Þjóðviljinn - 02.11.1952, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 2. nóvember 1952
Sunnudagur 2. nóvember 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5
þióoyiuiNN
Útgefandi: Samelningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokurinn.
Rltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Slgurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (3 línur).
Aakriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. U
annarstaðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Gjaldþrot stjórnarstefnunnar
Þegar núverandi stjórnarflokkar réðust I gengislækk-
unina miklu fyrir tæpum tveimur árum, þrátt fyrir harð-
vítug og rökstudd andmæli Sósíalistaflokksins og verka-
iýðshreyfingarinnar, beittu þeir þeirri höfuðröksemd að
með þeirri ráðstöfun einni yrði atvinnuvegunum og þó
einkum sjávarútveginum bjargað frá stöðvun og hruni.
Málsvarar ríkisstjórnarinnar og málgögn Framsóknar og
Sjálfstæöisflokksins þreyttust aldrei á aö lýsa þeim alls-
herjar bjargráöum sem í gengislækkuninni væru fólgin.
Framundan átti að vera mikið blómatímabil fyrir at-
innuvegina og vágesti atvinnuleysisins bægt frá dyrum
almennings.
Verkalýðshreyfingin og Sósíalistaflokkurinn sýndu
hinsvegar fram á hið gagnstæða. Á það var bent og
það margsinnis með óvéfengjanlegum rökum að gengis-
lækkunin þýddi hvorttveggja í senn ósvífna árás á
•launakjör og lífsafkomu verkalýðsins og ógnun við af-
komumöguleika atvinnuveganna.
Allt hefur þetta komið fram og er óþarfi að rekja þá
sögu svo kunn sem hún er öllum almenningi. En nýjasta
cæmiö um falsrök ríkisstjórnarinnar og flokka hennar
þegar verið var að keyra gengislækkunina 1 gegn kemur
fram í þeirri lýsingu sem gefin er í stjórnarblöðunum í
gær á erfiðlekum sjávarútvegsins, þar á meðal stórvirk-
ustu framleiðslutækja hans, togaranna.
Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda telur nú óhjá-
kvæmiiegt að ríkisstjórnin skipi nefnd ,,til að athuga
rekstrarafkomu togaranna, með það fyrir augum að bætt
verði afkomuskilyrði þeirra, svo unnt verði að halda uppi
halLalausum rekstri“. Ennfremur að ríkisstjórnin hlutist
til um það við bankana að togararnir eigi kost á nauð-
synlegu rekstrarfé til þess að forða þeim frá stöðvun.
Á það er bent að 11 af nýsköpunartogurunum eru nú
auglýstir til uppboðs, þar sem þeir hafa ekki getað staðið
í skilum með afborganir af lánum við Stofnlánadeild
sjávai útvegsins. Er farið fram á að gerðar verði ráðstaf-
anir af hálfu hins opinbera til þess að ekki verði gengiö
að 'Skiþunum.
Það er fullvíst að. allir nýsköpunartogararnir eiga fyrir
skuldum og meira en það. Það sem hindrar heilbrigðan
og eðlilegan rekstur þeirra og afkomu er hin skipulagða
lánsfjárkreppa ríkisstjórnar og banka, markaðsöngþveitið
og afleiðingar gengislækkunarinnar, sem koma fram í
stórfelldum hækkunum á öllum nauðsynjum útgerðar-
innar og skella á henni af þeim ægiþunga sem hún fær
okki lengur undir risið.
Þannig hafa fullyrðingar ríkisstjórnarinnar og Benja-
míns Eiríkssonar um læknismátt gengislækkunarinnar
og stjórnarstefnunnar staðizt dóm reynzlunnar. Þáð er
ekki á einu sviði heldur öllum sem við blasir algjört
gjaldþrot þeirrar stjórnarstefnu sem mörkuð var að er-
lendri forskrift í marz 1950 af Framsókn og Sjálfstæðisfl.
Þessir afturhaldsflokkar standa nú frammi fyrir þjóð-
inni staðnir að einhverjum þeim arg-vítugustu blekking-
um og loddarabrögðum sem um getur í íslenzkri stjórn-
raálasögu. Og þau loddarabrögð hafa orðið þjóðinni og
atvinnuvegum hennar dýr. Þau hafa fært íslenzkri al-
þýðu hlutskipti atvinnuleysis og fátæktar í stað fullrar
aívinnu og almennrar velmegnnar sem lofað var af
stjórnarflokkimurn og „sérfræðingum" hennar þegar ver-
i'ð var að berja gengislækkCnina fram á Alþingi. Og
íyrir atvinnuvegina sem átti að .,bjarga“ hefur gengis-
lækkuhin og aðrar „viðreisnarráðstafanir“ stjórnarvald-
anna þýtt svo stórfellda útgjaldaaukningu að við full-
komnu öngþveiti liggur eins og skýrslan sem stjórnar-
blöðin birta í gær um afkomu togaranna ber gleggst
með sér.
Það væri vissulegá sæmst að sú ríkisstjórn sem þannig
hefur stjórnað viðurkenni skömm sína og uppgjöf. En
3-íkrar viðurkenningar á staðreyndum er áreiðankga
ekki að vænta frá núverandi ríkisstjórn. Þjóðin sjálf verð-
ur að taka að sér hreinsunarstarfið í næstu kosningum
og marka nýja og héilbrigða stjórnarstefnu. S
,,Til hvers er hárgreiða" — Atómstöð í Khöín
Fröken Júlía
TIL HVERS er hárgreiða? Til
þess að greiða hár. Til hvers
er skammbyssa? Til þess að
skjóta af, deyða líf. Hvernig
eiga nú þessir tveir hlutir
samleið, hárgreiða og skamm-
byssa ? Gáta ? kann einhver
að spyrja. Nei ekki alveg og
þó. I flestum nýlenduvöru-
verzlunum gefur nú að líta
einkennilegt verkfæri, greið-
ur í laginu einsog skamm-
byssur, margir litir eftir
smekk. Það má segja að víg-
búnaður Atlantshafsþjóðanna
sé kominn í fullan gang, þeg-
ar jafnvel meinlausar hár-
greiður hafa tekið á sig mynd
morðvopns. Ekki er tekið
fram í auglýsingunni, að greið
urnar séu ætlaðar börnum
eingöngu en þær eru í lag-
inu eins og kúrekabyssur þær
sem gerðar eru fyrir börn.
Það virðast fleiri en við
þekkja máltækið „snemma
beygist krókurinn". Börn o'kk-
ar skulu alin upp svo að þau
snyrti ekki einu sinni hár sitt
svo, að þeim detti ekki í hug
morð, pístóla er lukkumerkið.
Úr því þeim datt annað eins
snjallræði í hug og þetta má
þá ekki búast við að við fá-
um bráðlega pela sem líta út
eins og handsprengjur, eða
Marshall sendi okkur aflóga
fallbyssur á barnaleikvellina
af alkunnri rausn.
Línan að vestan, víglínan,
er langtum fullkomnari en
nokkuð er þýzíku nazistarnir
hefðu getað fundið upp. Hinir
nýju nazistar gefa sér tóm til
þess að beygja þjóðirnar sið-
ferðilega 1 stað þess að brjóta
þær, og þeir eru ekki síður
hættulegir en þeir gömlu.
★
ÞAÐ KVAÐ EKKI bera mik-
ið á Atómstöðinni í gluggiun
bókaverzlana í Kaupmanna-
höfn. Margt er líkt með skyld
um. Það er gaman að fylgj-
ast með viðbrögðum hinna
dönsku Vafsa og K. Guðlaugs-
sona. Kiljan er orðinn það
vinsæll höfundur í Danmörku
að þeim þýðir ek'ki að kalla
hann bara klámskáld og
kommúnista, en reynist full-
erfitt að leiða rök að því
hvernig sjeníið sé kominn á
villigötur. Einn sósíaldemó-
kratinn komst þannig að orði
í gagnrýni að maður hlægi að
gríninu en alvaran komi
manni í vont skap. Það er
von. Viðbrögðin benda til að
Atómstöðin sé jafn raunhæf
í Danmörku og hún er hér.
★
lýsingar í hléinu. Mikill hluti
þessara auglýsinga eru ætl-
aðar enskumælandi fólki. —
Hentar það ekki íslendingum
bezt að lesa sitt eigið móður-
mál enda þótt bara séu aug-
lýsingar. Þetta þykir mörgum
kannske lítilvægt atriði, en
margt smátt gerir eitt stórt.
Sunnudagrur 2. nóvember (Allra
sálna messa). 307. dagur ársins..
— Tungl í hásuðri kl. 0.09 — Há-
flæði kl. 5.15 og- 17.35 — Lágfiri
kl. 11.27 og 23.47.
Ríkisskip
Esja er á leið frá Austfj. til
Akureyrar. Herðubreið er á Aust-
fjörðum á suðurleið. Skjaldbreið
fór frá Reykjavík i gær til Húna-
flóahafna. Þyrill er á Austfjörð-
um á suðurleið. Skaftfellingur fer
frá Rvík á þriðjudaginn til Vest-
mannaeyja. Baldur fer frá Rvík
á morgun til Búðardals.
Miililandaflugn-'él Loftleiða h. f.
kom í nótt frá Kaupmannahöfn
og Stavanger með farþega, póst
og vörur. Plugvéiin fór héðan aft-
ur snemma í morgun, sunnudag,
til N.Y., er væntanleg þaðan aft-
ur á þriðjudagsmorgun á leið til
Norðtirlanda.
Ljósmyndasýningin í Listamanna-
skálanum er opin daglega klukk-
an 10—10.
Verzlunar- og skrifstofufóik, mun
ið launþegafund VR annað kvöid
kl. 8.30 í Tjarnarcafé. Rætt verð-
ur um uppsögn samninga.
Rafmagnstakmörkunin
Austurbærinn og Norðurmýri,
milli Snorrabrautar og Aðalstræt-
is, Tjarnargötu og Bjarkargötu
að vestan og Hringbraut að sunn-
Miðilinn í Iðnó í kvöld. Látið ekki
happ úr hendi sleppa.
Aðaifundur Bandaiags kvenna í
Reykjavík verður settur klukkan
1.30 á morgun, mánudag, í Iðnó.
Kvennadeiid Slysavarnafélagsins
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld k’ukkan 8.30.
Mæðrafélagið. Saumanámskeið-
ið er að hefjast. Enn geta nokkr-
ar konur komizt að. Hringið í
síma 80221 kl. 10—12 árdegis og
8.30—10 síðdegis.
Tímarit Verkfræð-
ingafélags lslands,
ijg r - 3. og 4. hefti ár-
gangsins hefur bor
'izt. Efni beggja
heftanna er mikil
og löng grein eða skýrsla er
Glúmur Björnsson, hagfræðingur,
hefur tekið saman, og nefnist Is-
lands kraftförsörjning, eða Is-
lenzkar orkulindir. Geisimargar
myndir og uppdrættir fylgja.
13.00 Erindi: Haf-
ið og huldar lend-
ur, eftir Rachel
Carson; II. Huld-
ar lendur (Hjörtur
Halldórss. mennta-
skólakennari). 14.00 Messa í Að-
ventkirkjunni. (Séra Emil Björns-
son). 15.30 Miðdegistónleikar; a)
Vetrarferðin, lagaflokkur eftir
Schubert. b) 16.00 Lúðrasveit R-
víkur leikur. 18.30 Barnatími.
20.20 Erindi: Um spánarferð (Sig.
Þórðarsson fyrrv. alþm.). 20.50
Frá fimmta móti norrænna
kirkjutónlistarmanna: Finnsk
kirkjutónlist (tekin á segulband
á hljómleikum í Dómkirkjunni 7.
júlí s. 1.). 21.40 Erindi: Skáldkon-
an Úndína. (frú Lára Árnadótt-
ir). 22.05 Gamlar minningar:
Gamanvisur og dægurlög. Hljóm-
sveit undir stjórn Bjarna Böðvars
sonar leikur. 22.35 Danslög. 23.30
Dagskrárlok. — Útvarpið á morg-
un: 17.30 Islenzkukennsla; II. fl.
18.00 Þýzkukennsla; I. fl. 18.30
Tónleikar. pl. 19.00 Fréttir frá SÞ.
19.05 Þingfréttir. 20.20 Útvarps-
hljómsveitin. 20,40 Um daginn og
veginn (G. Þ. Gíslason próf.).
21.00 Einsöngur: Óiafur Magnús-
son frá Mosfelli syngur; 21.20 Er-
indi: Trjáviðarflutningar i Norður
Sviþjóð (Guðbjörn Guðbjörnsson).
21.35 Tónleikar: Scaramouche,
svita fyrir tvö píanó eftir Mil-
haud. 22.10 Désirée, saga eftir
Selinko (Ragnh. Hafstein). 22.35
Dans- og dægurlög. 23.00 Dagskrár
lok.
UM SÓKN NORÐHRZKRAR ALÞÝÐU
HLUTAVELTA.
Barnaheimilið Vorboðinn heldur
hlutaveltu að Röðli í dag ki. 2
— Þar verður allskonar matvara:
kjöt, hveiti, rúgmjöl, saltfiskur,
niðursuðuvörur. Einnig kol og ó-
tal margt fleira. — Freistið gæf-
unnar. Styðjið barnaheimili Vor-
boða.ns.
CVÍll Söngæfing í kvöld í
^ ® MMB' Edduhúsinu kl.
2 í Edduhúsinu. Mætið stundvís-
iega.
Listasalmð
Framhaid af 8. síðu.
ýmsar breytingar og tilfærslur
í öðrum sölum safnsins, en
listmálararnir Gunnlaugur
Scheving og Valtýr Pétursson
hafa fcomið safninu fyrir að
þessu sinni. Er öll ástæða til
þess að hvetja almenning til
að skoða safnið sem oftast og
bezt.
Lausn á nr. 32: 1. Bc3—el.
SKÁLKURINN FRÁ BUKHARA
1 september 1945 fór þrítugur
norðfirzkur sjómaður seinasta róð-
urinn sinn, hætti sjómennsku til
að sinna öðrum verkefnum. Hann
gerði þá að aðalstarfi sínu það
verk sem um 15 ára skeið hafði
verið honum nauðsyn, og tekið
frítíma lians allan, stjórnmála-
starf í þágu austfirzkrar alþýðu.
Hann tók við stjórn á kosninga-
skrifstofu Sósíalistaflokksins i
Neskaupstað og við b’aði Sósial-
isafélagsins, Árbliki. Árin að und-
anförnu hafði enginn einn flokk-
ur haft meirihiuta á Norðfirði,
Alþýðuflokksvaldið sem Jónas
Guðmundss. byggði í kringum sig
molnað niður og höfðingi þess
kominn að þeim kafla í ævisögu
sinni sem hefst með ofsalegri
vínnautn og lauk í pýramídadellu,
lcanatilbeiðslu og skrifstofustjóra-
stöðu í stjórnarráðinu (sjá rit
J. G.: „Leyndardómur ofdrykkj-
unnar“.)
En í janúar 1946 myndast aftur
hreinar línur í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar. Sósíalistaflokkurinn
fær fimm bæjarfulltrúa af níu,
hreinan meirihluta fulltrúanna og
fast að meirihluta atkvæða.
Það er merkisstund í sögu
verkalýðshreyfingarinnar og sósi-
alismans á Islandi. Sósíalistaflokk-
urinn hafði í fyrsta sinni fengið
hreinan meirihluta í stjórn bæjar-
félags. Og enda þótt enginn þurfi
að halda að hægt sé að fram-
kvæma sósíalisma með meiri-
hlutavaldi sósíalista í einu bæjar-
félagi, meðan auðvaldsskipulag
ríkir í landi, veltur að sjálfsögðu
á miklu hvernig með völdin er
farið. Flokksmenn, bæði á Norð-
firði og anr.arsstaðar á landinu,
vissu að fylgzt yrði með hverri
hreyfingu og öllum aðgerðum nýja
bæjarstjórnarmeirihlutans, og ekki
sparað að lesa úr hverjum mis-
tökum „sönnun“ fyrir því, áð það
sem sósíalistar stefni að sé al-
gert hrun atvinnuveganna, algert
öngþveiti, fátækt og vandræði,
þvi fólk sem siíkt reyni sé
bezt undir það búið . að með-
taka sósíalisma. En þessa kenn-
ingu þreytast þau ekki á að
flytja blöð hins þríeina aftur-
halds í landinu, Morgunblaðjð,
Tíminn, Alþýðubiaðið — ö!l í kór.
Dómur reynslunnar um störf
norðfirzku sósialistanna í at-
vinnumálum Neskaupstaðar skal
ekki rakinn í þessn greinarkorni,
hann er lesendum Þjóoviljans og
raunar alþjóð kunnur. Reynt
hefur verið að hnýta í einstök
atriði þeirrar stórfelldu nýsköp-
unar sem þar er orðin en ég held
að ekkert blað hafi reynt að
tengja stjórnarstefnu norðfirzku
sósíalistanna við „hrunstefnu“ og
„rústir", þó sjálfsagt hafi ekki
vantað viljaan.
Hér skal aftur vikið að sjó-
manninum, sem stjórnmál og
stjórnarmál bæjarfélagsins hrifu
allan til sín í september 1946.
Hann gegndi bæjarstjórastarfi í
Neskaupstað fyrri hluta árs 1946,
og hefur nær óslitið verið starfs-
maður á bæjarskrifstofunum síð-
an. Eftir kosningarnar í janúar
1950 þegar Sósíalistaflokkurinn í
Neskaupstað vann einn glæsiieg-
asta kosningasigur sem unninn
hefur verið á Islandi, hlaut 6
af 9 bæjarfulltrúum gegn sam-
einuðum lista þríflokkanna, Sjálf-
stæðisflokksins, Alþýðuflokksins
og Framsóknarf’.okksins, var sjó-
maðurinn okkar, Bjarni Þórðar-
son, kjörinn bæjarstjóri Neskaup-
staðar, í apríl 1950. Fjöldi ann-
arra trúnaðarstarfa fyrir bæjarfé-
lagið hefur á hann hlaðizt fram á
•þennan dag.
Bjarni Þórðarson er fæddur að
árin eftir 1930, og lífsbaráttan varð
þessum 17 ára ungling sízt auð-
veldari vegna þess að hann skip-
aði sér í flokk á yzta bekk, flokk
sem einmitt á þessum árum hóf
eldmóðsbaráttu um hagsmuni
verkafólksins í landinu, við öll
máttarvöld landsins, fyrirlitinn,
rægður og hataður af arðræn-
ingjum Islands og afturhaldsliði
allra gömlu flolckanna en unnað
heitar af fátæku alþýðufólki en
nokkrum öðrum íslenzkum stjórn-
málaflokki til þess dags — Kom-
múnistaflokk Islands.
Baráttan var hörð á þessum
árum, það var ekkert hégóma-
Lúðvík Jósepsson, Bjarni Þórðarson, Jóhannes Stefánsson
Kálfafelli í Suðursveit, 24. apríl
1914. Foreldrar, hans voru Þórður
Bergsveinsson frá Urðarteigi við
Berufjörð og Matthildur Bjarna-
dóttir, af skaftfellskum ættum.
Þau bjuggU allan sinn búskap
að Krossi á Berufjarðarströnd.
Þórður drukknaði í róðri 1925.
Var Bjarni e’ztur, þá 11 ára, en
yngsta barnið ófætt. Föðurbróðir
Bjarna eignaði3t jörðina og var
Matthildur áfram á Krossi með
börn sin þar til 1930 að þau
fluttu til Norðfjarðar.
Bjarni kom fyrst til Norðfjarð-
ar í september 1929, við höfum
kannski sézt þar á götu, einmitt
í þeim mánuði hætti ég á Frið-
þjófi litla og fór burt i fram-
haldsskóla. Bjarni kóm til þess
að ganga á ungtingaskólann á
Norðfirði, mér hefði verið nær að
fara þangað líka í stað þess að
þjóta í annan landsfjórðung, við
hefðum þá áreiðanlega kynnzt og
orðið samverkamenn i þeirri ein-
stæðu sókn, sem norðfirzkir sósí-
alistar hafa háð síðustu 20 árin.
Ég sagði það nýlega við Bjarna.
snortinn öfund af afrekum þeirra
Norðfirðinga, en fanst þá á hon-
um að hann hefði að minnsta
kosti unglingur heldur kosið sér
aðra leið, framhaldsnám, mennta-
skóla og háskóla —- ef fátæktin
hefði ekki alveg lokað henni.
Traustur maður hefði hann orðið
hvar sem hann. var, gáfur hans
og þrek hefðu hvarvetna lyft
honum langt upp úr meðai-
mennsku.
Bjarni varð kyrr, og hóf harða
baráttu fyrir daglegum þörfum
heimiiis þeirra mæögina, i hinum
ömurlegu atVinnuþi engingum
mál neinum manni, sízt fjölskyldu-
fyrirvinnu, að vera með í hinum
þunnskipuðu röðum Kommúnista-
flokks lslands, það gat þýtt og
þýddi oftast nær miskunnarlausar
atvinnuofsóknir, og hvergi er eins
auðvelt að koma þeim við eins
og á litlum stöðum. —- Samt
komu þeir undir merkin, verka-
mennirnir, ekki einungis í Reykja-
vík og á Akureyri, þar sem rauð-
ur loginn brann skærast, heldur og
í öðrum bæjum og þorpum lands-
ins, raddir hrópendanna, einstak-
linga sem boða framtíðina, heyrð-
ust líka úr sveitum. Alþýðuflokk-
urinn sigldi hraðbyri út í það
kviksyndi afturhalds og svika við
málstað verkajýðs og sósíalisma
sem árin undanfarið nær rök-
réttu hámarki með þeirri við-
leitni að afhenda flokki Thórsara-
hyskisins og heildsala undirtökin
í sjálfri verkalýðshreyfingunnf.
Þeir sem skýrast sáu fyrir þenn-
an þróunarferil, og var það
alvara að á Islandi skyldi
háð stéttabarátta þar til al-
þýðan hefði sigrað og fátækt,
öryggisleysi og neyð væri útrýmt,
risu upp, menntamenn, verka-
menn, iðnaðarmenn og sjómenn
á öllum aldursskeiðum, — og það
var strax árin 1930—31 álitlegur
hópur ungra manna víðsvegar um
landið er skipaði sér í raðir
kommúnista, stofn sem fram til
þessa dags hefur reynzt drjúgur
verkalýðshreyfingunni á Islandi.
og Lúðvík Jósepsson. Saga verka-
lýðshreyfingarinnar í Neskaup-
stað verður með hverju árinu eft-
ir 1930 meir og meir tengd nöfn-
um þeirra, og þar gerist það í
smáum stíl sem gerast mun um
allt land og öll lönd: verkalýðs-
hreyfingunni vex svo ásmegin að
hún verður meginafl samfélags-
ins og skapar því örlög. Nú þeg-
ar eru nöfn þessara þriggja ung-
menna úr Kommúnistaflokki Is-
lands órjúfanlega tengd merkustu
æviatriðum hins unga bæjarfé-
lags Neskaupstaðar .
Bjarni Þórðarson og Lúðvik
Jósepsson tóku þegar árið 1930
hiklausa afstöðu með Kommún-
istaflokknum og nokkru síðar
bættist Jóhannes Stefánsson í
hópinn. Þegar Bjarni kom til
Norðfjarðar haustið 1929 hafði
hann varla heyrt nefndan sósíal-
isma, en þar kastaði hann sér
strax út í verkalýðsmá! og stjórn-
málabaráttu. Norðfjarðardeild úr
Kommúnistaflokki Islands var
stofnuð 12. janúar 1932, þar var
kominn Gunnar Benediktsson og
kom hann flokksdeiidinni í heim-
inn. Og enda þótt það væri eng-
in unglingadeild var Bjarni Þórð-
arson, 17 ára sjómaðurinn, kos-
inn fyrsti formaður hennar. Um
sama ieyti var honum ásamt
tveimur félögum sínum, Ingi-
manni Ólafssyni og Einari Sv. Frí-
manns vikið úr Verkamannafé-
lagi Norðfjarðar og gefið að sök
greinar í kommúnistablöðum, hitt
var auðvitað sökin að þeir höfðu
vogað að rísa upp gegn Jónasi
Guðmundssyni, alvaldi verkalýðs-
félagsins og bæjarmálanna. En
Bjarni átti eftir að verða for-
maður Verkamannafélagsins um
iangt skeið.
I bæjarstjórnarkosningunum 1934
voru þrír forvígismenn kommún-
ista í Neskaupstað of ungir til
að vera í kjöri, tveir nítján ára
og einn tvítugur! Fékk listi flokks
þeirra 28 atkv. og kom engum
að. Alþýðuflokkurinn féklc þá
fimm kjörna af átta. Við næstu
bæjarstjórnarkosningar, 1938, knúði
samfylkingaraldan Alþýðufiokkinn
til sameiginlegra Iista með Komm-
únistaflokknum viða um land
og einnig á Norðfirði. Fékk sá
listi sex kosna, þrjá af hvorum.
Tóku þá Bjarni Þórðarson, Jó-
hannes Stefánsson og Lúðvík
Jósepsson sæti í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar og hafa átt þar sæti
síðan. Haustið 1938 er Sósíalista-
flokkurinn stofnaður og öflugt
Sósíalistafélag í Neskaupstað. —■
Samkomulagið við Alþýðuflokkinn
entist skammt, og árin næstu valt
á ýmsu vegna þess að enginn
flokkur hafði meirihluta. Árið 1942
er Sósíalistaflokkurinn orðinn
sterkasti flokkur bæjarins, og það
ár, í sumarkosningunum er Lúð-
vík kosinn á þing. Hreinar linur
fengust, eins og áður er sagt I
kosningunum 1946, er Sósíalieta-’
flokkurinn nær einn meirihluta í
bæjarstjórn. Og svo — dómur
fólksins um stjórn sósíalista eitt
kjörtimabil, dómur þess um stór-
fellda nýsköpun atvinnulífsins og
alhliða framför bæjarféiagsins,
kosningasigurinn 1950, Sósíaiista-
flokkurinn fær 415 atvæði og sex
menn kjörna, en sameinaður listi
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknar fær 242 atkv. og
skiptir þremur fulltrúum á miíii
flokkanna þriggja, — einn í hiut!
Vegferð hinnar sósíalistísku
verkalýðshreyfingar í Neskaupstað
áratugina frá 1930 virðist hvei’j-<
um þeim sem kynnist ævintýri
líkust, og Sosíalistaflokkurinn a!l-
ur gæti margt lært af sókn og
baráttu norðfirzku sósíalistanna.
Að baki slikra sigra liggur stór-
kostleg barátta, daglegt óþrotlegt
starf, skýr hugsun og þróttug
athöfn. Á þeirri vegferð hafa
sósíalistar Neskaupstaðar hlotið
trúnað fólksins til forystu í mörg-
um helztu félagssamtökum bæj-
arins, verkamannafélaginu, Pönt-
unarfélagi alþýðu, Samvinnufélagi
Framhald á 7. síðu.
Af þeim mönnum eru Norðfirð-
ingarnir þrír í fremstu röð, Bjarni
Þórðarson, Jóhannes Stefánsson
ENGI MAÐUR handritið að 14-71?
kvilcmyndinni Fröken Júlia.p^'
viðbúið að manni þætti það ei
mikil lesning og allmelódrama-
tísk. Samt verður það þannig
í höndum Svía, að úr því verð-
ur merkileg kvikmynd.
Það sem á vantar um bók-
menntagildi handritsing ey
unnið upp með öllum þeim
möguleikum sem kvikmynda-
tæknin gefur. Þeim hefur ,j>.
dottið margt í hug í sambandi1
við myndatöku, sem ekln hef-
ur sézt áður. Leikur Anitu
Björk er og sérlega eftir-; Á
minnilegur.
★ ^
U:ður þér illa? spurði Hodsja Nasreddín,
ARGT verður á vegi manns °s Gulisjana svaraði andvarpandi: Ég er
sem miðar í áttkia að mark- Þjáð af- þrá og sorg, því ég hef verið
,-iSSri „kólóniseringu" Islend- hrifin burt frá manninum sem ég elska.
ínga. Sum bíóin sýna aug- <
Hodsja Nasreddín hvislaði að emírnum:
Hún er sjúk af því hún hefur verið skil-
in frá emírnúm. — Andlit emírsine ljóm-
aði af gleði, og andardráttur hans færðist
í aukana.
En nú finn ég að ástvinur minn er hér
skammt frá mér, þó ég geti hvorki kysst
hann né faðmað. En kemur hann ekki senn
og svalar ást minni?
Hvilík ástriða! Emírinn var aideilis frá
sér numina af hrifningu. Hann gat ekki
staðið kyrr, en fór að typp'a aftur á bak
og áfram um kölfið.
a norræna
íýðsráðstefnu um fríðarmál
Dagana 15. og 16. nóvember næstkomandi verður
haldin norræn verkalýðsráöstefna í Osló um friðarmál,
en til ráöstefnunnar hafa rnargir kunnir forystumenn
verkalýössamtakanna á Noröurlöndum boöað.
Helztu viöfangsefni ráöstefnunnar verða umræöur um
áhrif hervæðingar og styrjaldarundirbúnings á lífskjör
verkalýðsins og á efnahagslíf og menningu þjóðanna.
Enn fremur, á hvaða hátt verkalýðurinn geti stuðlaö’
aö tryggingu friöar á Norðurlöndum.
Við lítum svo á, aö þessi ráöstefna hafi þýðingu fyrir
íclenzkan verkalýð eigi síður en verkalýð hinna land-
anna, fyrst og fremst vegna þess sameiginlega málefnis,
sem þar verður rætt, en einnig vegna þess, að á þessu
.wiði er hiö æskilegasta tækifæri til þess aö treysta
bræðrabönd verkalýðsins á .Noröurlöndum.
Við undirritaðir viljum því vekja athygli íslenzkra
veikamanna og verkakvenna á þessari ráöstefnu og erum
þeirrar skoöunar, aö íslenzkum verkalýö beri einnig að
eiga þar fulltrúa.
Þess vegna höfum við ákveðiö aö beita okkur fyrir
því, að héðan fari a. m. k. einn fulltrúi. En þar sem
hér er jafnframt um fjárhagsatriöi aö ræöa, hefur okkur
þótt hlýða að leita opinberlega liðsinnis allra þeirra, er
vilja stuðla að þátttöku íslands í raðstefnunni.
Það er því áskorun okkar til íslenzkra verkamanna
og verkakvenna, aö hafizt veröi þegar handa um frjáls
framlög til styrktar málinu. Er þessari áskorun beint
iafnt til einstaklinga, Vcrkalýösfélaga og vinnuhópa.
Öll framlög óskast send til skrifstoíu Verkamannafá-
iagsins Dagsbrún.
Þar sem tími er oröinn naumur, þarf að hefjast handa
sirax og þyrftu framlög aö hafa borizt í síðasta lagi. 10.
nóvember n. k.
Björn Bjarnason
Eðvarð Sigurðsson
Guðmundur Sigurjónsson
Gunnar Jóhannsson
Helgi Þorkelsson
Sigurður Guðnason
Snorri Jónsson
Tryggvi Helgason
Þuríður Friðriksdóttir