Þjóðviljinn - 11.03.1953, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.03.1953, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 11. marz 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Franska lögreglan hefur varpaö abbadís í kaþólsku mmnuklaustri í Marseilles í fangelsi fyrir þátt hennar í hvarfi tveggja munaöarlausra bræöra. Hún er önnur abbadísin sem gistir svartholið vegna þessa máls, lrin fyrri var fóstra drengjanna. Hún situr enn í fangelsi ásamt fjórum kaþólsk- i'm prestum og einum kaup- sýslumanni. Allt þetta fólk er sakað um að eiga þátt í hvarfi bræðr- arma Robert og Gerald Finaly, sona gyðingahjóna, sem nazist- Það bar við nálægt Dar- win í Ástralíu I síðustu vilcu að þriggja metra löng kyrki- slanga þreif stúlkubarn úr örmum móður þess og sltreið á brott með barnið í gininu. Faðir stúikunnar veitti slöngunni eftirför og tókst að liræða hana til að sleppa bráð sinni með því að ota að henni logandi kyndli. ar myrtu. Þegar ættingjar drengjanna í ísrael vildu taka þa til sín lét abbadísin, sem veitti forstöðu barnaheimilmu þar sem þeir dvöldu, skíra þá til kristinnar trúar og smygla þeim suður yfir landamærin inn í Spán. Móðir Dominique, abbadís í klaustri Vorrar Frúar frá Síon í Marseilles, sem handtekin var nú síðast, játar að hafa geymt drengina um tíma og síðan afhent þá presti í Mars- eilles. Máske í Portúgal. Eftirgrennslanir nm dreng- ina á Spáni hafa engan árang- ur borið og er franska lög- reglan ekki frá því að búið sé flytja bræðurna til Portúgal. Tillaga sósialdemókrata á franska þinginu um sérstaka umræíu um drengjahvarfið, var felld í síðustu viku með 390 atkvæðum gegn 227. TSíés tll Bretláiids Deila er gosin upp milli kaþólskra manna og biskups- kirkjumanna í Bretlandi út af heimsókn Títós, forseta Júgóslavíu. Strax og tilkynnt var að Titó myndi koma í opinbera lieimsókn að boði brezku stjórn arinnar urðu rómverskkaþólsk- ir Bretar ævareiðir og kváðu það ókristilegt athæfi af ríkis- stjórninni að gera sér títt um menn, sem ofsæktu kirkju og kristni. Vitnuðu þeir til fang- elsunar kaþólska kardínálans Stepinach og ’annarra greina, sem orðið hafa með stjórn Títós og rómverskkaþólsku kirkjunni í Júgóslavíu. Úlfaþytinn lægði nokkuð þeg- ar dr. Fislier, eijkiþiskup af Kantaraborg og æðsti maður ensku kirkjunnar, og kardín- álinn Griffin lýstu yfir, að þeir treystu því að Eden utanríkis- ráðhérra myndi skýra Tító fríá því hverja skoðun Bretar hefðu á trúarofsóicnum. Áður voru sumir kaþólskir menn farnir að gefa í skyn að reynt yrð!i að gera Tító einhverjar kárínur meðan hann dvelur í London. Nú er allt í eldi á ný og veldur því biskupsbréf frá dr. Garbett, erkibiskupi I Jórvík, sem hvetur menn þar til að ,,fagna hjartanlega“ komu Títós, og segir að ka.þólskir klerkar, sem hafa orðið fyrir barðinu á stjórn hans, hafi elcki átt betra skilið fyrir að hafa lagt blessun sína yfir hermdarverk kvislingahreyfing- Framhald á 11. síðu. Vínbændur vilja hella 4,500,ooo hl niður Samtök vínyrkjubænda í Frakklandi teija að ekki megi lengur fresta ráðstöfunum vegna þess að vinfram leiðslan er langtum meiri en neyzlán. Vitað er aðl verðlækk- un myndi stórauka neyzluna en vínyrkjubændur vilja ekki fail- ast ‘á það. Þeir vilja láta helia niður 4.500.000 hektólítrum af vínbirgðunum, sem safnazt hafa fyrir. BrœSur en ekki fjandmenn Bandaríski milijónaerfinginn Minot Jelke, sem hefur verið sakfelldur fvrir að fá tvær ungar stúlkur til að gerast skækjur og fyrir að hirða tekj- ur annarrar af saurlifnaðinum, mun að líkindum sleppa með vægan dóm. Franeis Vaiente dómari hefur gefið í skyn að hann muni dæma Jeike skilcrðs bundnum dómi, vegna þess að hann sé „ekki melludólguv í. þeim skilningi, sem liefur ver- ið lagður í það orð.“ Hámarksrefsingin, sem Va’- ente gæti dæmt Jelke í, er 40 ára fangelsi. Mestöll rétlar- höldin voru fyrir luktum dyr- um til að breiða yfir nöfn stjórnmálamanna þeirra, kav.p- sýslumanna og erlendra sendi- manna sem Jelke útvegaði kvenfóik fyrir ærið fé. Fat Ward. 19 ára, vann ein inn fyrir liann um 220.000 kfónur. Pútnamóðirin Erica Steele bar það fyrir réttinum að Pat hefði haft um 8000 króna tekjur á viku. Einu sinni, þegar liún hafði afhent Jeíke 4500 krón- ur, hefði hann rokið upp og skipað sér að „sjá um að Pat- haldi sér við efnið“ vegna þess að hánn þyrftí að fá sér nýján bíi. C nJi is :.i í'u.iltrúarnrr á friðarþingi Kyrrahafsþjóða í Peking í fyrrahaust fagna kóresku fulltrúunum. Lev nibiÓDiistuaðferðir til & I ya vi Bandarísk stjórnarvöld hafa ákveðiö að beita leyni- þj ónustuaðferöum til að reyna aö hindra viðskipti milli Austui'- og Vestur-Evrópu. Harold Stassen, yfífmaður bandarískrar aðstoðár við önn- ur lönd, hefur skipað Wiiliam J. Donovan hershöfðingja til að stjórna nýrri herferð til að stöðva sendingar á vörum, sem Bandaríkjastjórn hefur iýst hernaðarlega mikilvægar, til Kúrekinn reisti hryss- uiia upp frá dauðrnn Kúreki í Alabama var um daginn að ná í strokuhryssu og snaraði hana auðvitað ein. og kúreka sæmir. Svo tókst þó til að lykkjan hertisit það cmjúk- lega að hálsi liryssunnar að liún kyrktist og datt niður sem dauö væri. Kúrekanum varð þó ekki bilt við, hann tók að gera öndunaræfingar á Skepnv.nni og íinnti ekkf fyrr* en liann hafði vakið liaúa til lífsv SmyglaS frá Kanada Komizt hefur upp um lækni og lögfræöing í Kanada, sem hafa selt ungbörn í stórum stíl til Bandaríkjanna. ef þáu færu eftir léií'beihing- um, sem þ'eim værú gefnar. Sovétríkjanna Kína og ann- arra sósíaliotískra landa. Stjórnaði OSS. Donovan, sem hefur viður- nefnið „Villti Bill“, stjórnaði á stríðsárunum Office of Strategic Services, sem hafðí það hlutverk að skipuleggja það sem Bandaríkjamenn kalla „hulu- og rýtingsstarfsemi", svo sem skemmdarverk, laun- morð og því um líkt. Banda- ríska fréttastofan Associated Press segir, að skipun Villta Bill Donovan gefi til kynna að nú eigi að berta leyniþjónustu- aðferðum gegn viðskiptunum milli austurs og vesturs. „Kapítalista-kommúnista- kumpánar“. Þegar Stassen skýrði frá skipun Villta Bill lýsti har.n því yfir, að fyrsta atriðíð á stefnu- skrá sinni til að hindra við- skipti við sósíalísku löndin væri aðgerðir gegn þeim mönnum, sém tíanh néfndi „kapítalista- kommúnista-kumpána". Kvaðst hann eiga með því við vest- ræna kaupsýslumenn, sem hefðu ekkert á móti því að græða drjúgan skilding á því að útvega til sósíalistísku ríkj- Meindýraeyðir kveður niður drauga Undanfarið hefur þótt með afbrigðum rcimt í göml- um húsum í enska bænum Amersham. Dularfull hljóð hafa heyrzt og sumt fólk hefur jafnvel þótzt sjá vof- úr. Nú hefur meindýraeyðir í þjónustu húsnæðismálaráðu heytisins kveðið draugana niður og ljóstrað því upp um leið aö þeir hafi ekki kom- ið frá öðrum heimi heldur hafL þetta verið hamstrar, sem leituðu í ylinn af mann- fólkinu í vetrarkuldanum. Lögreglan í kanadísku borg- inni Toronto heldur því fram að 20 börnum að minnsta kosti hafi verið smyglað til Bandaríkjanna síðustu mánuði og þau seld þar. Grunsamleg flugferð. Innflytjendayfirvöldum í Bandaríkjunum var -farið að þykja það grunsamlegt, hve mörg ungbörn . voru flutt flug- leiðis til Bandaríkjanna og í síðustu viku voru bandarísk hjón frá New York, Shinder að nafni, handtekin í flugstöð- inni í Toronto með sjö daga gamlan dreng meðferSíg í körfu. Þau eru ákærð fyrir að hafa staðið aö samsæri um að falsa fæðingarvottorð. Matarlaus og bleyjulaus. Starfsmönnum í flugstöðinni þótti það grunsamlegt. að Shinderhjóni'n slcyldu engan mat hafa með barninu og elcki einu sinni bleyju til skvpta.' Ekki dró það úr gnursemdun- um áð engin skýring var fá- anleg á því að konan skýldi fara til Kanada til að fæða barn sitt né á þvi að hún skyldi leggja í langferð svo skjótt eftir fæðinguna. Var neitað um að taka bárn í fóstur. Heima í New York höfðu Shinderhjónin reynt áð fá barn til fósturs en umsókn þeirra var hafnað- vegna þess hve litlar tekjur þau höfðu og vegna þess að íbúð þeirra var talin of þröng. Lögreglan segir að eftir þessa árangurslausu umsókn hafi. einhver úr barna- söluhringnum náð sambandi við. hjónin og . sagt þeim að barn væri fáaniegt í Toronto ÖUúur kona átti bárníð' undir nafni frú Shinder. Sfðan var sótt nrn rúm-’fyr- ir frú Shinder í Sankti Maríu- sjúkrahúsinu í To"onto og lælcnir þar sendi barnshafandi, ógifta stúl'ku á sjúkrah.úsið undir því nafni. Shinderhjónin voru látin vita þegar leið að fæðingúnni og flugu þau þá til Toronto og dvöldu þar í gisti- húsi. Frá sjúkrahúsmu var manntalssk"ifstofunni tilkynnt að þar hefði frú Shinder fæðzt barn og herra Shinder sótti sjálfur fæðlngarvottorííð. Hjónin hafa játað þemian gang málsins en þau neita full- vrðihgu lögreglunnar um að þau hafi borgað 250 dollara fvrir barnið. Löggæz’umenn bæði í Bandaríkju'num óg Kanada spá „stórkostlegum upp]jóstrunum“ í máli þessu. Framhald á 11. siðu.. Tannlæknirinn Walter S. Eisz í Pittsburgh í Bandaríkj- unum kvað hafa. fundið mjög' gagn’.ega aðfér'ð til að setja nýja krónu á brotnar tennur. Eisz skýrð'i frá því á fundi talinlækna í New Yórk að með aðferð sinni væri hægt að setja nýja krónu á rætur tanna, sem brotna alveg við góminn. Áður hefur orðið að draga rótina úr eftir slík brot og oft mjög erf- itt að setja nýja krónu á brotna tönn þótt brotið væri ekki svo slæmt. Eisz sagðist nota guli- prjón með lykkju á og fjöður við til áð halda nýju krónunni fastri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.