Þjóðviljinn - 24.11.1953, Síða 10

Þjóðviljinn - 24.11.1953, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. nóvember 1953 elmllisþáÉtur Jersey Og tweed I Franskir barnaskór I fyrra bar þegar mikið á jer- eey og tweed sem tizkuefnum. 1 ár hafa þau enn rutt sér braut. Jersey fæst nú í mörgum gerð- um. Sikk-sakk röndótti kióllinn er saumiður--i'seinu lagi og hann er failegur handa tágrönnum etú.kum. Hann er með peysu- Jtraga i hálsinn og leðurbelti um mittið. Einliti jerseykjóllinn er úr jersey sem er loðið og minnir á angora. Efnið er svo sérkenni- legt að kjóllinn þarf að vera sem látlausastur. Tweedkióliinn er saumaður þannig, að það má nota þann utanyfir peysu ef vill Hér er hann notaður yfir hvíta peysu, háa í hálsinn. Har.n er hnepptjjr uppúr og við hann er notað mjótt belti úr kjólefninu. Það er ekki hægt, ef efnið er mjög þykkt. Þá má nota leðurbelti í staðinn. — jtlyndirnar eru allar úr Harpers Bazar. Er þetta eitthvað nýtt? Kjóllinn á myndinni er sam- kvæmt nýjustu fyrirmælum Di- ors og eftir því sem sagt er, hefur orðið mikil bylting inn- an tízkunnár, og því ætti þetta áð vera spánnýr kjóll. En það er nú öðru nær. hann er frá því í febrúar 1952 og ætti þvi alls ekki að vera eftir nýjustu tízku. Nettie Rosenstein hefur teiknað kjólinn, og hann sýnir jþað svart á hvítu, að Diorlín- an er alls ekki eins ný og af ,er látið og síddin, sem blöðin hafa óskapazt sem me|t yfir, er ósköp álíka og sýnd hefur verið á mörgum kjólum undan- íarin ár. Við fundum þessa indælu, frönsku barnaskó í Jardin des Modes. Skómir virðast svo góð- ir og hentugif, að maður óskar þess, að þeir væru á boðstól- um í búðunum í Reykjavik. Einkum eru svörtu telpuskórnir freistandi. Þeir eru léttir og snotrif um leið og þeir eru hentugir. Þeir eru tilvaldir handa telpunni, sem er að byrja að verða dálítið hégóm- leg, en mamman verður þó um- fram allt að taka tillit til þess sem hentugast er. Hinir skórn- ir eru venjulegri, reimaskórnir með þykka hrágúmmísólanum ganga' þó óvenju hátt upp á ristina. Það eru sterklegir og þéttir skór í rigningu og slabbi. Takið eftir hvað skómir eru allir háir að framan; í þeim virðist öilum tánum vera ætl- að rúm. Ekkert smátæði í skilnaðarmálinu milli frú Barböru Rockefeller og fyrri manns hennar, Winthrop Rocke- feller, hefur náðst samkomulag um hæsta lífeyri, sem sögur fara af, þ.e.a.s. 5,5 milljónir dollara (um það bil 90 milljón- ir króna). Hin 36 ára gamla Barbara, sem er dóttir námuverkamanns, fær 2 milljónir dollara í reiðu- fé eða verðbréfum, að viíbætt- um milljón dollurum í fasteign- um, og 2,5 milljónir dollara verða lagðar til hiiðar handa fimm ára syni hennar, Wint- hrop Paul. Auk þess á Barbara áð fá 70.000 dollara (á aðra milljón króna) á ári, auk umraða yfir lúxusíbúð Rockefellers í New York. Hjónin giftust> 1948 og skildu ári síðar. 17. er SAKAMALASAGA eftir HOKACE MCCOY þá er hann töframaður", sagði Socks. ,,Hér er ekkert svigrúm fyrir þess háttar". ,,Ég veit um stað“, sagði ég í huganum. Rollo Peters kom inn í búningsherbergið. ,,Ykkur veit'r ekki af að sofa, strákar‘“, sagði hanei. :,Hv;.r er Rocky?“ spurði hann og litað- ist um. „Læ.’.nirmn ‘fór með hann á sjúkrahúsið“, sagði Socks við hann. „Hvernig gengur framtni ?“ „Fólkið er farið að róast“, sagði Rollo: „Ég sagði þeim. að við værum að æfa dálítið nýtt. Hvað gekk uð Rocky?“ „Ekkert alvarlegt", sagði Socks. „Það lá bara við að handleggurinn væri skorinn af hon- um með þessu“. Hanci rétti honum hníf Pedrós. „Takl” við ]>essu og komdu því fyrir kattarnef. Þú verður kynnir, þangað til við fréttum af Rocky“. Pedro reis á fætur. „Mér þykir leitt að þetta skyldv gerast fyrir framan áhorfendur", sagði hann ,,Mér þykir það leitt, en ég er mjög skapbráður —“ „Þaó herði getað verið verra“, sagði Socks. „Það htsfði getað gerzt að kvöldlagi fyrir fullu húsi. Hvernig ertu í höfðinu?“ „Slæmur“, sagði Pedro. „Mér þykir þetta mjög leitt. Mig hefði langað til að vinna þús- und dalina —“ „Þú hefur enn möguleika á því“, sagði Socks. „Er ég þá ekki úr leik? Ætlarðu að fyrir- gefa mér?“ „Ég fyrirgef þér —“ sagði Socks og stakk kylfunni í vasann. 10. .. og ber nefndum yfirfangaverði... hrossum ekki lógað? r~ LIBNAR STUNDIR PÖR .......... 783 26 „Herrar mínir og frúr“, tilkynnti Rocky. „Áður en veðhlaupið hefst hefur stjórnin beð- ið mig að skýra ykkur frá því, að hér verður haldið opinbert brúðkaup að viku liðinni — raunverulegt brúðkaup. Par nr. 71, Vee Lovell og Mary Hawley, verður gefið saman. Gang- ið fram Vee og Mary og leyfið áhorfendum að sjá, hvemig þið lítið út — Vte og Mary gengu í einkennisbúningum sin- um út á mitt gólfið og hneigðu sig þegar klapp- að var. Salurinn var aftur orðinn troðfull- ur. „— .það er að segja“, sagði Rócky, „ef þau verða ekki dæmd úr leik í veðhlaupinu fyrir þana tíma. Við vonum að svo verði ekki. Þetta opinbera brúðkaup er í samræmi við þá stefnu okkar, að veita ykkur aðeins fyrsta flokks skemmtun —“ Frú Layden togaði í peysuna mína. „Hvað gengur að Rocky í handieggnum ?“ hvíslaði hún. Það var auðséð að Rocky hafði orðið fyrir einhverju slysi. Hann hafði hægri handlegginn í jakkaerminni á venjulegan hátt, en vinstri handleggurinn var i fatla og ermin dinglaði laus. „Hann brákaði í sér bein“, sagði ég. „Þeir tóku aðeins níu spor í hann“, tautaði Gloría í barminn. „Þess vegna hefur liann ekki verið hérna í gærkvöldi‘“, sagði frú Layden. „Varð hann fyrir slysi —“ „Já —“ „Datt hann?“ ’> „Já, ég held það —“ ,, — hin glæsilega kvikmyndadís ungfrú Mary Brian. Viljið þér standa upp, ungfrú Brian". Ungfrú Brian stóð upp og hcieigði _sig. Á- horfendur klöppuðu. ,,— og hinn afburðasnjalli gamanleikari, herra Charley Chase —“ Það var klappað um leið og Charley Chase stóð upp og hneigði sig. „Þessar kynningar eru viðbjóðslegar“, sagði Gloría. „Þér þætti það ekki, ef hann væri að kynna. þig“, sagði ég. „Gangi ykkur vel —“ sagði frú Layden um leið og við mjökuðum okkur áleiðis að pall- inum. „Ég er hundleið á þessu“, sagði Gloría. „Ég er hundleið á að horfa á frægt fólk og gera hið sama upp aftur og aftur —“ „Stundum harma ég að hafa nokkurn tíma kynnzt þér“, sagði ég. „Það er ljótt að segja þetta, en það er satt. Áður en ég hitti þig, vissi ég ekki hvað þunglynt fólk var .... “ Við stóðum í þvögu við startlínuna. „Ég er þreytt á lífinu og hrædd við dauð- ann“, sagði Gloríá. „Þetta væri góð hugmynd í ljóð“, sagði Jam- es Bates, sem heyrði til hennar. „Þú gætir skrifað Ijóð og lag um gamlan svertingja sem er þreyttur á lífinu og hræddur við dauðann. Hann gæti verið að skera bómull og syngja fyrir Mississippi fljótið. Þetta er stórkostleg hugmynd — þú gætir nefnt ljóðið Old Man River —“ Gloría leit á hann tindrandi augum og fitj- aði upp á nefið. „Hæ —“ kallaði Rocky til frú Layden sem var komin upp á pallinn. „Herrar mínir og frúr“, sagði hann í hljóðnemann. „Leyfið mér að kynna fyrir ykkur mesta velunnara mara- þondanskeppninnar — konu sem hefur ekki látið sig vanta eitt einasta kvöld síðan keppn- in hófst. Það er frú Layden og stjórnin hefur látið útbúa handa henni sérstakt inngangs- kort — sem gildir alltaf og hvenær sem er. Klappið fyrir frú Layden, herrar mínir og frúr. — Viljið þér standa upp, frú Layden —“ Frú Layden hikaði andartak, sýnilega rugluð og hún vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. En þegar áhorfendur fóru að klappa, steig hún UW OC CAMMI Þú sagðir að hún syngi fallega? Nei, það sagði ég ekkL Hvað þá? Ég sagðl aö hún væri fallegur söngvari. Reykirðu? Nei. Drekkurðu? Nei. Éturðu þá hey? Nei. Þú ert þá hvorki hæfur í félagsskap manna né dýra. Finnst þér ég- ekki syngja af tilfinningu? JÉg held þú syngir ekki ef þú hefðir tilfinningu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.