Þjóðviljinn - 12.11.1952, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.11.1952, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 12. nóvember 1952 RvasteUlnn Lelkbræðux Söitgskemmtun í Gamla Bíó fimmtudaginn 13. þ.m. kl. 7.15 síðd. Við hljóðfæriö: Gunnar Sigurgeirsson. « Aðgöngumiðasala hjá Eymimdsson og Ritfanga- verzlun ísafoldar í Bankastræti eftir hádegl í dag og fimmtudag. Kvartettinn Leikbræður. Fræðslu 02 heldur K.R.O.N. i Oddfellowhúsinu (uppi) föstu- daginn 14. nóvember kl. 8.30 síödegis. Dagskrá: 1. Kvikmynd (bjargsig o.fl.). 2. Fræðsluerincíi: Hallgrímur Sigtryggsson. 3. Karl Guðmundsson, leikari, skemmtir. 4. Dans. Aögangur er ókeypis fyrir féiagsmenn og gesti þeirra. Kaupfékg Reykjavíkur og nágrennis Byggingafélag verkamamia i©l Sll í I. byggingarflokki. Félagsmenn sendi umsóknix í skrifstofu félagsins í Stórholti 16 fyi'ir 15. þessa mánaöar. Stjómhi. SÖLUSKATTUR. Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 3. ársfjórö- ung 1952, svo og viðbót vegna leiðréttinga á sölu- skatti fyrir áriö 1951, hafi skatturimi ekki verið greiddur i síðasta lagi 15. þ.m. AÖ þeim degi liönum veröur stciðvaöur án frek- ari áövörunar atvinnurekstur þeirra, er eigi hafa þá skilað skattinum. Reykjavík, 8. nóv. 1952. TOLLST JÓRASKRIFSTOFAN, Hafnarstræti 5. 4- MARGBORGAR SIG AÐ LÁTA OKKUR HREINSA FIÐRIÐ OG DÚNINN ÚR SÆNGURFÖTUNUM GAMLAR SÆNGUR VERÐA SEM NÝJAR Fiðurhreinsun9 Hverfisgötu 52. — Sími 1727. B'ÆJ ARFUETTIR C?jöí Asgríms Framhald af 1. síðu. tuga ára skeið átt samleið með Árgrími Jónssyni og haft náið samstarf við hann, kemur þessi höfðisiglega gjöf alls ekki á óvart, 'því að hann hefur á- vallt metið list sína og fóstur- jörð að jöfnu. íslenzlc náttúra, saga og þjóðlíf eru efniviður- inn, sem hann hefur ummótað í persónuleg listaverk og hann á enga ósk heitari en þá áð þeir, sem átt hafa landið með honum og skapað sögu þess um aldir, njóti verka lmns á sama hátt og þeirra, sem erjað hafa jörðma og gert hana byggilega framtíðinni. Ást hans á landinu og fólkinu verður ávallt í augum þjóðarinnar hinn einfaldi leyndardómur list- ar hans og hinn hái listræni þroski hans er ávöxtur mikilla þjáninga og miskunnarlausrar sjálfsafneitunar- ....“ Birgir Thorlacius þakkaði og kemst m- a. að orði á þessa leið: „Ásgrímur Jónsson! Eg leyfi mér fyrir hönd menntamálaráðherra, að þakka yður og vandamönnurn yðar þá stórmannlegu gjöf, sem þer hafið í dag gefið ríkinu. Þetta er ekki fyrsta gjöf yðar til íslenzku þjóðarinnar. Alla starfsævi yðar hafið þér verið henni gjöfull sonur á fegurð og list, og einmitt á hinn sama hljóðláta og yfirlætislausa hátt og þér hafið kosið að hafa á afhending þessarar gjafar í dag. Þær gjafir yðar verða ekki einungis þakkaðar af kyn- slóðinni, sem liefur orðið yður sarnferða., heldur munu íslend- ingar minnast nafns yðar og ævistarfs meðan fögrum list- um er unnað. Frammi fyrir mikilli list, hvaða formi, sem hún er bundin, ihrynur t-f möimum álagaliamur hvers- dagsleikans og menn verða eins og þeir eru innst inni: unnendur hins fagra og góða, þótf vafstur daglegs lífs felli á ckkur öll áð meira eða minna leyti önnur gervi. Þess- vegna er miklum listaniönnum búið eilíft líf í vitxuid þjóðar- innar, og enginn efar, að þér eruð í þeim liópi. Eg endurtek þakkir þær, sem ég bar fram áðaa, og árna yður a’lra heilla í áframhald- andi starfi.“ Samþykkt Seyðfssðmga Framhald af 1. siðu. ar að lengd. Til þessara fram- kvæmda á að verja 500 þús. krónum, er það tveggja ára framiag ríkisins til hafnarbóta hér svo og 300 þús. kr. frá bæjarfélaginu sem aflað ver'ður aðal’ega með lántöku. Mikill áhugi er 'hér fyrir að koma upp fiskiðjuveri, sem gæti tekið á móti 180 tn. af fiski í einu, miðað við 2-3 daga vinnslu. Teikningar hafa verið ger'ðar, en verkið ekki liafið enda vantar enn fé til fram- kvæmda. Gert er ráð fyrir að bærinn standi fyrir fiskiðjuver- inu ef til framkvæmda kemur. Miðvilaidagfur 12. nóv. (Cunibcrt- T'.s). 317. dajrur ársins. — Sólar- upprás ki. 8:47. Sóiarlag' kl. 15:30. Tungl í hásuðri k’. 8:19. — Há- flæði kl. 1:00 og 13:32. — Lágfiri kl. 7:12 og 19:44. Ríkisskip Hekla fer frá Reykjavík eftir he’gina austur um land í hring- ferð. Esja er á Austfjörðum á suðurleið. Herðubreið er í Rvík. Skjaidbreið er væntanleg til R- vikur í dag að vestan og norðan. Þyri'l var í Hvalfirði í gærkvöld. Skaftfellingur fór frá Rv'k síð- degís i gær til Vestmannaeyja. Elmskip Brúarfoss er í Hamborg. Detti- foss fer frá Rvík í dag til N. Y. Goðafoss er á leið til N. Y. Gulifoss er á leið til Rvíkur. Lag- arfoss er á útleið til Gdynia. Reykjafoss er í Gautaborg. Sel- foss er á leið til Seyðisfjarðar frá Bergen. TröUafoss er á leið til Rvíkur frá N. Y. Skipadcild S.f.S. Hvassafell iestar timbur i Vaasa. Arnarfell átti a.ð fara frá Piraeus i gærkvöld, til Palamos. Jöku’fell fór frá Rvík 3. þm., áleiðis til N.Y. Gengið Dollari ..................kr. 16.32 Sterlingspund ..........,kr. 45.70 100 danskar krónur .... kr. 236.30 100 norskar krónur .... kr. 228.50 100 3ænskar krónur .... kr. 315.50 100 finnsk mörk ........kr. 7.09 1000 franskir frankar.. kr. 46.63 100 belgískir frankar.... kr. 32.67 100 svissn. frankar .... kr. 373.70 100 tékknesk kos ........ kr. 32.64 100 gyilini ............. lcr. 429.90 1000 lírur .............. kr. 26.12 Þjóðleikhúsið sýnir hinn vin- sæla sjónleik „Rekkjan'1 n. k. föstudagskvöld fyrir Dagsbrún- armenn og Iðjufélaga- Eins og að venju fá meðlimir féiag- anna aðgöfigúmiðana i#eð ’ægra verði en venjulega er á aðgöngumiðum Þjóðleikhúss- ins. Sala aðgöngumiðanna hefst í dag í skrifstofum Dagsbrún- ar og Iðju og er félagsmötmum ráðlagt a5 ná sér í miða strax Þéringar 10:74 „Óskastund" útvarpsins efndi til atkvæðagreiðslu meðal lilust- enda um þéringar. Var skýrt frá úrslitunum á sunnudaginn. Aðeins 84 svör bárust, af j>eim vildu 74 afnema þéringar en að- eins 10 halda í þær. — Ein hver studdi álit sitt með vís- unni alkunnu: Áður dramb og falleg föt,/ fyrst af öllu þér- ist/ og menn sem liafa mör og kjöt/ meir en almennt gerist. KafmaKnstakmörkunln Austurbærinn og Norðurmýrí, milli Snorrabrautar og Aðalstræt- is. Tjarnargötu og Bjarkargötu aö vestan og Hringbraut að sunn- an. Rekkjan verður sýnd á föstudagskvöldiö fyrir Dagsbi'ún og Iðju. Minnizt þes3 arna, verkamenn og iðn- verkafólk. Aðgöngumiðar seldir á skrifstofum fé’aganna. Næturvarzla í Lyfjabúðinni Iðunni. - Sími 7911. Félag vefnaöarvörukaupmanna he'dur almennan félagsíund um viöskiptin við Austur-Þýzkaland i kvö’d kl. 8.30 í félagsheimili V.R. Bazar Verkakvennafélagsins Framsóknar er í da.g, miðvikudag, og hefst kl. 2 e. h. í Góðtempl- arahúsinu uppi. Þar verður á boð- stólum margskonar íatnaður á. börn og fuilorðna. Iljúkrunarkvenna- blaðiö, 3. tbl. þ.á. hefur borizt. Efni er þetta: Fram- kvæmdancfndar- fundur Samvinnu hjúlcrunarkvenna á Norðurlönd- um, eftir Sigríði Eiiíksdóttur, Elí- as Eyvindsson læknir ritar um Eftirlit með svæfðum sjúklingum. Halldóra Bernharðsdóttir skrifar rninningargrein um Guðrúnu H. Sigurðsson. Ýmislegt smávegis er í heftinu, sem einnig er prýtt mörgum myndum. Menntamál. 3. hcfti hefur borizt. He’zta efni þess er þetta: Kenn- aratal á Islandi. Kristinn Ár- mannsson kennari ritar um Al- þjóðaþing kennara í Höfn í sum- ar. Stefán Sigurðsson: Kennarai og esperantóhreyfingin. Helgi Tryggvason: Skólar og skugga- myndir. Arngrímuv Kristjánsson: Heimsókn dönsku kennaranna: Tvœr' afmælisgreinár eru í heft- inu, auk ýrmsra frétta af kennslu- vettvangi. 8:00 Morgunútvarp 9:10 Veðurfr. 12:10 Hádegisútvarp. 15:30 MtSidegisút- varp. 16:30 Veður- fregnir. — 17.30 Islenzkukennsla IX fl. 18:00 Þýzku- kennsla I -fi. 18:25 Veðurfr. 18:30 Barnatími: a) Útvarpssaga barn- anna: „Disa frænka”; III. (Ste- fán Jónsson rithöfundur). b) Tóm- stundaþátturinn. 19:15 Þingfréttir. 19:25 Óperulög (pl.) 19:45 Auglýs- ingar. 20:00 Fréttir. 20:30 Útvarps* sagan. 21:00 Islenzk tónlist: Lög eftir Jón Þórarinsson (pl.) 21:20 Erindi: Einn þáttur heilbrigðis- málanna (Snoi’ri Hallgrímsson prófessor). 21:45 Veðrið í október (Páll Bergþórsson veðurfræðing- ur. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Désirée. 22:40 Dans- og dæg- urlög: Esquire A’l-American hljóni sveitin leikur (pl.) Klukkan 23:00 dagskráriok. ÐagskFá ALÞINGIS I DAG Sameinaö þing. 1. Fyrirspurn um STEF. b, Fyrirspurnir I. Gæðamat iðnaðarvara. II. Veðlán til íbúðabygginga III. Fjái- hagsráð. 2. Strandferðir Herðubrclðar 3. Smáíbúðarhús. 4. Bátaútvegsgja!deyrir. 5. Síldarleit. ’ 6. Jarðhiti. 7. Bann við ferðum her- manna. 8. Iðnaðarframleiðsla. 9. Vegalterfi á Þingvölllum. 10. Leturborð ritvéla. 11. Fiskveiðar á fjarlægum miðum. 12. Iðnaðarbankinn. 13. Hlutatryggingasjóður báta- útvegsins. 14. Bifreiðar ríkieins. 15. Verðlaun tii aJreksmanaa við framieiðslustörf. 16. Greiðslugeta atviimuveg- ahna. 17. Hafrannsóknarskip. 188. Varahlutar til bifreiða. Skrifsfofur vorar og vöruhús verða Iokuð frá hádfegi í dag vegna jarðarfarar. Skipaútgerð ríkisins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.