Þjóðviljinn - 19.10.1952, Qupperneq 1
Járnkrossriddarar
á þingi
í V-Þýzkalandi
Félagsskapur manna þeirra
sem sæmdir hafa verið „járn-
krossinum" ætla að halda þing
í Bad Blomburg í Vestur-Þýzka
'landi nú í mánaðarlokin. Ráð-
gert er að þing þetta standi í
þrjá daga. Auk þeirra sem
krossaðir hafa verið járnkrossi
Hitlers, hefur verið boðið á
þingið uppgjafahermönnum frá
Bandaríkjunum, Kanada, Eng-
landi og meira að segja Júgó-
slavíu. Þeir sem að þinghaldi
þessu standa búast einnig við
þátttöksi járnkrossriddara frá
Belgíu, Hollandi, Spáni og Aust
urríki. Meðai gestanna verður
frelsari Mússólínis, Otto Skorz
eny, en hann hefur notið gisti-
vináttu Francos á Spáni að
undanförnu. Einnig er búizt við
hershöfðingjunum Galland og
Ulrich Rudel, en þeir dveljast
báðir í Argentínu.
Réttarmorðmn
frestað
Þann 15. þ. m. veitti hæsti'
réttur Bandaríkjanna i Wash-
ington hinum dauðadæmdu
,,atómnjósnurum“, Ethel og Júlí
usi Rosenberg frest í máli
þeirra. Hæstiréttur hafði fengið
beiðni um að áfrýjunarmálið
yrði tekið upp að nýju. Það er
sjaldgæft, að hæstiréttur verði
við tilmælum sem þessum, en
daúðadómnum verður ekki ful'l
nægt fyrr en úrskurður hans
um þetta hefur verið kveðinn
upp. — Beiðnin um, að málið
verði tekið upp aftur er í raun
og veru áskorun á réttinn um
að breyta dómnum.
Sunnndagur 19. október 1952 — 17. árgangur — 236. tölublað
Bygging
er hafin
Fyrsl i álasigi er íþréttalBiks. 33
lý«lsfélög standa a<$ kyggiiigeiniBi
Dagurinn í gær er merkisdagur í sögu Reykjavíkur: Bygging
æskulýðshallar var hafin með því að Ásmundur Guðmundsson
prófessor stakk fyrsta linausinn.
Hér er aðeias um byrjunarframlivæmdir að ræða, því fé er ekki
fyrir hendi nema tii lítíls hluta byggingarinnar, cn stjórn BÆR
og æskulýðurinn í bænum væntir þess fastlega að stjórnarvöld
og Afþingi skiljji þörf æskunnar fyrir byggiugu þessa og láti
hana ekki stranda á féleysi.
Æskulýðshöllin á að standa
inni við Sigtún og Laugarnes-
veg og voru þar mættir í gær,
auk stjórnar Bandalags æsku-
lýðsfélaga í Reykjavílc (BÆR)
biskupinn yfir íslandi, mennta-
málaráðherra, borgarstjórinn og
Ekki aiveg á
hreppnum
Eisenhower hershöfðingi hef-
ur gert opinberlega grein fyrir
efnahagsmálum sínum. Hann
er ekki alveg á nástrái, því að
síðastliðin tíu ár hefur hann
haft rúmlega 14 milljón króna
tekjur, þar af hefur hann grætt
yfir 10 milljón krónúr á bók
sinni „Á krossferð í Evrópu“.
En nú sem stendur hefur mað-
urinn engar tekjur „að undan-
skildum arði af eignum".
fulltrúar þeirra 33 æskulýðsfé-
laga sem eru í IBÆR og standa
að byggingu æskidýðshallarinn-
ar.
Athöfnin hófst með því að
sungið var £g vil elska nútt
land. Þá flutti próf. Ásmundur
Guðmundsson, formaður Banda
lags æskulýðsfélaga í Reykja-
vík, ávarp og óskaði að æsku-
lýðshöllin mætti verða reyk-
vískum æskulýð til heilla cg
hamingju.
Menntamálaráðherra, biskup-
inn yfir Islandi og borgarstjór-
inn í Reykjavík fluttu þvínæst
ávörp. Að lokum var sungið:
ísland ögrum skorið.
Fyrsti forvígismaður.
Stefán Runólfsson fyrrver-
andi formaður U.M.F.R. rakti
nokkuð forsögu æskulýðshallar-
innar sem nú hefur verið stung-
inn fyrsti hnausinn að. Aðal-
Visjinsky flytur friðartillögur á allsherj-
arþingi sameinuðu þjöðanna
FriSarsamningar i Kóreu — bann viS múg-
drápsvopnum - sáttmáii miiíi fimmveldanna.
Aðalfulltrúi Ráðstjórnarríkjanna, Visjinsky, flutti langa og
ýtarlega ræðu á ])ingi Sameiriuðu þjóðanna í gær. Hann lagði
fram tillögur til lausnar deilumálum þeim, scm standa í vegi fyr-
ir friði í heiminum.
Tillögur hans eru í aðalatrið-
,um á þessa leið: Þegar í stað
verði gert vopnahlé og síðan
friðarsamningar í Kóreu. Land-
ið verði sameinað í eitt ríki á
lýðræðisiegum grundvelli. Um
stríðsfanga verði látin gilda al-
þjóðalög og með þá farið sam-
kvæmt Genfarsamþykktinni, en
tillögur Bandaríkjamanna á
fundum vopnahlésnefndarinnar
eru brot á alþjóðalögum. —
Allur erlendur her verði fluttur
á brott úr Kóreu á 2 til 3
Kínverskur sirkus
í Stjörnubíó
Stjömubíó sýnir í dag kl. 3
og 5 bráðskemmtiiega mynd af
kínverskum sirkus, tekna í
agfa-litum. Er þetta stór hóp-
ur kínverskra trúðleikara sem
verið hafa á sýningarferðalagi
um Evrópu undanfarið og hvar-
vetna vakið mikla hrifningu,
enda eru Kínverjar i fremstu
röð í þessum greinum skemmti-
lista.
Er ekki að efa að bæði böm
og fullorðnir hafa gaman að
ejá þessa óvenjulegu mynd.
mánuðum eftir vopnahléssamn-
inga. Skipuð verði nefnd manna
frá þeim þjóðum, sem nú liafa
her í Kóreu og nokkrum öðr-
um þjóffum til þess að sjá um
framkvæmd þessara atriða. Þá
leggur Visjinsky og til, að ail-
ar sameinuðu þjóðirnar gerist
aðiljar að samþykktum um
bann við öllum kjarnorkuvopn-
um. Ennfremur að þær stað-
festi allar Genfarsáttmálann
um algert bann við sýklanotk-
un í hernaði. Visjinsky lagði
einnig til að fimmveldin, Ráð-
stjórnarríkin, Bretland, Frakk-
land, Kína og Bandaríkin gerðu
með sér friðarsiáttmála.
í ræðu sinni gerði Visjinsky
ýtarlega grein fyrir gangi al-
þjóðamála og deildi fast á
Bandaríkin fyrir yfirgangs
stefnu þeirra í stjórnmálum og
efnahagsmálum annarra þjóða.
Frakkar gjalda mesta afhroS
í Indókína
Tapa þýðÍRgarmiklum herstöðvum eg bíða
mikið manníall
Frakkar hafa beðið miklar hrakfarir fyrir her alþýðufylking-
arinnar norðvestur af Hanoi í Indókíua. Þeir liafa niisst traust-
ustu herstöðvar sínar á þessum slóðum og orðið fyrir miklu
mannfalli.
Þetta er um 140 km norð-
vestur af Hanoi á syðri bakka
Rauðár. Þar er afarmikil hrís-
grjónarækt og hafa Frakkar
lagt hið mesta kapp á að verja
alþýðufylkingunni þetta svæði,
þar sem það hefur svo mikla
hernaðarlega þýðingu sem mat-
vælaforðabúr. Fregnin um þenn-
an ósigur Frakka hefur slcotið
frönsku stjórninni skelk í bringu
en talsmaður herstjórnarinnar
segir, að líta beri á ófarir þessar
með tilliti til ástandsins í heild
austur þar, og reynir að gera
minna úr hrakförunum en efni
standa til.
Ásmundur Guð-
mundsson, próf-
essor, ávarpar
fulltrúa æsku-
lýðsfélaganna
áður en hann
stalck fyrst
hnausinn
grunni æskulýð-
hallarinnar —
Litla stúlkan er
hjá honum
stendur lcom ó-
boðin sem full
trúi þeirrar
æsku sem verk>,
ins á að njóta
steinn heitinn Sigmundsson
kennari hreyfði fyrst hugmynd-
inni um æskulýðshöll. Síðar
komst hún inn í þingið og sam-
þykkt gerð. Þegar bæjarstjórn
Rví'kur hét 50% framlagi gegn
jafnháu frá æskulýðsfélögum
í bænum var BÆR stofnað. Var
stofnSkráin samin á fundi er
boðað var til heima hjá biskupi
þann 8. febr. 1948.
Fleiri en æskan eiga liags-
muna að gæta.
Stefán skýrði frá því að síð-
g,sta þing BÆR hefði einróma
samþykkt að byrjað ■ yrði á
.byggingu skautasalar, er yrði
mikið húsnæði og myndi lcoma
að margvíslegum notum, t.d.
væri hægt að halda þar sýning-
ar eins og iðnsýninguna. Auk
þess yrði það tilvalið fyrir
heimsó'knir stórra erlendra
hljómsveita o. fl. o. fl.
1800 fermetrar.
Gísli Halldórsson arkitekt,
sem teiknað hefur bygginguna,
skýrði frá' því að íþróttabýgg-
ingin, sem verður fyrsti áfang-
inn, og er hafin, ýrði 1800 fer-
metrar og 13400 rúmmetrar.
Verður þar fyrst og fremst í-
•þróttasalúr, 4 búningsherbergi,
gufubað, lítill samkomusalur
fyrir íþróttamenn, og forstofa.
Er upphaflegá hngmyndin
að mást út ?
Næsti áfangi verður að
byggja skautasal og kapellu.
sagði Gísli Halldórsson. „Ef til
vill verður þriðji og síðasti á-
fanginn tóriistundahéimiii, en
]»að er ekki alveg ljóst hvernig
á að byggja þaff. Við erum að
leita uppiýsinga um það hjá ýms
um félögnm er að þessu standa.“
Guð h.jálpar ])eim sem ...
Gísli Jónsson, fulltrúi ríkis-
stjórnar Ihalds og Framsóknar
þar sem á reynir, þ.e. í fjár
veitinganefnd Alþ., var eitmig
mættur í hófi því er framan-
greindar ræður voru fluttar.
Talaði hann af drengilpgri
hreinskilni og lcvaðst búast við
að svar Alþingis við beiðni um
fé til æskulýðshallarinnar yrði
„að vísa til íþróttasjóðs — sem
állir vita að er tómur.“ Hann
kvað engan bæ í heiminum af
sömu stærð og Ólafsfjörður
hafa komið upp öðrum eins
mannvirkjum og hann. „Stærsti
möguleikinn fyrir byggingu
æskulýðsliallar er hin sígilda
setning: Guð hjálpar þeim sem
hjálpar sér sjálfur. Þess vegna
er Ólafsfjörður svo framarlega.
Það er frumskilyrði að æskan
sjálf leggi á sig þunga byrði.“
Stjórnarvöídin vilja engu
dagsverki glata!!
Gísli rakti fjárhagsörðug-
leika stjórnarvaldanna: „Við
(fjárveitinganefnd) sátum
margar klst. í gær og ræddum
beilbrigðismál, ]»au eru í slíkiim
voða að raunverulega þyrfti að
leggja nýja 10 millj. kr. byrði
á skattþegnana_____Við getum
ekki þegiff 2ja millj. kr. gjöf til
barnaspítala vegna þess að rík-
ið hefur elcki 2 millj. til. að
leggja á móti. Það þarf að
byggja heimili fyrir fávita.
Við viíjum bjarga hverja dags-
verki í landinu, að ekliert dags-
verk fari forgörðum, þess
vegna þurfum við að byggja
hús fyrir vandræðaung'dnga.
Dráp eða limlesting —
þriðja Ieiðin ekki til?
Þá lcvað Gísli menningu þjóð-
arinnar hafa bjargað þjóðinni
frá algerri glötun. Ótækt væri
því að skera niðnr framlög til
lista og vísinda. Varðandi vænt-
anlegt erindi frá BÆR um f jár-
veitingu til æskulýðshallar
sagði Gísli: „Það skal verða l@s-
ið, það slcal verða rætt, en hvart
það verður drepið eða iimlest
skal ég ekkert um segja.“
Stöndum saman rem
einn maður.
Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi talaði síffastur og lauk
máli sinu með þes im orðum:
„Stöndum saman sem einn mað-
ur um það að takmarki ckkar:
byggingu æskulýðsliallar, verði
náð.“