fsleifsson, Hálf- dán Bjamason, Jóhann Péturs- son, Jón Kristinn Steinsson, Kristján Guðmundss. og Stefn- ir Ólafsson greiði in solidum Hyggst svikja gefin /oforð Clark, hinni nýi yfirhers- höfðingi Bandaríkjamanna í Kóreu, sagði í gær að striðs föngum á eynni Koje hefðr verið gefin ýmis loforð til ac ná Dodd hershöfðingja, yfir- stjórnanda fangabúðanna úr höndum þeirra. Hinsvegar hefðu þessi loforð verið knúin fram með nauðung og ættu af framkvæmast í samræmi við það. málflutningslaun skipaðs verj- anda sins í Hæstarétti, Ragn- ars Ólafssonar hæstaréttarlög- manns, kr. 8000.00. Ákærðu Friðrik Anton Högnason, Guðmundur Helga- son og Magnús Hákonarson greiði in solidum málflutnings- laun skipaðs verjanda sins í Hæstarétti, Sveinbjörns Jóns- sonar hæstaréttarlögmanns, kr. 5500,00. Ákærðu Stefán Oddur Magn- ússon og Stefán Sigurgeirsson greiði in solidum málflutnings- laun skipaðs verjanda síns í Hæstarétti, Ólafs Þorgrímsson- ar hæstaréttarlögmanns, kr. 5000,00. Ákærði Alfons Guðmundsson greiði málflutningslaun skip- aðs verjanda síns í Hæstarétti, Ragnars Jónssonar hæstarétt- arlögmanns, kr. 3500,00. Ákærði Árni Pálsson greiði málflutningslaun skipaðs verjanda síns í Hæstarétti, Sig- urðar Ólasonar hæstaréttarlög- manns, kr. 3500,00. Ákærði Guðmundur Jónsson greiði málflutningslaun skip- aðs verjanda síns í Hæstarétti, Sigurgeirs Sigurjónssonar hæstaréttarlögmanns, kr. 3500, 00. Ákærði Páll Theódórsson greiði málflutningslaun skipaðs verjanda síns í Hæstarétti, Ein- ars B. Guðmundssonar hæsta- réttarlögmanns, kr. 3500,00. Allur annar sakarkostnaður í liéraði og fyrir Hæstarétti, þar með talin málflutningslaun skipaðs sækjanda í Hæstarétti, Hermanns Jónssonar hæstarétt- arlögmanns. kr. 20000,00 greið- ist þannig: Ríkissjóður greiði 1/8 hluta. Ákærðu Guðmundur Jónsson og Hálfdán Bjarnason greiði hvor um sig 1/40 hluta. Ákærðu Árni Pálsson, Frið- rik Anton Högnason, Gísli Rafn ísleifsson, Guðmundur Helga- son, Jóhann Pétursson, Páll Theódórsson og Stefán Oddur Magnússon greiði in solidum 1/5 hluta. Ákærðu Alfons Guðmunds- son, Garðar Óli Halldórsson, Jón Múli Árnason, Jón Kristinn Steinsson, Kristján Guðmunds- son, Magnús Hákonarson, Magnús Jóel Jóhannsson, Ólaf- ur Jensson, Stefán Sigurgeirs- son, Stefán Ögmundsson og Stefnir Ólafsson greiði in solid- um % hluta, Dóminum ber að fullnægja með aðför að )ögum.“ Yfirflotaforingi USA telur Vestur-Evrópu óverjandi Fjaðrafok mikið hefur orðið út af skýrslu, sem franska íhaldsblaðiö Le Monde, eignar Fechteler aðmirál, yfir- manni bandaríska flotans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.