Þjóðviljinn - 06.09.1953, Page 6
$) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. september 1953 --—
gUÓOVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Kitstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
__________________________________________________
Að ganga á fjérum fétum
Fyrir nokkrum dögum skýrði Morgunblaöið svo frá áö
bandarískur vísindamaður heföi ,,kveðiö upp þann úr-
skurö, aö innri bygging mannsins væri þannig úr garöi
gerð, aö manninum væri eðlilegast aö vera láréttur, og
þá ganga á fjórum fótum.“ Fannst bláöinu kenning þessi
aö vonum mjög athyglisverö og rakti nákvæmlega afleið-
ingar hennar á ýmsum sviðum. Taldi þaö einsætt aö þeg-
ar yrðu dregnar af henni rökréttar ályktanir í raun:
,.Fyrst vísindin hafa komiö fram meö þessa kenningu, er
ekkert annaö fyrir okkur áö gera en aö viöurkenna staö-
reyndina og breyta eftir henni.“ Blaöið gerir þó ráÖ fyrir
því að einhverjir kunni að veröa tregir í fyrstu, en þaö veit
jafnframt ráöiö sem dugar: „Líklega myndi alltaf fiim-
ast fólk, sem ekki vildil aðhyllast hina nýju amerísku
kenningu — heldur myndi þáö halda fast viö það göngu-
lag, sem forfeöur þess hafa notað. En þá yröi aö stofna
heilsuverndariögreglu til þess að fá fólk til að hlýöa.“
Ýmsum kann aö virðast þessi kenning nýstárleg, en þó
er hún það ekki þegar betur er áö gáð. Að visu hsfur lítiö
fariö fyrir því fram tiil þessa að göngnlag ferfætlinga væri
þjálfaö, en við hitt hafa Bandaríkjamenn lagt hina mestu
rækt að efla þaö hugarfar sem yfirleitt er taliö einkenna
férfætlinga. Og þegar hugarfarinu hefur verið breytt
ætti hitt að vera minnstur vandinn að gera skrokkinn
hæfilega beygöan og álútan. Sérstaklega veröur þaö auö-
velt ef Bandaríkjamöimum tekst aó hagnýta þá tækni: sem
þeir hafa mesta ást á til aö jafna hús við jöröu, þannig aö
fólk veröi aö hafast viö í hellum og jaröbyrgjum og öörum
þeim vistarverum som til þessa hafa veriö talin hæfa dýr-
um merkurinnar, líkt og nú tíökast í Kóreu eftir mikil á-
tök til verndar frelsií ,lýöræði og öðnim fögrum dyggðum.
Ráöamenn Bandaríkjanná hafa náö miklum árangri
meö þein-i iðju sinni aö efla með þegnunum andlegt á-
stand ferfætlinga, enda er ekkert til sparaö. Útvarp, sjón-
varp, bókaútgáfa, kvikmyndir, tímarit: á öllum sviðum er
lögö á það megináherzla að bægja burt þeim þáttum heila-
starfseminnar sem taliö er að aðgreint hafi menn frá
dýrum. Herma fróöir menn t.d. aö sívaxandi hluti banda-
j-ísku þjóðarinnar sé aö vera ólæs, menn kunni að vísu aö
stafa og kveða aö en forðist að hagnýta þá þekkingu;
helzt lesa menn nokkrar setningar í samhengi ef þær
fjalla um morö og glæpaverk. Er þetta aö sjálfsögöu mjög
mikilvægur áfangi í undirbúningi þess að þegnarnir byrji
aö ganga á fjórum fótum.
Hitt er svo rétt sem Morgunblaöið segir aö ýmsir hafa
reynzt tregir til aö fylgja þessum nýjasta árangri banda-
rískra vísinda. Sífelldlega eru t.d. aö berast fregnir um
þaö aö veriö sé áð dæma menn til fangelsisvistar fyrir að
hafa lesiö heimskunn vísindarit um þjóöfélagsmál og
hvatt áðra til aö gera slíkt hið sama. Ýmsir þeir sem
fjærstir eru orönir ferfætlingum í iðju sinni hafa flúið
land hinna ferfættu vísinda. Og eins og kunnugt er hafa
stjórnarvöld Bandaríkjanna afhent mikinn hluta fang-
anna sem látnir hafa verið lausir í Kói’eu „heilsuverndar-
lögreglu“ þeirri sem Morgunblaðiö talar um. Hafa þeir
veriö lokaöir inni á sérstökum hælum, og hafa litlar fregn-
jr borizt af því hversu margir þeirra eru orðnir ferfættir
síðan.
En þótt ýmsir erfiðleikar séu á vegi vísindanna geta þau
þó einnig sýnt mjög mikilvægan árangur bæöi innan
lands og utan. Okkur íslendingum er t.d. mjög nærtækur
hópurinn viö Morgunblaöiö, sem ræktað hefur meö sér
hugfafar taminna merkurdýra af þvílíkri alúö og virkt
aö fram úr skarar. Hafa þeir valiö sér til fyrirmyndar
ferfætlinga þá sem nákomnastir hafa veriö mönnum og
hlýðnastir eftir hæfilega þjálfun og ögun. Enda bregzt
1 ’vðni þessa hóps aldrei á hverju sem gengur. Og þótt
þeir séu ekki enn farnir að ganga á fjórum fótum á al-
mannafæri svo vitaö sé, þrátt fyrir efalausar æfingar
innanhúss, hafa þeir þó náð fullkomnun í þeirri ferfættu
list að dilla rófunni án afláts og gæta þsss þá vandlega
aö hafa hana hvorki hringaða né sperrta, því íslenzkir
smaiahundar hafa einatt átt til aö bei’a þá stirfni viö ó-
hunnuga sem sízt sæmir hernuminnj þjóð.
Eftir áratiiga starf í þágu verkalýðsins
bíður þeirra nú ævilangt fangelsi
Marsh, dómari við sambandsdómstólinn í Pittsburgh í
Bandaríkjunum, hefur kveöið upp dóm yfir Steve Nelson
og fjórum öðrum kommúnistaleiötogum, sem fyrir
skömmu voru fundnir sekir um að hafa lesiö og hvatt
aðra til aö lesa fræðirit um marxisma. Dómurinn var
fimm ára fangelsi.
Marsh dómari hefur vaí'alaust
haldið, þegar hann kvað upp
dóminn, að nú væri þessu máli
lokið, segir Sam Russel í Daily
Worker lí London. En hafi svo
verið, bætir hann við, heíur hon-
um glej'mzt að taka með í reikn-
inginn, að hér er manni að mæta,
sem í þrjú ár hefur vakið á sér
heimsathygli fyrir hugrekki og
hetjuskap. í þrjú ár hefur hann
og fjölskylda hans orðið að þola
allar þær ofsóknir, sem banda-
ríska afturhaldið hefur getað
hugsað upp.
Mellon og Morgan.
Að baki ofsóknanna eru tvö
stærstu auðfélögin í Piftsburgh,
sem eiga og stjórna borginni,
Mellon- og Morganhringirnir.
Þessi tvö auðfélög hafa á þrem
árum Kóreustyrjaldarinnar grætt
að eigin sögn 5000 milljónir doll-
ara aðeins á eignum sínum í
Pittsburgh. Það er Því engin
furða, þótt þessir auðhringir
telji sig hafa ástæðu til að of-
sækja Steve Neleon og félaga
hans, sem barizt hafa gegn þessu
stríði.
Aðalvitnið lögregluspæjari.
Áður en þessi dómur var kveð-
jnn upp, hafði Nelson verið dæmd
ur I 20 ára fangelsi eftir sérstök-
um fylkislögum um „uppi-eisnar-
áform“. Aðalvitnið í þeim mála-
fer.lum var lögregluspæjari, að
nafni Ovetic. Sá maður hafði
áður komið við réttarsögu Pitts-
burgh. Árið 1950hafði hann mætí
sem 'VÍtni ákæruvaldsins í mál-
um gegn verkalýðsleiðtogum, eft-
ir kolaverkfallið ,í Pittsburgh
1950, sem beint var gegn Mellon-
hringnum, eiganda eins af
stærstu kolanámufélögunum,
Pittsburgh Consolidation C°al
Co.
Tii að hræða verkamenn til
hlýðni
Meðan á verkfallinu slóð, setti
macarthynefnd Pittsfourghs, fé-
la'gsskapur sem kallarN«ig Ame-
ricans Battiing Communism, á
svið „réttarhöld“, ,þar sem Cve-
tic bar vitni og gaf upp nöfn 292
vertkamanna í Vestur-Pensii-
vaníu, sem hann kallaði komm-
únista. MeUonhrmgnrinn gaf
b'öðum Pittsburgihs fyrirmæli
um að. gera sem mest úr iþessu.
Nöfn þessara verkamanna voru
birt í 'blöðimum með þeim afleið-
ingium, að 90 voru reknir úr
vinnu þegar í stað og 60 aðrir
á næstu vikum.
Margir þeirra voru framarlega
í verkalýðshreyfingunni, formenn
verlcalýðsfélaga, trúnaðarmenn á
vinnustöðvum og í verksmiðjum.
Lei'gðir glæpamenn réðust á
heimili þeirra, .brutu og bröml-
uðu. Brottrekstrarnir og ofbeid-
isaðgerðimar urðu til að draga
úr baráttuþreki verkfalismanna.
Gegn verkalýðshreyfingunni
Það er athyglisvert, að 'þegar
20 ára fangelsisdómurinn var
kveðinn upp yifir Steve Ne'son
á fyrra. þá stóð yfir verkfa;!l í
stáliðnaði Pittsburghs. Leigu-
pennar aftunhaldsins sögðu í
blöðunum, að verkfallið stofnaði
landvöi’nunum í hættu. Það var
þetta sem Steve iNelson var sak-
aður um. Árásinni á hann var
engu að síður beint gegn verka-
lýðshreyfingunni sem slíkri.
Verkalýðsforiugi af a ævi
Steve Neison 'hefur eytt allri
ævi sinni í baráttu fyrir réttind-
um alþýðu. Ungur gerðist hann
smiður og varð félagi í verkalýðs
félagi. Hann átti 'Þátt í tilraun
verkamanna í Jones og Laughlin
verksmiðjunum í Pittsbu'rgh til
að mynda samtök gegn einkalög-
reghi kola- og stáliðjufélaganna.
Steve Nclson.
Hann var rekinn úr vinnunni.
Atvinnulaus lagði hann af stað
til kolanámuhéraðanna í Pennsil-
vaníu og vann þar að því að
koma á fót samtökum námu-
manna og atvinnuleysingja til að
krefjast brauðs, vinnu, öryggis
og atvinnuieysisstyrks.
Yfirmaður bandarísku sjáf-
boðaliðanna
'Hann var í hópi þeirra fyrstu
Bandaríkjamanna, sem gerðust
sjálfboðaliðar i her spænsku al-
þýðustjórnarinnar. Það var árið
1937. Hann hækkaði þar ört í
tign og varð að lokum ofursti í
al'þjóðaherdeildinni, yfirmaður
3000 (bandarísbra sjálfboðaliða.
Hann er nú tfimmíugur að aldri.
25 ára fangelsisvist er ævilangt
fangelsi.
Auk hans hlutu fimm ára dóm
fyrir að hafa lesið marxísk fræði-
rit eða hvatt aðra til að lesa þau
fjórir félagar hans: Meðal þeirra
Benjamin Caneathers, einn af
leiðtogum svertingja i Pittsburgh,
62 ára gamall og berklaveiikur.
Fimm ára fangelsisvist mundi
verða honum að toana. Jim Doi-
sen, einn kunnasti blaðamaður
við Daily Worker í New York,
67 ára að aldri og heilsuveill.
Hann mundi heldur ekki lifa af
fimm ára fangelsi.
Vináttufundur á heimsmótinu í Búkarest. Pólslt
stúlka ræðir við nýja vlni frá Líbanon