Þjóðviljinn - 31.05.1953, Page 2
£) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 31. maí 1953
;í, 1 dag: er sunnudagurinn 31.
maí. 151. dagur ársins.
Skrýtla um séra Eggert í Vogs-
ósum.
Á hinum fyrstu prestskaparár-
um séra Eggerts í Vogsósum rak
hval á reka Strandarkirkju, og
bar presti að koma hvalnum í
peninga. Nokkru síðar átti prest-
úr tal við kunningja sinn um
þetta og kvaðst hafa haft mikið
fyrir að koma reka þessum í
verð. — Loks verður honum að
orði: „Það vildi ég, að guð gæfi,
að aldrei ræki framar hval á
Strandarkirkju,. — sízt stóran!“
ir 6. júní nk. er útrunninn kæru-
frestur vegna kjörskrár. l*að er
einkum áríðandi fyrir alla, sem
flutt hafa í bæinn frá síðasta
manntali eða frá því í nóv.-
des. sL að athuga hvort nöfn
þeirra standa á kjörskrá.
l’jóðdansaæfingar ganga vel, þátt-
taka er ekki nógu almenn. Gefið
ykkur fi'am við E. Bergmann.
Munið að 1300 krónur af ferða-
kostnaði verða að vera greiddar
fyrir næstu mánaðamót. Enn-
fremur eru þeir, sem kynnu að
verða að hætta við förina, varað-
ir við að frá og með 1. júní
verða 300 krónur óendurkræfar,
vegna áfallins kostnaðar.
ÆSKILEGT er að þeir, sem
ekki hafa gild vegabréf, afli sér
;þeirra sem fyrst. Viðvikjandi
myndatöku er nauðsynlegt að at-
huga að undirbúningsnefndin þarf
að fá fjórar myndir, en ekki að-
eins tvær eins og áður hefur ver-
ið sagt.
eyja.
Söngæfing annað ktöld eí'tir
fundinn.
Á hvítasunnudag
opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú
Nanna Aðalsteins-
dóttir Búðardal og
Guðmundur Magn-
ússon Siglufirði. Ennfremur ung-
frú Katrín Karlsdóttír Breiðaból-
stað Dölum og Vigfús Baldvins-
son Búðardal.
★ Kosningar erlendis fara fram í
skrifstofum sendiráða, eða út-
sends aöalræðismanns, útsends
ræðismanns eða vararæðis-
manns íslands.
tingbarnavemd Líknar
Templarasundi 3 er opin þriðju-
daga kl. 3,r’—4 og fimmtudaga kl.
I3"—2"°.. — Á föstudögum er opið
fyrir kvefuð börn kl. 31!—4.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Skrifstofa félagsins er í Lækj-
argötu 10B, opin dagiega kl. 2-5.
Sími skrifstofunnar er 6947.
llelgidagslæknir er í dag Arin-
björn Ko'beinsson Miklubraut 1.
— Sími 82160.
Næturvarzla í Laugavegsapóteki.
Simi 1618.
Nú mála ég áreiöauiega meistaraverkið mitt bráðum: „VISAÐ Á
GÖTUNA“, í olíulitum
jxfciíitkíteh.
Gjörið svo vel að gefa kosn-
ingáskrifstofunni uppiýsingar
nm kjósendur Sósíalistaflokks-
ins sem eru á förum úr bæn-
um, og um þá sem utanbæjar
og erlendis dveljast.
I gær fæddist hjón
unum Ágústu
Björnsdóttur og
Lofti Ámundasyni,
Hiíðarvegi 15, 18%
marka sonur.
•fa Kosningaskrifstofa Sósíalista
fiokksins gefur allar upplýsing-
ar varðandi kosningamar.
/9Ín £
/ A \ art.J
.00 Morguntón-
ieikar: a) Strengja
kvartett í A-dúr
K464) eftir Moz-
b) Píanókvint-
ett í Es dúr op. 44
eftir Sehumann. 14.00 Messa í Hall
grímskirkju. Séra Jón Þorvarðs-
son. 15.15 Miðdegistónleikar: a)
Píanósónata í G-dúr op. 31 nr. 1
eftir Beethoven. b) 15.45 Lúðra-
sveit Rvíkur leikur. 18.30 Barna-
tími (Þorst. Ö. Stephensen): a)
Bangsimon og vinir háns eftir
Milne; V. (llelga Valtýsdóttir). b)
Tvær systur syngja með gítarleik.
c) Bernskuminning (Guð’augur
Guðmundsson), — o. fl. 19.30 Tón-
leikar: Milstein leikur á fiðlu.
20.20 Erindi: Sikiley (Eggert Stef-
ánsson söngvari). 20.45 Tónleik-
ar: Píanóleikur og einsöngur rúss
neskra listamanna. 1) Tatjana
Kravtsenko leikur á píanó: a)
Sónata í cís-moll op. 27 nr. 2
(Tunglslcinssónatan) eftir Beethov
en. b) Þrjú lög eftir Grieg. c)
LæviTkinn eftir Glinka-Balakirov.
d) Vals og Scherzo a la Russe
eftir Tschaikowsky. 2) Pavel Lís-
ítsían óperusöngvari syngur: a)
Við sitjum saman eftir Tschai-
kowsky. b) Aría úr Spaðadrottn-
ingunni eftir Tschaikowsky. c)
Aría úr Snædrottningunni eftir
Rimsky-Korsakov. d) Persneskur
söngur eftir Rubinstein. e) Ar-
menskur söngur eftir Duluchanj-
an. f) Tvífarinn eftir Schubert.
g) Aría úr óperunni Faust eftir
Gounod. h) Þjóðlag frá Úkraínu.
i) Aría ÚL' óperuttni La' Traviatá
eftlr Verdi. 22.05 Gamlar minning-
ar: Gamánvísur og dægurlög,
Hljómsveit undir stjórn Bjarna
Böðvarssonar leikur. Söngvarar:
Soffia Karlsdóttir, Árni Brands-
son, -Eriingur Hansson og Róbert
Arnfinnsson. 22.35 Danslög. 23.30
Dagskrárlok, — Útvarpið á morg-
un: 19.30 Tónieikar: Lög úr kvik-
rtlyndum. 20.20 Útvar-pshljómsveit-
in: Þórarinn Gúðmundsson stjórn-
ar: Lagaflokkur úr óperettunni
Eva eftir Lehár. 20.40 Um daginn
og veginn (séra Gunnar Árna-
son). 21.00 Einsöngur: Jón Múli
Árnason syngur; a) Blítt er und-
ir björkunum eftir Pál ísólfsson.
b) Helvíti eftir Krístján Kristjáns
son. c) Fylgd eftir Sigursvein D.
Kristinsson. d) Rússneskt lag eft-
ir Saslawski. e) Brezkt þjóðlag;
B. Britten raddsetti. f) Amerísk-
ur negrasöngur eftir J. Wolfe.
21.20 Dagskrá Kvenfélagasam-
bands íslands. — Frá Húsmæðra-
skóla Suðuriands á Laugai-vatni.
21.50 Búnaðarþáttur: Hvað tefur
mýraræktunina? (Ásgeir L. Jóns-
son). 22.10 Iþróttaþáttur (Sigurð-
ur Sigurðsson). 22.25 Dans- og
dægurlög: Kurt Foss og Reidar
Böe syngja. 23.00 Dagskrárlok.
Söfnln
Uandsbókasafmð: kl. 10-12, 13-19,
20-22 alla virka daga nema laugar-
daga kl. 10-12 og 13-19.
Þjóðisinjasafnið: kl. 13-16 ásunnu-
dögum, kl. 13-15 á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum.
Lista&afn Einars Jónssonar opnar
frá og með mánaðamótum. — Opið
alla daga kl. 13.30—15.30.
Náttúrugripasafnið: kl. 13.30-15 á
sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudög-
um og fimmtudögum*
Bólusetning gegn barnaveiki.
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 2. júni kl. 10—12 f.li. í
síma 2781.
GENGISSKBÁNIÍS’G (Söiugengi):
1 bandarískur dollar kr. 16,41
1 kanadískur dollar kr. 16,79
l enskt pund kr. 45,70
100 danskar kr. kr. 236,30
100 norskar kr. kr. 228,50
100 sænskar kr. kr. 315,50
100 finsk mörk kr. 7,09
L00 belgískir frankar kr. 32,67
10000 franskir frankar kr. 46,63
100 svissn. frankar kr. 373,70
100 tékkn. kcs. kr. 32,64
100 gyllini kr. 429,90
1000 lírur kr. 26,12
Kjörskrá fyrir Reylcjavík ligg-
ur frammi í kosningaskrif-
stofu Sósíalistaílokksins. Þórs-
götu 1.
MESSUR f DAG:
Laugarneskirk ja:
Messa kl. 2 e. h.
Séra Garðar Svav-
arsson. — Lang-
holtsprestakall:
Messa: kl. 11 í
Laugarneslcirkju. (Ath. breyttan
messutíma). Séra Árelíus Níels-
son. — Háteigsprestakall: Messa í
Hallgrímskirkju kl. 2. Séra Jón
Þorvarðsson. — Fríldrkjan: Messa
kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson.
— Haligrímskirkja: Ferming kl.
11 árdegis. Séra Jakob Jónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h.
Séra Óskar J. Þorláksson.
BÆ JARTOGARARNIR:
Ingóifur Arnarson landaði ís-
fiski 27. þm. sem hérf’segir: Þorsk
ur 65 tonn, ufsi 28% tonn, karfi
og annar fiskur 6% tonn. Af salt-
fiski hafði skipið 135 tonn og 15,2
tonn af lýsi. Skipið fór aftur á
veiðar 28. þm.
Slcúli Magnússon kom 28. þm.
með ca. 200 tonn af ísfiski og 90
tonn af saitfiski. Skipið fer í klöss
un.
Iíallveig Fróðadóttir fór á veið-
ar 21. þm.
Jón Þorfáksson fór á veiðar 19.
þessa mánaðar.
Þorsteinn lngólfsson fór á veið-
ar 22. þessa mánaðar.
Pétur Halldórson landaði 25.
þm. ísfiski sem hér segir: 241
tonn þorskur 44 tonn ufsi, 12 tonn
ýsa og annar fisltur. Af saltfiski
hafði skipið 44- tonn, mjöli 14
tonn og 16,6 tonn af lýsi. Skipið
fór aftur á veiðar 26. þessa mán-
aðar.
Jón Baldvinsson landaði 26.
þm. 154% tonni af saltfiski og
53 tonnum af ísfiski. Skipið hafði
20% tonn af mjöli og 15,441 tonn
af iýsi. Skipið fór aftur á veiðar
29. þessa mánaðar.
Þovkeil Máni fór á Grænlands
mið 21. þessa mánaðar.
1 vikunni unnu 220 manns við
ýmis framleiðslustörf í fiskverk-
unarstöð Bæjarútgerðarinnar.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík Esja er á
leið frá Austfj. til Akureyrar.
Herðubreið er í Rvík og fer það-
an á morgun austur um land til
Raufarhafnar. Skjaldbreið er í R-
vík og fer þaðan á morgun vest-
ur um land til Akureyrar. Þyrili
er í Rvik. Skaftfellingur fer frá
Rvílc á þriðjudaginn til Vestm,-
EIMSKIP:
Brúarfoss er væntanlegur til R-
víkur um miðnættið. Dettifoss fór
frá Rvík i gærkvöldi austur og
norður um land. Goðafoss er í
Rvík. Gullfoss fór frá Kbh. um
hádegi í gær áleiðis til Leith og
Kbh. Lagarfoss fór frá Rotterdam
í gær áleiðis til Rvíkur. Reykja-
foss fór frá Seyðisfirði í fyrra-
dag suður um firði. Selfoss er á
leið til hafna í Suðursvíþjóð.
Tröllafoss er í N.Y. Straumey fór
frá Rvík. í gærkvöld. Vatnajökull
fór frá Hull í gærkvö'di áleiðis til
Rvíkur.
Skipadeild S.I.S.:
Hvassafell fór frá Fáskrúðsfirði
30. þm. áleiðis til Finnlands. Arn-
arfell losar timbur á Austfjörðum.
Jökulfell er á Vestfjörðum. Lest-
ar frosinn fisk.
ic Allir þeir sem vilja hjálpa til í
f jársöfnuninni í kosnlngasjóð
eru beðnir að taka söfnunar-
gögn í kosningaskrifstofunni.
ár Gefið kosningaskrifstofu Sósí-
alistaflokksins upplýsingar um
alla þá kjósendur floklisins,
sem eru á förum úr bænum
cða dvelja utanbæjar eða er-
Iendls og þá hvar.
Iírössgáta nr. 90.
Lárétt: 1 rógbera 7 til 8 spil 9
þynnka 11 þrír eins 12 hljóðstafir
14 félag 15 veltust 17 titill 18
kvennafn 20 fjölmargar.
Lóðrétt: 1 ílát 2 álpast 3 lík-
amshl. 4 tré 5 gljái 6 þrammar
10 strit 13 dugleg 15 fugl 16 sár
17 upphr. 19 itveir eins.
Lausn á krossgátu nr. 89.
Lárétt: 1 molar 4 dý 5 Án 7
efi 9 men 10 nýt 11 nón 13 ró
15 ær 16 skatt.
Lóðrétt: 1 mý 3 rá 4 dömur
6 nætur 7 enn 8 inn 12 óra 14 ós
15 æt.
★ Teiltningar eítir Helgr Kiihn-Nielsen
52. dagur.
Nú var Filippus prins 15 ára að aldri og
oft sást hann snuðra um við herbergi
hirðkvennanna og heyrðist deila harkalega
við hina ástfangnu hirðsveina.
Ef einhver söng angurblíða ástarvísu undir
glugga ástvinu sinnar var prinsinn vís til
að koma út í nsesta giugga óg gretta síg
framan í hann með iilyrmislegu glotti.
Við hirðina var meðal annarra ein flæmsk
stúlka, kát í lund og mjög ör í skapi.
Hún fór til fundar víð unnusta sinn hvern
dag á ákveðnum tíma.
inssrtasM
Filippus settist á bekk og sat þar fyrú'
henni, og er hún kom þjótandi á leið til
stefnumótsins sagði hann: Ungfrú, vilduð
þér ekki nerna staðar allra snöggvast?
Sunnudagur 31. maí 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Sjúkraskýli Bauða kiossins í Sandgerði
650 hjúkrunaraðgerðir — 630 sjúkra-
vitjanir í verbúðir og heimahús
Sandgerði, 21. mai. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Eins og undanfarnar vetrarvertíðir, hefur Rauði kross tslands
starfrækt sjúkraskýli sitt hér í Sandgerði.
En sjúkraskýlið var byggt árið
1936, og hefur verið starfrækt
hverja vetrarvertið síðan. í hús-
inu eru tvær sjúkrastofur, er
rúma tvo sjúklinga hvor. Auk
þess er á hæð hússins móttöku-
herbergi fyrir sjúklinga og íbúð
fyrir starfslið. í kjallara er kom-
ið fyrir böðum til afnota fyrir
almenning. Þar er og þvottahús,
miðstöð, geymsla og tvær stofur,
þar sem verið er nú að koma
fyrir Ijóslækningateekjum, sem
kvenfélagið Hvöt í Sandgerði
keypti á s.l. árj og gaf sjúkra-
skýlinu. Er gert ráð fyrir að
starfræ’ksla ljóslækningatækj-
anna geti hafizt með haustinu.
Verður það til mikils hagræðis-
og heilbriigðisauka fyrir Sand-
gerði og nágrenni.
Fjárhagsleg afkoma sjúkráskýl-
isins hefur jafnan verið erfið,
enda hefur það aldrei notið fjár.
framlags frá hinu opinbera. En
þar sem sjúkraskýli þetta er hið
eina, sem starfar hér á öllu
Reykjanesi, má það furðu gegna
að hvorki ríki, sýslufélagið eða
þá hreppsfélagið skuii ekki hafa
iagt eitthvað af mörkum til þess-
arar starfsemi. Hinsvegar hafa
útgerðarmenn og sjómenn kunn-
að að meta starfrækslu þessa og
sýnt það í verki með meiri eða
minni fjárgjöfum á vertíð hverri.
Sterk hreyfing fyrir forgöngu
kvenfélagsins hefur verið um
stofnún Rauða kross deildar hér,
í því augnamiði að hlynna að og
auka starfsemi Rauða krossins
hér, meðal .annars að vinna að
því að sjúkraskýlið verði starf-
rækt allt árið. En af einhverjum
ástseðum hefur stjórn Rauða
kross íslands ekki. viljað stofna
hér deild, og þykir mörgum all-
einkennilegt. Það skal þó tekið
fram, að frk. Margrét Jóhannes-
dóttir, hjúkrunarkona, og Krist-
inn Stefánsson framkvæmdastjóri.
R.K.Í., hafa bæði sýnt þessu máli
áhuga og góðan skilning.
En frk. Margrét Jóhannesdótt-
ir, hjúkrunarkona, hefur veitt
sjúkraskýlinu forstöðu allar vetr-
arvertíðir frá og með vetrar-
vertíð 1945 að einni undanskil-
inni, er hún var við heilsuvemd-
arnám erlendis. Er því nú að
ljúka 8. starfsvetri hennar hér.
Hefur hún í starfi sínu notið
vaxandi vinsælda og óskoraðs
trausts allra.
Auk forstöðukonunnar hefur
alltaf verið ein starfsstúlka á
skýlinu, en héraðslæknir, Karl
Magnússon, hefur haft umsjón
með skýlinu, og læknarnir í
Keflavík jafnan verið til viðtals
þar einn dag í viku.
í vetur hafa 25 sjúklingar legið
í sjúkraskýlinu, en flestir stuttan
tíma. Er það aðallega vertíðar-
fólk, sem hefur legið þar með
ýmsa umferðakvilla. Einn sjúkl-
ingur, er fluttur var þangað stór-
slasaður og dauðvona, lézt þar.
Auk þess sem hjúkrunarkonan
hefur annast þessa sjúklinga,
hefur hún í vetur framkvæmt um
650 hjúkrunaraðgerðir í skýlinu
og farið 630 sjúkravitjanir í
verbúðir og heimahús. Um 700
baðgestir hafa notfært sér böðin
í vetur.
Þá er þess enn að geta, að
hjúkrunarkonan hafði í vetur,
sem undanfarna vetur, heilbrigð-
iseftirlit í barna- og unglinga-
skólanum og námskeið í hjálp í
viðlögum fyrir nemendur ungl-
ingaskólans.
Af þessu stutta yfirliti má vera
ljóst, að hér er ærið nóg starf
fyrir hjúkrunarkonu.
ísl þjóð-
emi og skóiana heíst 11 júní
Fyrir nokkru var frá því skýrt hér í blaöinu að Samband
íslenzkra barnakennara myndi í sumar efna til svonefnds
uppeldismálaþings, þar sem rætt yröi um íslenzkt þjóðerni
og skólana. Nánari tilhögun þingsins hefur nú verið á-
kveöin, það veröur sett 12. júlí n.k. og er ráögert aö standi
yfir í þrjá daga.
Athugasemd og svar
„Ot af forsíðugrein. í Þjóð-
viljanum 27. maí sl. vill Sam-
band ísl. samvinnufélaga taka
fram, að það er með öllu til-
hæfulaust hjá blaðinu, að SÍS
standi í samibandi við nokkur
„dularfull dönsk fyrirtæki“ um
saltfisksölu. Það, er einnig tii-
hæfulaust, að Sambandið sé
hluthafi eða meðeigandi í
nokkru dfnsku fyrirtæki.
Samhandið tók fyrir hálfu
öðru ári að sér umboðsstöií
fjnir SÍF í Danmörku, og hef-
ur Kaupmannahafnarsknf-
stofa Sífá annazt þau um-
boðsstörf eftir beztu getu fyr-
ir lægstu umboðslaun, sem
nokkrir umboðsmenn SÍF fá
hvort sem þeir eru íslenzkir eða
erlendir. Ef Sambandlð hefði
ekki tekið þessi störf að sér.
mundu þau hafa verið unnin
af erlendu fyrirtæki, sem áður
fór með umboðið í Danmörku.
Við liverja sölu á saltfisk-
farmi um Danmörku var til-
greint, hvar fiskurinn var veidd
ur, en mest af honum var
Grænlandsfiskur og því seldur
sem slíkur. Kaupendur báru
alla ábyrgð á fisknum frá því
hann var tekinn úr skipi í Es-
bjerg, og verða íslenzkir aðilar
ekki ásakaðir um meðferð han.s
frá yfirkjörstjóniimii í ílafnarfirði
í framboöi í Haínaifirði við kosningar til Al-
þingis 28. júní 1953 eru þessir menn:
Emil Jónsson, vitamálastjóri, Kirkjuvegi 7
Ilafnarfiröi, fyrir Alþýöuflokkinn.
Eiríkur Pálsson, lögfræöingur,. Suðurgötu 51
Hafnarfiröi, fyrir Frarnsóknarflokkinn.
Magnús Kjartansson, ritstjóri, Háteigsvegi 42
Reykjavík, fyrir Sameiningarflokk alþýöu —
Sósíalistaflokkinn.
Ingólfur Flygenryng, framkvæmdastjóri, Suður-
götu 70 Haínarfiröi, fyrir Sjálfstæöisflokkinn.
YfirkjÖrstjórnin í Hafnarfiröi, 30. maí 1953.
Bjöm Ingvarsson, Guðjón Guðjónsson,
Sigurður Kristjánsson.
eftir það, sízt af öllu Hafnár-
skrifstofa SÍS.
Virðingarfyllst,
Samband ísl. samvinnúfélaga.“
Eins og sjá má ber SÍS ekki
á móti því að hafa þegið um
750.000 kr. í milliliðaálagnkigu
á Esbjergfiskinum ofan á 500.
000 kr. sem SÍF hirti.
Um danska fyrirtækið sem
SÍS skipti við er það að segja,
að það dylst engum að þar er
um algert leppfyrirtæki að
ræða og að íslenzkir fjárafla-
memn eru þar þátttakendur,
þótt SÍS þykist geta svarið
formlega af sér. En getur Vil-
hjálmur Þór neitaö því með
góðri samvizku?
SÍS telur danska fyrirtækið
(og þar með hina íslenzku bak-
menn þess) bera ábyrgð á hinni
hrakalegu meðferð fisksins og
því að hann er seldur til ítálíu
sem íslenzk framleiðsla. SÍF og
SÍS, sem einoka útflutninginn.
ber þó að tryggja að ekki sé
gengið eins freklega á rétt ís-
lendinga. og raun ber vitni,
höfða þá mál á Danina og
reyna að bæta með slíku móti
úr þeim mannorðshnekki sem
íslendingar hafa beðið í einu
helzta markaðslandi sínu af
þessum viöskiptum. Hvemig
þau mál þróast sýnir bezt
hversu hreinan skjöld SÍS telur
sig bera.
Samband ísl. barnakennara hef-
ur haldið landsfundi árlega írá
stofnun þess; annað árið hafa
veríð rædd launa- og stéttarmál
en hitt árið ýms almennari mál,
sem sner.ta kennarastéttina beint
og óbeint, og hafa þessir síðar-
nefndu fundir verið nefndir upp-
eldismálaþing. Skipun þessi á
landsfundum sambandsins hafa
haldizt síðan árið 1934.
Þeir dr. próf. Einar Ólafur
Sveinsson og dr. Broddi Jóhannes
son haf.a verið fengnir til að
flytja erindi á þinginu í sumar,
en það hefst eins og áður er get-
ið í Melaskólanum í Reykjavik
hinn 12. júní n.k. Formaður
Samb. ísl. barnakennara, Arn-
grimur Kristjánsson skólastjóri,
setur þingið með stuttu ávarpi kl.
9.30 að morgni en því næst á-
varpar Björn Ólafsson mennta-
málaráðherra, þingfulltrúa. Þá
flytur Einar Ólafur erindi sitt.
Við setninguna mun allfjölmenn-
ur kór 10 ára telpna úr Mela-
skólanum syngja undir stjórn frú
Guðrúnar Pálsdóttur. Forseti ís-
lands mun verða viðstaddur setn-
ingarfundinn.
■Uppeldismálaþing Samb. ísl
barnakennara hafa áð jafnaði
verið fjölsótt, t. d. sóttu um 150
kennarar síðasta þing, þar af um
helmingur utan af landi. Er búizt
við að þátttaka verði ekki minni
í sumar en í hittifyrra.
Það hefur verið venja sam-
bándsins að bjóða öðrum en
barnaken’nurum að senda full-
trúa á uppeldismálaþingin, þegar
rædd hafá verið mál, er snerta
aðrar stéttir, og á þingið í sumar
hefur Félagi framhaldsskólakenn-
ara og Félagi menntaskólakenn-
ara verið boðið að senda nokkra
gesti, er hafi fullt málfrelsi og
tillögurétt.
Meðan þingið stendur verður
þátttakendum kynnt rækilega
Þjóðminjasafnið og einnig mun
Jón Þorleifsson listmálari sýna
og skýra Listasafn ríkisins.
--------------------------------
12 ára telpa
cskast í vist til að gæta
barns á 2. ári. Upplýsingar
í síma 5913 í dag og á
mcrgun eftir klukkan 5.
Frá kosEÍRCfaskriístofu SósíaSistóflokksinsí
eru
Skiladagns í kossúngasféS á znorgun
Kæmíresmr rcnmir út 6. fáns n. k.
NániskeiS í upp-
eMisíræðum
Háskóli íslands hefur stofnað
til nátoskeiðs í uppeldisfi-æSi
fyrir þá kandidata, sem háskóla-
prófi hafa lokið, eftir að krafizt
var að lögum uppeldisfræðináms
gagnfræða- og menntaskólakenn-
ara, en áður en kostur gafst á
slíku námi hér við háskólann. Að
tilmælum fræðslumálastjóra hef-
ur og öðrum framhaldsskóla-
kennurum verið heimilað að sitja
námskeiðið. Það verður sett 5
háskólanum mánudaginn 1. júní
kl. 10 árilegis af forseta heim-
spekideildar, pi'ófessor Stein-
grími J. Þórsteinssyni. Daglega
kennslu annast prófessor SimOn
Jónasson. Námskeiðið stendur til
júníloka.
Kosningaskrifstofa Sósíalista
fiokksins YÍll minna alla
stuðningsmenn C-íistans á
eftirfarandi:
KOSNING ASJÓÐUR: Söfn-
un í kosningasjóðinn er nú
hafin fyrir nokkru og hafa
skil borizt nú þegar frá
nokknnn deildum. Innan
skamiDs hefjum við opinber-
lega samkeppni milli deild-
anna óg verður röð dcild-
anna birt þá. Þá þnrfa all-
ar deildir að vera komnar
á blað og framlag þeirra
orðið sem mest. Skiladag
höfum víð á morgun
og cru allir félagar og aðr-
ir stuðningsmenn hvattir til
þess að gera þá skil. Þær
þrjár deildir sem efstar
verða að lokum fá hver iuu
sig til ráðstöfunar fcrð á
æskulýðsmótið í Búkarest í
sumar fyrir einn mann. Þær
ferðir geta hverjir sem eru
öðlast hvort sem þeir eru í
flokknum eða utan lians svo
framarlega sem hann verður
efstur í sinni deild. Félagar
og aðrir stuðningsmenn C-
listans hefjið starfið strax.
Komið í skrifstofu Sósíal-
istaflokksins Þórsgötu 1 og
skilið og takið blokkir til
söfnunar. Atliugið að hver
króna fyllir mælinn og ekk-
ert er það smátt að ekki
komi að notum fjTÍr lista
alþýðunnar C-listann.
UTANKJÖRSTAÐAAT-
KVÆÐAGEEIÐSLA hefst
um mánaðamótin. Þeir kjós-
endur sem eru á förum úr
Reykjavík til útianda eða út
á land mega ekki gleyma
að kjósa áður en þeir fara.
Þeir kjósendur sem dvelja
fjarri lögheimikim sínum
geta kosið hjá næsta hrepp-
stjóra, bæjarfógeta eða sýslu
mamii ef þeir dvelja á ís-
landi en hjá aðalræðis-
manni, ræðismanni eða vara-
ræðismanni ef þeir dvelja
utanlands. — Kosningaskrif-
stofa Sósíalistaflokksins veit
ir allar nauðsynlegar upp-
lýsingar varðandi utankjör-
staðaatk\-æðagreiðsluna. Haf
ið samband við lia.na og gef-
ið upplýsingar um kjósend-
ur floklcsins er dvelja f’jarri
lögheimilum sínum. KJÖR-
SKRÁ: Allir þurfa að at-
huga hvort þeir eru á, kjör-
skrá og einkum þó þeir sem
flutt hafa nýlega. Eftir 6.
júní er það um ’seinan því þá
rennur kærufrestur inn á
Igjöskrá út. Kosningaskrifst.
Sósíalistaflokksins veitir all-
ar upplýsingar viðvikjandi
kjörskrá og kærum. Stuðn-
higsmenn C-listans vinnið að
sigri flokksins. Hafið sam-
band \ið kosningaskrifstofu
Sósíalistaflokksins Þóregötu
1. Sími 7510 (þrjár iínur).
opin frá ki. 10 f;h. lil 10
eftir hádegL