Þjóðviljinn - 02.11.1952, Side 8
nVerndararnir" fœrasf / aukana:
þJÓÐVILJINN
Sunnudagur 2. nóv. 1952 — 17. árgangur — 248. tölublað
Skammt gerist nú milli nauðgunartilrauna banda-
rískra „verndara” ríkisstjórnarinnar.
Aðíaranótt sl. sunnudags reyndi bandarískur her-
maður að nauðga íslenzkri stúlku á Keílavíkur-
ílugvelli og seint á íimmtudagskvöldið réðst annar
bandarískur hermaður á konu á sextugsaldri niðri
í Keflavík og reyndi að nauðga henni.
Konan var að fara heim til
sín um kvöldið og vissi ekki
fyrri til en bandarískur her-
maður réðst á hana ágötunni
og vildi nauðga henni.
Konan hrópaði á hjáip, og að
þvl er lögreglustjórinn í Kefla-
vík, Alfreð Gíslason, tjáði
Þjóðviljanum í gær, var piltur
í liúsi rétt hjá á leið út og
varð þess var hvað var að ger-
ast og lét hann hringja á lög-
regluna og veitti hermannin-
um eftirför, en þegar hermaff-
'urinn hafði orðið var manna-
ferða tók hann á rás. Lög-
reglan fann síðaii hermanninn
þar sem hann hafði falið sig
á bak við hús og tók hann
fastan. Er hann í varðhaldi á
flugvellinum og er mál lians í
rannsókn þar.
Listasafn ríkisms sýnir myndir ís-
ienzkra málara frá 17., 18. og 11 öld
Listasafninu gefin mynd af Jóni Ólafs-
syni bankastjóra eftir Ríkharð Jónsson
Listasafn ríkisins var opnað á ný í gær, en það hefur nú
verið lokað um hríð vegna breytinga. Meginbreytingin á upp-
liengingu er sú að sýndar eru merkar myndir íslenzkra lista-
manna frá 17., 18. og 19. öld, og hafa sumar þeirra aldrei
birzt almenningi áður. I sambandi við opnunina afhentu af-
komendur Jóns heitins Ólafssonar bankastjóra safninu að gjöf
eirmynd af Jóni gerða af Ríkharði Jónssyni.
Valtýr Stefánsson formaður
Menntamálaráðs þakkaði þessa
rausnarlegu gjöf með stuttri
ræðu, þar sem hann lagði m.a.
áherzlu á nauðsyn þess að
þjóðin starfaði með listasafn-
inu; því væru slíkar gjafir svo
dýrmætar og sá hugur sem
þeim fylgdi. Ólafur sonur Jóns
heitins afhenti gjöfina með
ræðu og árnaði safninu allra
heilla.
Eins og áður er sagt sýnir
Erindi uin upprisu
Jesu
Ásmundur Guðmuiidsson,
prófessor, flytur í dag háskóla-
erindi 'um upprisu Krists.
Mun prófessorinn fyrst tala
um elztu rituðu heimildina um
upprisu Jesú, og rekja síðan
aðrar frásagnir. Síðar í fyrir-
lestrinum mun hann rekja aðr-
ar heimildir, minna kunnar, og
að lokum bera fram þá skoð-
un er honum virðist ein geta
.samrýmzt heimildunum og
erfðakenningunni um upprisu
Jesú.
Fyrirlesturinn hefst kl. 2, og
er öllum heimill aðgangur.
safnið nú myndir íslenzkra
listamanna frá þrem síðustu
öldum. 1 forsalnum hafa verið
hengdar upp rauðkrítarteikn-
ingar eftir Sæmund Hólm
(1749—1821) og málver'k og
teikningar eftir Sigurð málara
Guðmundsson (1833—1874).
í fremsta sal safnsins eru svo
tvö olíumálverk af Guðbrandi
Hólabiskupi Þorlákssyni, bæði
frá fyrsta fjórðungi 17. aldar,
en málari er ókunnur. Þar er
og mynd séra Hjalta Þorsteins-
sonar í Vatnsfirði (1665—
1754) af Hallgrími Péturssyni
og teikning séra Helga Sig-
urðssonar á Melum (1815—
1888) af Jónasi Hallgrímssyni,
ásamt þrem olíumálverkum
eftir séra Helga. Þá eru mál-
verk eftir Arngrím Gíslason
málara (1829—1887), eftir
Þorstein Guðmundsson málara
(1817—1864), eftir Sölva
Helgason (1820—1895) og
Benedikt Gröndal (1826—1907)
Flestar þessar myndir hafa
ekki verið almenningi til sýn-
is áður. Margar myndanna eru
í eign Þjóðminjasafnsins og
hefur þjóðminjavörður lánað
þær.
Auk þess hafa verið gerðar
Framhald á 4. síðu.
Atvinnleysiskráningin hefsf á
morgun — Muni§ að fáta skrá
ykkur strax!
Hin lögboðna atvinnuleysisskráning hefst á morgun
og fer að vanda fram í Ráðningarstofu Keykjavíkur-
bæjar.
Skráningin fer fram á mánudag, þriðjudag og mið-
víkudag og stendur yfir frá kl. 10—12 f.h. og 1—4 e.h.
Þið sem eruð atvinnulaus, munið að mæta til skrán-
ingar, það verður notað gegn yltkur ef þið látið ekki
skrá ykkur.
Látið skrá ykkur strax á morgun.
Ná ná og do do!
Vörubílar íyrir gömul
augu Friðleiís — jeppar
til kvennaveiða — tauga
róandi fyrir Bjarna
1 gær var enn einu sinni j
unnið við uppskipun úr
stríðsskipi „verndara“
Bjarna Ben.
1 þetta sinn var skipað
upp vörubílum, — tii að
gleðja hin gömlu augu Frið-
Iíeifs Friðrikssonar. Enn-
íremur jeppum svo „vernd-
ararnir“ geti sem víðast far-
ið og kynnt ísLenzku kven-
i'ólki bandaríska „menn-:
ingu“.
Loks voru nokkrar orustu-
fiugvélar svo Bjarni Ben. og
Eysteinn eigi hægra með að
sofa.
MánuSur eftir
þar til dregið verður í
happdrætti Þjóðviljajns
í dag birtum við í fyrsta skipti
samkeppni deildanna í sölu happ-
drættismiða Þjóðviljans. Einnig
er hafin samkeppni milli einstak!-
inga í sölunni og höfum við fest
upp í skrifstofu flokksins yfirlit
yfir það, þeir sem selja 5 blokkir
minnst komast á þann lista og
eru noklcrir þegar komnir á hann.
Sala miðanna er að komast í all-
góðan gang, en þennan mánuð
verðum við að taka vel á. Vera
má að enn séu ekki allir búnir
að fá blokkir sem þess óska og
aðrir þurfa á viðbót að halda og
eru þeir beðnir að hafa samband
við skrifstofu flokksins Þórsgötu
1 sem allra fyrst.
Styrkið Þjóðviljann. Kaupið
miða í vinsælasta happdrætti árs-
ins. Verð miðanna er aðeins kr.
5.00, en stærsti vinningurinn er
ferð til Parísar og ókeypis dvöl
þar auk fjölda annarra smærri
vinninga.
Röð deildanna er nú þannig:
Þetta er ein myndanna á sýningu Valtýs Péíurssonar
sem opnuð verður í Listvinasalnum klukkan 5 í dag.
rætti a sön
nn
gs
55
1. Bolladeild 21%
2. Barónsdeild 16%
3. Va'.ladeild 14%-
4. Skóladeild 14%.,
5. Kleppshoitsdeild 14%
6. Túnadeild 11%
7. Sunnuhvolsdeild 9%
8. Njarðardeild 7%
9. Laugarnesdeild 6%
10. Hlíðadeild 4%
11. Langholtsdeild 4%
12,—15. Vesturdeild 3%
Skuggahverfisd. 3—
Vogadeild 3—
Þórsdeild 3—
16,—18. Meladeild 2%
Þingholtsdeild 2—
Sogadeild 2—
Ágéöinm remnur til Mœrma-
spítalasjóðsins
Eins og áður hefur verið getið í fréttum, er sænski tenór-
söngvarinn Jussi Björling væntanlegur hingað til lands á mið-
vikudaginn. Hann heldur hér tvær söngskemmtanir, og gengur
ágóðinn af þeirri síðari til Barnaspítalasjóðs Hringsins.
Kona sænska sendifulltrúans
hér, frú Öhrvall, hefur mikinn
áhuga á því, að sem mestur á-
góði fáist af skemmtun þess-
ari, og hefur hún, í því skyni,
gengizt fyrir happdrætti í sam-
bandi við söngskemmtunina.
liggjantfi á götum
1 fyrrakvöld barst lögregl-
unni í Reykjavílt til'kynning
um tvo menn liggjandi á göt-
um í bænum. Var annar þeirra
drukkinn og hafði skrámazt
nokkuð á höfði, en ekki slas-
azt að öðru leyti. Hinn maður-
inn, sem var í Bankastrætinu,
hafði hrasað illiiega, og var
talið fyrst að hann hefði fót-
brotnað. Við nánari athugun
kom þó í Ijós að svo var ekki.
Basar tií ógóða fyrir barna-
spítaEasfóð Hringsins
Sunnudaginn 9. þessa mánaðar verðui; haldinn basar
í húsakynnum Múlarans við Bankastræti, til ágóða fyrir
Barnaspítalasjóð Hringsins. Sjóðurinn er nú 2,1 milljón
krónur, og vonir standa til, að innan tíðar verði farið að
nota sjóðinn í þeim tilgangi, sem honum er ætlaður.
Forystukonur kvenfélagsins
Hringurinn kvöddu fréttamenn
á fund sinn í fyrradag og sýndu
þeim ýmsa þeirra muna, sem
verða til sölu á bazarnum.
Miíkill hluti munanna er unn-
inn af félagskonum, allskonar
barnaföt, saumuð og prjónuð,
og leynir sér ekki að mikil
vinna og hagleikur stendur á
bak við.
Frá Þýzkalandi hefur Hring-
urinn fengið mikið af brúðum,
og hafa félagskonur saumað
á þær föt. Frá íslenzkum kon-
um, búsettum í Grimsby, hefur
Hringurinn fengið mikið af
Pramhaid á 7. síðu.
r^^##########################################################^
Happdrættismiðarnir verða
samtals 2000 að tölu, og verða
þeir seldir á kr. 20,00 hver.
íslenzkar og sænskar konur
munu selja miðana á undan
söngnum og á milli þátta. Ein-
sAklingar og fyrirtæki hafa
gefið helztu vinningana, en þeir
eru: Rafmagnsstrauvél, sem J.
Þorláksson & Norðmann gáfu;
þvottavél, sem Magnús Kjaran
gaf; rafmagnssteikaravél frá
Sambandi ísl. samvinnufélaga;
nótnahandrit, sem dr. Páll ís-
Framhald á 7. síðu.
Bazar
Híífarsjóðsins
Hiífarsjóður heldur bazar í
Gúttó á morgun og hefst hann
kl. 2 e.h. Sjóðurinn er einn lið-
ur í starfsemi S.I.B.S. og hlut-
verk hans er að styrkja fólk
sem er klæðlaust á hælinu eða
þarf t.d. að fara til Akureyrar
til læknisaðgerðar og á ekki
sæmileg klæði. Sjóðurinn hefur
þegar látið mikið gott af sér
leiða, en er hins vegar mjög
févana og hefur mikla þörf á
telíjum þeim sem bazarinn get-
ur fært. Þar verða einnig marg-
ar mjög góðar vörur á lágu
verði, þannig að þeip sem baz-
arinn sækja munu gera þar
prýðilegustu kaup auk þess
sem þeir styrkja nytjamál.
Sésíalistafélag Reykjavíkur
heldur aðalfimd miðvikudaginn 5. þ.ni. kl. 8.S0 í sam- <[
komusal Mjólkurstöðvarinnar nýju.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar sýni skírteini við innganginn.