Þjóðviljinn - 24.05.1952, Page 1
Laugardagur 24. maí 1952 — 17. árgangur — 114. tölublað
Verkaljfgðssendinefndin komin heim:
ri
ímrvaldur Þórarinsson farar-
stjóri sendinefndarinnar við
komuna til Reykjavíkur
(; miðjum stiganum).
Fraoskir kratar
deila m Vestur-
Evrópukerinn
Flckksþing franskra sósíal-
demokrata stendur nú yfir og
■urðu harðar deilur í gasr um
afstöðu flokksins til hervæð-
ingar Vestur-Þýzkalands. Marg-
ir ræðumenn mæltu gegn hern-
aðarbandalagi Vestur-Þýzka-
lands og Vesturveldanna og
stofnun Vestur-Evrópuhers með
þýzkri þátttöku. Flokksstjórnin
hefur lagt til að þingið feli
þingmönnum sósíaldemokrata
að greiða atkvæði með stofnun
Vestur-Evrópuhers. Jules Moch,
fyrrverandi landvarnaráðherra,
gerði það að tillögu sinni, að
ákvörðun um staðfestingu
samningsins um stofnun Vest-
•ur-Evrópuhers skyldi frestað
þangað til eftir forsetakosning-
arnar í Bandaríkjunum. Kvað
hann ljóst að utanrikisstefna
Bandaríkjanna gæti breytzt
verulega við kosningarnar.
FRIÐUR MILLI ALLRA ÞJOflA
kjörorðið sem yfirgnæfði öll önnur í kröfugöngu
verkalýðsins í Moskva 1. maí
Verkalýðsnefnd MlR sem fór héðan til Sovétrékjanna 26.
aprif s.I. í boði Alþýðusambands Sovétrikjanna kom heim með
sænsku flugvélinni s.I. sunnudag.
„£g hafði gert mér mjög glæsilegar hugmyndir
um Sovétríkin áður en ég fór, en raynslan, það
sem ég sá þar í ferðinni tók öllu því fram er ég
hafði gert mér hugmynd um", sagði Sigurður
Guðnason formaður sendinefndarinnar er Þjóðvilj-
inn. hitti hann við heimkomuna.
Sendinefndin fór héðan 26. apríl, kom til Moskva 29., var
þar við hátíðahöld verkalýðsfélaganna 1. maí og dvaldi í
Moskva til 8. maí en fór þá til Kænugarðs og seinna s'uður á
Krímskagann, tíi Simferopol og Jalta, en ssðan norður tíl
Moskva og þaðan til Kaupmannahafnar 20. þ. m.
Sendinefndin ræddi í gær við blaðamenn um för sína og hafði
tararstjórinn, Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur, orð fyrir
henni. Áður en nefndin fór frá Moskva talaði hún við rússn-
eska fréttamenn og tét þeim í té yfírlýsingu þá er birt verður
hér á eftir, en frásögn nefndarinnar af ferðalaginu verður í
blaðinu á morgun. — Yfirlýsing sendinefndarinnar er svo-
hl jóðandi:
Ránsfengurinn
var 9 milljónir
Brezki póstmálaráðherrann
•hefur skýrt frá því á þingi
að ræningjarnir sjö, sem stöðv-
uðu póstbíl á götu í London
á miðvikudaginn og rændu
honum, hafi komizt yfir 200
þúsund sterlingspund eða um
níu milljónir íslenzkra króna,
en ekki 1,8 milljónir eins og
fyrst var fcaldið. Þetþa er
mesta peningarán, sem komið
hefur til kasta Scotland Yard
og vinna liundruð leynilög-
reglumanna að þvi að upplýsa
málið.
„Við undirrituð verkamanna-
sendinefnd frá Islandi höfum nú
dvalið 3 vikur í Sovétríkjunum.
Nefndinni var boðið til þess-
arar farar af Alþýðusam-
bandi Sovétríkjanna fyrir milli-
göngu Menningartengsla ís-
lands og Ráðstjórnarríkjanna
(MlR).
Nefndina skipa fulltrúar
frá eftirtöldum félagssamtök-
um verkafólks á Islandi:
Verkamannafélaginu Dagsbrún,
Reykjavík; Verkamannafélag-
inu Hlíf, Hafnarfirði; Iðju-
félagi verksmiðjufólks, Reykja-
vík; Sveinasambandi bygginga-
manna, Reykjavík; Þvotta-
kvennafélaginu Freyju, Reykja-
vík; Alþýðusambandi Norður-
lands; Verkakvennafélaginu
Snót, Vestmannaeyjum.
LÍFSKJÖR OG VINNU-
SKILYRÐI VERKALÝÐSINS
Nefndin hefur talið það að-
alhlutverk sitt í þessari för að
kynna sér, eftir því sem tími
og aðstæður leyfðu, lifskjör,
vinnuskilyrði og menningarlega
aðstöðu verkalýðsins í Sovét-
rikjunum. I þessu skyni hef-
ur nefiídin varið tíma sínum
til þess að heimsækja vinnu-
staði, skóla, bamaheiimli.
hressingar- og sumardvalar-
heimili, félagsheimili og til þess
að eiga viðtöl við ýmsa af
forystumönnum verkamanna i
Sovétríkjunum og einstaklinga
innan verkalýðssamtakanna, er
nefndin hefur átt kost á að
kynnast í sambandi við heim-
sóknir á vinnustaði og hvíld-
arheimili.
#
FRÁ LENlNGRAD
TIL JALTA
Lengst af dvalartíma sínum
í Sovétríkjunum hefur nefndin
dvalizt í Moskva, Kiev og
Jalta, auk þess, sem nefndin
hefur komið til Leníngrad, Kar-
kov, Simferopól og Vorones. I
Moskva heimsótti nefndin m.
a. tauverksmiðju, klæðageiíð,
bslaverksmiðju, úra- og mæli-
tækjaverksmiðju og vinnustaði
byggingariðnaðarmanna. í Kiev
heimsótti nefndin skóverksm.,
byggingarvinnuí*;aði og sam-
yrkjubú í grennd við borgina.
SKÓLAR — B ARN AHEIMILI
— HVlLDAR- OG HRESS-
INGARHEIMILI VERKA-
MANNA
Á Jalta heimsótti nefndin
m. a. á ríkisbú í vínyrkju og
verksmiðju, sem starfar í sam-
bandi við það. Á þessum stöð-
um hefur nefndin heimsótt og
kynnt sér rekstur barna og
gagnfræðaskóla, barnaheimili,
hressingar- og dvalarheimili
verkamanna og æskufólks. Auk
Pramhald á 7. siðu.
Dodd og Colson
lækkaðir í tign
Pace, hermálaráðh. Banda-
ríkjanna, skýrði frá því í Was-
hington í gær, að hershöfðingj-
arnir Dodd og Colson, sem
mest komu við sögu í atburð-
unum !í stríðsfangabúðimiim
á eynni Koje um daginn, hefðu.
verið lækkaðir í tign og væru
nú ofurstar. Dodd var fanga-
búðastjóri er stríðsfangamir
handsömuðu hann og Colson
tók við af honum og undirrit-
aði samning þann um framsal
Dodds sem Clark yfirhershöfð-
ingi neitaði svo að standa við.
Komu Ridge-
way mótmœlt
Mótmælafundir gegn komu
bandaríska sýklahershöfðingj-
ans Ridgways til að taka við
yfirstjórn herja A-bandalags-
ríkjanna voru boðaðir viða í
París í gær. Einnig hafa verið
boðaðir mótmælafundir í kvöld
og annað kvöld. Franski innan-
ríkisráðherrann tilkynnti í gær,
að „viðeigandi varúðarráðstaf-
anir“ hefðu verið gerðar vegna
fundanna en ekki hafði frétzt
af neinum árekstrum í gær-
kvöld.
Skýrsla frá Sameinuðu þjóðunum:
s.
Framför í alþýðurík j unum
Auðvaldslönd í afturför
Á vegum efnahagsdeildar Sameinuðu þjóðanna hefur verið
birt skýrsla um þróun efnahagsmála í heiminum á tímabilinu
1950 til 1951. Skýrslu þessari er ætlað að vera grundvöllur
undir umræður á fundi efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu
þjóðanna, en sá fundur á að hefjast innan tíðar. Skýrsla þessi
sýnir greinilega muninn á efnahagsþróuninni í auðvaldslönd-
unum og sósíalistísku löndunum.
I skýrslunni er löndum
ffóresk kerg gJiSreycld iitell
£iapa]mspreiig|isiift
Fréttaritarar með' Bandaríkjaher í Kóreu skýra frá að
mesta loftárás styrjaldarinnar þar hafi staðið yfir tvo
undanfarna daga..
Síðan í fyrramorgun hafa
bandarískar flugvélar farið
hundruð árásarferða til borgar
suðvestur af Pyongyang, höfuð-
stað Norður-.Kóreu. Fjöldi
steypiflugvéla. af flugvélaskip-
um hafa tekið þátt í árásunum.
Bandaríska herstjómin lýsir
yfir að hundruðum tonna af
sprengjum og tugum þúsunda
lítra af benzínhlaupinu napalm
, hafi verið varpað yfir borgina
og megi beita. að hun hafi verið
ar, sem breyta stóru svæði í
logandi bál, eru sérstaklega
gerðar til fjöldamorða á ó-
ibreyttum borgurum. Undan-
farnar vikur hafa þingmenn úr
öllum flok'.mm á brezka þing-
inu gert harða hríð að ríkis-
stjórninni til að reyna að fá
hana til að skora á Bandaríkja-
stjóm að hætta að beita
napalmsprengjum í Kóreu.
Árásin í gær og fyrradag er
iþriðja gereyðingarárás Banda-
ríkjanna á kóreska borg á hálf-
þurrkuð út. Napalmsprengjurn- úm mánuði.
Sendinefndin við komuna til Reykjavíkur. Talið frá vinstri:
Þóríur Halldórsson múrari frá Sveinasambandi byggingamanna,
Ragnar Þorsteinsson ritari Verkalýðs- og sjómannafélags Ólafs-
fjarðar, Ólafur Jónsson formaður Hlífar Hafnarfirði, Árni
Guðmundsson bílstjóri frá Dagsbrún, Guðríður Guðmundsdóttir
formaðnr verkakvennaféiagsins Snót í Vestmannaeyjum og Sig-
nrður Guðnason formaður Dagsbrúnar. — Þuriður Friðriks-
dóttír formaður Freyjti og Gttðlaug Vilhjáimsdóttir frá lðju
urðu eftír 1 Kaupmannahöfn.
er
heimsins skipt í þrjá aðal-
flokka; lönd sem talin eru
standa á háu stigi efnahags-
þróunar. I þeim flokki eru
auðvaldslöndin t. d. Bandarík-
in og Vestur-Evrópuríkin. I
öðrum flokki eru alþýðulýð-
veldin, og í þriðja flokki eru
auðvaldslönd, sem talin eru
standa á lágu stigi efnahags-
þróunar, t. d. í Suðaustur-A.síu.
Kyrrstaða og affurför í
auðvaldsheiminum
I fyrsta flokks löndunum óx
framleiðslan verulega á tíma-
bilinu frá því á miðju ári 1950
til jafnlengdar 1951, en vegna
vaxandi skatta og viðskipta-
örðugleika hefur vörusala ekki
aukizt að sama skapi. Síðari
árshelming 1951 og framan af
ári 1952 hefur iðnaðarfram-
leiðslan farið minnkandi, vegna
þverrandi eftirspurnar, en
framlei'ðsla á vörum til hern-
aðarþarfa hefur enn aukizt.
Áætlanir standast — markið
sett hærra.
Um þróumna i axuiars flokks
löndum Ráðstjómarríkjun-
Framhald á S. -iíðu.