Þjóðviljinn - 24.05.1952, Qupperneq 8
SkýrsSa SÞ
Framhald af 1. síðu.
tiiri, Kína og alþýðulýðveldun-
um — segir skýrslan ,að bæði
framleiðsla og eftirspurn hafi
aukizt á þessu tímabili. Iðnað-
arþróunin hefur að mestu leyti
fyigt fyrirfram gerðum áætl-
unum. 1 mörgum þessara ianda
hefur framleiðslan farið fram
úr áætlun, og var þá farin sú
leið, að hækka takmarkið.
Um þriðja flokks löndin seg-
ir skýrslan, að framleiðslan
hafi dregizt aftur úr, en verð-
lag farið hækkandi.
Viðskiptabannið hefur ekki
náð tilgangi
1 skýrslunni er minnzt á
gjaldeyris- og greiðslukreppur,
sem vígbúnaðurinn hefur vald-
ið í mörgum auðvaldsrikjanna,
m. a. á Norðurlöndum. Getið
er um tilraunir Bandaríkjanna
til þess að lama viðskiptin milli
austurs og vesturs, og í sam-
bandi við það er komizt svo að
orði: Austur-Evrópuríkin hafa
bætt sér niðurskurðinn á við-
skiptum við Vestur-Evrópu
með auknum viðskiptum sín á
milli.
Alþýðulýðveldin yfir-
leitt hæst
I skýrslunni er sérstaklega
drepið á matvælaframleiðsluna.
Hún dregst sí og æ aftur úr
iðnaðarvöruframleiðslUnni. 9é
litið á heiminn sem heild er
matvælaframleiðslan minni nú
en hún var fyrir 15 árum.
1 skýrslunni er birt tafla
er sýnir hversu mikið iðnað-
arframleiðslan hefur aukizt frá
1950 til 1951. Þar kemur skýrt
í ljós, að lönd sósíalismans
hafa mikla yfirburði fram yfir
auðvaldslöndin. Lítið á skýrsl-
una:
Japan ................... 39%
Ungverjaland ............ 30%
Bygging barnaspítala liafin næsta vor
Vciðas liðus í siækkuu Landspílalans —■ Sjððus
Hringsins er nii 2,1 miiljónií króna
Á aðalfundi Kvenfélagsins „Hringsins“, sem haldinn var 20.
þ. m.; var einróma samþýkkt, að félagið legði fram barna-
spítalasjóð sinn, sem nú er orðinn rúml. 2 millj. kr., til þess
að koma upp barnaspítala sem lið í fyrirhugaðri stækkun
Landspítalans, er væntanlega verður byrjað á á næsta ári. Má
því telja góðar horfur á. að ekki líði langur tími úr þessu þar
til upp er kominn barnaspítali hér í bæ, en það hefur um all-
mörg ár verið aðaláhugamál „Hringsins".
Rúmenia .................. 29%
Pólland.............. 24%
Þýzka alþýðulýðveldið .. 22%
Luxemburg ................ 22%
Vestur-Þýzkaland ...... 21%
Búlgaría ................. 19%
Finnland ................. 18%
Ráðstjórnarrikin ..........16%
Grikkland .................16%
Tékkóslóvakía ............ 15%
Chile .................... 15%
Belgía ................... 15%
Brasilía ................. 14%
Frakkland ............... 13%
Austurríki ................12%
Italía............... 12%
Indland,............. 11%
Bandarikin ............... 10%
Mexíkó .................... 8%
Kanada................ 7%
Júgóslavía ................ 6%
Noregur . ................. 5%
Svíþjóð ................... 4%
írland .................... 4%
Holland .................. 4%
Suður-Afríka .............. 4%
England ................... 2%
Argentína ................. 2%
Danmörk ................... 1%
Samtals nemur framleiðslu-
aukningin í heiminum frá 1950
til 1951 12%, svo að Ráð-
stjórnarríkin og alþýðulýð-
veldin eru fyrir ofan meðallag,
flest auðvaldsríkin sem
en
nefnd eru í skýrslunni
fyrir neðan meðallag.
eru
Þýzkir kratar fordœma
bandalagið við Vesturveldin
Foringjar sósíaldemokrata í Vestur-Þýzkalandi for-
dæma harölega fyrirhugaöan bandalagssamning þess og
Veuturveldanna.
Þingmeirihluti ríkisstjórnar
Adenauers í Vestur-Þýzkalandi
■hafnaði í gær kröfu sósíaldemo-
krata, sém eru *annar stærsti
flokkurinn á þingi, um að
hernaðarbandalagssamningur-
inn við Vesturveldin verði
ræddur á þingi áður en Aden-
auer undirritar hann. Ætlunin
er að undirritunin fari fram
með mikilli viðhöfn á mánu-
daginn í Bonn, höfuðstað Vest-
ur-Þýzkalands. Eden, utanríkis-
ráðherra Bretlands, og Acheson,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, koriu til Bonn í gmr
þeirrp. erinrlp r.l ••ni'rrita
samninglnn íyrii hcnd stjórr.a
sinna.
Schumacher, foringi sóríal-
demokrata, lýsti yfir f gær að
hver sá Þjóðverji, sem undir-
ritaði samninginn við Vestur-
veldin, fyrirgerði með því ver :i
réttinum til að heita Þjóðverji.
Hann tilkynnti einnig að hann
og aðrir foringjar sósíaldemo-
krata hefðu afþakkað boð urr1
að vera viðstaddir þegar samn-
ingurinn verður undirritaður.
Nýr sorplireiiisiinarhíll af sænskri
gerð tekinn í notkmi
Endurbætui á húsakynnum sorphreinsunarinnar
f gær sýndi borgarlæknir fréttamönnum og ýmsum fleiri
gestum nýjan sorphreinsunarbíl af sænskri gerð sem verið er
að taka í notkun. Er bíll þessi og nýjar sorptunnur sem sam-
tímis verða teknar í notkun á því svæði sem hann fer yfir,
mikil framför frá því sem verið hefur. Jafnframt var gestun-
um boðið að skoða hin endurbættu húsakynni sorphreinsunar-
innar við Vegamótastíg.
Hinn nýi sorphreinsunarbíll
verður í einu af hverfum bæj-
arins sennilega. suðvestur bæn-
um og er í ráði að fá fleiri
slíka bíla gefist þessj vel við
hreinsunina. Billinn tekur 8
rúmmetra af sorpi I einu og í
honum eru tæki sem flytja það
til þannig að öruggt sé að bíll-
inn fyllist hverju sinni. Sorp-
ílátin sem tekin verða í notkun
í því hverfi sem þessi bíll ann-
ast eru smíðuð hjá Stálumbúð
um h.f. hér í bænum.
f sambandi við þennan nýja
bíl er ráðgert að fjölga hreins-
unarflokkunum úr 4 í 5. Ekki
á það þó að þýða mannaf jölgun
því fækkað verður í þeim sem
Framhald á 7. síðu.
Upphaflega beindi Hringur-
inn starfsemi sinni að berkla-
málunum og þá einkum að
fjárhagslegri hjálp við berkla-
sjúklinga, en grundvöllur þeirr-
ar starfsemi féll burtu, er rík-
ið tók að sér framfærslu berkla
sjúklinga. Félagið kom líka
upp hressingarhæli fyrir berkla
veika í Kópavogi, sem það rak
fyrir eigin reikning um hríð,
en afhenti síðan ríkinu að gjöf,
og hefur það verið notað fyrir
holdsveikisjúklinga síían Laug-
arnesspítalinn brann.
Síðan 1942, eða um 10 ára
skeið, hefur öll starfsemi fé-
lagsins beinzt að því marki að
fullkominn bamaspitali yrði
settur hér á stofn. Hringurinn
setti sér það markmið að
safna fé, er byggja mætti fyrir
barnaspítala. Þótt Hringurinn
sé fámennt félag, aðeins hálft
annað hundrað félagskonur, er
nú svo komið, að sjóðurinn
er orðinn rúmlega 2.100.000.—
kr. Er Hringnum bæði Ijúft og
skylt áð þakka þá vinsemd og
Framhald á 7. síðu.
DJóÐviumN
Laugardagur 24. maí 1952 — 17. árgangur — 114. töhiblað
Friðgeir Sveinsson drukknaði í höfn-
inni á sunnudagskvöldið
SíðastBðið sunnudagskvöld vihli það slys til að Friðgeir
Sveinsson gjaldkeri Bókaútgáfu menningarsjóðs ók í sjóinn
hjá Ingólfsgarði og drukknaði..
Allt er í óvissu um livernig
slys þetta hefur viljað til og
að því bezt er vitað hefur eng-
inn séð þegar bíllinn fór út af
hafnarbakkanum — fyrr en
hann var að sökkva.
Lögreglunni barst tilkynning
um þetta kl. 9,10 um kvöldið.
Höfðu 4 menn frá Ólafsfirði
verið staddir á Faxagarði er
þeir sáu mikla skvettu í krik-
anum framundan saltþúsinu
austast við höfnina. Sýndist
þeim Ijós bíll vera að sökkva.
Tilkynntu þeir það lögreglunni
er fékk hafnarbátinn og annan
bát til að fara á staðinn. Kaf-
ari var fenginn frá Hamri.
Seint mun hafa gengið að fá
kafara, því hann fór ekki nið-
ur fyrr en kl. var farin að
ganga 12. Var þá kominn
kranabíll frá Vöku og þegar
kafarinn hafði fest taug í bíl-
inn var byrjað að hífa hann
upp, kom hann upp úr sjónum
um 10 mín. fyrir 12, en það
var ekki fyrr en kl. hálf eitt
að tekizt hafði að ná honum
upp á bryggjuna og hafði þá
einnig verið fenginn til þess
kranabíll frá Eimskip.
Enginn vissi hver eða hverjir
Framhald á 7. síðu.
Barnaskólinn Hafnarfirði 75 ára
Barnaskóli Hafnarfjarðar er 75 ára á þessu starfsári og
minnist afmælisins á morgun með útisamkomu við skólann.
Verða þar fluttar ræður og ávörp en börnin syngja og sýna
leikfimi. Enrfremur verður þá opnuð sýning á handavinnu og
síarfi nemenda.
Frumsýning á Skipbrotinu sæla
Leikhússtjóri
Konunglega
leikhússins og
frú hans við
komuna til ?
Reykjavíkur
á sunnu- í
daginn. |
Dönsku leikaramir, nær 30'
manna hópur, kom hingað með
sænskri flugvél á sunnudaginn
var. Frumsýning þeirra í þjóð-
leikhúslnu á „Skipbrotiriu sæla“
verður í kvöid.
1 gær voru ’eikaramir í boði
hjá menntamá.aráðherra ásamt
norsku leikkonunni Thore Seg-
eicke er hingað hefur verið
ráðin til a3 setja upp Brúðu-
heimilið.
Gerður
Helgadóttír
komin heim
Gerður Heigadóttir kom
hingað til lands á laugar-
daginn en hún hefur undan-
farin ár stundað myndlist-
arnám í Frakklandi og ítalíu
og haft tvær sjálfstæðar
sýningar í París, auk þess
að hún hefur átt verk á
nokkrum samsýningum.
Hún mun hafa í hyggju
að halda sýningu hér i sept-
ember n.k.
Barnaskóli Hafnarfjarðar var
fyrst til húsa í Flensborgar-
skólanum en seinna í Bryde-
húsunum svonefndu, gömlum
verzlunarhúsum. Árið 1902 var
svo byggður barnaskólinn und-
ir Hamrinum, en 1927 var
byggður nýr barnaskóli úr
steini við lækinn og var hann
stækkaður 1946.
I vetur sóttu skólann 510
börn. — Skólastjóri er Guðjón
Guðjónsson.
Olía úr E1 Grillo
1 gær var hafizt handa me'ð
að dæla olíu úr oliuskipinu E1
Grilló er legið hefur á botni
Seyðisfjarðar síðan í síðasta
stríði.
Var olíunni dælt í Þyril, er
mun flytja hana í geyma. Er
talið að þarna sé um fyrsta
flokks brennsluolíu að ræða.
Síðari hluti Í.R .-mótsins á morgun
Síðarj hluti afmælismóts I.K. fer fram á íþróttavellinum á
morgun og hefst kl. 2 e. li. Keppt verður í 10 greir.um og eru
þátttalcendur frá 8 félögum.
í 200 m verður keppnin mjög-----------:— ---------*
spennandi milli þeirra. Guð-
mundar Lárussonar Á, Ás-
mundar Bjarnasonar K.R. og
Harðar Haraldssonar Á.
I 100 m hlaupi drengja munu
líklegastir til sigurs þeir Vil-
hjálmur Ólafsson Í.R., Þorvald-
ur Óskarsson Í.R., Alexander
Sigurðsson K.R. og Jafet Sig-
urðsson K.R.
I kringlukasti keppa um sig-
urinn Friðrik Guðmundsson,
Þorsteinn Löve og Örn Clausen.
I hástökki eru 5 keppendur
og líklegastir til sigurs Gunnar
Bjamason Í.R., Baldur Alfreðs-
son K.R. og Birgir Helgason
K.R.
I 1000 m hlaupi verður keppn
in sennilega hörðust milli Eiríks
Haraldssonar Á- og Sigurðar
Guðnasonar Í.R., en h>eppendur
eru 7.
Framhald á 7. síðu.
Hittast á Seyðisf.
Norska hafrannsóknarskip-
i'ð G. O. Sars er lagt af stað
í haírannsóknarleiðangur. Fer
það írá Lofoten vestur og
norður í haf til Jan Maven og
þaðan ætlar það að rannsaka.
hafið við ísröndina til Sval-
barða.
Danska hafrannsóknarskipið
Uana rannsakar svæði'ð rorður
af Færeyjum allt upp til Ís-
lands. María Júlía rannsakar
sjávarhita fyrir norðan Ísland
allt til Jan Mayen.
ívssi þrjú skip eiga því að
jafna mikilsverðum upplýsing-
um um hafið fyrir norðan og
sustan ísland og síldsrgöng-
ur á þessu svæði. Gert er ráð
fvrir að skipin verði öl] á
Seyðisfiröi 21. næsta mánaðar.