Þjóðviljinn - 26.04.1953, Qupperneq 8
S) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 26. apríl 1953
iáðnsngarskrifstofa
er tekin til stai’fa 1 Þingholtsstræti 21 undir for-
stöðu Metusalems Stefánssonar. Allir þeir er leita
vilja að'stoöar skrifstofunnar varöandi ráöningar
til sveitastarfa. ættu aö gefa sig fram sem fyrst og
eru þeir áminntir um aö gefa sem fyllstar upplýs-
ingar um allt, er vai’öar óskir þeirra, ástæöur og
skilmála
Skrifstofan veröur opin alla virka daga kl. 9-12
og 1-5, þó aöeins fyrir hádegi á laugardögum.
Slmi 5976.
Bánaðarfélag Islands
KF. H4.FNFIRÐINGA — KF. SUÐURNESJA, KEFLAVlK
Framlialds-
adalfundur
VerzlunaiTnannafélags Reykjavíkur vei’öur í Sjálf-
stæöishiisinu annaö kvöid (mánudagskvöld) kl.
8 30. Stundvíslega.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Önnur mál.
Stjóniin.
Fatamarkaður 6EFJUNM
Stórfelldur fatamarkaður hófst í gær i verzlun
og saumastofu Gefjunar við Kirkjustræti. Mikið
úrval af allskonar karlmannafötum, stökum jökk-
um og buxum. Komið og skoðið í dag.
Sumartízkan 1953 af hin-
um vinsælu Sólidfötum
kemur í fyrsta sinn á mark-
aðinn nú. Jakkarnir eru
hálffóðraðir og margar aðrar nýjungar í saum
fatanna. Uival af efnum meira og betra en
í fyrra, Verð jakkanna er aðeins 550 kr. og
buxnanna 260 og 330 kr. Ennfremur mikið úr-
val af kamgarnsfötum og dálítið af RAGLAN og
WELLINGTON frökkum. Loks verður á markað-
inum dálítið af eldri gerðum af fötum, sem selj-
ast með 20-35% afslætti.
í G.T. húsinu í kvöld
klukkan 9
f-v3* iswt'ww*.
r
•*•*?£**
Urslitctkeppmn
Þessi 9 lög keppa: Vinuuhjúasamba, Selja litla,
Vökudraumur, Lindin hvíslai’, Næturkoss, Litla
stúlkan. Nótt. í faðmi dalsins og Hittumst heil.
Sigrún Jónsdóttir og Hukur Mortens
syngja með hljómsveit Braga Hlíðbergs.
Aðgöngumiðar frá klukkan 7 Sími 3355
••««••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Bezta
fermingar-
gjiiílai
er
Kvæði og ritgerðir
eítir
JÓHANN JÓNSS0N
í útgáfu
HALLDðRS KILJANS
LáKNESS
Heimskringla
RlTSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
Ikarp Erlings Pá
setninga
Háttvirtu tilheyrendur.
Hér er nú að hefjast Sund-
meistaramót Islands hið 22. i
röðinni. Til þess var stofnað af
íþróttasambandi Islands árið
1931 og var mótið háð sama ár
við Sundskálann í Örfirsey og
einnig árin 1932 og 1933. 1934
var það háð á Akureyri. 1935
og 1936 var það háð að Ála-
fossi og 1937 í Sundhöll Reykja
víkur og þar hefur það verið
háð ætíð síðan nema 1952, þá
fór mótið fram í sundlauginni í
Hveragerði og stóð þá fyrir því
Héraðssambandið Skarphéðinn.
Fyrir þessu móti stendur S.R.R.
Með Sundmeistaramóti Islands
hefst merkilegur og glæsilegur
þáttur í sundmennt Islendinga.
Hér er nú kominn glæsilegur
hópur sundmanna ög sund-
kvenna víðsvegar af landinu
til þess að þreyta með ,sér
þessa ágætu og lífsnauðsynlegu
íþrótt frá eftirtöldum félögum:
Ármanni, IR, KR, Sundfélag-
inu Ægi, íþróttabandalagi Suð-
urnesja, Iþróttabandalagi Akra
ness, Ungmennafélagi Ölves-
inga, Ungmennafélagi Reyk-
hyltinga og Ungmennafélaginu
Leiftur, Ólafsfirði.
Sökum umgangslasleika hafa
nokkur forföll orðið í þátttöku
mótsins, meðal annars frá U.M.
F. Ólafi Pá og Reykholtsskóla.
Mótið er líka haldið nokkuð
snemma með tilliti til þátttöku
úr fjærstu landsbyggðum, en
Erlingur Pálsson
því var örðugt að breyta í þetta
sinn, sökum keppninnar:
Reykjavík og aðrir landshlut-
ar, sem á að fara fram 13. og
14. júní í Hafnarfirði.
Við þetta tækifæri leyfi ég
mér að lýsa yfir hrifningu okk
ar yfir hinni auknu þátttöku
utan af landsbyggðinni í sund-
mótum, sem mest er að þak'ka
sundskyldunni og bættri að-
stöðu til sundiðkana víða um
landið, með byggingu sundlauga
og sundhalla, en við Reykvík-
ingar höfum að því leyti stað-
ið í stað, því hér hefur ekki
orðið framþróun í því efni, síð-
an 1937, að Sundhöllin tók til
starfa, þrátt fýrir það, þó
Reykvíkingum hafi fjölgað á
því tímabili um tugi þúsunda.
Við bíðum því með eftirvænt-
ingu eftir hiaum langþráðu
sundlaugum í íþróttasvæðinu í
Laugardalnum og sundlaug
Vesturbæjar.
Góðir gestir og áhorfendur. I
nafni S.S.I. býð ég ylkkur hjart-
anlega velkomna og færi ykkur
þakkir fyrir, að þið kusuð held-
ur að vera hér í kvöld en á öðr-
um skemmtunum. Með því haf-
ið þið stutt góðan málstað og
sýnt aðdáun ykkar á íþrótt í-
þróttanna. Við vonum, að þið
verðið e'kki fvrir vcnbrigðum
og að þetta mót megi fara fram
í sönnum íþróttaanda, öllum,
sem að því standa til sæmdar
og gleoi. — Að svo mæltu lýsi
ég þetta mót sett.
Burnley 2 Charlton 0 1
Cardiff 1 Aston Villa 2 2
Liverpool 2 Chelsea 0 1
Manch. City 5 Blackpool 0 1
Middlesbro 5 Manch. Utd.O 1
Newcastle 2 Bolton 3 2
Preston 2 Arsenal 0 1
Sheffield W. 4 Sunderland 0 1
Stoke 1 Derby 2 2
Tottenham 3 Wolves 2 1
W.B.A. 2 Portsmouth 0 1
Plymouth 3 Swansea 2 1
1-2 herbergi og eldhús eða
eldunarpláss óskast strax
eða 14. maí — Aðeins tvennt
fullorðið. Upplýsingar í dag
í síma 6641 frá kl. 2-6 e.li.