Þjóðviljinn - 06.06.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.06.1952, Blaðsíða 1
Föstudagur 6. júní 1952 — 17. árgangur — 123. tölublað Tillaga Hannesar Stephensen: Þegar veröi geröar sérsfakar ráðstafanir til að ráða bót á atvinnuleysinu Mlétt verðí baimi á byggingum — Veitt lán til íbúða — Iðnaðinum veitt eðlileg starfsskilyrði — Vinna hafin við fyrirhugaðar framkvæmdir Á bæjarstjórnarfundi í gær flutti Hannes Stephensen eftirfarandi tillögu: „har sem bæjarstjórnin telur að atvinnuástandið í bænum sé alvarlegra en verið hefur um margra ára skeið á þessum árstíma og horfur í þeim efnum mjög uggvænlegar sé ekki að gert án tafar, ályktar bæjarstjórnin að brýna nauðsyn beri til að ekki verði lengur dregið að grípa til sérstakra og gagn- gerðra ráðsfafana til úrbóta. i Það er skoðun bæjarstjórnarinnar að meginorsök atvinnuleysisins liggi í samdrætti og stöðvun verk- smiðjuiðnaðarins og byggingastarfseminnar, sem veitti miklum fjölda bæjarbúa vaxandi og stöðuga atvinnu allt fram á síðustu ár. Til þess að bæta úr atvinnuleysinu telur bæjar- stjórnin því eftirfarandi ráðstafanir óhjákvæmileg- ar og skorar á ríkisstjórnina að hrinda þeim í fram- kvæmd hið allra fyrsta: 1. Aflétf verði banni því og hömlum sem liggja eins cg mara á byggingaiðnaðinum. 2. Lánastofnunum sé gerf skylt að veifa nauð- synleg og hagkvæm lán fil íhúðarhúsabygg- inga, svo byggingariðnaðurinn geti starfað á eðlilegan hátt og bætt verði úr húsnæðis- þörf bæjarbúa. 3. Verksmiðjuiðnaðinum verði veitf eðlileg og nauðsynleg starfs- og vaxfarskilyrði. 4. Hafnar veiði framkvæmdir án fafar við stækkun Heykjavíkurflugvallar, byggingu nýja mennfaskólans svo org aðrar fyrirhug- aðar byggingar á vegum ríkisins á þessu sumri. Bæjarstjórnin felur borgarstjóra og bæjarráði að ræða ofangreind atriöi hið allra fyrsta við ríkisstjórnina og fylgja þeim fast eftiir. Þá felur bæjarstjórn borgarstjóra og bæjai'ráði að beita sér fyrir því að allir reykvískir togarar, sem stunda veiðar á fjarlægum miðum Ieggi afla sinn eftir sem áður hér á land til verkunar. Fáist ekki viðhlítandi lausn á yfirstandandi atvinnu- leysi bæjarbúa á þeim grundvelli er að' framan greinir telur bæjarstjórn óhjákvæmilegt að bærinn auki fram- kvæmdir sínar í suínar frá því sem fyrirhugað er og heimilar borgarstjóra nauðsynlega lántöku í því skyni.“ hafa veitt 180 byggingarleyfi í Reykjavík, auk smáíbúðanna, en við þá tölu væri það að athuga, að fæstar þeirra bygginga yrðu byggðar á þessu ári því þeir seni ætluðu að byggja fengju ekki lán til þess! Tala f járfestingarleyfa væri því engin trygging fyrir húsbyggingum né vinnu við þær. Reykjavík fékk einn áttunda Þá spurði Hanneg borgar- stjóra hvað Reykjavík hefði fengið mikið af þeim 4 milljón- um er alþingi veitti til atvnnu- bóta s.l. vetur. IBorgarstjóri svaraði því að Reykjavík hefði fengið hálfa milljón. 24 vinnudagar siðan í nóvember s.l. haust Sem dæmi um hvað atvinnu- leysið væri alvarlegt sagði Hannes að hann hefði í gær hitt mann sem ekki hefði fengið vinnu nema sem svaraði 24 dögum frá því í nóv. á s.l. hausti! Annar hefði talað við sig sem skráður hefði verið hjá Ráðningarstofunni mánuðum saman og hefði enn enga von um vinnu — og væri þar m.a. að finna skýringuna á tregðu verkamanna við að láta skrá sig. Samt bæri þeim að mæta til skráningar, annars væri sagt að atvinnuleysi væri ekki til staðar! Gunnar neitar ákveðið að bera ábyrgð á Ioforðum ríkisstjórnarinnar! Borgarstjóri kvaðst viður- kenna að atvinnuleysið hefði stóraukizt undanfarið. í vetur hefði ríkisstjórnin talað um miklar framkvæmdir á Kefla- víkurflugvelli. Á þeim fram- kvæmdum hefði orðið dráttur. En „samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum í stjórnar- ráðinu eiga þær framkvæmdir að hefjast um næstu mánaða- mót. EN ÉG TEK EKKI Á- BYRGÐ Á AÐ SVO VERÐI, þar sem reynslan hefur sýnt hvílíkur dráttur varð á þeim í vetur“ sagði Gunnar Thorodd- sen. íhaldið vísaði tillögu Hann- esar til bæjarráðs með sínum 8 atkvæðum gegn 7 atkvæðum minnihlutaflokkanna. íhaldið vísar til bæjarráðs að kaopa í matinn! Einar Ögmundsson flutti á bæjarstjórnar-fundi í gær þessa tillögu: „Þar sem telja má fullvíst að verulegur skortur verði á nýjum fiski fyrir bæjarmark- aðinn, felur bæjarstjórn borg- arstjóra og bæjarráði að gera ráðstafanir til úrbóta í því efni. Bæjarstjórnin telur m.a. að til mála komi að bærinn taki fiskibát á leigu í því skyni að afla fiskjar fyrir bæjarbúa“. Þegar Einar hafði lýst erfið- leikunum á því að fá ætan fisk, kvaðst hann vonast til þess að konurnar 5 er sátu fundinn og bezt þekktu erfiðleikana við að kaupa í matinn, gætu sam- einazt um þessa tillögu. Ekki var íhaldið á þeirri skoðun og vísaði tillögunni til bæjarráðs með 8 atkv. gegn 7. Pressuliðið vann tjrslitin í kappleiknum milli „pressuliðsins“ og Brentford í gærkvöldi urðu þau að „pressu- liðið“ vann með 2 mörkum gegn 1. „Pressuliðið“ völdu þeir Frí- mann Helgason, ritstj. íþrótta- síðu Þjóðviljans og Hallur Sim- onarson hjá Tímanum. íþrólta- fréttamenn hinna blaðanna af- þökkuðu allir að veija í liðið, en samt var Mogginn með aula- legan skæting út af þessu í gær. Dauðaslys 1 fyrradag varð það slys þegar verið var að skipa upp úr togaranum Röðli að blökk féil í höfuð 18 ára pilts, Ólafs Gissuraronar og lézt hann af afleiðingum þess. Katrín Thoroddsen: ENGAR HERSTOÐVAR I REYKJAVIK Katrín Thoroddsen flutti á bæjarstjórnarfundin- um í gær eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórnin felur borgarstjóra og bæjarráði að hlutast til um það við ríkisstjórnina að ekki verði reistar neinskonar herbúðir eða önnur hern- aðarmannvirki í Reykjavík eða nágrenni hennar." I framsöguræðu fyrir tillög- unni minnti Hannes á að þegar fulltrúar verkalýðssamtakanna ræddu við stjórnarvöldin s.l. vetur, var svar stjórnarvald- anna að nóg vinna yrði í sumar. Reynslan hefði orðið sú, að undir vorið hefðj atvinnuleysið minnkað, en strax í maí hefði það aukizt aftur og væri nú svo komið að það væri nú eins og það var verst í vetur. 500 buðust — verða 300 ráðnir? Til landbúnaðarstarfa hefðu boðizt um 500 manns, ráðnir væru 100 og beiðnir um 200 lægju fyrir, þ, e. 300 buðust umfram það sem bændur ósk- uðu að ráða. Um vinnu hjá áburðarverksmiðjunni hefðu sótt tíu sinnum fleiri menn en hægt hefði verið að ráða. Þar til fyrir viku hefðu unnið þar 18 menn, nú væru þeir 50—60. 1 vetur hefði verið byrjað að vinna við iðnskólann, senn yrði þeirri vinnu lokið og þá bættust þeir menn í atvimiuleysingja- hópinn. óverjandi með öllu Hannes kvað það óverjandi með öllu að flytja héðan út ó- verkaðan saltfisk meðan fólkið í landinu gengi atvinnulaust. Þá kvað hann hafa borið á því að óverkaður fiskur væri fluttur héðan suður með sjó til verk- unar þar. Ef fjárhagsráð íleyfir banna. bankamir! Hannes kvað fjárhagsráð Ofan á rótgróna gremju Reykvíkinga gegn hernum hef- ur það bætzt að þrálátur orð- rómur er uppi um að þessi manndrápslýður taki sér ból- festu í bænum sjálfum, sagði Katrín í framsöguræðu sinr.i 1945 fóru Bandaríkin fram á að fá herstöðvar til 99 ára í Keflavík, Hvalfirði og — í Reykjavík. Þeirri kröfu Benda ríkjanna var hafnað 1945. Síð- an hafa herstöðvar verið svikn- ar inná þjóðina. Bandarikja- menn hafa fengið í áföngum það sem þeim var neitað um 1945. En afstaða Revkvíkinga hefur ekkert breytzt. Hugur allra annarra en þeirra sem virðast vilja þjóðina feiga er óbreyttur í herstöðvamálinu: Reykvíkingar vilja engar her- stöðvar í Reykjavík. Katrín kvaðst vilja vitna í ummæli nú- verandi borgarstjóra í Reykja- vík, Gunnars Thoroddser.. er hann flutti í ræðu af svö'um alþingisliússins 1. des. 1945. en þá sagði hann m.a.: Mér virð- ist að ekki þurfi lengi að velta vöngum yfir því, að herstöðv- ar erlends ríkis í landi annarr- ar þjóðar höggva stórt skarð í umráðarétt liennar vfir landi sínu ... íslendingar gætu ekk; farið frjálsir ferða sinna á þessum slóðum, þéir þyrftu Ieyfis útlendinga til umferðar um sitt eigið land“. Ihaldið hefur allt frá 1945 verið að mala manndóm Gunn- ars Tlioroddsen í smátt og var í gær ekki meira orðið eftir af hetjunni frá 1945 en það, að hann kvaðst telja slíka tillögu ótímnbæra þar sem engin beiðni (!!) hefði borizt bæjarstjórn- inni um herstöðvar í Reykju- vík! — en auðvitað yrði bygg- ingarnefnd að leyfa slíkar byggingar eins og aðrar!! — Lagði til að vísa tillögunni til bæjarráðs. Katrín kvaðst telja mikiu auðveldara fyrir bæjarstjórnina áð neita ef slík „beiðni“ bærist, ef hún hefði áður samþykkt tillögu eins og sína og þess vegna vildi hún fá atkvæða- greiðslu um tillöguna á fund- inum. Jón Axel brá við hart og sagði: „Ég heid við verðum að horfast í augu við það, hvort sem okkur er það ljúft eða leitt, að afleiðingin af því að ganga til samvinnu við hiu- ar frjálsu vestrænu þjóðir er að við verðum að hafa óþægind- in af því líka, en ekki aðeins ]>ægindin. Ég get ekki greitt þessari tillögu atkv. nú, ég vil fá tækifæri til að athuga hvort það sé óhjákvæmilegt að líf fólksins hér í bænum sé betur tpyggt en ella með því að hafa herlið í bænum“!!! Undir sama dagskrárlið og tillaga Katrínar var fjöld; mála ræddur og kom tillagan ekki til atkvæða fyrr en seint á fundinum, enda hafði Jón Axel þá fengið „tækifæri1 til að taka afstöðu til tillögunnar og — greiddi atkvæði með sósífilistum. Tiilögu Katrínar var vísað til bæjarráðs með 8 atkv. Ihalds- ins gegn 6 atkv. — Benedikt Gröndal sat hjá. MlR HAFNARFIRÐI Fundur verður haldinn )/ (Góðtemplarahúsinu í kvöld, fkl. 9. Ólafur Jónsson ogj ^Árni Guðmundsson segja fráj Mör sinni til RáðstjórnarríkjA /anna. — Sýndar verða kvik-í >myndir. — Félagar, fjöl-( Imennið og takið með ykkur^ Vgesti. ■ -:l>,l|l,r.,„«w.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.