Þjóðviljinn - 27.02.1953, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 27. febrúar 1953
lUÓÐVIUINN
Ötgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson„ Magnús Torfi Ólafsson,
Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljanc h.f.
___________________________I________________________/
Óskadraumur afturhaldsklíknanna
í heiftarbruna út af ósigri ríkisstjórnarinnar fyrir
verkalýðnum í desemberverkfallinu mikla komu þeir Her-
mann Jónasson og Bjarni Benediktsson upp um leynd-
ustu hugrenningar og óskadrauma stjórnarflokkanna og
einokunarklíkunnar sem á bak við þá stendur. Boðskap-
ur þessara tveggja forustumanna stjómarflokkanna var
cinfaldlega sá, aö nú væri sú stund upp runnin að óhjá-
kvæmilegt væri að koma á fót íslenzku „þjóðvarnarliði"
til þess að beita gegn verkalýð landsins í vinnudeilum.
Báðir létu þeir orð að því liggja að jafnframt væri hugs-
anlegt að hinn íslenzki her tæki aö einhverju leyti við
hlutverki bandaríska herliðsins, sem þríflokkarnir kölluöu
inn í landið 1951.
Þessar, bollaleggingar ráðherranna í áramótahugleið-
ingum þeirra beggja hafa mætt almennri andúð þjóöar-
i)mar. Almenningi; fannst vissulega nóg að gert meö
írömdum þjóðsvikum þríflokkanna og bandarísku hsr-
námi þótt ekki yrði því við bætt, að stofnaöur yrði ís-
ienzkur her til að berja á löndum sínum og æfa sig í
mannvígum innanlands eöa utan. Hvar sem til hefur
spurzt hafa menn beinlínis varpaö fram spurningunni
um hvort þessir valdamenn þjóðarinnar séu raunveru-
lc-ga msð réttu ráöi. Og fjölmenn samtök landsmanna
hafa þegar mótmælt hugmynd þeirra um herstoínun-
ina kröftuglega.
Undirtektir þjóðarinnar hafa valdið því, að málgögn
ríkisstjórnarinnar eru komin á greinilegt undanhald —
1 bili. Bæöi Morgunblaðið og Tíminn hafa leitast viö að
draga úr skýrum ummælum Hermanns Jónassonar og
Bjarna Benediktssonar. Hafa blöðin jafnvel gengið svo
langt 1 blekking-unum að fullyrða að krafan um stofnun
íslenzks hers hafi alls ekki veriö sett fram í áramóta-
skrifum þessara tveggja forkólfa stjórnarflokkanna. Þstta
hefur verið reynt jafnt fyrir því þótt hver læs íslending-
ur geti; gengið úr skugga um hið gagnstæða með því að
lesa greinarnar þar sem hugmynd Bjarna og Hermanns
var kynnt og túlkuð fyrir Iþjóðinni.
En þessi bardagaaöferð landsöluflokkanna er ekki ný.
Þeir hafa langa reynslu í að ljúga aö þjóðinni og blekkja
hana. Þannig lýstu frambjóðendur þeirra algjörri and-
stööu við erlendar herstöðvar á íslandi fyrir þingkosn-
ingarnar 1946. Eftir kosningarnar sviku þeir alla eiða
sína og afhentu Bandaríkjamönnum Keflavíkurflugvöll.
Næst var ísland vélað í Atlanzhafsbandalagið. Fyrir kosn-
irgarnar 1949 lýstu sömu flokkar því skýrt og skilmerki-
lega yfir að aldrei skyldi erlent hsrlið staðsett á íslandi
á friðartímum. 1951 kölluðu þríflokkarnir bandarískt her-
lið inn í landið, með samþykki nær allra þingmanna
sinna á lokuðum leynifundurn. Þannig var staðið við þau
loforð að loknum kosningum sem þríflokkarnir gáfu
þióðinni áður en hún gekk að kjörborðinu.
Það er greinilegt að enn á að leika sama leikinn. Fram
að kosningum í sumar verða málgögn stjórnarflokkanna
látin sverja fyrir það að stofnun ísknzks hers komi til
greina. Og á framboðsfundum um allt land munu full-
trúar stjórnarflokkanna taka undir. Þeir munu ljúga að
þióðinni alveg á nákvæmlega sama hátt og þeir gerðu
1946 og 1949, en ráðnir í að svíkja loforð sín og eiða á
jafn blygöunarlausan hátt og áöur hafi þeir tækifæri
til að kosningum loknum. .
En(það veröur á valdi íslenzku þjóðarinnar í kosningun-
um í sumar að koma í veg fyrir það, að óskadraumur
afturhaldsklíknanna og flokka þeirra um stofnun stétt-
rrhers rætist. Þjóðin þarf ekki að eiga úrslit þessa örlaga-
ríka máls undir svikulum þingmönnum núverandi stjórn-
arflokka og hjálparlðs þeirra í AB-flokknum. Við kosn-
ingarnar hefur þjóðin valdið tii að svifta landsöluflokk-
ana, sem nú undirbúa stofnun yfirstéttarhers gegn ís-
lenzkri alþýðu, þeim styrkleika ssm þeir þurfa til að
hrinda þessum fyrirætlunum í framkvæmd. Þjóðin hef-
ur þegar mótmælt. en á þau mótmæli þarf að leggja
þunga og ótvíræða áherzlu meö því að fylkja liði um
Sósíalistafiokkinn í næstu kosningum..
Eitt mesta listaverk Thorvaldsens fær
samastað eftir mikla hrakninea
Ein. af frægustu myndastytt-
um Alberts Thdrvaldsens er
riddarastytta hans af pólska
furstanum Jozef Poniatowski. —
Poniatowski var af gömlum
pólskum konungaættum, en
hafði unnið :sér miklar ástsældir
hjá þjóð sinni þegar hann gekk
á lið með frelsishetjunni Kos-
ciusko í 'uppreisninni 1794, sem
lauk með algerum ósigri Pól-
verja og þriðju skiptingu lands-
ins milli hinna landgráðugu ná-
granna: Rússlands, Prússlands
og Austurríkis árið 1795-
Pólverjar litu á Poniatowski
sem konung sinn, og hann setti
vonir sínar á að Napóleon mundi
verða við óskum Pólverja um
endurreisn ríkis þeirra. Hann
barðist í her Napóleons og var
sæmdur nafinbótinni marskálkur
af Frakklandi kvöldið fyrir or-
iiistuna við Leipzig árið 1813,
þar sem herir Bandamanna unnu
fullan sigur á hersveitum
Frakka. í þeirri orustu særðist
Poniatowski til ólífis, barðigt
meðan hann igat vopnum valdið,
en þegar hann var að þrotum
kominn key.rði hann hest sínn
út í Elsturfljót og drukknaði
þar.
Það leið ekki á löngu áður en
upp komu raddir um að gera
'skyldi styttu af Poniatowski, og
þegar úr því varð, var eðlilegt
að menn sneru sér til Alberts
Thorvaldsen, sem þá hafði orð
á sér sem snjallasti myndhöggv-
ari samtíðarinnar. Thorvaldsen
dáði mjög klassíkina og leitaðist
við að líkja eftir henni, og ekk-
ert var honum fjarri en sú raun-
sæis-rómantíska sem um þetta
ieyti hafði fest rætur í evrópskri
list. Poniatowski fékk yfirbragð,
klæði og vopn frá hinum klass-
ísku hetjum, og raddir voru uppi
um það meðal vopnabræðra
hans, að líti.11 svipur væri með
styttunni og honum. En þær
raddir þögmuðu fljótt, styttan
varð Pólverjum táknmynd frels-
isbaráttunnar.
Áður en styfctan yrði sett upp
í Varsjá, brauzt út enn ein uþp-
reisnin igegn keisaraveldinu, og
málmsteypumenin fengu öðrum
verkefnum að sinna en mynda-
'styttum, það iskorti bæði fall-
byssur og byssukúl'ur. 'Að upp-
reisninni lokinni var styttan
steypt, en þá bannaði Nikulás
Hússakeisari að hún yrði sett
upp í Varsjá, og var hún flutt
til Rússlands og sett upp á land-
setri einu og umhverfis hana
fallbysaur, sem Rússar höfðu
Helgi Helgason
Tekið á móti flutningi til Snæ-
fellsneshafna, Stykkishólms og
Flateyjar í dag.
tekið herfangi af Tyrkjum!
Pólverjar heimtu s.tytfcuna loks
aftur eftir byltinguna í Rúss-
Albert Thorvaldsen
landi, og 1923 var henni femginn
staður í Varsiá fyrir framan
Saksiskehöllina sem tákn um
endurheimt sjálfstæði. Svo ska.ll
önnur heimsstyrjöldin á. Þjóð-
í fljótu bragði skyldi maður
halda, að hvergi yrði kaldara á
jörðunni en á sjálfum heimskaut
unum, en það er lamgt því frá.
Kaldasti staður jarðar er talinn
vera í Síberíu, við Ojmékon,
skammt frá fljótinu Indigirka.
Landið er þarna ekki enn að
full'U kannað, því að torfærurn-
ar eru þar miklar.
Þekktu tunglij betur.
Á tímum keisaranna þekktu
vísindamenn tunglið betur en
taiguna milli fljótanna Indigirka
og Kolyma. Á korti yfir tunglið
voru gefnir upp 40,000 staðir, en
á koritumum af þessum héruðum
í veldi 'Rússakeisara voru ekki
einu sinni sýnd þau miklu fjöll,
sem eru á þessum slóðum.
*
/ Fjærst frá hlýjum straumum.
Það er sovétvísindamaðurinn
S. V. Obrútéff sem ráðið hefur
gátuna um kuldaskaut jarðar.
Bærinn Ojmékon er umkringd-
ur háum fjöllum sem .standa
sem veggur fyrir hinum heitu,
röku sunnanvindum og mynda
skál, þar sem kuldinn er mun
meiri á veturna en annars sfcað-
ar i Síberíu. Ojmékon sem ligg-
ur mjög austarlega í Síbieríu er
italinn sá staðiu1 á m.egi.nliandi
Evrópu og Asíu sem fjærst ligg-
ur frá hinum hlýj.u hafstraum-
um sem leika um strendur þess,
og er það önnur orsök þess
hvers vegna kuldaskaut jarðar
er þar að finna.
Á veturna getur kuldinn orð-
ið allt að 70 stig á Celsius, en á
sumrin ér þar hins vegar hlýtt
í/lf'X ’
og. urkoma ekki meiri-en í Ka-
rakúméyðimörkinni.
Léiðangur leggur upp.
Fyrir 23 árum lagði mikill leið-
angur af stað frá Moskv.u til
stranda Okotskahafs, sem er
verjar réðust inn í Pólland og
yfir Varsiá rigndi sprengjum.
Sityttan islapp þó að mestu ó-
sködduð; hana má sjá á Ijó's-
mynd sem tekin var af innreið
þýzkia hersins í bongina. Um
áramót 1944, þegar rauði her-
inn stóð við borgarhlið Varsjár
og Þjóðverja.r lundirbju'ggu und-
anhald sitt, lét herstjóri þeirra
í borginni sprengja styttuna í
lóft upp .Hún molaðist mélinu
'smærra, allt sem eftir viar af
hinni glæsilegu mynd Thorvald-
sens var önnur höndin og ein.n
hófanna.
Svo vel vildi til að gipsmynd
Thorvaldsens var enn til, geymd
í safni því sem við hann er
kennt í Kaupmannahöfn. Þegar
eftir stríðið ákvað danska ríkið
og Kaupmannahafnarbær að
kosta endursteypu hennar og
færa Pólverjium að gjöf. Sty.ttan
var svo stey.pt í Kaupmann.a-
höf.n, og fyrir rúmu ári síðan,
23. j.anúar 1952, var styttan af-
hjúpuð í Lazienki-igarðinum í
Varsjá, og vonandi fær hún að
standa þar um aldur og ævi.
innhaf úr Kyr.rahafi. Leiðangurs-
menn fóru sjóleiðis ausfcur með
niorðurströnd Síberíu og brutust
svo yfir þvért meginlandið með-
fram fljótinu Kolyma. Þeir gerðu
margar .athuganir á þessu landi,
sem varla nokkur maður hafði
áður augum litið, og í ljós kom,
að mikil .auðæfi fólust þar í
jörðu: kol, járn og -aðrir málm-
ar. Strax að leiðanigrinum lokn-
um hófst sovétstiómin handa
um að nema þetta land, og fyrst.a
skrefið va.r tekið með byggingu
hafnarbæjarins Magadan við
Okotskahaf.
Miklir örðugleikar.
Landnemarnir höfðu víð marga
örðugleika að stríða. Það voru
3000 km 'ti'l næstu jámbraiutar,
þarna var hvorki til sement,
múrsteinar né igler í fyrstu hús-
in. Allt varð að fá aðflutt á
skipum. Frost feir .aldrer .alveg
úr jörðu, én þiðnar aðeins áð
no'kkr.u leyti seinni part sumars.
Fyrstu húsin vo.ru byggð á
bjargi, því ekki var að vita,
hvort húsin mundu síga í þíð-
lunum á sumrin. Seinna lærðist
mönnum að byggia á frosinni
jörðinni og úr efnum sem fyrir
hendi, voru á staðnum.
Og smám saman reis borgin
'Upp, nýtízku hafnarborg með
breiðum igötum, með verksmiðj-
um, mienningarhöll, leikhúsi, leik
vangi o. s. frv. Erfiðasta verk-
efnið sem leysa þurfti var lagn-
ing véga, þó'sundir |kíló.metra
þvert yfir taiguna. Mörgum
táimunum v.arð að ryðja úr vegi,
sprengja varð kletta og þurrka
mýrar.
Fjöldi by.ggðarlaga eru nú um-
hverfis kuldaskautið. Kol eru
unnin úr jörðu á fjórum stöð-
um og ætlunin er að hefjast
handa um málmvinnslu þar í
stórum stll.