Þjóðviljinn - 11.06.1952, Blaðsíða 8
Yfirlýsing Hannibals á framboðsfundinum í fyrrakvöld:
Marsjaiiijötrarair þjóoinni til Wessuear
og hernamssamnmgurmn hagstæðari
en fyrri samningar við Bandaríkin!!
Á a’menmim kjósciulafundi, sem frambjóSendur liéldu á ísa-
t'irði í fyrrakvöld og útvarpaff var í kaupstaðnum, kom hinn
slæini málstaður afturhaldsframbjóðeiulanna greiailega í ljós.
Alveg sérstaklega var frammistaða Hannibals Valdimars-
sonar hláleg, enda va-r maðurinn í algerri vörn.
I 30 mínútna framsögtiræðu
sinni minntist Ilannibal ckki á
sjálfstæðismál þjóðarinnar og
hina geigvænlegu setu erlends
hers í landinu.
En liann komst samt ekki
lijá því að verða að svara t.il
saka.
Haukur Helgason, frambjóð-
andi sósíalista, neyddi Hanni-
bal að síðustu til þess að fletta
af sér sauðargærunni og sýna
sitt rétta andlit.
Aðspurður af Hauki gaf
Hannibal að lokum eftirfarandi
athyglisverðar yfirlýsingar:
I fjTsta lagi lýsti hann
því yfir, að Marshallsainn-
inguriiui hefði orðið ís!en/.ku
þjóðinni til hinnar mestu
biessunar.
f öðru lagi, að hann, Hanni-
bal, liefði skrifað undir og
greitt á þingi atkvæði með
hernámssamningnum í fyrra,
vegna þess, að þessi samn-
ingur væri íslenzku þjóðinni
stónnn liagstæðari en fyrri
samningar við Bandaríkin,
þar sem fljótlega væri hægt
að segja honuin upp!!!
Haukur Helgason neyddi
Hannibal ennfremur til að
játa, að auðvitað væri órjúf-
andi samband milli utanríkis-
málastefnunnar og innanlands-
málanna.
Þannig lyppaðist Hannibal
niður á fundinum fyrir liinum
markvissu ádeilum Hauks
Helgasonar, en málflntningur
hans á fundinum er mjög róm-
aður fyrir rökfestu og skýrleik,
enda fékk hann hinar beztu
viðtökur.
Frammistaða frambjóðanda
íhaldsins var þannig, áð ekki
var talin ástæða til að svara
honum. Líku gilti um fulltrúa
Framsóknar.
Fundurinn, var sósíalistum
mikil hvatning til starfa fyrir
frambjóðanda sinn Hauk Helga
son og munu þeir vinna kapp-
samlega að kjörfylgi hans.
I kvöld verður síðari- kjós-
endafundur frambjóðendanna
haldinn og verður honum
einnig útvarpað á bylgjulengd
210.
Nú kemur LeðurbSakan
%
Öperettan Leðurblakan eftir Jóhann Strauss \mgri verður
frumsýnd í Þjóðleikhúsinu n.k. sunnudagskvöld. íslenzkir
söngvarar syngja öll hlutverkin, en aúk þess er kór og hljóm-
sveit. Leikstjóri er Simon Edwardsen.
EINAR KRISTJÁNSSON
Bandalag íslenzkra leikíélaga:
Á vegum þass sýnd 50 leikrit sl, vetur
Aðalfundur Bandalags íslenzkra leikfélaga var haldinn laug-
ardaginn 7. þ.m. í Baðstofu iðnaðarmanna. Forniaður banda-
lagsins Ævar Kvaran setti fundinn og lýsti umboðum.
Þá skýrði formaður frá
störfum stjórnar bandal. frá
iþví að síðasti aðalfundur var
haldinn og framkvæmdarstjór-
inn Sveinbjörn Jónsson gaf síð
an yfirlit yfir starfsemina á
liðnu leikári og las upp reikn-
inga bandalagsins. Samtals
höfðu félög innan bandalags-
ins sýnt 50 stór leikrit á vetr-
inum, en auk þeirra hafði
bandalagið útvegað ýmsum
öðrum fólögum, skólum og
einstaklingum mikinn fjölda
smáþátta. Á leikárinu höfðu
verið fjölrituð allmörg leikrit
til afnota fyrir fclögin og á
bandalagið nú um 25 stór leik-
rit auk smá leikþátta og í sum
ar munu mörg ný leikrit bæt-
ast við. Þá befur bandalagið
fengið nauðsynlegar vörur til
Kvenféfag
sósíalista
Fundur verður haldinn
Kvenfélagi sósíalista í liviild í
klukhai: 8.30 c.h., I MNG-|
HOLTSSTRÆTI 27. Dag-]
skrá fundarjns er þessi:
1. Þuríður Friðriksdóttir]
sogir frá för sinni iiiyi;
Sovétríkin.
2. Félagsmál: a) Heið-
rnörk, b) Ferðanelnd.
3. livikmynd.
Félagskonur mega taka^
með sér gesti. Fjölmeimíð.
leikstarf' r.-< • rg fnvðn og
mun í n.w ’ ’ ■; •' van að
festa kaua á, niagni a-f
hárkollum. ::em því stendur til
•boða fyrir mjög hagstætt verð.
Bandalagið annaðist prentun á
leikskrám fyrir þau félög. sem
þess óskuðu og annaðist útvcg-
un leiðbeinenda til margra fé-
laganna.
Samþý.lvkt var tillaga frá
stjórninni þess cfnis að óska
eftir því að menntamálaráðu
neytið veiti samninganefnd rit-
höfundafélaganna löggildingv
til að semja um flutningsrétt á
leikritum við BlL. sbr. reglu-
gjörð um flutningsrétt á rit-
verkum og tónsmíðúm dags. 1.
febr. 1949.
Þá samþykkli aðalfundurinn
áskorun á Alþingi að hækka
styrk bandal. í fjárlögum svo
að það geti sem bezt sinnt því
mikilvæga starfi, scm þcss bíð-
ur til eflingar þeirri menning-
arviðleitni, scm leikstarfsemin
er nú orðin hér á laudi meðal
annars með því að ráða fastan
le-iðbeinanda, sem ferðist í milli
félaganna. Þá kvöddu ýmsir
fundarmenn r.ér hljóðs og iýstu
•þakkiæti .sínu til framkvæmda-
stjóra og stjórnarinnar fyrir
unnin stÖrf á liðnu leikári. 1
stjórn voru endurkosnir: For-
maður Ævar Kvaran; ritari:
Lárus Sigurbjörns3on og með-
stjórnandi Sigurður Gislason.
Varaformaður var kosinn Her-
bert Jónsson, Hveragerði.
Leðurbiakan er 3ji söngleik-
urinn sem Þjóðleikhúsið tekur
til meðferðar, og hefur það ein-
mitt lokið hverju leikári sínu
með slíku verki. Fyrsta vorið
var Brúðkaup Figarós sýnt, af
söngvurum frá Konunglegu ó-
perunni í Stokkhólmi, en í
fyrra var Rigólettó sýndur, og
voru þá flestir söngvararnir
íslenzkir. Nú hefur Leðurb’ak-
an orðið fyrir valinu, enda er
hún bæði vandað verk, vinsæl
og tiltölulega viðráðanleg Hún
var frumsýnd í Vín árið 1874,
og nokkru síðai’ í Berlín og
hefur hún farið margar sigur-
farir vítt um lönd, leikin og
sungin meira en fiestar aðrar
óperettur. Hér er hún flutt á
íslenzku, í þýðingu Jákobs
Smára.
Hlutverkaskipunin er þessi:
Guðrún Á. Símonar fer með
hlutverk Rósalindu, og er það
fyrsta hlutverk hennar í söng-
leik, og þarf þó ekki að kvnna
liana fyrir landsmönnum. Ein-
ar Kristjánsson syngur Eisen-
stein, mann Rósalindu. Guð-
mundur Jónsson fer með hlut-
verk Leðurblökunnar. sem heit-
ir nú raunar Falke. Elsa Sig-
fúss syngur prins Orlofskí, og
kom hún hingað heirn til að
fara með þetta hlutverk. Ketill
Jensson syngur Alfred söngv-
ara. Þá ieikur Sigrún Magnús-
dóttir Adele, en Róbert Arn-
finnsson leikur Blim. Ragnhiid-
ur Steingrimsdóttir fer meö
hlutverk Idu. Sigurður Ólafs-
Framhald á 6. síðu.
HlÓÐVHJINN
MiðVikudagur 11. júní 1952 — 17. árgangur — 127. tölublað
Siðasta Réttarhefti þyrftu allir
Isiendingar að lesa.
Réttur 1.—2. heftj 30. árgangs er nýkomijin út, og er Jieíta
eitt bezta hefti hans, með greinum sem hver hugsandi alþýðu-
maður og þjóðhollur Islendingur þarf að lesa. .
Heftið hefst á ljóðkveðjum
til Sigfúsar Sigurhjartarsonar,
— ijóð Jóhannesar úr Kötium
og Kristjáns frá Djúpalæk.
Einar Oigeirsson skrifar
langa og skemmtilega grein:
Einvígi ís’enzks anda við
amerískt dollaravald. Rekur
hann þar afstöðu og ummæli
ísl. menntamanna og skálda
eins og Stephans G. Stephan-
sonar, Sigurðar Júl. Jóhannes-
sonar, Guttorms Guttormss.,
Gcsts Pálssonar, Jóns Ólafs-
sonar Einars Kvarans, Bólu-
Hjálmars, Matthíasar Jochum-
sonar, Þórbergs Þórðarsonar,
Jóhannesar úr Kötlum og Hall-
dórs Laxness, — og' eru þó
ekki allir taldir, því í greininni
Hæsti
vinningurinn ...
Dregið var í Happdrætti
Háskólans í gær. Vinningar
voru 700 og 2 áukavinningar.
Uppliæð vinninganna samtals
317 þús. 500 kr.
Hæstj vinningurinn, 25.000
kr. kom á nr. 28839, sem voru
hálfmiðar, seldir í Stykkis-
hólmi og Bókum og ritföngum
á Laugavegi 39.
10 þús. kr. vinningurinn kom
á nr. 10540 og var það heilmiði
seldur í Stykkishólmi.
5 þús. kr. vinningurinn kom
á nr. 14061 og var það i'jórð-
ungsmiði, tveir hlutar seldir á
Kópaskeri en hinir tveir hjá
Bókum og ritföngum á Lauga-
vegi 39. — (Birt án ábyrgðar).
lýsir Einar afstöðu samvinnu-.
manna og bænda.
Framhald á 6. síðu.
Ekkert gert til að
opna Siglu-
fjarðarskarð
Siglfirðingur kom að máli við
Þjóðviljann í gær og skýrði frá
því að mikil gremja ríkti á
Siglufirði yfir aðgerðarleysi
vegamálastjórnarinnar í því að
opna veginn yfir Siglufjarðar-
skarð. Þótt þetta sé orðið á-
liðið sumars hefur ekkert ver-
ið gert til að moka snjó af
veginum. Eins og aíkunnugt er
hefur óvíða verið eins mikið
atvinnuleysi í vetur og á Siglu
firði og siglfirzkir bíistjórar
eiga atvinnumöguleika sína
undir því að vegurinn opr.ist.
Vegurinn yfir Siglufjarðar-
skarð er ekki a’ðeins lífæð
Sigluf jarðar yfir sumarið, þar
er ekki síður áhugamál Fljóta-
manna að hann opnist til, um-
ferðar.
íslandsmótið
Akranes — Valur 1 : 0
í gærkvöld kepptu Akurnes-
iiigar og Va’Jur. Leikar fóru
svo að Akurnesingar uiinu mcð
l : 0.
Ferðaskrifstofa ríkisins:
VesþnannaeyjaferS — Handfæraveið-
ar — Gullfoss, Geysir — Þingvellir,
Sog og Krísuvík
Skemmtifcrðir Ferðaskrif-
stofunnar um næstu helgi
H fl D « B GULLNU STIðRNUNNAR
í kvöld er i'rumsýncl í Stjörnubíó rússueská myiulin Maður
gttllnu stjörnunnár. — Mýnd þessi er gerð hjá Mosfilm og er
tekin í Agfa-iiturn. — Þessi myiid er af aðalleikurunum.
verða sem liér segir:
Vestmannaeyjaferð.
Kl. 13 á laugardag verður
Iagt af stað með m.s. Esju til
Vcstmannaeyja. Komið þangað
um kvöldið og efnt til skemmti
samkomu.
Á sunnudag verður sýnt
bjargsig, cyjarnar skoðaðar og
siglt umhverfis þær. Lagt verð-
ur af stað heimleiðis kl. 23 um
kvöldið. Ferð þessi er farin í
samráði við Árnesinga- Stokks-
Framhald á 6. síðu.
Heiðmörkin
80 þús. plöntur
Þrátt fyrir veðrið hafa liend
ur verið látnar standa fram úr
ermum uppi í Heiðmörk, þvi
þegar hafa verið gróðursettar
80 þús. trjáplöntur.
Nú er blessuö rigningin kom
in, hið bezta veður til að
planta. Þau félög er vinna að
gróðursetningu í Heiðmörk.
ættu nú að nota hið hagstæða
veðurfar og fjölmenna í Heið-
mörkina.