Þjóðviljinn - 22.02.1953, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.02.1953, Blaðsíða 10
20) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. febrúar 1953 GóSur árangur af nýju deifi- lyfi viS fœSingar Öld er liðin síðan farið var að nota eter og klóróform við fæðingar, en aðeins fimmtíu ár eru síðan fyrstu kerfisbundnu tilraunirnar voru gerðar til að draga úr þjáningum á undan sjálfri fæðingunni (með scopol- aminí. Enn í dag eru þessi deyfilyf mjög umrædd og um- deild atriði í fæðingarhjálpinni, stendur í dönsku læknatímariti. Klóróform enn mest notað Klóróform er enn'þá útbreidd- asta deyfilyfið, og sé það not- að með varúð er það tiltölulega hættulaust. En farið er að bera á vaxandi öryggisleysi í sam- bandi við notkun klóróforms og sængurkonur þurfa lyf sem draga betur úr þjáningum en klóróform getur gert. Undanfarna áratugi hefur verið reynt að finna kvalastill- andi lyf, sem draga ekki úr fæðingarhríðum og eru hættu- iausari fyrir móður og fóstur. í sama tímaritshefti er skýrt frá þeirri reynslu sem fengizt hefur á A-fæðingardeild ríkis- spítalans af notkun nýs kvala- stillandi lyfs, trilene. I tril- ene er einkum trikloræthylen, sem er notað í iðnaði a og á heimilum sem hreinsunarmeða]. hláturgass. Það hefur engin skaðleg áhrif á móður og barn. Miklu ódýrara en hiáturgas Og auk þess er þetta nýja lyf ódýrt, gagnstætt öðrum nýjung- um. Magnið sem notað er við fæðingu kostar á að gizka 28 aura. (danska). Til samanburð- ar má geta þess að samsvarandi magn af hláturgasi kostar 6-7 krónur (danskar). Þrátt fyrir þennan góða ár- angur segir í tímaritinu, að enn hafi ekki fengizt nægileg reynsla af trilene til þess að óhætt sé að afhenda það ljós- mæðrum til frjálsra afnota en það er skilyrði til þess að konur geti almennt fengið að njóta góðs af því. Sumum verður óglatt Trilene hefur verið reynt á 326 sjúklingum, sem lagzt hafa inn á fæðingardeildina frá 1. október 1950 til 1. maí 1951. Sjúklingunum hefur verið skipt í tvo flokka. í öðrum flokkn- um eru 183 sjúklingar, sem ■hafa ríngöngtr ft'hgtð trilene meðan á fæðingu stóð, en í hinum flokknum eru 133 sjúk- lingar, sem hafa fengið önn- ur kvalastillandi lyf ásamt tril- ene. Loks voru tíu sjúklingar, sem fengu trilene í byrjun, en 'hætt var við það vegna þess að þeim varð óglatt og féll ekki lyktin. Éangflestar ánægðar Etir fæðinguna voru sjúk- lingurinn og sá sem lyfið gaf, spurðir um álit þeirra á áhrif- um lyfsins. 90% mæðranna voru ánægðar með árangurinn. Mæður og læknar voru sam- mála, svo að lítil ástæða er til að telja það bjartsýni að lyf þetta eigi framtíð fyrir höndum. Læknarnir hafa fylgzt nákvæmlega með áhrifum lyfs- ins meðan á fæöingu stóð og niðurstaðan er sú að trilene sé afbragðs deyfilyf, sem geti í flegtum tilfellum komið í stað 7 l \ MATURINN Á /< MORGUN Fisksúpa 1 Tómatsúpa og steikt smálúða. I Tízkukóngur i París hefur komið með hvít skíðaföt á markaðinn. Það virðist fremur óhentugur bfiningur, þvi að hann verður óhreinn um leið og skíðin eru lö.^ð um öxl. Norðmaður nokkur hefur því við að bæta, að hvit skíðaföt séu ekki einungis óhentug, held ur séu þau lífshættuleg. í Nor egi hafa nokkrir birzt í hvítum skíðafötum. Og ef þetta fólk meiðir sig er afarörðugt að koma því til hjálpar, því að ó- mögulegt er að finna það í snjónum. Stundum hefur verið ,gripjð.,til þess ráðs að afhenda þessu fólki klúta eða trefla í skærum litum til þess að hægt sé að hafa upp á því, ef það lendir í ógöngum. Hvít skíðaföt eru óhentug af ýmsum öðrum ástæðum. Þau verða fljótt óhrein, og þótt þau séu eins hrein og hugsazt get- ur virðast þau óbraggleg. Eng- in hvít föt geta keppt við snjó- inn. Nevil Shi-tte: Rafrnagnstakmörkun Sunnudagiir 22. febrúar. Kl. 10.45-12.30: Austurbærinn og miðbærinn milli Snorrabr. og Aðalstrætis, Tjarnar- götu, Bjat-kargötu að vestan og Hringbrauþar að sunnan. • Mánudagur 23. febrúar. Kl. 10.45-12.30: Vesturbærinn frá Aðalstr., Tjarn- argötu og Bjarkargötu. Melarnir, Grímsstaðaholtið með flugvailar- svæðinu, Vesturhöfnin með Örfir- isey, Kaplaskjól og Seltjarnarnes fram eftir. Og, ef þörf krefur Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna vestur að markalínu frá Flugskáiavegi við Viðeyjar- sund, vestur að Hlíðarfæti og það- an til sjávar við Nauthóisvík í Fossvogi. Ijaugarnes, meðfram Kleppsvegi, Mosfellssveit og Kjal- arnes, Árnes-og Rangárvallasýslur. Kl. 18.15-19.15: Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár- holtið, Túnin, Teigarnir, íbúðar- hverfi við Laugarnesv. að Klepps- vegi og svæðið þar norðaustur af. Kl. 18.15-19.15: -Gamli maðurinn flýtti sér að líta í kring- um sig. Enginn virtist hafa heyrt þetta. ,,Ekki núna“, sagði hann á frc-nsku. ,,Yið verðum að fara með litla drenginn og láta binda um sár hans“. Hann gekk í áttina frá mannfjöldanum. „Reynið að tala ekki ensku hérna“, sagði hann við Ronna. „Af hverju?" • Sheila sagði: ,,Má óg tala ensku, Hotvard ?“ „Nei“, sagði hann. „Þjóðverjarnir vilja ekki að fólk tali ensku“. Telpan sagði á ensku: „Yrðu Þjóðverjarn- ir reiðir ef Rósa talaði ensku?‘ Kana sem framhjá gekk horfði á þau undr- unaraugum. Gamli maðurinn bældi niður gremju sína; þetta voru börn. Hann sagði á frönsku: „Ef þið talið ensku, þá sting ég froski upp í ykkur“. Rósa sagði: „Ó — heyrðuð þið hvað monsieur sagði. I'rosk! Það væri hræðilegt“. Hlæjandi hóldu þau áfram að tala saman á frönsku. Sjúkrahúsið var liinum megin við kirkjuna. Þýzku hermeanirnir sem þau mættu á leiðinni brostu til þeirra sljóu, lífvana brosi. FyTst í stað námu börnin staðar og störðu á mennina og það varð að reka þau áfram. Síðan vöndust þau þessu. Einn mannanna sagði: „Góðan dag, börnin góð“. Howard tautaði: ,,Góðan dag, motisieur“, og hélt áfram. Hann var að komast að sjúkratjald- inu; hringurinn var að þrengjast um hann. Sjúkrahúsið var stórt tjald sem reist var upp við stóran flutningsbíl. í djTunum stóð heilbrigðisfulltrúinn iðjulaus og var að stanga úp tönriuaum'."* “ 1 - Howard sagði við Rósu: „Vertu hér kyrr og hafðu börnin hjá þér“. Hann fór með litla dreng- inn að tjaldinu. Hann sagði við n&annftin á frönsku: „Þessi drengur er særður. Væri hægt að fá plástur eða umbúðir?“ Maðurinn brosti gleðilausu brosi. „Einmitt það“, sagði hann. „Gerið þið svo vel“. Gamli maðurinn gekk með barnið inn í tjaldið. Maður var að gera að sárum þýzks hermanns; auk þeirra var aðeins hvitklæddur læknir þarna inni. Fulltrúinn leiddi barnið til hans og sýndi honum sárið. Læknirinn kinkaði kolli. Svo bar hann Ijós að höfði barnsins og virti það fyrir sér án þess að breyta um svip. Svo fletti hanri drenginn klæðum. og skoðaði á honum brjóstið. Svo þvoði hann sér hirðuleysislega um hendurnar. Hanu gekk til Howards. „Þér skuluð koma aftur“, sagði hann á lélegri frönsku. „Eftir klukkutima“, hann rétti upp einn fingur. „Einci klukkutima“. Til frekari skýringar dró hann upp úrið sitt og benti á vísana. „Klukkan sex.“ „Gott og vel“, sagði gamli maðurinn. „Klukk- an sex“. Hann fór út úr tjaldinu uggandi um sxm hug. Ekki var það klukkustundarverk að binda um dálítið sár. En hann gat ekkert aðhafzt. Hann þorði ekki að tala nema það allra nauðsynlegasta við Þjóðverjami; fyrr eða síðar hlaut enski hreim- urinn að koma upp urn hann. Hann gekk aftur til barnaana og rölti af stað með þau. Fyrr um daginn —- það virtist svo óralangt síðan! — hafði Sheila orðið fyrir því slysi að týna buxunum. Hvorki hún né hin börnin höfðu haft ncinar áhyggjur af því, en Howard hafði ekki gleymt því. Nú var tækifærið komið til að bæta úr því. Fyrir þrábeiðni Ronna fóru þau að skoða þýzku skriðdrekana á torginu og því næst teymdi hann þau með sér inn í vefnaðar- vörubúð, skahimt frá sjúkratjaldinu. Hann opnaði dyrnar og við búðarborðið stóð þýzkur hermaður. Það var of seint að sniia við, enda hefði það vakið tortryggni; hann stóð á- lemgdar og beið meðan Þjóðverjinn verzlaði. Og nú sá hann að þetta var starfsmaðurinn í sjúkratjaldinu. Á iborðinu fyrir framan hann var dálítil fata- hrúga, gul peysa, barnastuttbuxur, sokkar og vesti. „Fimmtíu og fjórar og niutíu“, sagði konan við búðarborðið. Hún talaði svo liratt að Þjóðvcrjinn skildi haria ekki. Hún endurtók þetta nokkrum sinn- um; svo rétti hann að henni blað og hún skrifaði uppliæðina á blaðið. Hann virti blaðið fyrir sér. Svo skrifaði hann nafn sitt undir. Hann fékk henni blaðið. ,.Yður verður borgað seinna", sagði hann á einhverri golfrönsku. Hann tók fötin. Hún maldaði í móinn. „Þér megið ekki taka fötin nrma ég fái peningana. Maðurinn minn — yrði mjög reiður. Svei mér þá, monsieur -— það er ómögulegt“. Þjóðverjinn sagði þrjóskulega: „Þér fáið pen- inga seinna. Þetta er örugg trygging“. . Hversvegna giftistu henni þá ekki? Hún hefur dá'jtinn galla í málfæri. Ó, hvað er það? Hún getur ekki sagt já. • Jónsi: Nei niamma, þessi maður þama hefur ekki eitt einasta hár á höfðinu. Mamma: Uss, ekki hátt — liann gæti lieyrt þaö. Jónsi: Veit liann það Icaimski ekki? • í fyrsta skipti sem þú andmælir mér hefni ég mín með því að kyssa þig. O nei, það gerirðu ekki. • Ógiftur maður hefur engan til að ráðfæra sig við í vanda. Hversvegna skyldi ógiftur maður komast í vanda? spurði sá gifti. Þ-ess vegna kjosnm viS Framhald af 4. síðu. ar hafnað með öllu ítrekuðum tilmælum ýmiss'a félagsmanna um að mynda stjórnarlista í tákni raunverulegs samstarfs og stéttareiningar .innan félagsins. — Þetta eru m. a. orsakir þess að Þorsteinn Sveinsson og aðrir sameiningarmenn eru ekki ri lista Óskars Hallgrímssonar, A- listanum. Nú er það meginherbragð Óskars Hallgrímssonar til að afla lista sínum fylgis, að reyna að hræða róttæka félagsmenn á þvi ,að með stuðningi við lista sam- einingarmanna, C-listann, eigi þeir á haettu að atvinnurekenda- listinn komist ,að, en hins vegar hræðir hann hægrisinnaða menn með því að ef þeir styðji ekki A-listann, þá eigi þeir á „hættu“ iað „kommúnistar“, þ. e. sam- e'iningarmenn, komist til valda í félaginu!! Hvílík blekking. Hið rétta í málinu er þetta: Hinn grímulausi atvinnurekenda- listi, B-listinn, hefði rauðvitað ekki komið fram, ef atvinnurek- endur hefðu ekki ti'eyst því að Óskar gseti hindrað það að list'i sameiningarmanna kæmi fram; þeir treystu þvf sem sé ,að bar- áttan mundi standa um aðeins tvo l'ista, sem ekki skipti öllu máli fyrir þá ihvor næði kosn- ingu. Iiins vegar munu þeir, úr því sem komið ,er, ekki taka al- varlega tilraunialijfta sinn, B- listann, en styðja af því meiri alúð lista Öskars, því þeir ótt- ast sannarlega C-listann. Þess vegn-a fylkjum við okkur um C-iistann og tryggjum hon- um sigur. Rafvirki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.