Þjóðviljinn - 06.02.1953, Qupperneq 12
fyrir 20
Dulies sefur Á-banda!agsríkjunum úrslifakosfi
Fullyrt er bæði austan hafs og vestan að John Foster
Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, flytji ríkis-
stjórnunum í Vestur-Evrópu, sem hann er að heimsækja,
úrslitakosti frá hinni nýju Bandaríkjastjórn.
Frá því var skýrt í bandarísk-.
um blöðum í gærmorgun, að Dull-
es, sem hefur heimsótt stjórnir
ítalíu, Frakklands og Bretlands
ásamt Harold Stassen, stjórnanda
bandarískrar hervæðingaraðstoð-
ar við önnur lönd, hafi skýrt
stjórnendum Evrópuríkjanna frá
því, að.ef ekki hafi verið gengið
frá stofnun sameiginlegs hers
meginlandsríkjanna í A-banda-
laginu og Vestur-Þýzkalands fyr-
ir 20. apríl muni dollaraaðstoð
við A-bandalagsríkin verða skor-
in miskunnarlaust niður.
Dulles og Stassen komu til
Bonn, höfuðborgar Vestur-Þýzka-
lands, í gær. Fréttaritarar þar
skýrðu frá því að þeir hefðu til-
kynnt Adenauer forsætisráð-
herra, Heuss forseta og Ollen-
hauer, foringja stjórnarandstöðu
sósíaldemókrata, að engar líkur
væru til að dollaraaðstoð við
Vestur-Evrópuríkin yrði haldið
áfram í svipuðum mæli og hing-
að til nema stofnun Vestur-Ev-*
rópuhersins hefði verulega miðað
áleiðis fyrir apríllok.
Ekkert af sex aðildarríkjum
samninganna um stofnun Vestur-
Evrópuhers hefur enn fullgilt þá
og bæði í Frakklandi og Vestur-
Lííshættuleg leiklist
Lögreglan í Osaka í Japan skýr-
ir frá því að kona nokkur þar í
borg hafi dáið af óstöðvandi
hlátri. Konan var að koma frá
því að horfa á gamanleik í leik-
húsi nokkru.
John Foster Dulles,
Þýzkalandi hafa ríkisstjórnirnar
lýst yfir að samningana verði að
endurskoða.
siíórn-
arliðið!
I fyrradag Stefán Jóhann og
Emil Jónsson, í gær Gylfi Þ.
Gíslason og Haraldur Guðmunds-
son — þannig raða stjórnarflokk-
-arnir foringjum Alþýðuflokksins
á bitlingajötu sína síðustu daga
þingsins.
Þjónusta Alþýðuflokksins við
Framkvæmdabankann var í gær
verðlaunuð er þríflokkarnir báru
fram sameiginlegan lista við
kosningu í bankaráðið með nöfn-
unum Jóhann Hafstein, Eysteinn
Jónsson og Gylfi Þ. Gíslason.
Voru þeir kosnir með 38 atkvæð-
um þríflokkanna. '
Listi sósíalista með nafninu
Lúðvík Jósepsson fékk 9 atkvæði.
Einn seðill var auður.
Varamenn voru kosnir Ingólf-
ur Jónson, Skúli Guðmundsson,
Haraldur Guðmundsson.
f '
Mesla atvinnuleysi sem skráð
hefur verið á Akureyri
Akureyri, frá fréttaritara. Þjóðviljans.
Almennri atvinnuleysisskráningu lauk hér í gær, og mættu
til skráningar 126 verkamenn og 20 bílstjórar, en skráningu
þeirra var ekki lokið. Er þetta mesta atvinnuleysi sem skráð
hefur verið á Akureyri.
Til samanburðar má geta
þess að 1951 voru 84 skráðir
atvinnulausir um þetta leyti, og
um 90 í fyrra.
98 með 76 börn á framfæri mættu til
atvinnuleysisskráningar
Við atvinnuleysisskráninguna mættu 93 karímenn með samtals
76 börn á framfæri og 5 konur, allíar einhleypar og barnláusar.
Á sáma tímá í fyrra 669 karlmenn og 49 kóriur.
Hvé mildð 'ór raunverulega áð rriarka skrárilrigima sést á þvi
að aðeins einn prentmyndasmiður mætti til skráningarinnar, en
í miðjum fyrra mánuði var þriðjungur stéttarinnar, eða 6 af 17
mönnum í Félagi prentmyndasmiða, atvinnulaus.
Alls voru 93 karlar skráðir at-
vinnulausir og skiptust þeir þann-
ig eftir starfsgreinum:
Verkamenn voru skráðir alls
78. Þar af eru 47 einhleypir með
samtals 7 börn á framfæri sínu.
Kvongaður er 31 og af þeim eru
12 barnlausir, 7 með eitt barn á
framfæri sínu, 3 með 2 börn, 4
með 3 börn, 2 með 4 börn, einn
með 5 börn og 2 með 6 börn á
framfæri.
Kvikmyndasýningar MÍR
Alþýðulist í
ScvétríkjunuM
S. 1. föstudag var sýnd í húsa-
kynnum MÍR í Þingholtsstræti
27 kvikmyndin Hið frjálsa Kína
og hlaut hún einróma lof þeirra
er sáu og komust færri að en
vildu.
Næsta kvikmynd verður sýnd
í kvöld. Sýnd verður fréttamynd
frá. efnahagsráðstefnunni í
Moskvu s. 1. vor og mynd um
alþýðulist í Sovétríkjunum. Sýn-
ingin hefst kl. 9-stundvíslega, en
vissara er að koma stundvíslega,
til þess að þurfa ekki frá að
hverfa.
3 bifreiðastjórnar komu til
skráningar, allir kvongaðir og er
éinn þeirra barnlaus, en einn
með 2 börn og einn með 3 á
framfæri.
3 málarar voru skráðir, 2 þeirra
éinhleypir með 2 börn en einn
kvongaður með 2 börn.
2 sjómenn, báðir kvongaðir og
annar barnlaus, en hinn með 2
börn á framfæri.
1 verzlunarmaður var skráður,
kvongaður og barnlaus.
1 barnakennari, kvongaður
með 3 börn á framfæri.
1 rafvirki, kvæntur með 2
börn.
1 prentari, kvongaður með eitt
barn.
1 prentmyndasmiður, kvongað-
ur með 2 börn á framfæri.
1 loftskeytamaður, einhleypur,
barnlaus.
1 bakari, kvongaður, barnlaus.
Af karlmönnum er mættu til
skráningar eru 20 á aldrinum
16—20 ára, 19 á aldrinum 21—30
ára, 31 á aldrinum 31—50 ára,
18 á aldrinum 51—66 og 5 67 ára
og eldri.
Þá komu til skráningar 5 kon-
ur, allar einhleypar og barnlaus-
ar. Af þeim voru 4 verksmiðju-
stúlkur á aldrinum 19—23'og ein
saumakona 60 ára að aldri.
Til viðbót^r má geta þess að
nokkuð hefur verið um það að
ménn hafi leitað burt úr bæn-
uni til að fá atvinnu. I atvinnu-
bótavinnu hjá bænum eru að-
eins 35 menn.
Verða að sýna það
í verkinu
Ekkert samkomulag hefur
enn náðst í deilunni við Hamil-
tonbyggingafélagið á Keflavík-
urflugvelli, að því* er fram-
kvæmdastjóri A.S.Í. tjáði Þjóð-
viljanum í gærkvöldi.
Að vísu mun félagið hafa haft
góð orð um að standa við samn-
inginn en trygging f>nir því að
það verði nema orðin tóm, eins
osr áðnr. hefur enn ekki fensrizt
Föstudagur 6. febrúar 1953 — 18. árgangur — 30. tölubiað
Hinn 13. janúar flutti brezki náttúrufræðingurinn Peter Scott,
fyrirlestur í Hoyal Festival Hall í London um rannsóknarleiðang-
ur þann, er hann og félagar hans fóru, ásamt dr. Finni Guðmunds
syni á liðnu sumri til Islands, til þess að rannsaka lifnaðarháttu
heiðargæsarinnar.
Hinn mikli samkomusalur, sem
tekur yfir 3000 manns í sæti, var
þéttsetinn, og stóðu auk þess
margir áheyrenda. Fyrirlesturinn
var haldinn á vegum fuglavernd-
arfélagsins „Sevem Wildfowl
Trust“, og ávarpaði forseti félags-
ins, hinn kunni hershöfðingi
Alanbrooke lávarður, samkom-
una, skýrði starfsemi íélagsskap-
arins, sem stofnaður var árið
1946, og minntist að lókum ís-
lands mjög vinsamlega. Voru síð-
an leiknir þjóðsöngvar íslands og
Bretlands.
Fyrirlestur Peters Scotts var
mjög fróðlegur og skemmtilegur,
kryddaður gamanSemi á köflum,
og skýrði fyrirlesarinn mál sitt á
stundum með myndum, sem hann
dró upp í skyndi. Að lokum var
sýnd litkvikmynd frá leiðangrin-
um.
Sendiherra íslands í London,
Agnar Kl. Jonsson, var viðstadd-
ur athöfn þessa samkvæmt sér-
stöku boði félagsins, sem vernd-
ari fundarins.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Jón Axel líærri dottinn útur bæjarráði
Bæjarstjórnarfundur hófst ikl. 2 e.h. í gær. Var að vanda
byrjað á kosningum, en síðan hófust framsöguræður um tillög-
ur flokkanna í sambandi við fjárhagsáætlunina.
® B *•
Forseti bæjarstjórnar var
kosinn Hallgrímur Benedikts-
son, 1. varafors. Auður Auðuns,
2. varafors. Sigurður Sigurðs-
son. Skrifarar voru kosnir Ingi
R. Helgason og Pétur Sigurðs-
son, til vara Guðmundur H.
Guðmundsson og Nanna Ólafs-
dóttir.
Við sjálft lá að Jón Axel
dytti út úr bæjarráðinu. Þórff-
ur Björnsson stakk upp á sjálf-
um sér — og varð Ihaldinu
mjög mikið um. Gekk Gunnar
Thoroddsen á röðina og hvísl-
aði að liði sínu. Var hann auð-
sjáaniega að ráðfæra sig um
hvort íhaldið ætti opinskátt og
grímulaust að kjósa Jón Axel.
Kosningin fór þannig að af
lista Sósíalistafl. var Guðmund-
ur Vigfússon kosinn með 4
atkv. og af lista Ihaldsins Gunn-
ar Thoroddsen, Jóhann Haf-
stein og Auður Auðuns. Voru þá
Ingi R. Helgason 2. á listasósíal-
ista, Jón Axel 1. á AIBl-listanum
og Guðm. H. Guðm. 4. á íhalds>-
listanum allir með jöfn atkvæði
og var varpað hlutkesti um þá.
Jón bjargaðist á hlutkestinu!
Umræður um fjánhagsáætl-
ímina stóðu framvfir miðnæt.ti
og hefur afgreiðslu vafalaust
ekki verið lokið fyrr en undir
morgun, að venju.
iigar Orlofs
Eins og áður hefur verið frá
skýrt í fréttum, hefur Ferðaskrif-
stofan Orlof í hyggju að kynna
mönnum framandi lönd m. a. með
fyrirlestrum og kvikmyndum,
auk þess sem skrifstofan greiðir
fyrir og hagræðir ferðum manna
til annarra landa. N. k. sunrrudag
kl. 13.15 verður kvikmyndasýning
fyrir almenning í Gamla bíói, ein
af mörgum, sem Orlof mun halda
tjl þess að kynna framandi lönd.
Á undan sýningunni á sunnudag-
inn mun sendiherra Frakka,
Henri Voillery, flytja stutt á-
varp, en próf. Guðbrandur Jóns-
son erindi um Frakkland og
skýra myndirnar. Kvikmyndir
þær, sem sýndar verða eru þrjár.
Fyrst er sýnd kvikmynd frá
París, sem sýnir stuttlega það,
sem heimsborgin hefur að bjóða
Framhald á 11. síðu
FISKVERÐSÁKVÖRÐUN STJÓRNARINN-
AR HNEFAHÖGG FRAMAN í SJÓMENN.
ÞorskverðiS óbreyff en við það rniðasi tekjur sjémanna að langmestu leyti
Fiskverðið var loks ákveðið í gær, og á þann hátt
að ákvörðunin er hnefahögg framan í sjómenn.
Þorskverðið er látið haldast óbreytt frá síðustu
verðákvörðun, en við þorskaflann eru tekjur sjó-
manna bundnar að Iangmestu leyti. Þaér smávegis
hækkanir sem gerðar eru á verði ýsu, keilu, stein-
bíts og hrogna breyta þar sáralitlu um.
Veðurblíða og
ágætur afli
Hellissandi. — Frá fréttarit-
ara Þjóðviljans.
Það er að sjálfsögðu ríkis-
stjórnin sem hefur ráðið þess-
ari ósvífnu fiskverðsákvörðun,
er þýðir að hlutasjómömium er
ætlað að búa við sömu kjör
1953 og 1952, enda þótt aðrar
stéttir hafi fengið fram kjara-
bætur, og sjálf ríkisstjómm
ekki treyst sér að standa gegn
kröfum embættismanna um
kjarabætur. En hún treystir
sér til þess að níðast á sjó-
mönnum.
Sjómenn þurfa að þakka
stjórnarflokkunum, Sjálfstæðis-
flokknum og Framsóknar-
flokknum þessa aðréttingu, á
þanta eina hátt sem þeir skilja:
með því aðv senda þá aldrei
framar í valdastóla til að
vinna slík skemmdarverk.
Verðið er auglýst hér í blað-
inu í dag.
Einmuna veðurblíða hefur ver-
ið hér undanfarna viku og ágætis
afli. Dekkbátarnir hafa fengið frá
5—8 tonn og trillubátarnir rúml.
2 tonn þeir sem bezt hafa aflað.
2 dekkbátar og 4—5 trillur ganga
héðan.
Ólafsvíkurbátarnir, sem eru
stærri, munu afla nokkru betur.
Örstutt er á miðin.
Fróðárheiði sem tepptist fyrir
nokkru er nú orðin fær aftur.