Þjóðviljinn - 09.02.1954, Síða 6

Þjóðviljinn - 09.02.1954, Síða 6
©) — ÞJÓÐVIUINN — Þriðjudagur 9. febrúar 1954 1 útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíallstaXiokkurinn. j Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), SlgurSur Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benedlktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnus Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími 7500 (3 línur). i Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 1T ; annars staðar á landinu. — Lausasöluverö 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. ____ J Hlutverk Þjóðvarnar 1 Blaö Þjóðvarnai’flokksins sem kom út í fyrradag á að yonum næsta örðugt með að skýra framkomu fulltrúa síns á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar. Frjáls Jjjóð játar án undandráttar að allsherjarsamkomulag andstöðuflokka íhaldsins hafi strandaS á Alþýðuflokkn- um. Jafnframt verður blaðið að skýra frá því að þegar svo var komið hafi flokkur þess boðið Alþýðuflokknum bandalag við kosningu fimm manna og þriggja manna rtefnda, í stað þess að hefja samstarf við sósíalista og full- trúa Framsóknar og eiga þannig hlut að því að knýja Al- þj'ðuflokkinn til samvinnunnar. Ekkert var auðveldara en að kenna Alþýðuflokksbroddunum pólitíska marmasiði eins og málin stóðu. Þeir áttu á hættu að missa full- trúa sína úr öllum nefndum bæjarstjómarinnar, að einni undanskilinni. Og enginn sem til þekkir efast um hvom kostinn þeir hefðu valið. Alþýðuflokkurinn hefði verið knúinn til þeirrar samstöðu með hinum andstöðuflokk- im íhaldsins, sem sósíalistar beittu sér fýrir, ef Gils Guð- mundsson hefði ekki hlaupið undir bagga með sundr- ungarflokknum. Það er þannig óumdeilanlegt að Gils og flokksbræður hans hafa reynzt íhaldinu þægir þjón- ar þegar í upphafi bæjarstjómarsetu sinnar. Það er verk Alþýðuflokksbroddanna og Þióðvarnar að íhaldið fékk sterkari aðstöðu í nefndum bæjarstjórnar en vera þurfti og getur enn hælst yfir því að svona sé „einingarvilji“ og „samstarf glundroðaliðsins", eins og Morgunblaðið komst að orði eftir bæjarstjómarfundinn. Þjóðviljinn beinir þeirri spiuTiingu til þess fólks, sem greiddi Þjóðvarnarflokknum atkvæði í bæjarstjórnar- kosningunum, hvort það hafi ætlast til þessarar afstöðu af hálfu fulltrúa síns í bæjarstjórn. Raunar liggur svar- ið í augum uppi. Fólkið sem látið hefur blekkjast til fylgis við þetta furðulega fyrirbæri í íslenzkum stjóm- málum ætlaðist til allt annars. Það trúði því án alls efa, að Þjóðvamarflokkurinn stæði að hverri einingártilraun sem gerð yrði en reyndist ekki sundrungarvopn íhalds- ins eins og nú er komið á daginn. En af reynslunni ber að læra. Gils Guðmundsson hefur tekið af öll tvímæli um erindi sitt í bæjarstjóm Reykjavíkur. Hlutverkið sem hann hefur tekið að sér er að aðstoða Alþýðuflokks- broddana í því sundrungarstarfi sem þeir hafa með hönd- um fyrir auðstéttina og íhaldið. Og þeirri framkomu geta heiðarlegir íhaldsandstæðingar 1 kjósendahópi Þjóð- yarnar ekki svarað nema á einn veg: Þeir láta hina mis- vitru lukkuriddara eina um íhaldsþjónustuna en ganga til samstarfs og baráttu með þeim öflum sem vinna að einingu íslenzkrar alþýðu og íhaldsandstasðinga. ðmurlegt öfugstreymi Ems og skýrt hefur verið frá 1 blöðum og útvarpi hefur Landssamband íslenzkra útvegsmanna krafizt innflutnings á færeyskum sjómönnum á þeim forsendum að 800 sjómenn vanti iil þess að unnt sé að manna íslenzka veiðiskipaflotann. Enginn sem til þekkir getur efazt um hver ástaíðan er fyrir því að örðuglega gengur að manna togarana og vélbátaflotann. Kaupi og kjörum íslenzkra sjómanna hefur verið haldið svo xnðri á liðnum árum, að sjómenn bera ekkert sambærilegt úr býturn miðað við erfiði og þjóðhagslegt mikilvægi vinnu sinn- ar. Vegna þess hve sjómannakjörin, t.d. á saltfiskveiðum togar- anna, eru rýr, hefur f jöldi gamalla og reyndra togarasjómanna ekki séð sér annað fært en ganga í land að undanförnu, Gvipuð Baga hefur gerst á vélbátaflotanum, því þótt fiskverðið væri hækkað eru kjör 'bátasjómanna með öllu ósambærileg við kjör þeirra sem í landi starfa. t Það er ekkert úrræði til frambúðar, þótt til þess kunni að verða gripið í bili, að leysa þennan vanda með innflutningi er- lendra manna til starfa á fiskiskipaflotanum. íslendingar verða sjálfir að manna flota sinn og starfa að framleiðslu útflutnings- verðmæta sinna. Ekkert annað er samboðið þjóðinni. En til þess að leysa vandann er óhjákvæmilegt að bæta sjómannakjörin og gera sjómennskuna að eftirsóknarverðustu atvinnugrein þjóðarinnar. Þá mun það ömurlega öfugstreymi taka enda að ís- lenzkt vinnuafl sé hrakið í erlenda hemaðarvinnu en erlent feng- til að vinna að framleiðsluatvinnuvegunum. Klofningsflokkur ,,Þ]6<Svarnar" þjónar and- stœSingum verkalýSshreyfingarinnar ,,Þjóðvamar“-postulanilr höfðu í upphafi hátt om and. stöðu sína gegn íhaldi og affc- urhaldi; þeir þóttust öllum öðrum róttaekari og biðkiðu alveg sérstaklega til vinn- andi fólks og annarra and- stæðinga íhalds og atvinnu- rekenda. Það vakti því athygli þegar það kom í ljós að ehm af frambjóðendom „Þjóðvarn- ar“ við bæjarstjórnarkosa- ingarnaj gerðist opinher meðmælandi og stuðnings- maðiir íhalds-kratalistans í Dagsbrúnarkosningunum, en listinn var öfluglega stnddur af stórart innureliendum og öll Lhaldshersingin sett í gang tii að skrapa fylg'i honum til handa- Þegar frá þessu var skýrt átti málgagn „Þjóð- varnar" enga rörn aðra en þá, að flokkurinn hefði engin afskiptí af framkomn sinna manna í verkalýðsfélögunnm, þeir nytu fyllsta frelsis tíl að haga sér að eigin >ildi Nú er komið í ljós að hér hefur síður en svo verið um neina tilvUjun að ræða og að ,4relsið“ nær lengra en til stjórnarkjörs í verkalýðsfé- lögunum. Við nefndakosn- ingar í bæjarstjórn Reykja- víkur á finuntud. gekk vara* bæjarfulltrúi ,,Þjóðvarnar“ Gils Guðmundsson, í opinbert bandalag við einn hernáms- flokkinn. Og árangurinn sem haiw náði var m.a. sá að úti- loka formann Dagsbránar úr Hafnarstjóra Reykjavíknr, þar sem itann hefur átt sæíi að nndanförno, og ritara Dagsbrúnar úr stjóm Ráðn- ingarstofu bæjarins. Hafnar- stjórnarstarfið afhenti Gils beint til íhaldsins, en í stjórn Ráðningarstofunnar einum auðsveipasta samstarfsmanni ihsldsins í vericalýðshreyf- ingunni, Óskari HaHgríms- syni. Það er þvi alveg augljóst og verður ekki um deilt, að „Þjóðvamar“-postularnir eiga fá heitari áhugamái en að þjóna undir anðstæðinga verkalýðsins og samtoka hans. Þeir sieppa engu tæki- færi til þess að auglýsa þetta innræti sitt. Dagsbrúnarkosn ingamar og kosningarnar í bæjarstjóm hafa endanlega skorið úr um það hvar þá er að finna þegar hagsmunir og áhrif verkalýðsins í Reykja- vík eru í veði: Þá skipa „Þjóðvarnar“-forkólfarnir sér hiklaust með atvinnurek- endiun og íhaldi en gegii verkalýðnum, Klofningsiðja „Þjóðvarn- ar“ í sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga og auðsv’eip þjón- usta þeimi v!ð andstæðinga verkalýðsins mun fyrr en þessa herra gmnar auðvekla öllu heiðarlegu fólki, sem trúað hefur geipi þeirra og bielckingum fram til þessa, leiðma til rétts mats og skiln ings á því bráðabirgðafyrir- bæri í íslenzkum stjómroál- um, sem lcennlr sig við þjóð- vöm og vinstri stefnu, en þjónar hemámsllðnm og í- hakli af fyllstu nndirgefni með athæfi sínn öllu. Mýs og menn Merkur leiklistarviðburður Það er búið að skrifa og skrafa svo mikið lofsamlega síðustu vikumar um Mýs og menn, að varla er é. það bætandi. Þó get ég ekki neitað mér mn að senda Leik- félagi Reykjavíkur fáein þakkarorð fyrir ógleymanlega kvöldstund. Er þá sæmst að segja hug sinn allan umsvifa- laust. Þessi sýning er stórfeng- legur leiklistarviðburðw sem lengi mtm í minnum hafður í höfuðstaðnum. Leikur Þor- steinn ö Stephensen er hrein- ræktuð snilld frá upphafí til leiksloka — list hans myndi talin hvaða leikhúsi sem er til hins mesta sóma. Heil- stej-ptur er eiimig lelkur Steindórs Hjörleifssonar og beztur er mest á reynlr: Þeg- ar hundurinn hans er leiddur út — þegar vonin um öruggt athvarf á býli þeirra félag- anna vaknar í brj'Ó3ti gamla mannsins — og þegar drauma- höllin hrynur í rust. Br>'n- jóifur Jóhannesson náðí ekki tökum á mér fyrr en í 2. þætti, þegar Georg er orðinn einn með Lenna og Candy: að sjá hvemig sjáJfsefjunin grípur hann æ fastari tök- um, unz einlæg trti hans sjálfs á fantasíuna sero hann fann upp til að gleðja skjól- stæðing sinn leiftrar úr aug- unum og lýsir allt andiitið — það er list sem að kveður; sama er að segja um hugar- stríð hans á árbakkanum í leikslok. Maður metur elcki leik Bryjólfs að verðleikum. fyrr en tjaldið er fallið óg maður hefur fengið tóm til áð líta yfir leik hans í heild. Kannski er það mesta lof sem hægt er að bera á einn leik- ara. Ema Slgurleifsdóttir leikur konu Curleys vel: and- leg eyðimörk afrækt frá bam- æsku, en á þó sína endurminn- ingu um mildar föðurhendur, sem vildu hlú að hlnum veika gróðri, og s’rtn vaxtardraum — að vísu fátæklegan: að komast til Hollyw'ood og eign- ast falleg föt á kroppinn. Mað ur trúir henni: að þaö & fremur löngun til að spjalla við einhvern e.n vergirni sem dregur hana að strákumun. Gísli Haiidórsson gerir Slim ágæt skil: öruggur íhugull náungi sem ber hlýtt vinar- þel til félaga sinna — vísi að heilbrigðri stéttarmeðvitund. Minnisstæður verður manni svertinginn Crooks (Árni Tryggvason): átakanJega ein- mana, önuglyndur og tor- trygginn vegna langvarandi niðurlægingar — ófullnægð þrá eftir samfélagi við aðra menn afskræmd og orðin að vanmetakennd og hálfgerðu mannhatri. En þótt flestir leikenda skili hlutverkum sinum með ágæt- um hver um sig, liggur þó höfuðst>Tkur sýningarinnar í frábærri leikstjórn og góðum samleik sem gefa henni h'eill- andi Jýrískan heildarsvip. Sér- stök er sviðsmyndin í f>Tra atriði annars þáttar, þegar Karlsson er farinn með hund- iun og hinir bíða eftir að heyra skotið — hún er meðal þess bezta sem maður lifir í leikhúsi. Loftið er svo lilaðið, að þegar Georg smellir spil- unum er slegið köldiun Jiamrí í hjartað á manni, og þegar slcotið ríður af og gamJi maðurinn s-nýr sér til veggjar brestur einhver streng w í okkur öllum. Áhrifamik- ið er lokaatriði leiksins: Ge- org situr beygður á árbakk- anum og þylw lágum rómi við vin sirm hið þematiska æv- intýr, sem verið hefw sól- skinsblettuiinn í Hfi Lenna, til að gera honum viðskiln- aðinn sem bjartastan. Þegai- tjaldið fellur, finnst manni kikurinu lialda áfram — að Léimi vinur okkar, þetta stóra ólánssama barn, sé setztur að á býlinu sem hann dreymdi um og byrjaður að tína sniglasmára handa lcan- ínunum sínum á einhverjum Jiimneskum engjum. Steinbeck hefur með þessu leikriti sýnt umkomuJeysi mannsins i liarðbrjósta heimi sem lætur sig mannleg örlög engu varða. Allir eiga sína endurminningu um bjartari bernslcu og sinn hamingju- draum. Steinbeck brýtw ekki þjóðfélagsorsakir þessa mann- lega harmleiks til mergjar, og hann gefur ekki svar við því með hvaða hætti draumurinn mætti rætast. Þvi verður hver að svara sjálfw. En það er auðveldara eftir að maðúr hef ur séð leikrit SteLnbecks en áður. Leilcfélag Reykjavíkur hef- ur sýnt Mýs og menn á ann- an mánuð við góða aðsókn og almennar vinsældir. Þeir sem eiga eftir að sjá það, ættu ekki að láta það undir höfuð leggjast: Það getur orðið bið á því að þeim bjóðist sbk list í islenzku leikhúsi. Einar Bragi. Námsstyrkur Massacíhusetts Institute of Technology (M.I.T.) býður ís- lenzkum verkfræðingi styrk til dvalar og rannsókpa á siunar- námslceiði, er haldið verður 6. júní til 18. sept. 1954, undir handleiðslu prófessora skólans. Styrkur þessi er ætlaðw verk- fræðinguin, er lokið hafa fuiln- aðarprófi og liafa áhuga á rann sóknum einhvers efnis, er gæti orðið heimalandinu að gagni. Kostnaður við dvölina, ásamt ferðalögum i Bandaríkjunum og öllum nauðsynlegum útgjöJdum, verður greiddur og væntanlega einnig ferðakostnaður milli landa. Umsóknareyðublöð fáat á skrifstofu háskólans, er veitir allar nánari upplýsingar. Um- sóknir skulu hafa borizt há- slcólanum í síðasta lagi 24. þ.m.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.