Þjóðviljinn - 31.05.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.05.1953, Blaðsíða 1
Sunnudagur 31. maí 1953 — 18. árgangur — 119. tölublað' 6. síða: Pólitísk kjarn- orkusprenging. 12. síða: Okurgróði og sektir 3 millj. Bændur á Vatnslsysuströnd rísa upp gegn yfirgangi Guðmundar og bandaríska hersins: „lönnum strangSega alfar hernaðaraðgerðir og umferð erlendra herja um lönd okkar” „Þeir menn sem leyft hafa þessar aðgerðir í heimildarleysi voru verði látnir sæia þeirri þyngstu refsingu sem lög leyfa að beitt sá gegn landræningjum" Þjóðviljanum bárust í gær svohljóðandi mótmæli landeigenda í Vatnsleysustrandarhreppi, gegn heimildarlausri töku landa þeirra undir skotæfingar bandaríska h©rsins: „Við undirritaðir landeigendur í Vatnsleysustrandarhreppi bönn- um hér með stranglega allar hernaðaraðgerðir, þar með taldar skot- æfingar og umferð erlendra herja um lönd okkar. Við mótmælum þeim aðgerðum sem þar hafa fram farið og þeirri ósvifni að leyfa slíkt að oss forspurðum. Við krefjumst fullra skaðabóta fyrir öll spjöll, óþægindi og tjón sem við höfum orðið fyrir og kunnum að verða af völdum skotæf- inga og að þeir menn sem leyft hafa þessar aðgerðir í heimildarleysi voru verði látnir sæta þeirri þyngsjtu refsingu sem lög leyfa að beitt sé gegn landræningjum. Vatn.<eysustrandarhreppi, Gullbringnsýslu 25. maí 1953. Símon Ki-istjánsson. NeOin-Brunnastööum. (siign). Kristmundur Þorláksson, Brunnastöðum. (sign). Þórður Eiríksson, Halldórsstöðum. •(siign). Sigurgeir Tómasson, Narfakoti. '(sign). Halldór Gíslason, Sjónarhól. (siign). Gísli Eiríksson, Naustakoti. (sign). Sigurður Guðmundsson, Efri-Brunnastöðum. (siign). Sigurjón Sigurisson, Traðarkoti. :(ságn). Þuríður HaTdórsdóttir, Halakoti. (siign). Davíð Stefánsson, Ásláksstöðum. (sign). Sigurjón Jónsson, Nýjabæ. (sign). Þórarinn Einarsson, Höfða. (sign). Brynjólfur Brynjólfsson, Minna-Knarranesi. (sign). Ólafur Pétursson, Knarranesi." (sign). Mótmæli þessi hafa þej»ar verið send Bjarna Bencilikts- syni dómsmálaráðherra og her- námsstjóranum Guðmundi Guð- mundssyni sýslumanni. Lesendum Þjóðviljans er þeg- ar mál þetta að nokkru kunnugt, Ásðtrifendur en 14. maí skýrði Þjóðviljinn frá því að um Tiæstu helgi á undan hefði herinn sett upp toannmerki við skógræktarsvæði Suðumesja manna og inn hjá Vogunum, og 17. þ. m. lýsti Þjóðviljinn þessu landráni allnákvæmlega. JLandið sem Guðmundur Guð- mundsson hernámsstjóri og fé- lagar hans í varnarmálanefnd rændu þarna til afnota fyrir herinn náði frá Stapanum suður undir fjöllin (Fagradalsfjall og þaðan allt inn að Keili). Frá Stapanum hafði einnig verið sett bannmerkjalína skammt fyrir ofan byggðina á Vatnsleysu- ströndinni allt móts við víkina innan við Ásláksstaðahverfið. LAiNDINU VAR BÆNT. Landeigendur á Vatnsleysu- strönd vissu ekki fyrri en þeir sáu bannmerkin heiman að frá sér. Guðmundur Guðmundsson hernámsstjóri, sem stjórnaði því persónulega í fyrra að taka land Hafnamanna undir vfirráð bandaríska hersins, lét fulltrúa sinn ræða við Strandarmenn. Strandarmenn völdu sér fulltrúa, en hann neitaði að eiga aðild að afhendingu landsins. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON HERNÁMSSTJÓRI SAGÐI ÓSATT. Eftir að Þjóðviljinn skýrði frá atferli hersins reyndi Guðmund- ur Guðmundsson hernámsstjóri, er gegnir því hlutverki að leggja íslenzkt land undir bandaríska herinn, að afsaka sig, og sagði í Alþýðublaðinu 19. maí, að samið hefði verið um töku landsins. Og síðast nú í vikunni hældi hann sér af því að hafa kveðið niður upplýsingar Þjóðviljans um að landið hefði verið tekið í heim- ildarleysi. — Þannig umgengst þingmaður Alþýðuflokksins í Gullbringusýslu ' sannleikann! Slíka virðingu toer hann fyrir kjósendum sínum!! BÆNDUM GERT ÓLÍFT. Með töku þessa lands undir bandaríska herinn var bændum á Vatnsleysuströnd gert ólíft á jörðum sínum, því land þetta er þeirra eina beitiland fyrir allan búpeninig þeirra. Ef þeir ætluðu ekki ,að eiga á hættu að kýr þeirra og sauðfé.bæri slíka virð- ingu fyrir bannmerkjum Guð- mundar Guðmundssonar að þær færu ekki yfir bannlínuna! urðu þeir að passa það heima á tún- unum. EIGA STUÐNING ALLRA HEIÐARLEiGRA ÍSLENDINGA Bannyfirlýsing bændanna, sem birt er hér að framan sker úr um það, að lönd þeirra hafa ver- Breyft sfefna í Frakklandi? Mendés-France úr róttæka flokknum, sem tekið hefur að sér að reyna.áð mynda stjórn í Frakklandi. leggur stefnu- skrá sína fyrir þingið á mið- vikudaginn og fer fram á um- boð frá því til stjórnarmynd- unar. Mjög er leitt getum að þrvi að breyting geti orðið á stjórn- arstefnu Frakkíands ef stjórn verði mynduð undii- forystu Mendés-France. Hann hefur oft hvatt til áð Frakkland tæki upp sjálfstæðarj stefnu gagn- vart Bandaríkjunum. Er það í samræmi við óskir gaullista, en nú er viðurkennt að borgaraleg stjórn geti ekki setið til lengd- ar i Frakklandi án stuðnings þeirra. ið tekin í heimildarleysi. Krafa þeirra um aö herinn verði feroit mun vekja fögnuð alira frjálsborinna ísiend- inga. ! þessu máii eiga þeir vísan stuðning ailrar þjóðarinnar. „Við byrjum í ágúst- lok", segir Dawson „Ég trúi því ekki enn.“ segir fram-i kvæmdastjóri stærsta fiskheild- sölufirma Englands Dawson-samningurinn um sölu g íslenzkum ísfiski til Bret- iands heldur áfram að vera umræð.uefni brezkra blaða. „Ég trúi! því ekki enn að Dawson kom: iþessu í kring“, sagði Jack Vin- cent, framkvæmdastjóri Ross-firmans, stærsta fiskheildsölu- firma Bretlands, er hann frétti um samningana. Eftir að samningamir voru undirritaðir sagði Dawson að hann ætlaði sér að koma. með fimm togara á viku til Grims- by (aðalstöðva hans) og Liver- pool. „Hver togari kemur með Stjórnmálafundir ÆF: Hveragerði í — Selfoss annað Stjórnmálafundir Æskulýðs- fyikingarinnar austan fjalls, í Hveragerði og á Selfossi eru í dag og á morgun. Fundurinn í Hveragerði hefst kl. 1,30 í dag. Ræðumenn eru: Haraldur Jó- hannsson, hagfræðingur, Álfheið- ur Kjartansdóttir, verzlm., Sig- urjón Einarsson, stud. theol. og Bjami Benediktsson. hlaðamaður. Il nir ungu snjöl u Jieikarar Gísli Halldór.sson og Karl Guðmunds- son lesa upp. Annað kvöld ilieldur Æsku- lýðsfylkingin almennan stjórn- málafund á Selfossi. Verður fund- urinn í Iðnaðarmannahúsinu og liefst kf. 8,30. Þar tala Haraldur Jóhannsson, E'nar Kiljan Lax- ness, stud. mag., Bjarni Bene- diktsson og Rögnvaldur Guð- jónsson, þriðji maður á lista sós- íalista í Árnessýsiu. (Gísli og Karl lesa einnig upp þar. Alþýðufólk austan fjalls og þá ekki síst unga fólkið ætti að fjöl- menna á þessa opinbcru stjórn- má’afundi ungra sósial'sta. 200—300 tonn af fiski, svo viði ættum að fá 1200—1000 tonn á viku. „Við byrjum í águstlok", sagði Dawson, og bætti því við að hann vonaðizt til að geta haft á boðstólum íslenzkau. fisk „bezta fisk sem fáanlegur er í Evrópu", eins údýrt og, framast er uunt, á miklu lægra verði en nú gerist“. „,Ég legg mína eigin fjár- muni í þetta fyrirtæki, cg gct ekki sagt hversu mikið, og ég geri ekki ráð fyrr að græðn mikið“, sagði Dawson. „Ég á við að etja brezku togaraeigend urna“. IIJÓÐVIUINN 100% og VIÐ höfum náð marki I söfnun hækkunargjalda — 100%. J>aö merklr þó engan veglnn að þeirri söfnun sé lolúð. Vlð skul- um halda áfram enn um sinn, til þess að tryggja sem bezt efna- hagslega undirstöðu stækkunar- innar. Einnig fjölgar áskrlfendum jafnt og þótt, og er þar aðeins •rétt rúmur fjórðungur eftir að marki. Ýmsar flokksdeildir hafa upp- fyilt áætlanlr sínar að fullu og sýnt lofsveröan áhusa í þessum söfnunum, en nokkrar Iiafa dreg- izt aftur úr. Ekki þarf nú meira en að deildiroar íaki á sig dá- litla rögg næstu daga — og er þá markinu náð hillu. Félagar: Munið að þegar mark- inu er náð, er tryggð varanieg stækkun Þjóðviljans. Áskriftasím- inn er “500, og þar er einnlg telc- ið á móti tilkynningum um liækk- unargjöld. Hækkunargjöld 0 74% 100%

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.