Þjóðviljinn - 31.05.1953, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 31.05.1953, Blaðsíða 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 31. maí 1953 Wattar í híó Fyrst stöfuðu vandræðin. af iherrahöttunum, og 'þegar karl- mennirnir voru búnir að læra að taka ofan í bíó, komu háu kvenhattarnir í tízku og marg- ir bíógestir voru í stökustu vandræðum þegar þe r lentu fyrir aftan konu með fagur- ekreyttan hatt. En svo lærðu stúlkurnar líka að taka ofan, en upp á síckastið virðist aftur vera farið að sækja í sama horfið. Stundum hafa karl- mennirnir hattinn á höfðinu meðan á sýningu stendur og konurnar virðast telja sjálf- sagt að þeim léyfist að hafa hattinn á höfðinu ef hann er lítiíl. En lítill hattur getur líka veri'ð vandræíagripur ef hann er skreyttur stórri fjöður eða Flatbotna skór og skór með spennum Flatbotnuðu skómir eru nú mjög í tízku og nú hafa þeir náð útbreiðslu sem spariskór og samkvæmisskór, öllum þeim konum til ánægju, sem hingað til hefur liðið illa í háliæluð- um spariskóm. Það er ekki beinlínis þægilegt að neyðaSt til að fara í hælaháa skó, þeg- ar maður er or'ðinn vanur flat- ■botna skóm, og stundum er erf- itt að halda jafnvæginu. Svörtu rúskinngskórnir eru mest í tízku. Algengastir eru sléttir, opnir skór með öriitlum hæl. Að framan eru þeir nasbitnir. Skóna má nota sem létta gönguskó á sumrin og spariskó á veturna. Til skrauts eru oft notaðar stórar, flatar slaufur eða stórar gullspennur. Eink- um eru gyl’tu speimurnar al- gengar, en oft eru rúskinns- skór skreyttir á látl'ausari hátt rneð sléttum skinnröndum — það er snoturt en erfitt að halda því hreinu ef skórnir eru notaðir utanhúss. Framh. af 12. síðu. 11.7 sek. 3. Grétar Hinriksson Á 12.0 sek. Spjótkast: 1. Jóel Sigui-ðsson ÍR. 53.72 m. 2. Adolf Óskarsson Tý 50.32 rn. 3. Pétur Rögnvalds- son KR. 44:84 m. 1500 m hlaup: 1. Svavar Mark ússon KR. 4:11.2 (nýtt drengja- mejt). 2. Sigurður Guðnason ÍR. 4:14.8. 3. Guðjón Jónsson U.Í.A. 4:21.2. 100 m hlaup kvenna: 1. Mar- grét Haligrímsdóttir U. M. F. R. 14.0 sek. 2. Erla Sigurðardótt- ir U.M.F.R. 15.5 sek. 3. Anna Friðriksdóttir U.M.F.R. 16.5 sek. Mótinu heldur áfram kl. 2.30 £dag. fyrirferðarmiklu slöri. Hatt- prjónar sem standa upp úr alpahúfu geta tka feyðilagt mikið fyrir manninum fyrir aftan, að ekki sé minnzt á hattböndin sem standa út í loftið og blakta í hvert skipti sem stúlkan hreyfir sig. Og kona sem er í nýtízku kápu með stórum kraga, sem hægt er að bretta upp, á að hafa það hugfast að svona kragi er fyrirferðarmikill og það er ekki annað en sjálfsögð kurt- eisi að bretta hann niður. Köflótt efni eru nú miki'ö notuð sem skraut á einlita kjó’a og á myndunum má sjá hve klæðilegt það er, auk þess sem það er ódýr tízka. Hægt er að notfæra sér þessa hugmynd á kraga, sem er slitinn og brún- irnar fainar að trosna. Á jakkanum er mynstrið stórgerð- ara, en það er fallegt og það má nota bæði á jakka og venjulegan kjól. Á myndinni eru það aðeins hornin sem eru köflótt en það er ekki síður fallegt að hafa' allan kragann köflóttan. — Báðar myndirnar eru úr Screen Stori- es og eru dæmi um kvikmynda- tízku, sem almenningur getur notfært sér með litlum tilkostn- aði. FtafmácjKStakmörkun Kl. 10.45-12.30 Summdajjur 31. maí Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna vestur að markalínu frá Flugskálavegi við Viðeyjár- sund, véstur að Hlíðarfæti og það- an til sjávar við Nauthólsvík í Fossvogi. Laugarnes, meðfram Kleppsvegi, Mosfellssveit og Kjal- irnes. Árnes-og Rangárvallasýslur. Mánudagur 1. júní Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár- holtið, Túnin, Teigarnir, íbúðar- hverfi við Laugarnesv, að Klepps- regi og svæðið þar norðaustur af. •A. J.CRONIN: Á annarlegri strönd ii - . i -i .— —== ' .. „Já, hvort ég skil“, sagði Jimmy þungbúinn. „Þér stendur rétt á sama um allt; þess vegna ertu svona déskoti heppin í spilum. Hvenær för- um við af stað ?“ „Við léttum bráðum akkerum. Þegar búið er að sækja fínustu farþegana. Já, þcr lízt ekki á staðinn og skipstj. ekki á innsiglinguna . Enda er hún afleit, ótal sker, lagsmaður. Þú getur fleygt kexicöku út í þau án þess að reyna á þig Ef þú hefðir eins mikið vit á sjómennsku og ég myndirðu skilja hvað það þýðir. Við för- um sjálfsagt af stað eftir hálftíma. Við ætt- um að vera komin til Santa Cruz um fimmleyt- ið. Blessuð gamla Santa! Þegar þangað kemur sérðu ekki í Hemmingway gömlu fyrir ryki. Hún verður ekki lengi að þjóta inn í skönsuna sína. Með lappirnar á teppinu og olnbogana á iborðinu og comido fyrir framan sig. Og það táknar ær- legan matarbita ef þú skilur ekki rnálið. Ég hef ekki notið fæðunnar almennilega upp á síð- kastið. Nei, svei mér þá. Þessi gamli skröggur við borðsendann heldur manni niðri. Það er rétt eins og að éta fisk fyrir utan Buckingham höll. Þetta er éins satt og ég stend hérna“. Allt í einu sneri hún sér við og leit lymsku- lega á hann út undan sér. ,Og fyrst við erum að tala um heilagan sannleika, hvað þykistu þá ætla að gera þegar þú kemur til Santa?“ „Viðskipti", sagði hann og strau'k á sér kjammann, „Fín sambönd" Hún flissaði vantrúuð. „Leystu frá skjóðunni. Þú ga'bbar mig ekki. Þú með þinn bissness! Þú ert enginn Rocke- feller. Ég veit hvað þú varst að gera í Las Palmas. Þú veðsettir silfurnæluna þína. Já, lagsi, losaðir þig við liana, svo að þú hefðir eitthvað handbært í rommí. Og nú er Hemming- way gamla búin að vinna það allt af iþér“. Hún sló ánægjulega á töskuna sem hún hafði um hálsinn. „Þarna er það allt saman. I einkafjár- hirzlunni minni. Og þú ert slyppur og snauður eins og áður“. Hann gapti þegar hann iheyrði iþessar að- dróttanir; hefði hann ekki verið svo annars hugar hefði hann sjálfsagt roðnað. „Hvaða endemis þvættingur er í þér, mann- .eskja. Ég veit ekki betur en það bíði eftir mér vinna um leio og ég stíg á land. Það er allt klappað og klárt. Ég veit ekki -betur en vinur minn Prófessor Sinnott bíði eftir mér með út- breiddan faðminn — til þess að taka mig sem meðeiganda". Hún starði agndofa á hann andartak. Svo fór liún að hlæja. Fyrst hló hún liljóðlega og naut fyndninnar með sjálfri sér. Svo héldu, henni engin bönd: hún hristist og skókst af hlátri og hélt báðum höndum í grindurnar til stuðnings. „Sinnott", veinaði hún. ,.Bog gamli Sinnott sem á litlu búluna hjá nautatorginu. Hamingjan hjálpi mér. Sér er nú hver bissnessinn. Þetta er alveg dásamlegt. Láttu mig þekkja Sinnott gamla. Hann er ekki prófessor fyrir fimm aura. Plann er búimi að vera. Bob er aumingjaræfill, trúðu mér. Hann er að fara á hausinn. Búlan hans er að fara til fjandans og hann fer sjálfur á eftir. Og hann ætlar — hann ætlar að taka þig í félag með sér . . “ Hún fékk aðra hlátursroku. Hann starði á hana undrandi og hneykslaður. „Bannsett bull er þetta“, stamaði hann. „Ein- tómur þvættingur. Við Bob vorum félagar í Colorodo; hatnn skrifaði mér og bauð mér að koma hingað“. Hún þurrkaði sér um augun og tottaði vind- linginn slnn. Bíddu hægur“, sagði hún. „Bíddu hægur og sjáðu til. Bob gamli Sinnott skuldar öllum pen- inga. Hann grípur hvaða hálmstrá sem er. Hann á ekki grænan eyri sjálfur. Hann er staurblank- ur og meira en það“. Dauðaþögn. „Nei“, tautaði hann loks. „Þér skjátlast“. Hún kinkaði kolli með ákefð. „Trúðu mér, lagsi. Þú hefur veðjað á vitlaus- an hest. Þú átt eftir að koma til mín, svei mér — og segja méir fréttirnar í von um brauðmola. En vertu óhræddur. Ég skal ekki láta þig svelta Hemmingway hefur hjartað á réttum stað. Hún er ekki frýnileg en hefur hjarta úr gu:Ji‘• Hún skotraði til hans augunum. Calle de la Tuna númer hundrað og sextán — þar er það. Allir vita hvar ég er. Þar er öllum gert jafnt undir höfði. Bara spyrja hvar mamma Hemm- ingway sé til húsa. Þú getur spurt lögguna ef þér sýnist“. Hún tottaði vindilinn. ,,Láttu þetta ekki á þig fá, lagsi. Hertu upp hugann. Þú ættir að vera eins og frú Baynham. Ekkert get- ur komið henni úr jafnvægi". Hún virtist gera einlæga tilrauú til þess að reyna að fjörga hann. „Hefurðu ekki séð hana í morgun? Kúh gengur um eins og köttur sem hefur fengið rjóma. Og langar þig ekki til að vita hvers vegna?“ Hún lyfti brúnum íbyggilega og það tísti í henni af kátímu. „Hefurðu ekki tekið éftir því ? Tranti litli hefur ekki sézt í morgun. Hann lá í næturvinnu greyið. Sofðu vært, sweet char- iot. Harmoníumleikarinn hallar sér á eyrað þeg- ar hann þorir ekki að horfast í augu við iil- veruna". Cororan starði á hana með ygglibrún. „Að þú skulir láta svona“, sagði hamn loks — og hann var ?nn afundinn. „Þú ætlar öllum allt- af hið versta“. ,,Hið versta“, sagði hún áköf. „Sá ég hann ekki með eigin augum þar sem hann stóð eins og jarmandi, heilagur hrútur við klefadyrnar hennar og foeið eftir því að honum yrði hleypt inn? Plorfði ég ekki á —“ Hún þagnaði um leiðc og Súsanna Tranter kom í ljós og gekk í áttina til þeirra. „Hafið þið séð Leith lækni?“ spurði Súsanna. „Nei“, svaraði mamma Hemmingway óvenju ástúðlega. „Við höfum ekld séð hann, elskan. Við stóðum hérna og vorum að rabba um veðrið og blómin og þvíumlíkt, rósimar ilmandi sem blómstra á vorin, tra, la, la. Svei mér þá, spurðu hann Rockefeller hérna hvort það sé ekki satt. En við höfum ekkert séð t>l læknis- ins okkar. Ætli hann sé ekki inni í ldefanum sínum. Hvað þurftirðu að finna hann, elskan?“ „Það var svo sém ekkert,“ svaraði Súsanna næstum glaðlega. „Ekkert sérstakt.” „Ég vona að bróðir þinn sé ekki lasinn?“ spurði mamma Hemmingway blíðlega. „Ég vona að har.n hafi ekki orðið fyrir neinu skakkafalli." „Hann er dálítið fölur,“ sagði Súsanna. „En það er ekkert alvarlegt að honum.“ „Jæja,“ sagði Hemmingway lágt. „Kannski hann liafi fengið í magann, elskan. Ef til vill hefur hann átt erfiða nótt.“ 6ttm oc cftMMn i Skoti skrlfaði vini sínum: Þvi ert alveg lvættur að skrifa mér. Hversvegna? — I>ú getur fyllt pennann í bankanuni. Móðirin við mann sem bjarj£aði syni liennar frá drukknvm: Ert þú maðurinn sem bjargaðir lionum Nonna lltla — hvar er húfan lians? Heyrðu, ln'ernig mundi þér líka að láta breima þlg? Ja, sjáifsagt ágætlega, en ég vildl gjarnan deyja fyrst. Segðu honum Villa, ef haim kemur meðan ég er burtu, að. ég komi aftur um ld. 2. Já, en hvaö á ég að segja homun ef hanu kemur ekkl?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.