Þjóðviljinn - 23.04.1953, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.04.1953, Blaðsíða 8
S) _ ÞJÓÐVIUINN — Fimmtudagur 23. apríl 1953 til íjaHiíesðslusiasfa Hafflsfsfan Fliigarlir Yfirlýsing Vegna greinar, sem birtist í „Al!þýðublaðinu“ 19. þ.m. um byggingamál Tilraunastöðvar háskólans í meinafræði að Keldum, tekur ráðuneytið fram eftirfarandi: 1) Ráöuneytiö hefur kynnt sér kröfur hr. Svein- bjafnar Kristjánssonar á hendur forráða- mönnum tilraunastöðvarinnar og komizt að raun um, að þær hafi eigi við rök að styðj- ast. 2) Hr. Sveinbjörn Kristjánsson hefur hafið mál- sókn gegn ráöuneytinu en látið hana niður falla, væntanlega af því, aö hann hefur eigi treyst málstað sínum. 3) Menntamálaráðuneytið á engan þátt í því, að Alþingi heimilaði í fjárlögum 1953 fjárgreiðslu til hr. Sveinbjarnar Kristjánssonar vegna starfsemi hans að Keldum og var einskis sam- ráðs leitaö við það um þessa fjárveitingu, enda hefur það áður tvívegis synjað Svein- birni um frekari greiöslur eftir að hafa kynnt sér málavöxtu. 4) Ráðuneytinu er kunnugt aö uppíýsingar þær, ;sem Rockefeller-stofnuninni voru veittar um stofnkostnað tilraunarstöðvarinnar að Keld- um áður en hún ákvað viðbótarframlag sitt, voru réttar. Menntamálaráðuneytiö, 21. apríl 1953. Björn Ólafsson (sign.) Birgir Torladius (sign.) Árshátíð KR verður haldin sunnudaginn 26. apríl kl. 8.30 e.h. í Sjálfstæöishúsinu. Skenuntiatriði: 1. Minni K.R. og afhending heiðursviðurkenninga. 2. Svavar Jóhanness. Kylfukast, íkúluvárp o.m.fl. 3. Flokkur úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýnir þjóðdansa undir stjórn Sigríðar Valgeirsdóttur. 4. Gestur Þorgrímsson hermir eftir þekktum söngvurum. 5. Allt fyrir K.R. Gamanþáttur um félagsmál. Leikendur: Kristjana Breiðfjörð, Erlendur Ó. Pétursson og Haraldur Á. Sigurðsson. 6. Dans. Kynnir kvöldsins verður Haraldur Á. Sigurðsson Aðgöngumiðar verða seldir föstudag og laugar- dag í skrifstofu Sameinaða, Tryggvagötu (sími 3025). Félagsmenn mega taka með sér gesti. Tryggið yður miða í síma. Stjóm K.R. Alúðarþakkir til allra, er auðsýndu samúð >’ við andlát og jarðarför THEODÓRS KRISTJÁNSSONAR Sérstaklega þökkum við frú Svövu Matthiesen og börnum hennar einlæga vináttu og hjálp í garð hins látna. Vandamenn. Drengurinn okkar og bróðir Bjamí Geir lézt af slysförum þriðjudaginn 21. þess máaðar. Þuríður Bjarnadóttir Ársæll Júlíusson og böm. # ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl FRlMANN HELCASON 38. ViSavangshlaup /./?. fer fram i dag Hið árlega víðavangshlaup l.R. sem er það 38. í röðinni fer fram í dag og hefst kl. 2. Hlaupið byrjar á íþróttavellin- um og verða þar hlaupnir 300 m og síðan hlaupið út af hon- um og vestur með vellinum. Þaðan þvert yfir á Fornhagai niður að sjó, síðan austur Æg- issíðu' yfir á Dynhaga — Þor- móðsstaðaveg — Reykjavíkur- veg og niður í Vatnsmýrina og hlaupið eftir henni á Há- skólavöllinn og síðan endað í Hljómskálagarðinum. Vegalengd þessi er 3,2 km Keppendur eru 18 frá 7 fe Sg- um. Keppendur eru Kristján Jóhannsson IR, Sigurður Guðna son IR, Guðm. Bjarnasom ÍR, Marteinn Guðjónsson ÍR, Ólaf- ur Jóhannsson ÍR, Oddgeir Sveinsson KR, Victor Munch Ármann, Einar Hallsson UMF Eldborg, Halldór Pálsson, Har- aldur Magnússon, Guðfinnur Sigurjónsson, Einar Gunnars- son, Hörður Guðmundsson og Þórhallur Gúðjónsson allir frá UMF Keflavíkur. Bergur Hall- grímsson. U.I.A. Niels Sigur- jónsson U.l.A. Brynjólfur Ámundason UMF Vöku. Sigur- geir Bjarnason kmattspyrnufé- laginu Þrótti. 61,38 m sleggjukast Strandli ekki viður- kennt sem heimsmet Fyrir nokkru bárust fréttir um það að norski sleggjukastarinn Sverre Strandli hefði kastað 61,38 m sem væri 13 crn lengra en gildandj heimsmet. Árangur þessi mua þó ekki fást staðfestur sem heimsmet þar sem Strandli var eini þiátt- takandinn og raunverulega var um sýningu að. ræða. Auk þess var aðeins einn viðurkenndur dómari viðstadd- ur. Framh. af 6. síðu. irritaði náðun þeirria og tætti ttm leið í sundur meðferðima á máli þeirr.a og féiaga þeirra, sem höfðu verið iíflátindr sak- lausir og lognir sökum af þeim sem. igæta ébtu laigia og réttar. Því miður er það ekki síð- ■asfci bletturinn af þess.u taigi, ier fallið hefur á bandaríska rétt- vísi. Nægir þar lað minn.a á mál Tom Mooney, Mflát Sacco og Vanzetti og mú síðast dóm- inn yfi.r Rosenberighjóniunium. í öllum þessum málum hiafia dóm stólarnir gerzt verkfæri auð- jöfrann.a og kveðið upp ógn,ar- dóma yfir sakliausu fólki til þess að reynia að lamia róttæk- asta hlut.a bandarískrar verka- lýðshreyfingar. Nauðuagar- uppboð verður haldið í Bifreiðaverk- stæði Hrafns Jónssonar Brautarhólti 22 hér í bæn- um laugardaginn 2. maí n.k. kl. 10.30 f.h. Seld verður bifreiðin R 452. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetinn í Reykjavík. ORÐSENDING FRÁ MÁLI OG MENNINGU: llokkur kcmur át í haust Fjölbreyít bókaval með sömu kjömm og í fyrra Gerð er grein fyrir bókunum í næsta hefti Tímaríts Máls og menningar sem er í prentun og kemur eftir nokkra daga Gleðiiegt sumar! Kaupfélag Reykjavíkur ■ »: og nagrenms Þakkar öllum samvinnumönnum ötulan stuðning og góð viðskipti, og heitir á þá að standa saman og efla hag og velgengni fé lagsins hér eftir sem hingað til. Gleðllegt sumor!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.