Þjóðviljinn - 06.02.1953, Page 3

Þjóðviljinn - 06.02.1953, Page 3
Föstudagur 6. fébrúar 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3 /?œða Guðmundar Vlgfússonar v/S 2. umrœSu um fjárhagsáœtlun Rvíkur: veroi Herra forseti. Síðan frum- varp að fjárhagsáætlun Reykja- víkur 1953 var til fyrri umræðu íhér í bæjarstjórn eru nú liðnir tveir mánuðdr. Þessi dráttur hefur orðið vegna nýrra kaup- gjaldssamninga, sem munu hafa nokkur áhrif til hækkunar í sambandi við afgreiðslu frum- ■ varpsins. Þegar á frumvarpið er litið í heild eiga þessar breytingar þó ekki að valda neinni stórfelldri röskun. Og raunverulega þyrftu nýju kaup- gjaldssamningarnir ekki að þýða hækkun á niðurstöðutöl- um áætlunarinnar, væri vilji fyrir hendi í bæjarstjóminni til að taka upp nýja og skynsam- legri afgreiðslu á þessu fjár- hagsáætlunarfrumvarpi en ráð- ið hefur afgreiðslu fjárhagsá- ætlunarinnar á undanfömum árum. Breytingartillögur sósíal- ista miða að því að breytt verði um stefnu. Þær breytingartillögur sem við, bæjarfulltrúar Sósíalista- flokksins, höfum lagt fram við frumvarpið eru miðaðar við það eins og það var lagt fram hér í bæjarstjórn við fyrri um- ræðu. Ég mun því ræða frum- varpið og gera grein fyrir breytingartillögum okkar á þeim grundvelli. Þar sem svo langt er umlið- ið frá fyrri umræðu kemst ég ekki hjá því, að endurtaka nokkrar veigamiklar staðreynd- ir, sem ég benti á í framsögu- ræðu minni 6. des sl. Þetta er þvi nauðsynlegra þegar þess er gætt, að sú óheillaþróun, sem átt hefur sér stað í fjármálum bæjarins allt þetta kjörtímabil og raunar lengur, * er þung og veigamikil röksemd fyrir því að breytt verði um stefnu, en við það eru tillögur okkar sósíal- ista miðaðar í grundvallaratrið- um. Afleiðingar stjórnar- stefnunnar Ég vil fyrst minna á við hverjar aðstæður bæjarstjórn- in ræðir nú og afgreiðir fjár- hagsáætlun bæjarins. Bæjar- búar almennt búa við vaxand: dýrtíð og atvinnuleysið hefur haldið innreið sína í stórum stíl. Þetta eru afleiðingar ríkjandi stefnu í efnahagsmálum lands- ins. Þetta eru afleiðingar geng- islækkunar, bátagjaldeyris- brasks, skattaáþjánar og verzl- unárokurs. Yfirlýsingar og lof- orð núverandi stjórnarflokka um „jafnvægi" og biómlegt at- vinnulíf í kjölfar gengislækkun- arinnar og fylgiráðstafana hennar, hafa reynzt falsanir einar og blekkingar. Fjöldi manna býr við atvinnuleysi marga mánuðd ársins og myndi þó fyrst hafa keyrt um þver- bak íiefði stjórninni ekkj tek- izt að koma um 2000 verkfær- um mönnum á framfæri Banda- ríkjamanna á Kef'avíkurflug-: velli. En þrátt fyrir það er atvinnuleysið geigvænlegt bæði hér í Reykjavík og út um allt land, og mega menn þó sízt við slíku ástandi i því dýrtíð- arflóíd sem ríkisstjórnin og flokkar hénnar hafa leift yfir almenning. Skipulagning lánsíjár- bannsins og húsnæðis- skorturinn « Eh það er ekki aðeins at- _______________ vinnulevsið sem þrengir að al- þýðuheimilunum. Ofan á hörm- ungar þess bætist húsnæðis- skorturinn, einnig skipulagður af stjómarvöldunum. -— Bæði Sjálfstæðisflokkur og Fram- sókn hafa hlýtt bandarískum fyrirmælum um skipulagningu lánsfjárbannsins og haftanna, sem ekki hvað sízt hefur bitn- að á byggingariðnaðinum af fullum þunga og komið í veg fyrir að almenningur ætti kost á að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Til viðbótar hafa svo bindingarákvæði húsaleigulag- anna verið afnumin og almenn- ingur verið sviptur þeirri vöm sem í þeim fólst. Um þessa ráðstöfun voru stjórnarflokk- arnir báðir hjartanlega sam- mála. Afleiðingin hefur orðið sú — af byggingarbanninu og afnámi húsaleigulaganna í senn — að vaxandi fjöldi almenn- ings býr við algjöra neyð í hús- næðismálum. Fjöldi lágtekju- manna sem enn hefur þak yfir höfuðið verður að sætta sig við slíka okurleigu að þess eru fjölmörg dæmi að húsaleigan gleypi y3 til helming tekn- anna. Almenningur býr við versnandi hag Það er því svo augljóst sem verða má að almenningur býr við erfiðan og versnandi hag, að króna.n sem hann hsfur handa í milli er rýr króna og minnKá'ndí." Þáð vérSúf sífelit' erfiðara fyrir allan fjöldann að láta tekjurnar hrökkva fyrir brýnustu þörfum og þeir sem verst eru settir búa við hlut- skipti skortsins. Þannig hefur góðæri nýsköpunaráranna verið snúið í hallæri á skömmum tíma. Þetta er afleiðingin af því að Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu- flokkur og Framsókn tóku að sér að þröngva marsjallstefn- unni upp á þjóðina samkvæmt bandariskum fyriimælum í stað þess að þjóna íslenzkum hags- munum. Hvernig þarí íjárhags- áæthmin að vera við nú- verandi kringumstæður? Það sem liggur næst að taka til athugunar, þegar þessar áð- stæður eru hafðar í huga, er hvernig affarasælast og skyn- samlegast er fyrir bæjarstjóm- ina að haga samningu fjárhags- áætlunar miðað við núverandi kringumstæður. Ég hygg að þetta liggi nokk- uð í augum uppi. Mér virðist að bæjarstjórnin þurfi að hafa eftirfarandi þrjú meginatriði í huga: 1. Að stilla álögum á bæjar- búa svo í hóf sem framast er unnt. 2. Að leitast við að draga úr hinum mikla og sívaxandi skrifstofukostnaði og setja strangar skorður við allri óhófseyðslu i rekstri bæjar- ins og bæjarstofnana. 3. Að verja sem mestu fé, og a.m.k. ekki minna miíað við dýrtíð en bezt hefurj verið á kjörtímabilinu, til gatna- gerðarframkvæmda og bygg- ingárstarfsemi. Meö því að fylgja þessari stefnu í meginatriðum við samn- ingu fjárhagsáætlunar létti bæjarstjórnin almenningi byrð- ar dýrtíðarinnar, svo sem í hennar valdi stæði og gegndi jafnframt þeirri skyldu sinni að tryggja aukna atvinnu við nauðsynlegar og aðkallandi framkvæmdir, sem myndu færa bæjarbúum aukin lifsþægindi og almennari hagsæld. Hæsta íjárhagsáætlun í sögu bæjarins Ber nú það frumvarp að fjár- hagsáætlun sem fyrir liggur það með sér að þessi stefna hafi verið lögð. til grundvailar Guðmundur Vigfússon við samningu þess? Athugum þetta nánar. " Frumvarpið að fjárhagsáætl- un Reykjavíkur 1953 er hæsta fjárhagsáætlunarfrumvarp sem um getur í sögu bæjarins. I fyrsta skipti fara nú niður- stöðutölur tekna- og gjalda- megin yfir hundrað millj. kr. Þetta frv. er því vissulega sögulegt plagg. Lítum svo á staðreyndirnar sem birtast “í tölurn þessarar áætlunar. Þær tala sínu skýra máli um hver stefna frumvarpsins er og hvert stefnir í fjármálum bæjarins undir stjórn Sjálfstæðisflokks- ins. Útgjaldahækkun um 9.3 millj. — 69% hækkun á fjórum árum. Heildarupphæð tekna og út- gjalda á að .hækka um 9 millj. 330 þús. frá 1952, þrátt fyrir þá gífurlegu hækkun sem þá var ákveðin og hefur orðið bæj- arbúum áþreifanleg staðreynd við álagningu og innheimtu út- svaranna á liðnu ári. Og þó skyldi því ekki gleymt að þessi áætlun er samin meðan gengið var út frá vísitölu 155 eða sömu vísitölu og gengið var frá 1952 við samningu fjárhags- áætlunar, en nú er augljóst að reikna verður með 158 eða hærra, a. m. k. á verulegan hluta útgjaldanna. Þessa upphæð á samkv. frv. að taka áð langmestu leyti með hækkuðum útsvömm og með því að innheimta fasteigna- skatt og lóðagjöld með 200% álagi. En auk þess eiga ýmsir skattar og arður af eignum og fyrirtækjum bæjarsjóðs að hækka um það sem á vantar. Hér er sem sagt haldið hik- Iaust áfram á sömu skattkúg- unarbrautinni, sem bæjarstjóni- . armeirihlutinn hefur fetað allt kjörtímabilið þótt hann tæki stærstu skrefin við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar ’52 þeg- ar álögurnar á bæjarbúum voru á einni nóttu þyngdar um 32 millj. kr. Til þess að draga upp sem skýrasta mynd af þróun þess- ara mála er rétt að benda á að áætlúð heildarupphæð tekna og útgjaíida 1949 var 61.5 millj. kr. en er nú í lok kjör- tímabilsins áætl. 103,4 millj. Hér er því um að ræða 69% hækkun á f jórurn árum, og á þó þessi fjárhagsáætlun áreiðan- lega eftir að hækka áður - en hún verður endanlega afgreidd. Áfram á eyðslubráutinni Sé litið á gjaldaliði fjár- hagsáætlunarinnar sérstaklega kemur glöggt ‘ í ljós hverjar á- stæður liggja til þess að enn á að hækka álögurnar á skatt- begnum bæjarins. Bæjarstjórn,- armpírihlutinn er enn ráðinn í að halda áfram þeirri gegndar- lausu eyðslu og skriffinnsku sem einkennir stjórn hans á bænum og er nú að sliga gjald- getu almennings, eins og gleggst kom í ljós á því yfir- liti sem borgarstjóri gaf við fyrri umræðu um útvarsinn- heimtuna. Kostnaður við stjórn kaupstaðarins á að hækka um 720 þús. og er áætlaður rúml. 8 millj. Kostnaður við löggæzlu á að hækka um 458 þús., kostn- aður við brunamál á að hækka um 330 þús., kostaaður við fræðslumál hækkar um' 1 millj. 244 þús., listir, íþróttir og út- veru hækkar um 157 þús., heil- brigðismál 960 þús., félagsmál 3 millj. 575 þús., gatnagerð og umferð 1 millj. 455 þús., fast- eignir 110 þús., vextir og kostn- aður yið'ián 325 ''þús:'og óviss útgjöM 270 þús. - Samtals nema* hækkanirnar á útgjaldaliðum rúml. 9.2 millj. kr. og eru þó ekki öll kurl .komin til grafar. Óverjandi að auka þunga stjórnarbáknsins Margar af þessum hækkunum á útgjöldum eru eins og nú er komið óhjákvæmilegar. Þær eru afleiðingar þeirra auknu verð- - hækkana og þess mikla dýr- tíðarflóðs sem ríkisstjóm Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins hefur leitt yfir þjóð- ina með stefnu sinni. En vissu- lega getur bæjarstjórnarmeiri- hlutinn ekki skotið sér undan ábyrgð og áfellisdómi á dýr- tíðarstefnu ríkisstjórnarnnar, sem mótuð hefur verið og fram- kvæmd af stjórnarflokkunum báðum á Alþingi og í ríkis- stjórn. En önnur atriði áætlaðra út- ■ gjaldahækkana eru algjörlega á valdi bæjarstjórnarinnar sjálfrar, og tvímælalaust á á- byrgð bæjarstjórnarmeirihlut- ans verði þær samþykktar. Á ég þar fyrst og fremst við auk- inn kostnað við stjórn bæjarins og skrifstofukostnað almennt hjá bæ og bæjarstofnunum. Það er með öllu óverjandi eins og nú er komið að hækka eivi stór- lega skrifstofubáknið og auka þunga stjórnarbáknsins frá því sem verið hefur. Hé«r þarf þvert á móti ekki aðeins að stinga fast við fótum heldur og að framkvæni'a stórfelldan spaniað með niðurskurði á skriffinnsku- bákniou og endurskipulagningu • á hinum ýmsu greinum þess og innheimtu bæjargjaldanna. Mun ég nánar víkja að þessu í sam- bandi við breytingartillögur sós- íalista við fjárhagsáætlynina. Framlög til gatnagerðar raunverulega lækkuð Eris og ég gat um áðan er áætiað samkv. frv. að hækka framlag til gatnagerðarfram- kvæmda um 1.4 millj. frá fyrra ári. í fljóti bragði gæti virzt hér um höfðingsskap að ræða af hálfu íhaldsins. En í þessu sambandi ber að minnast þess að í fyrra voru framlögin til gatnagerðar skorin niður um 19% þ. e. thaldið lét vinna 81 dagsverk á móti hverjum 100 dagsverkum árið áður. Vantar þvi á þennan aðallið verklegra framkvæmda a. m. k. 1 millj. kr. til iþess að halda í horfinu frá því í fyrra og er þó sleppt að taka tillit til þess að árið áður framkvæmdi Ihaldið 17% lækkun á framlagi til gatna- gerðarinnar. Þetta er því óaf- sakanlegra þegar þess er gætt að lemgmestur hluti af því fé sem varið er til gatnagerðúr- framkvæmda eru kaupgreiðslur til verkamanna, og öllum ætti að vera ljóst að nú er brýn þörf á að auka slíkar framkvæmdir til þess að mæta vaxandi at- vinnuleysi verkamanna. Vísasti vegurinn til öngþveitis Sú stefna bæjarstjórnarmeiri- hlutans sem birtist á þemian hátt í sívaxandi kostnaði við skrifstofuhald bæjarins annars- vegar en raunverulegum niður- skurði verklegra framkvæmda hinsvegar, er byggð á fullkom- inni glæframennsku og er í beinni og opinni andstöðu við hagsmuni og velferð bæjarbúa. Hún er vísasti vegurinn til f jár- hágslegs öngþveitis og vaxandi spillingar og hún leiðir vaxandi fátækt og atvinnuleysi yfir hið vinnandi fólk. Það eru vissu- lega önnur og gagnólík viðbrögð sem nú eru nauðsynleg til að létta byrðarnar á almenningi en auka jafnframt þátttöku bæjarins í að bægja atvinnu- leysinu frá dyrum almennings. Þungur áfellisdómur Það er alvarleg og hættuleg skammsýni eða annað verra, sem kemur fram í því að ætla ekki að auka fjárveitingu til framkvæmda gatnagerðarinnar meira en raun ber vitni, en þó tekur fyrst í hnúkana þegar þar við bætist að í fjárhagsáætlun- inni er ekkert fé ætlað til íbúða- húsabygginga sérstaklega. Til allra byggingaframkvæmda á vegum bæjarins eru áætlaðar 11 millj. kr. eða svipuð upp- hæð og varið var í því skyni 1952, en það ár voru engar íbúðahúsabygg’ngar á vegum bæjarins svo sem kunnugt er. Allar tillögur Sósialistaflokks- ing um það voru felldar af meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn. Eins og ástandið er nú í hús- næðismálunum, þar sem þúsund- ir bæjarbúa búa við óhæft og heilsuspillandi húsnæði, hundr- uðum fjölskyldna hefur verið sundrað vegna skorts á íbúðum og vaxandi fjöldi verður að sæta hlutskipti okurleigunnar Framhald á 11. síðu j>. j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.