Þjóðviljinn - 03.06.1953, Side 5
Miðvikudagur 3. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (5
SSSsil
Tilraun rennir stoðuzn undir kesmingu um
uppruna lífs á förðinni af
Opnar jafnframt möguleika til
eggjahvltuefnis i verksmiSjum
Bandarískir vísindamenn hafa skýrt frá árangTi af til-
raunum, sem styðja kenningu sovétvísindamanns um upp-
runa lífs á. jörðinni. Árangur þeirra gefur einnig v.onir um
að takast rregi að framleiða eggjahvítuefni í verksmiðjum.
Sovétvísindamaðurinn
A. I.
Oparin þar fram þá kenningu,
að upphaf lífsins á jörðinni hefði
verið að eggjahvítuefni hefðu
myndazt af gastegundum eins
og methan, ammóníaki og vatns-
sp
;íoa i verki
Brezka nýlendustjórnin í Ny-
asalandi í Mið-Afríku hefur gert
skozka trúboðinn Michael Scott
landrœkan og sent hann nauð-
ugan með flugvél til London
Scott hefur árum saman helgað
sig þvi að verja Afríkumenn
fyrir undirokun og illri meðferð
hvítra manna. Hann var gerður
útlægur frá Suður-Afríku fyrir
að leggja fyrir SÞ staðreyndir
um ráðstafanir Suður-Afríku-
stjórnar til að útrýma Hereros
þjóðinni í Suðvestur-Afríku.
Undanfarið hefur Scott tekið þátt
í skipulagningu baráttu Afríku-
manna gegn stofnun sambands-
rikis i Mið-Afríku undir stjórn
hvítra manna. Brezka stjómin
hefur ákveðið að stofna slíkt ríki
'af Norður- og Suður-Rhodesíu og
Nyasalandi.
tífivamskiðsla uarð
. dmecj að Isasia.
Þriðjudaginn í síðustu viku
var Torben Hauge, tveggja ára
gamall, að leika sér í garði afa|
síns í Söborg í Noregi, þar sem
hapn v.ar í heimsókn með for-
eldrum sinum. Allt í einu rak!
drengurinn upp óp og þegar
móðir hans kom að var hann lát-
inn. Hafði hann komið við leiðslu
að útvarpstæki, sem farið hafði
verið með út í garðinn. Raf-
straumurinn hafði brennt hann
mjög á höndum og brjósti.
efni. Þessar gastegundir mynda
lofthjúp reikistjarnann.a Júpí-
ters og Satúrnusar og talið er
víst að sama máli hafa gegnt
um jörðina fyrir mörgum millj-
ónum ára. Súrefnið í andrúms-
lofti jarðarinnar mun hafa komið
síðar fyrir tilverknað grænu
jurtanna.
í vetur skýrði .bandaríski pró
fessorinn og nóbelsverðlauna-
maðurinn Harold C. Urey frá þvi
að einn af nemendum sinum væri
að sannreyna kenningu Oparins
með tilraunum.
Gerviandr úmslof t.
Nemandi þessi, Stanley L. Mill-
er, sem er aðeins 23 ára gamall,
skýrir frá árangri tilraunar sinn-
ar í vísindaritinu Science. Hann
fy.llti lokað glerhylki af vatni,
methan, ammóníaki og vatnsefni.
Vatnið var hitað og vatnsgufan
flutti hin-ar gastegundirnar fram
hjá rafneista, svonefndum krónu-
neista, sem hafður var til að líkja
eftir áhrifum sólarljóssins á hinn
frumstæða lofthjúp jarðarinnar.
Amínósýrur myndast.
Eftir viku var blandan í tæk-
inu efnagreind. Millér hafði í
hæsta lagi gert sér vonirúim að
finna þar efnasambönd; sem
verið gætu undanfarar amínó-
sýranna, sem mynda hin ýmsu
afbrigði eggjahvítuefna Vonir
hans rættust og meira en það.
Myndazt höfðu að minnsta kosti
þrjár amínósýrur. Er það í fyrsta
skipti sem þær eru myndaðar i
efnarannsóknarstofu og gæti það
orðið fyrsta skrefið til fram-
leiðslu gervikjöts, gervieggja eða
annarra eggjahvítusambanda.
Hafa ekki myndað líf.
Urey og Miller dettur. ekki
hug að halda því fram að þeir
hafi myndað líf. Það s^m þeir
hafa gert er að sanna þ.^ kenn-
ingu Oparins, að flókin, lífræn
efni geta myndazt við efnabréyt-
ingar af þeim gastegundum, sem
telja má vísf að mikið h^fi verið
af í lofthjúp þeim, sem umlukti
jörðfina ó æ|skuskeiði hennar.
Milljónir ára hlióta að hafa liðið
frá því fyrstu lífrænu efnin
mynduðust þangað til fram kom
sameind, sem megnaði að aðlaga
sér aðrar sameindir og mynda
eftirmyndir af sjálfri sér. Það
var fyrsta lífveran, hæfileikinn
til að vaxa og auká kyn sitt
greinir lifandi efni frá dauðu.
íshrap viS Græn-
land veldnr ships-
alveg
taif laiBsarlátiis
Aldraður vinbóndi í Frakk-
landi, Pierre Ducat, lá um dag-
inn fyrir dauðanum og var þó
maður til að bera upp að vör-
unum flösku með bezta víni
sveitarinnar, sem hann hafði hjá
sér í rúminu. Sálusorgari bónda
kom í héimsókn, varð þungbúinn
þegar hartn sá flöskuna og mælti:
—• Á ég að trúa þvi Pierre
Ducat, að þetta sé þín einasta
huggun á þessari alvörustund.?
— Ónei prestur minn, svaraði
■bóndi hughreystandi, ég á meira
af svona góðu undir rúminu.
i
Eftf r lömunarveikifaralduriim (
tnikla í Kaupmannaliöfn í i
fyrra var komið upp æfinga- *
hæli fyrir lömunarsjúklinga í (
Holbæk, í húsi sem áður var
hótel. Fyrir þessu gekkst'
danskt félag til styrktar fötl- (
uðum. Á myndunum sem eru i
frá þessu liæli, sjást fömuð'
böm í æfingum, sem með tím-
anum munu gefa þeim kraft- <
ana aftur. Ðrengurinn lengst (
til vinstri getur ekki gengiö |
en liann æfir vöðvana með1
þvi að ýta sér áfram í vagni,
á hjólum. Börnin á nSiðmynd-
inni æfa vöJvana í kubbaleik 1
og til hægri eltir lítill sjúkl-1
ingur kefli. íslendingar, sem I
vilja stýðja að því að svona 1
hæiji komist upp liér á Iándi, |
geta gert það með þvi að1
ganga í Styrktarfélág lámaðra
og fatlaðra og með því að,
kaupa eldspýtustokkana, sem 1
seldir eru til ágóða fyrir það.1
Harold Urey.
Á hvítasunnudag fóru níu
menn frá stöð danska flotans :í
Grönnedal á Grænlandi siglandi
á vélbát þangað sem skriðjökull
gengur fram í Arsukfjörðinn. Um
1 leið og matsveinninn kom upp á
þilfar til að bjóða félögum sín-
um að gera svo vel, hrundi end-
inn á' skriðjöklinum í sjóinn og
af varð svo rnikill öldugangur,
að al'lt lauslegt og allir menn
skoluðust fyrir borð á bátnum,
sem var þó staddur kílómeter
frá jöklinum. Mennirnir komust
aftur um boi'ð en báturinn tók
að leka og varð að renna honum
upp sandrif og ’gera út leiðangur
til að bjai-ga áhöfninni.
Sðeínulcvsi Eisenfeowesrs ossök bioimngs
v@sta?blakka£iimas
Aðalmálgagn sænsku ríkisstjórnarinnar segir, að þró-
i’n lieimsmálanna sannii æ betur hve viturlega Svíar
hafi farið að þegar þeir neituðu að ganga í Atlanzhafs-
bandalagið.
Morgon-Tidningen, blað sósíal-
demokrata í Stokkhólmi, ræddi
á laugardaginn í ritstjórnargrein
um síðustu atburði í sambúð
Vesturveldanna, deilur Banda-
ríkjamanna og stjórna banda-
mannaríkja þeirra í Vestur-Evr-
ópu.
McCartliyistar við stýrið.
Blaðið slær því föstu að stjóm
Eisenhowers í Bandaríkjunum
hafi enga ákveðna utanríkis-
stefnu. Klofningurjnn í vestur-
blökkinni stafi af því að Eisen-
hower vilji ekkj: hafa eða sé ekki
maður til að hafa forystu fyrir
Bandaríkjunum. Klíka afturhalds
samra flokksoræðra hans á þingi
hafi hrifsað þá forystu og ýtt
forsetanum til hliðar.
A-bandalagið einsk's virði.
Vikið er í Morgon-Tidningen
að ræðu Roberts Tafts öldungar-
deildarmanns um utanríkismál
einkum þeim orðum hans að
Bandáríkjamönnum beri að þvo
hendur sínar af samstarfi við
Vestur-(Evrópurtí,km í (Ar-banda-
laginu. Við Svíar getum tekið
þessum orðum með jafnaðargeði,
segir blaðið, en þau eru enn ein
sönnun um það, hve viturlegt
það var af okkur að neita að
ganga í bandalagið.
Ef Eisenhower kingir þessari
síðustu óvirðingu, sem flokks-
menn hans á þingi hafa gert
honum, missir hann alla virðingu
og tiltrú, segir hið sænska stjóm-
armálgagn. Þulurinn í útvarpi
frá Stokkhólmi til Norður-Ame-
riku sagði að blöð allra flokka
í Svíþjóð skrifuðu á svipaða lund
um síðustu atburði í Bandaríkj-
unum og ágreininginn milli
stjórna Vesturveldanna.
Gröf óþekkta Gyð-
ingsins
í ‘ París verður nú reistur
„Minnisvarði óþekkta Gyð-
ingsins". Undir minnisvarð-
anum er aska úr líkbrennslu-
cfnum í fangabúðum nazista,
þar sem milljónir Gyðinga létu
lífið á stríðsárunum. Minnis-
varðinn er reistur fyrir fé, sem
safnað hefur verið .un ailan.
heim, og stendur í nánd við ráð-
hús borgarinnar.