Þjóðviljinn - 16.02.1954, Síða 7
Þriðjudagur 16. febrúar 1954 — ÞJÓÐVILJINN
!*egar vasáamáí ber að hönáum
spyrja meím ekki: flváð gerir IlþýSusambaJiáiS?
heldur spyrja menn:
r
A ðalfundur
i)nr hnlrti't
Dagsbrúnar
var haldinn s.l. sunnu-
dag í Ga?nla bíói. Sigurður
Guðnason lét pá af for-
mennsku Dagsbrúnar eftir
að hafa veitt einingarstjórn
verkannanna í Dagsbrún
forustu í 12 ár. Undir for-
ustu Sigurðar Guðnasonav
var Dagsbrún hafin ug'púr
eymd sundrungar, vonleys-
is og virðingarleysis og hef-
ur síðan verið pað forustu-
afl islenzkra verkalýðssam-
taka sem verkalýður um
land allt treystir á í hverri
raun.
Á aðalfundinum á sunnu~
daginn pökkuðu Dagsbrún-
armenn Siguröi hans ómet ■
anlega starf í págu félags-
ins og fluttu við pað tceki-
fceri rœður peir Hanncs
Stephensen, form. Dags-
brúnar, Árni Guömuiuls-
son, Björn Bjarnason for-
maður Iðju, félags verk-
smiðjufólks, Páll Þórodd-
sén, Gunnar Jóhannsson
formaður Þróttar, fluiti
hann kveðjur og pakkir
Þróttar og Verkamannafé-
lags Akureyrarkaupstaðar,
Tryggvi Emilsson, Þórður
Gíslason og Eðvarð Sig-
urðsson ritari Dagsbrúnar.
Þjóðviljinn birtir í dag
rœður þeirra Hannesar
Stephensen, Björns Bjarna-
sonar og Árna Guðmunds-
sonar.
Hazmes Stephensen:
SsMíielsiar beztsa kestf í$-
lesiæks alþýðumaims
Dagsbrúnarmenn.
Fyrir hönd þeirrar stjórnar
er nú tekur .við störfum vil ég
af heilum hug þakka ykkur fé-
lagar er þar áttuð hlut að, fyrir
traustið er þið sýnduð okkur,
og vona að við séum þess verð-
ir, og að það komi fram í starf-
inu sem fram undan er, að
það verði unnið á þann hátt
sem Dagsbrún er samboðið.
Ósk Sigurðar Guðnasonar,
sem nú hefur gegnt for-
mennsku í Dagsbrún s. 1. 12
ár, hefur að því leyti rætzt, að
við stjórnarkjörið sýndu
Dagsbrúnarmenn að þeir
vildu fyrst og fremst vernda
það sem þeim er ilýrmætasí:
ciningu félagsins og þá
stefnu sem mótuð hefur verið
í stjórnartíð hans.
í örstuttu máli er ekki hægt
að rekja það er merkast hefur
gerzt í stjórnartíð Sigurðar
Guðnasonar. Það er mikil saga,
en að mínu áliti á þann veg,
að á þeim árum hafa verið
mörkuð þau spor í sögu Dags-
brúnar er seint munu fyrnast.
Að þetta gerðist er engin til-
viljun. Þegar verkamaðurinn
Sigurður Guðnason tók við for-
ustu í Dagsbrún urðu þau
þáttaskil, að í stað vonleysis
og sundrungar voru þau öfl
sameinuð er hljóta að bera
uppi hina hörðu baráttu verka-
lýðsstéttarinnar á hverjum
tíma, traustið á sjálfum sér og
samtökum sínum.
Eg mun ekki hætta mér út
í neina persónulýsingu á Sig-
urði, en ég er þess viss að
beztu kosti íslenzks alþýðu-
manns sameinar hann, æðru-
leysi á hverju sem gengur,
yfirlættsleysi, samfara brein-
skilni og bróðurhug til hvers
einasta rnanns sem af honum
hefur k>Tini, en hvikar þó
hvergi frá þegar um heiídar-
hagsntuni verkalýðsins og ai-
þýðunnar er að ræða.
Hér á eftir munu nokkrir fé-
lagar koma fram, svo ég læt
þessum fátæklegu orðum lok-
ið, en vil svo hjartanlega
þakka Sigurði fyrir mína höni
og allra þeirra sem í samstarfi
við hann hafa verið, og óska
Dagsbrún til hamingju með
það að hafa fyrr og síðar not-
ið ávaxtanna af starfi hans, og
ég hygg að mörgum muni f.inn-
ast ásannast það orðíak, að er
þeir he>Ta góðs manns getið
kæmi þeim Sigurður Guðnason
í hug.
Bið ég hann svo heilan lifa,
og vona að Dagsbrún megi emi
um langa hríð njóta starfs-
krafta hans.
Ilssfisbriiiiar
Góðir Dagsbrúnarfélagar!
Þegar við stöndum hér
frammi fyrir þeirri staéreynd
að Sigurður Guðnason er að
láta af formannsstörfum í
Verkamannafélaginu Dagsbrún,
og við erum að þakka honum
fyrir hið mikla og óeigingjarna
starf hans íyrir Dagsbrún og
íslenzk verkalýðssamtök í
heild, þá verður ekki hjá því
komizt að líta til baka tíl árs-
ins 1942, þó að sú raunasaga
þess tímabils verði ekki rakin
hér.
Sú var skoðun fram . að þeim
timar og fullyrt, að verkamenn-
irnir gætu ekki sjálfir stjórn-
að félagi sínu, þéir hefðu ekki
menntun, þekkingu, kjark og
einurð til að leiða þetta stærsta
verkalýðsfélag landsins. Stór
hópur verkamanna var þó á
annarri skoðun fyrir tólf árum,
þeir ákváðu því að gera tilraun
og koma að stjórn verkamanna
sjálfra, sem gæti samcinað
verkamenn i sterka heild, og
útiloka sundrung og aðgerða-
leysi í hagsmunamálum félags-
manna.
Þao var mikil nauðsyn að
velja trausta og dugandi
menn til forustunnar, menn
sem aidrei m>Tidu brcgðast
verkalýðnnm hvað sem á
gengi, heldur rinna honum
allt, vera honum lciðandi afl
í öllum hans velferðármálum,
Fyrir valinu í formannssætið
varð Sigurður Guðnason, fá-
tækur og stéttvís verkamað-
ur, en rikur af áhuga og sam-
vizkusemi, samfara einurð og
stilling'u, til að bera fram
réítmætar kröfur verkamanna
með festu og alvöru. og með
honum í stjómina voru vald-
ir memi eins og Hannes
Stephensen og Eðvarð v Sig-
urðsson.
Þessum mönnum svo og öðr-
um sem kjörnir voru til að
stjóma Dagsbrún ásamt Sig-
urði, treystu verkamenn full-
komlega. Og þeir hafa sannar-
lega ekki brugðizt því trausti
okkar, eða skyldum sínum við
félagið.
Verkamenn fylktu sér um
þessa félaga sína og voru þeir
kosnir með yfirgnæfandi meiri-
hluta. Fyrsta einingarstjóm í
Dagsbrún var kosin. Síðan eða
í 12 ár hafa þessir sömu menn
starfað saman í stjórn Dags-
brúnar, með sívaxan,di traust
félagsmanna að bakhjarli. Á
þessum tíma hefur margt og
mikið áunnizt. í félagsnaálum
Dagsbrúnar. Á þessurn árum
hafa verið síigin stærstu spor-
in fram á við, til mannsæmandi
lífs fyrir verkamenn, og yrði
það of langt mál að telja það
allt upp nú. Nú er Dagsbrnn
orðið sannkallað virki verka-
lýðsins í Iandinú. Skjól og
skjöldur alls vinnaudi fólks.
Eg' hugsa, að nú sé enginn
verkamaður ti! í þcssu landi,
sem ekki hefur annað hvort
beint eða óbeint noíið góðs
af hinni markvissu baráttu
Dagsbrúnar á þessum árum.
Þannig hefur farsæl forysta
Sigurðar Guðnasonar borið
mikinn og heillaríkan ávöxt.
Nú baðst Sigurður undan
endurkosningu sem formaður
Dagsbrúnar, sökum þess að
- (7
hann sagðist vera orðinn það
fullorðinn, að hann gæti ekki
unnið fyrir Dagsbrún, eins og
hann vildi, og taldi því sjálf-
sagt að yngri maður tæki við.
Þetta sýnir bezt ást hans og
umhyggju fyrir félagi sínu, sem
hann hefur helgað starf sitt og
krafta síðastliðín tólf ár. Þetta
sýnir líka mjög vel víðsýni
hans og óeigingjarnt rökrett
mat á viðhorfum lífsins, að
þeir yngri taki við smátt og
smátt af þeirn eldri. Þá ríður
ekki svo lítið á því að þeir
eldri, sem aíhenda yngri mönn-
unum ábyrgðarmikil störf,
skili þeim af sér þannig unn-
um að fyrirmynd sé að, að
þeirra vegur sé meiri, ef þeír
geta fetað í fótspor fyrifrenn-
ara sinna, og vegur þeirra sé
mesíur ef þeir geta örlítið bet-
ur.
Þannig hefur Sigurður
Guðnason unnið, og þannig
skilar hann af sér til þeirra
yngri sem taka við af honum.
Já, það var mikið lán Dags-‘
brúnarmanna þegar Sigurður
tók við forystu í Dagsbrún, og
stöndum við því í mikilli þakk-
arskuld við hann.
Hann er maðurinn sem
aldrei hefur brugðizt. Hann
hefur talað kjark í okkur og
stælt vilja okkar, þegar
Framhald 4 11. aS3u
Bföm Bjarnason:
Slíkt tTmmt feer ísleisskiir
verkalýður iil Hsagsferúuar
Góðir Dagsbrúnarmenn!
Eg tel mér það heiður að fá
að mæta hér á þessum fundi
til að flytja þakkir félags míns,
Iðju, félags verksmiðjufólks,
til Dagsbrúnar, og sérstaklega
til fráfarandi formanns henn-
ar, Sigurðar Guðnasonar, fyrir
þá ágætu samvinnú er vérið
hefur milli félaganna og fyrir
þá aðstoð er Iðja hefur notið
vegna þessarar sámvinnu.
Við deilum varla um það að
heildarsamtök íslenzka verka-
lýðsins, Alþýðusambandið,
gætu verið athafnasamari í
hagsmunabarátíunni en raun
ber vitni og að vefkalýðurinn
hefði verið varbúinn að mæta
árásum afturhaldsins á lífs-
kjör sín, eí önnur forysta hefði
ekki köínið til. En í form'anns-
tíð Sigurðar Guðnásoriar hef-
ur forystan í liágsmunabar-
áttunni í stöðugt vaxandi
mælt færzt yfir á herðar
Dagsbrnnár. Hvernig Dags-
brún hefur rækt þetta for-
ystuhlutverk tná marka af
því að ef einhver vandamál
ber að liöndum spyrja menn
ekki „hvað gerir Aiþýðusam-
bandið?“ hcldur spyrja menir.
„Hvað gerir Dagsbrún?“
Þessi Iátlausa spuming segir
meira uin það traust er ís-
lenzkur verkalýður ber tii
Dagsbrúnar og forystu lienn-
ar en ég' gæti gert í lönga
máli.
Góðir Dagsbrúnarmenn. Þótt
við í dag kveðjum Sigurð
Guðnason, sem formann DagSr
brúnar, með nokkrum söknuði
og með jtakklæti fyrir þann
skerf er hann hefur lagt til
baráttusögu Dagsbrúnar, og
þar m,eð íslenzka verkalýðsins
alls, þá er hitt aðalatriðið sem
hlýtur að vera hverjum ein-
lægum verkalýðssinna gleð:-
efni, að þótt formannaskipti
haíi orðið í Dagsbrún hefur
ekki crðið þar nein r.tefnu-
breyting. Dagsbrún verður eft-
ir sem áður sii forystusveit ís-
lenzka vetkalýðsins er safnar
uni stefnu sína öllum fram-
sæknústu og beztu kröftmn
hans.