Þjóðviljinn - 16.02.1954, Síða 11

Þjóðviljinn - 16.02.1954, Síða 11
Þriðjudagur 16. febrúar 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11 Framhald af 7. síðu. stundir örlaga hafa verið framundan. Hann hefur með bjartsýni sinni og léttu lund kveðið niður kvíða og svart- sýni, þegar ganga hefur átt til orustu, og þannig tryggt marga og stóra sigra. SigUrður hefur verið og er alltaf stétt sinni til sóma, hvar sem hann fer. Hann eða skoðanir hans hafa aldrei verið falar fyrir peninga. Aldrei boðnar í skiptum fyrir embætti eða bitlinga á hinum pólitísku markaðstorgum. Sigurður er sannarlega úr ís- ienzkum góðmálmi, mótaður og fægður af Mfsbaráttunni, bess vegna bregzt hann aidrei. Eg ætla til gamans, að segja ykkur frá smáatviki seni skeði austur i Moskva í fyrraýor þegar við vorum þar. ég hef ekki haft tækifæri tii að segja ykkur frá því fvrr, og Sigurð- ur mun aldrei segja ykkur það. Nokkrum dögum áður en við ætluðum heim, kom leiðsögu maður okkar að máli við okk- ur, og sagði, að við værum boð- in á fund síðasta kvöldið sem við værum í Moskva, ásarnt öðrum verkalýðsnefndum, sem þá voru þar. Þar yrðu mættir allir helztu menn verkalýðs- samtaka Moskvuborgar. Dug- skrá fundarins væri sú að for- menn allra sendinefndanna flyttu stuttar ræður, og segðu fréttir frá Verkalýðsbaráttu og afkomumöguleikum alþýðunn- ar í heimalöndum sínum. Við imdirb.iuggum ölí i félagi ágætt yfiríit yíir þessi mát hér heima, Það var búið að aanga frá þýðingu á þessari ágætu ræðu sem Sigurður átti að flytja, en hann var formaður okkar nefndar. Leið svo tíminn, þangað 'il að nokkrar mínútur voru þar til við áttum að leggja af stað á þennan fund, þá kemur leið- sögumaður okkar upp í her- bergi til okkar, og er daufur í dalkihn, og segir að fyrir einhvern misskilning sinn muni ræða sú sem við höíðum undirbúið ekki geta tilheyrt fundinum, vegna þess að það sé aðeins á dagskrátmi, að for- menn nefndanna segi frá þyí, hvernig nefndunum lítist á sig í Sovétríkjunum, hvað þeim hafi litizt vel á, og hvað miður, hvernig þeim félli fóikið, verk- smiðjurnar, listir þeirra og menning. Ja, nú syrti i álinn, engin ræða til, og enginn tími til að semja itana. Við beiddum konu þá sem átti að túika á rússnesku að sjá um, _ef hún gæti, að Sigurður yrði síðastur eða með þeim síðustu á ræ'ðu- mannalistanum, svo honum gæfist örlítið tóm til að hugsa sig um. Við fórum á fundarstaðinn og komum inn í stóran og glæsilegan sal, þéttskipaðan prúðbúnu fólki, Okkur er skip- að til sætis í öðrum enda sal- arins, sem var upphækkaður, með öðrum verka 1 ýðsnefnduin, sem voru sex. Forseti verká- lýðssambandsins var í forsæti. og bauð nefiidirnar velkomnar, að því loknu gaf hann kín- verska fulltrúanum orðið. Flutti hann skrifaða ræðu, og var henni vel tekið og mikið klapp- að. Þegar hann var langt kom- inn með ræðu sína, hnippir rússneski túlkurinn okkar í Sigurð og segir: „Þú ert næst- ur“. Okkur brá öllum, og ég býst við að Sigurði haíi þó brugðið mest. Þegar Kínverjinn hafði lok- ið máli sínu segir forseti að næstur tali Guðnason frá ís- landi. Við stóðum á öndinni af eftirvæntingu, hvernig færi þetta undirbúmngslaust og án nokkurrar umhugsunar? Sigurður gengur rólegum skrefum upp í ræðustólinn, ásamt túlkum, og fiytur þarna bráðsnjalla ríeðu, við , svo mikla hrifning, að hann varð oft að gera hlé á ræðu sinni, og þegar hann iauk máli sínu, var eins cg húsið ætlaði að hrynja, klappið og fagnað- arlætin voru svo mikil. Svp talaði hver af öðrum og alhr. við mjög góðar undirtektir, þó enginn eins og Sigurður, þótt allir væru undirbúnir með skrifaðar ræður, nema hann. Þegar fundi var slitið komu margir og þrýstu hönd Sigurð- ar, og nokkrir. létu sér það ekki nægja, þeir föðmuðu hann, tóku hann í fang sér og döns- uðu með hann um gólfið. Slík- ar viðtökur fékk engiim nema hann. Verkamaðui'inn fátæki norðan frá ísíandi, heillaði þarna með franikomu sinni og túlkun f jöldann af . öndvegis- mönnum þeesa mikla verka- lýðsríkis. Sigurður brást ekki i þetta skipti frekar- en í bar-. áttunni hér heima. Þá var ég- stoltur af formanni Dagsbrún- ar eins og oft áður. Að svo mæitu óska ég þess að Dagsbrún og allur verka- lýður þessa lands megi njóta Sigurðar og hans góðu ráða i mörg ár enpþá. Að lokum þakka ég þér, Sig- urður, fyrir allt sem }>ú hefur gert fyrir okkur Dagsbrúnar- menn, svo og alla persónulcga elskusemi heima og heiman. Sigurður Guðnason lengi Ufi! 2ja, 3ja, 4ra, S og' 6 herbergja íbúðir og einbýiishús. Höfum kaupendur að liús- um með 2 íbúðum 3ja, 4ra og 5 herb. Útborganir frá 300 til 400 þúsund. Jörð i Hnappadalssýslu er til sölu, laus til ábúðar í næstu fardögum. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. SALfí. 0G SAMNINGAR Söivhólsgötit 14. Simi 0916 Viðtaisíími 5—7 daglega. Ég ’undirrit... gerist áskrifandi aö bókinni Bóndiim í Bráðagerði eftir Álf UtangarSs. NAFN HEIMILI Hef breytt viðtalstíma mtimni' Viðíalstiminn vérður fram- vegis kl. 2—6.30 e. h. alia daga nema iaugardaga ki. 10 --11. f.h. Ga$U]bert &«Sntuit*Ís$öá ; , - tanníæknir. . Njáisgötu 16. ————— 5 ÖtbrelSið Þjóðviljann! Bókin í snoturri kápu mun kosta til áskrifenda kr. 28,00. Sendið nafn og heimilisfang til Afgreiðslu Þjóó'viljans Skólavör'öustíg 19 Reykjavík. ið|aroarlials £ *)■ 44 r niöiir Með því aö' skráöir þátttakendur í væntanlega ferð • m.s. ,;GULLFÓSS“ til Miöjáröarhafsiahda uröu eigi nógu márgir til þess aö fært þætti að' láta skipið fara feröina, höfum vér ákveðið aö FERÐIN FALLI NIÐUR. Þeir farþegar, sem greitt hafa hluta af fargjaldi sínu, eni beönir aö vitja endurgreiöslu á því hjá farþegadeild vorri. H.F. EÍMSKÍPAFÉLAG ÍSLANDS. Þjóðviljann vantar nnglisi til að bera biaðið til kaupenda í Laugarnesi M0ÐVILJINKÍ. sími 7500 «• e Reykjavík — Leith — Kaapntannaköín Með því að íyrirhuguð íerð m.s. ,,GULLF0SS" til Miðjarðarhafslanda fellur niður, held- nr skipið áfram feráum sínum xnilli Eeykjavíkur, Leifh og Kaupmaimahafnar samkvæmt neðangreindri áætlun: 3. ferð: 4. ferö: 5. ferð: 6. ferð: 7. ferð: Frá Kaupmannahöfn kl. 12 á hádegi Mvd. 10/2 Þrd. 2/3 ld. 20/3 ld. 10/4 ld. 1/5 Til Leith árdegis föd. 12/2 fid, 4/3 md. 22/3 md. 12/4 md. 3/5 Frá Leith ld. 13/2 föd. 5/3 þrd. 23/3 þrd. 13/4 þrd. 4/5 Til Reykjavíkur árdegis þrd. 16/2 md. 8/3 föd. 26/3 föd. 16/4 föd. 7/5 Frá Iteykjavík kl. 5 e.h. Frá Leifch Id. 20/2 þrd. 23/2 föd. 12/3 md. 15/3 mvd. 31/3* þrd. 20/4 föd. 23/4 þrd. 11/5 föd. 14/5 Til Kaupmannahafnar árdegis fíd. 25/2 mvd. 17/3 md. 5/4 sd. 25/4 sd. 16/5 *) Skipið fer beint til Kaupmannahafnar í þessari ferö. Að lokinni 7. ferð hefjast hinar hálfsmánaðarlegu sumarferðir m.s. >,GIÍLLF0SS" með brottíör skipsins frá Kaupmannahöfn laugardaginn 22. mai kl. 12 á hádegi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.