Þjóðviljinn - 12.07.1953, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 12.07.1953, Blaðsíða 7
Sunnudagur 12. júlí 1953 — ÞJÖÐVILJINN — (7 í grein þessari rifjar cand. polit. Mogens Korst upp hvernig Heniy Ford græddi milljarðana. Fyrir skömmu hélt stórt fé- lag hátíðlegt fimmtíu ára af- mæli sjtt. Það var ameríska Fordfélagio, serri hefur óhemju áhrif á allt fjármálalíf í Am- eríku og er helaur ekki ó- virkt í þeim auðvaldslöndum, ‘þar sem það hefur starfandi dætrafélög. Éinnig hér í Dan- mörku hefur Fordfélagið hald- ið upp á afmæiið með við- skiptamálaráðherrann Rytter sem toppfígúru á afmælistert- unni. Það var ekki Henry gamli Ford, sem fann upp bílinn, en það var hann, sem sá, að það borgaði sig að framleiða ,,hestlausa vagninn', og síðar í fjöldaframleiðslu — og það tókst honum með aðstoð auð- ugra vina. Þaan 16. júní 1903 var Fordfélagið stofnað. Hlutaféð var 100.000 dollarar, en af þeirri upphæð voru aðeins 28.000 greidd út í hönd — og síðan hafa hluthafamir ekki lagt svo mikið sem eitt cent í fyrirtækið, sem stendur nú að minnsta kosti í einum millj- arði og hefur greitt hundruð og aftur hundruð milljónir í arð. Það er fyrirtæki, sem segir sex, en þó auðvitað fyrst og fremst fyrir Ford sjálfan. Auk hans voru 11 stofnendur og meðal þeirra kolasalinn Malkolmson, sem auglýsti kol sín með þeim orðum, að þau væru „heitari en sólin“. Af honum hefur Ford sjálfsagt lært sölutækni, en honum cg öðrum samstofnendum var annars til- tölulega fljótt bolað burt úr fyrirtækinu. Ford gat blátt á- fram ekki látið sér lynda við þá og keypti smátt og smátt hluti þeirra. Árið 1919 varð Ford einkaeigandi. Á því ári keypti hana hlutabréf, 11.000 dolllara að nafnverði fyrir 29.3 milljónir dollara. í dag mundu slík hlutabréf vera fjórum sinnum meira virði. Og eftir dauða Henrys Fords ’47 hefur lilutafjáreignin stöð ugt komizt á færri hendur innan Fordfjölskyldunnar. Nú- veraudi stjórnandi Fordfélags- ins er sonarsonur stofnandans, Henry Ford ,,II“, eins og hann er gjarnan kallaður. Skólabörn í Evrópu eru víst ekki þau einu, sem læra konungaraðir ? Tveir aðrir bandarískir bíla- hriugar — General Motors og Chrysler — liafa þanizt ennþá meira út en Ford. Framleiðsla General Motors er meira að segja helmingi meiri. Engu að síður snýst hugur manna í Ameiíku meir um Ford en hin risafyrirtækin, sumpart máske af gamalli hefð, sumpart vegna sérkennilegra hug- myada Fords gamla, en sjálf- sagt einnig vegna þess, að völdin í þessu mikla fyrirtæki eru komin í hendur óvenju fárra manna: þngg.ja til fjög- urra innan Fordf jölskyídunn- ar. Þessir menn eiga bara í Ameriku verksmiðjur, sem hafa allt að 150.000 meon í þjónustu sinni — auk Ford- verksmiðjanna úti um heim. Þeir framleiða um 1 ýt milljón bíla á ári, en ársveltan er um þrír milljarðar dollara og árstekjurnar nema frá 100.000.000 til 300.000.000 dollara. (Auðvitað er upplýs- iaga um þennan gróða gætt álíka vel og upplýsinga um gerðir næsta árs bíla, en í des- ember gat Wall Street Journal afhjúpað leyndarmálið: Ford- félagið græddi 279 milljónir dollara 1950 og 87 milljónir dollara 1951, en það samsvar- ar hér um bil 4500 og 1400 milljónum íslenzkra króna livert ár). I Fortune, útbreiddu banda- rísku tímariti, stendur árið 1933: „Eoginn maður í bandarískum iðnaði hefur grætt eins mikla peninga á jafn skömmum tíma og á eins heiðarlegan hátt“. í hverju eru svo þessar himnesku Fordaðferðir fólgn- ar? I harðsvíruðum viðskipt- um við keppinauta, birgða- sala og banka, en þó fyrst og fremst í því að pina sem mesta vinnu út úr starfs- mönnunum fyrir sem minnst gjald. Einstök atriði í við- skiptaaðferðum Fords eru öll- um almenningi ókunn, þar sem blöðin hafa aldrei haft áhuga á þeim. (Ford auglýsir fyrii’ meira en 10 milljónir dollara á ari, svo að hann er góour auglýsandi), en hann beitti þeirra aðferð að soga til sín hvert útsölufyrirtækiö af öðru og 1933 — í hitini miklu bandarísku banka- kreppu — keypti liann auli þess upp bankahringana í Detroit, háborg bandarískrar bílaframleiðslu. Afstaða Fords til verka- mannanna er þó talsvert at- hyglisverðari. Alla ævi lagði Ford gamli mesta áherzlu á skynsamlega skipulagningu framleiðslunnar, þ.e.a.s. að fá sama starfsmaunafjölda til að framleiða mcira, og hann hafði um langt skeið samvinnu við sérfræðing á því sviði, sem segja má, að hin skipulagða verkþrælkun dragi nafn sitt af: Taylor. Chaplin-kvikmyndin „nýi tíminn“, skopstæling á færi- bandakerfi Fords, var í raun- inni ekki ýkt. Henry Ford (I) játar í bók sinni Ævi mín og starf: „Handtök okkar eru án efa einhæf — svo einhæf, að maður hefði varla getað trúað, að verkamaður héldi þau út til lengdar“. Ford nefnir sem dæmi verkamann, sem átta stundir á dag geng- ur nákvæmlega sömu tvö skrefin, tekur sama vélarhlut- ann, dýfir honum í olíu og lætur hann í körfu við hlið- ina á sér. Þetta er niðurdrepandi fyr- irkomulag fyrir verkamennina — en Ford græðir á því og er þess vegna auðvitað ákafur málsvari þess: „Ég hef hingað til ekki get- að séð, að einliæf vkma skaði manninn. Stofusérfræðingar hafa að vísu- oft fullyrt við mig, að hin einhæfa vinna eyðilegði bæð líkama og sál, en rannsóknir okkar segja annað .... Jafnvel nákvæm- ustu rannsóknir hafa ekki í eitt skipti leitt í ljós vansköp- un eða kyrking á líkama eða sál“. Það mundi vlssulega hafa vakið meiri undrun, ef sér- fræðingar Fords hefðu komizt - að annarri niðurstöðu, þegar tekið er tillit til þess hagn- aðai', sem færibaadskerfið hefur í för með sér! Ford- kerfið hefur það eina markið að skapa meiri hagnað, meiri verkþrælkup. Og verkamönn- unum hefur verið Ijóst, hversu óhagstæð þróunin hef- ur verið fyrir þá. Það sýnir hið gríðarmikla lausa vinnu- afl, sem jafnvel á atvinnuleys- istímum kemur frá bandarísku Fordverksmiðjúnum. Auðvitao hefur öll atvinnu- pólitík þessa fyrirtækis, sem nú er að lialda upp á afmælið sitt, verið að verki hingað til. Ford gamli leyfði ekki verka- mönnum sínum að vera í verkalýðsfélögum, og hann leít á félagsmálaráðstafanir sem „rasspúða undir letina“. Hann skipti sér af því, livern- ig verkamennirair notuðu frí- tíma sinn og —■ með „spari- klúbbum“ hvernig þeir vörðu launum sinum. Hann bannaði verkamönnum að reykja (af því að liann gerði það ekki sjálfur), og ekki livað sízt hef- ur það haft áhrif á vinuustæð- urnar, að hann í sínum eigin verksmiðjum skipulagði .,hið harðsnúnasta einkalögreglul'ð í heimi“, beint undir stjórn nánasta samstarfsmanns haos Harrys Bennets. Þetta lögreglu lið rak skipulagðar njósnir meðal verkamanna í verk- smiðjum Fords ,og meginhlut- verk þess var að berja niður allar verkfallstilraunir verka- manna með öllum ráðum. Eft- ir valdatöku Hitlers í Þýzka- landi skipulagði Bennet lið sitt samkvæmt fyrirmynd Naz- ista, og hann kom inn í starf- ið fjölmörgum þýzkum fimmtudeildarir.önnum. Mest bar á æðsta erindreka nazista í Bandaríkjunum fj'rir og í annarri heimstyrjöldincii, Fritz Kuhn, sem nú býr í Múnchen. Félagar í verkalýðsfélögum voru hundeitir af þessum njósnasveitum og þóttu sleppa vel með brottrekstur ein- göngu. Sérhver tilraun verka- manna til samtaka var bæld niður. Árið 1941 varð Ford að viðurkenna verkalýðsfélögin þar sem hann þurfti á aðstoð þeirra að halda til að tryggja breytir.gu framleiðslu verk- smiðjanna í stríðsframleiðslu og fá þamrg tækifæri til að græða ennþá meira. En fcr- maður félags bandarískra bílasmiða, Walther Reuther, hefur oft látið í l.jós svo harð- soðnar heimsveldisskoðanir, að sldljanlegt er, aö Ford og aörir bandarískir bílakóngar sóu ekki illa staddir í sam- vinnu við þennan verkalýðs- leiðtoga. Arið 1945 varð Henry Ford „11“ forstjóri í Fordfélaginu, og reyndar sagoi hann upp Harry Bennet ásamt 1000 öðrum starfsmönnum —- en þó ekki til að taka upp nýja stefnu. Tímaritið Fortune seg- ir 1947: „Á þessu breytinga- tímum var John Bugas eina af nánustu hjálparkokkum Henrys Fords, en Bugas var háttsettur lögregluforingi úr hinni velskipulögðu leynlög- reglu Edgars Hoowers (F.B.I)“. Bugas varð varafor- stjóri. Hlutverk hans var m.a. að semja við verkamenn- ina um kjör þeirra! En áhrifa Fords gætti víð- ar ea meðal verkamanna hans. Hann hafði áhrif á stjórnmál og þjóðfélagshætti almennt. Hann gerði meira en taka erindreka Hitlers í sína þjón- ustu. Bók Fords: „Hinn al- þjóðlegi gyðingur kom út í HitlersJ?ýzkalandi í meira en 100.000 eintökum, og ófáir liafa afsakao gyðingahatur sitt með því, að vitna í Ford. í september 1947 lýsti Pohl- yfirmaður útrýmingarfanga- búða nazista því yfir, þegar hann var ákærður í Múnchen fyrir milljónamorð, að skoð- anir sínar á gyðingavaadamál- inu væru að verulegu leyti sóttar í bók Henrys Fords. 1 orði var Fcrd gamli frið- arslnni, og 1916 sendi hann sendinernd með „friðarskipi“ til Evrópu til ao reyna að fá stríðsaðila til að slíðra vopn- ia. En þegar Bandaríkin fóru í stríðið 1917 og skilyrði sköp- uðust til að auka starfsemina og auðgast á vopnafram- leiðslu, þjökuðu hann engar friðaráhyggjur, og í síðari heimstyrjöldinni reyndi hann að hamla gegn einangrunar- sinnum. Það var ekki rétt að fúlsa við þeim 100 milljónum dollara, sem hann græddi á framlciðslu skriðdreka og vopna samkvæmt bandarísk- um heimiidum. Það hefur ao sjálfsögðu ekki haft í för með sér neina breytingu á stefiiu þessa fjöl- skyldufyrirtækis, að sonarson- ur Fords gamla hefur tekið við stjórnartaumunum — eklri heldur hvað viðkemur ábata- vænlegum pöntunum á her- gögnum: Samkvæmt tímarit- inu Business Week hefur Fordfélagið frá því í júlí 1950 til júlí 1952 teklð á móti her- gagnapöntunum að verðmæti samtals 1209 milljónir dollara eða um 20 milljörðum ís- lenzkra króna. Fordfélagið, er 7. í röð bandarískra vopna- sala. Ford hefur scm sé í ríkum mæli kunnað að hagnýta sér hervæðingaræðið, sem sigldi í kjölfar árásar Bandaríkjaana í Kóreu sumarið 1950. Og Ford liefur yfirleitt haft veru- leg áhrif á utanríkisstefnu Framhaid á 9. síðu. M0GENS K0RST: Ford heldur hátsðlegt 50 ára afmæli fyrirtækisins itam :r.v.‘4»c:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.