Þjóðviljinn - 05.12.1953, Síða 12

Þjóðviljinn - 05.12.1953, Síða 12
Frelsts þörf i úfflufningnum ekki siSur en inn- flufningnum - Sósialisfar flyfja breyfingafill. Hrinfning stjórnarfl. með nýja fjárhagsráðsfrumvarp-' ið virðist ekki ætla að verða langæ. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan ráöherrarnir voru í loftinu vegna þess hve þarna væri flaggað mikilli frelsisskrá. í gær játaöi einn helzti áhrifamaður Framsóknarflokksins, •Skúli Guðmundsson, að þetta frumvarp markaöi engin tímamót, með því væri ekkert spor stigið í átt til aukins ’verzlunarfrelsis. I sama streng tók einn af áhrifamönnum hins stjórnar- flokksins, Jón Pálmason, og skildist þó af ræðum þeirra beggja að þeir ætluðu áð fylgja þessari misheppnuðu , frelsis- skrá- Karl Guðjónsson benti á, hve -ólikt hljóð væri í þessum þing- mönnum og ráðherrunum, sem ætluðu að rifna af hrifningu á frelsisskrá stjórnarinnar! Flyt- ~ur Karl nokkrar breytingartil- iögur, og er hin veigamesta um það, að „frelsið" marg- lofaða verði líka látið ná til út- flutnings. Þá leggur Kari til að felld verði úr frumvarpi stjórnarinnar sú kvöð að bæj- arstjórnir og oddvitar hafi eins konar lögreglueftirlit á því hvort lögin séu haldin hvað hyggingar snertir, og áð gjald af leyfum hins .nýja fjárhags- RáptuSrustríð SM&þjófa byrjað Aðvöiun til þeiira er eiga peninga Það hefur borið nokkuð á því •að undanförnu að konur hafa týn.1 peningum úr svonefndum a-áptuðrum sínum, éinkum í verzl- unum. Nú er jólaösin að byrja, og er einkum hætt við þessu í troðnin.gi þar sem erfi.tt er að víkja sé.r við. Til dæmis kom það fyrir í fyri-adag að kona nokkur missti. á verzlunargólf 2500 krón- !ur. V.ar þröng í búðinni, og vayð henni allörðugt að ná pen- inguin sínum aftur. Rannsóknarlögreglan hefur Því -þeðið blað'ð að koma því á framfæri við fólk að sýn.a mikla .aðgát í þessum efnum. þar sem það er statt í verzlunum eða ■öðrum stöðum þar sem þrengsli •exu. . ráðs verði þo% en ekki 1%. Ásamt Lúðvík Jósefssyni flyt- ur Karl þá breytingartillögu að heimilt sé að byggja án fjár- festingar fiskgeymsluhús, fisk- verkunarhús og aðrar nauð- synlegar byggingar í sambandi við sjávarútveginn- feílir fjölskák í Hafnarfirði Friðrik ó’.afsson, skákmeistari Norðurlanda, teflir fjölskák á morgun. Fer taflið fram í Al- þýðuhúsinu, og hefst kl. 1.30. Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér töfl. Þetta mun verða síðasta skipt- ið sem Friðrik ólafsson teflír opinberlega áður en hann fer á mótið í Hastings, en hann legg- ur af stað þangað 29. þ. m. ÞlðÐVIUMN Laugardagur 5. desember 1953 — 18. árgangur — 275 tölublað 21 þing Sambandl bináindisfélaga r 1 Tuttugasta og annað þing Sambands bindindisfélaga í skólum var haldið hér í bænum dagana 30. nóv. og 1. des. 15 bindindisfélög í skólum eru nú i sambandinu. Starfsstúlknafélagið Sókn kratt árásinni -- vann nokkrar kjarabætur Samningar voru undirrifaðir í fyrrinótt Starfsstúlknafélagið Sókn hefur átt í deilu við atvinnu- rekendur frá því 1. júní s.l. en nú loks er þeirri deilu lokið. Tókst félaginu að hrinda árás atvinnurekenda og ná kjarabótum og voru samningar undirritaðir í fyrrinótt. ÆFK mAlfdndadeildie ★ Sunnudaginn 6. desember kl. 3.30 ihefst fundur framhaldsdei'.dar. Fundarefni: Samvinna Sósíalista- flokksins við önnur pólitísk öfl í landinu. — Fundurinn. verður i MlR-sa’um. Fundur í byrjendahópnum verð- ur á mánudag, 7. des., kl. 9 e.h. í MlR-salnum. — Xngi R. Helga- son leiðbeinir um fundarsköp og fundarreglur. Fólagar, fjölmennið! ÆFR-félagar, komið og takið blokkir til götusölu í happdrætti Þjóðviljans. — Dregið í kvöld. Deilan var um 3. gr. áður- gildandi samnings og vildu spítalarnir ekki viðurkenna rétt starfsstúlknanna til þess að kaupa einstakar máltíðir, en vildu i þess stað krefja þær um greiðslu fyrir fullt fæði. Stúlkimum tókst að hrinda þessari árás. Þó ekki fyrr en verkfall átti að hefjast. Deil- an hefur staðið síðan fyrsta júní en íyrir um hálfum mán- uði var sarnþykkt verkfalls- heimild, og síðar ákveðið verk- fall er átti að hefjast í dag- í samningunum er gerðir voru í fyrrinótt var bætt inn við ákvæðin er 4ður giltu um hin umdeildu réttindi ákvæð- um um að starfsstúlkur „geta kosið um að vera í fullu fæði eða talía máltíðir sein falla í vinnutíma þeirra, og reiknast þá gjald fyrir þann liluta fæð- is hlutfallslega miðað við gjald fyrir fullt fæði. Ákvæði þess- arar málsgrainar breyta þó í engu reglum þeim. sem gilt liafa í Landspítalanum fæðisKöhi- Starfsstúlkur sem kjósa að vera í fullu fæði, skulu eiga rétt á frádrætti fyrir þær mál- tíðir, er niður falla á fr'dög- um þeirra, enda sé við ]iað miðað, að minnst þrjár máltíð- ir af fjóram hvern fæðisdag falli niður“. Þá- var og gerð sú breyting að stúlkur sem u.nnið hafa í 5 ár eða lengur skulu fá 10 vik- ur í veikindafrí í stað 6 áður. Ennfremur ákvæði um að vinnu skuli , lokið kl- 3-5 fyrir frí- dag. Var þetta óákveðið áður og unnu stúlkurnar oft lengi frameftir. Samninginn við Sókn undir- rituðu ríkisspítalai-nir, Elliheim- ilið Grund og Reykjavíkurbær. Samningurinn gildir frá 1. des, til 1- júní 1954 og er uppsegj- anlegur með eins mánaðar fyr- irvara, e.n framlengist um 6 mánuði sé honum ekki sagt upp. Varaíormaður setti. þingið í fjarveru formanns. Forsetar þ:ngsins voru kosnir: Örlygur Hálfdánarson óg Stefán Gunn- arsson. Ritarar: Rúna Magnús- dóttir og Hjörtur Guðmundsson. Lögð var fram skýrsla fráfar- andi sambandsstjórnar. Á árinu gaf sambandið út bækling um tóbaksnotkun, sem próf. Níels Dungal gaf út að beiðni sam- bandsstjórnarinnar. Blað sam- bandsins Hvöt kom út í marz- mánuði en vegna fjárhagsörðug- leika var ekki fært að gefa blaðið oftar út á árinu. Sambandið hafði dagskrá í út- -------------------------> MfR-fundurá Akranesi Akranesdeild MÍR heldur fræðslu- og skemmtifund í félagsheimili templara mánu- dagskvöldið 7. þ. m. kl. 8.30. Þar flytur erindi frú Unn- ur Leifsdóttir sem nú er ný- komin heim éftir mánaðar- dvöl í Sovétríkiunum. Þær eru ekki margar islenzku konum- ar sem farið hafa kynnisferð- ir til Sovétríkjanna og verð- ur fróðlegt að' heyra hvað írúin hefur .að ségja af'ferð sinni. Þá verður einnig sýnd kvikmynd og loks verður dansað. Ollum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Mætið stundvíslega. Stjórnin. Stríðirm um Bergþórugötuhúsm að Ijáka Framkvæmdir eiga að hefjasf við lagningu hitaveitu fyrir 15. þm. Á bæjarstjórnarfundinum í gær drattaöist borgarstjóri loks til aö tiltaka tíma þann er hefja ætti framkvæmdir við lagningu hitaveitunnar í bæjarhúsin við Bergþóru- götu. Ætti þá vpnandi að fara að ljúka áralöngu stríði um sósíalista við að knýja $jálfstæöisflokkinn til þessarar sjálfsögðu framkvæmdar. [ Á undanförnum árum heíur $jálfstæöisflokkurinn allt- af vísaö þessu máli frá með einhverjum hætti. SkálaferS Farið verður í skíðaskálann ldukkan 6 í dag. Hafið sam- bantl við skrifstofuna fyrir klukkan 12 á laugardag. Stjórn Æ.F.R. Loks fór þó svo að $jálf- stæðisflokkurinn neyddist til að láta gera áætlun um verk- ið, — og leið svo og beið lengi- 1 hahst var svo langt komið að borgarstjóri svaraði ítrek- un sósíalista, um þetta mál með því, að framkvæmdir yrðu hafnar á næstunni- Svo liðu vikur og ekkert bólaði á fram- kvæmdum. Á bæjarstjórnar- fundi fyrir hálfum máauði spurðist Hannes Stephensen enn fyrir um þetta mál, — en borgarstjóri svaraði engu- Á bæjarstjórnarfundinum i fyrradag ítrekaði Hannes fyr- irspurn sína enn og svaraði borgarstjóri: „Framkvæmdir verða hafnar við Bergþórugötu- húsin í fyrrihluta desember- mánaðar". Um Bjarnaborg sagði ha.nn ekki orð. íbúar í bæjarhúsunum við Bergþórugötu bíða þess nú að sjá hvaða tími það er sem borgarstjórinsn kallar fyrrihluta desembeimánaðar. — Venjulegt fólk telur að það tímabil nái ekki lengra en til 15. mánaðar- ins. — 1 dag cr 5- desember- varpinu 1. des. Þá var að til- hlutan sambandsins var:ð einni kennslustund í skólunum hinn 31. j.an. til fræðslu um bind'nd- iámál. Stjómarvöld'n sýndu hug sinn til b'ndmdisstarfseminnar með því að fella niður styrk þann sem sambandið hefur not- ið. Viðræður v!ð f járveitinga- net'nd og dómsmálaráðherra fen.gu engu um þokað í því efni, og var skattur sambandsfélag- anna því eina tekjulind sam- bands'ns á árinu. Sambandið efndi til skoðana- könnunar . um bindindi. skóla- fólks, en enn heíur ekki verið unnið úr niðurstöðum hennar. Framhald á 11. síðu Gunnar, styttan og Guðmundur Ó. Á síðasta bæjarstjórnarfundi ítrelcaði Hannes Stephensen fyrirspurn sína til borgarstjóra um hvenær bæjarstjórnarmeiri- hlutinn ætlaði að láta verða af því að finna síyttu Héðins Valdimarssonar stað, og hvort orðið yrði við tilmælum ftbú- anna við verkamannabústaðina við Hringbraut um að reisa styttuna á bamaleikvellinuni hjá bústöðunum. Borgarstjóri kvaðst hafa af- hent málið „skipulaginu“ og þuldi upp nokkrar dagsetning- ar um hvenær „skipulagið“ hefði hringt til Guðmundar Ó. Guðmundssonar, en hann ritaði umdir bréfið sem íbúar verka- mannabústaðanna sendu bæj- arstjórninni. Kváð borgarstjóri aldrei hafa náðst í þenna mann og væri það orsök þess að styttunni hefði ekki verið val- inn staður. ,,Nú hef ég gefið fyrirmæii um að Guðmundi Ó. Guðmundssyni verði skrifað bréf“, sagði borgarstjóri. Von- andi ætti því bráðlega að tak- ast að ná sambandi við Guð- mund Ó. svo „skipulagið" geti loks unnið það afrek að ætla styttu Héðins Valdimarssonar stað í bænum- Stjönrabíói á sunnudaginn MÍR — Mennlng'.artengsl íslands og Ráðstjórnarr.'kj- anna halda fund í Stjörnubíói á morgun kl. 2 e. h. Þar segja tveir af fulltrú- anum í æskulýðsnefndinni, sem nýkomin ■ er heim frá Sovétríkjunum, þeir Pétur Pétursson og Eberg Ellefsen íx-á för sinhi um Sovétríkin. Sölumenn ÞjóSviljahappdrœftisins og jb/ð, sem hafiÓ happdrœftishlokkir undir höndum - AfgreiSsla happdrœftisins er opin til miSnœttis i nótt á SkólavörSusfig 19 og Þórsgötu 1 - Drœtti ekki frestaÖ - Ger/ð skil i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.