Þjóðviljinn - 06.04.1954, Blaðsíða 12
Álmennur skortur fyrirsjáðnlegur á
steypustyrktarjárni, miðstöðvaroffr
um og þakpappa tll bygginga í sumar
Byggingarbrashariírnir athafnasamir í
upphauputn me&ah almenningur bíður
J eftir seari við umsóhnum sínum um
[• bgggingarlóðir
Allar horíur eru á því að mikil vöntun verði í vor
og sumar á ýmsum tegundum byggingarefnis, svo
sem steypustyrktarjárni, miðstöðvarofnum og þak-
pappa. Hinsvegar er útlit fyrir að nægilegt magn
verði fyrir hendi af sementi, timbri og hreinlætis-
tækjum. Eiga byggingarvöruverzlanirnar von á
timburförmum í næsta mánuði sem nægja eiga eftir-
spurninni á komandi sumri.
Þjóðviljinn hefur það eftir góðum heimildum, þó
ekki frá byggingarvöruverzlununum sjálfum, að
þess hafi allmjög gætt að undanförnu að fjársterkir
aðiljar sem hyggja á byggingar í gróðaskyni hafi
keypt upp þær tegundir byggingarefnis sem útlit
er fyrir skort á og þá sérstaklega steypusfyrktar-
jarmð.
pJÓÐVILJINN
Þriðjuaagur 6. apríl 1954 — 19. árgangur — 80. tölublað
Leikfélag Reykjavikur frnmsýnir
Fræuku Ckarleys aimaðkvöld
Nýtt íslenzkt leikrit væntanlega sýnt í vor
Annaðkvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur hinn
kunna gamanleik Frænku Charleys, undir leikstjórn Ein-
ars Pálssonar. AÖalhlutverkið leikur Árni Tryggvason.
Uppkaupin á steypustyrktar-
járninu, en á því er langur af-
greiðslufrestur erlendis, hafa það
í för með sér að einstaklingar og
byggingafélög sem hyggja á
byggingar í sumar sitja uppi
allslausir þar til í haust að von
er á nýrri sendingu af járninu.
Um miðstöðvarofnana er það að
segja að mjög hefur á það skort
að veitt hafi verið nægjanleg
leyfi til innflutnings á þeim, en
eins og kunnugt er er innflutn-
ingur byggingarefnis háður duttl-
ungum og leyfum stjórnarvald-
anna, þrátt fyrir allt skrumið
um „byggingarfrelsið“:
Byggja í gróffaskyni
Það er opinbert leyndarmál
.að ýmsir fjársterkir aðiljar sem
eiga innangengt hjá valdhöfun-
um hafa í hyggju að ráðast í
byggingar, ekki af eigin þörf
heldur í gróðaskyni. Munu þessir
aðilar hafa gerzt all umsvifamikl-
ir í því að tryggja sér í tíma
þær tegundir byggingarefnis sem
mest hætta er á að gangi til
þurðar. í þessum hópi er i d.
Helgi Eyjólfsson, fyrrv. „skömmt-
unarstjóri“ Fjárhagsráðs og nú
væntanlega Innflutningsnefndar!
Er hugmynd Helga að byggja 2
tólf íbúða sambýlisblokkir eða 24
íbúðir alls. Heyrzt hefur og að
annar valdamaður úr innflutn-
ingskerfi ríkisstjórnarinnar, Páll
S. Pálsson, fyrrv. varaformaður
Fjárhagsráðs, hyggi einnig á mik-
il umsvif í þessu efni og ætli að
byggja minnst 36 íbúðir.
Nánari atvik eru þau að her-
bíllinn VL-375 var á leið út af
flugvellinum til Keflavíkur. Bif-
reiðinni stjórnaði amerískur lið-
þjálfi, en í bílnum með honum
var íslenzk stúlka. Er bifreiðar-
stjórinn hafði ekið langleiðina
niður að Reykjanesbraut sá hann
mann í veginum rétt fram undan
bílnum. Hann snarhemlaði, en það
dugði eigi; og skipti það engum
togum að bíllinn fór yfir mann-
inn, með þeim afleiðingum að
hann lézt samstundis.
Hinn látni var aðeins 19 ára
að aldri, fæddur 28. september
1934. Hann vann hjá Sameinuðum
verktökum á Keflavíkurvelli.
Kærkomin affstoff
Þessi athafnasemi gróðamann-
anna, sem eiga aðgang að nægi-
legu fjármagni og geta þannig
tryggt sér allt sem til bygginga
þarf, á áreiðanlega eftir að koma
hart niður á þeim fjölda sem af
mikilli þörf en litlum efnum
hefur verið með ráðagerðir um
að reyna að koma upp íbúðum á
þessu ári. Seinlæti bæjaryfir-
valdanna í úthlutun lóða til al-
mennings hefur orðið bröskurun-
um kærkomin aðstoð í þessu sam-
bandi. Einstaklingur sem bíður
í fullkominni óvissu eftir svari
við lóðarumsókn sinni telur sér
ekki fært að hefja nauðsynlegar
undirbúningsráðstafanir, svo sem
að afla teikningar og byggingar-
Rannsókn málsins var ekki lok-
ið í gær.
Guðrún Pálsdóttir húsfreyja
á Hallormsstað hefur numið
brott prestsskrúðann úr Valla-
neskirkju og birtir yfirlýsingu
um það efni á öðrum stað í
blaðinu í dag. Prestur í Valla-
nesi er sem kunnugt er Pétur
Magnússon, og kveðst Guðrún
ekki munu láta skrúðann af
hendi við hann fyrst um sinn
og sé hún reiðubúin að taka
afleiðingum þess. Kemst hún
m. a. þannig að orði í yfirlýs-
ingunni: „Pétur Magnússon í
Vallanesi getur átt heima hvar
sem er mín vegna í venjuleg-
um klæðnaði, en íklæddur hinu
hvíta líni með merki hins Hei-
laga kross á herðum sér getur
hann ekki framar birzt frammi
fyrir altari Drottins vors Jesú
Krists“.
Frú Guðrún sagði í viðtali
við Þjóðviljann í gær að marg-
ar ástæður væri til þessarar á-
kvörðunar sinnar, atferli Pét-
urs hefði verið slíkt að hann
ætti ekki heima í prestsskrúða
Þeir Brynjólfur Jóhannesson,
formaður leikfélagsins, og Einar
Pálsson leikstjóri, skýrðu blaða-
mönnum frá þessu í gær.
Frænka Charleys hefur oft og
víða verið sýnd hér á landi, fyrst
I í Breiðfjörðsleikhúsi 1895’, í þýð-
ingu þeirra Einars Benediktsson-
ar og Ólafs Hauks. Sú þýðing var
gerð eftir danskri þýðingu, en
nú hefur Lárus Sigurbjörnsson
þýtt leikinn að nýju eftir enskri
útgáfu, en höfundurinn, Brandon
Thomas, var Englendingur. Leik-
ur þessi hefur alla tíð notið mik-
illa vinsælda vítt um lönd.
Árni Tryggvason fer með aðal-
Fundur þessi tók áfengislaga-
frumvarpið til meðferðar.
Enn hafa komið fram margar
breytingartillögur við frumvarp-
ið. Þeirra athyglisverðust er til-
laga Karls Guðjónssonar sem
kveður svo á að veitingahús fái
ekki að leggja meira en 20% á
áfengi það, sem þau koma til með
að selja samkvæmt hinum nýju
áfengislögum.
og hann hefði verið ófáanlegur
til að fara eftir ábendingum
sóknarbarna sinna. Einnig'
minntist hún á stólræðu þá sem
Pétur flutti í útvarp nýlega,
en margir hafa talið hana eiga
lítið skylt við kristindóm.
MÍR Akranesi
Fræðslustarfsemin heldur á-
fram í kvöld í Góðtemplarahúsinu
og hefst kl. 9. Dagskráin verður
þannig:
Frú Unnur Leifsdóttir flytur er-
indi um Sovétsendinefndir.
Fréttamynd.
Kvikmyndin Brúðkaupið.
Munið að erindið hefst kl. 9 og
sýningar þegar á eftir. Mætið
vei og stundvíslega.
Stjómin.
hlutverkið, frænkuna. Meðal ann-
arra leikenda skal nefna Brynjólf
Jóhannesson, Þorstein Ö. Steph-
ensen, Gerði Hjörleifsdóttur,
Helgu Valtýsdóttur, Önnu Stínu
Þórarinsdóttur og Kristjönu
Breiðfjörð.
Lothar Grund hefur gert leik-
tjöld.
Þá skýrðu þeir félagar frá því
að eitt leikrit enn mundi sýnt í
vor, að öllu forfallalausu. Er það
nýr íslenzkur gamanleikur, en
höfundur vill ekki láta nafns síns
getið að svo stöddu. Leikurinn
fer að miklu leyti fram í Kefla-
vík.
Talaði Karl fyrir tillögunni og
taldi nauðsynlegt að leyfin til
vínveitinga fælu ekki 1 sér stór-
kostlega gróðamöguleika og yrðu
því ekki sérlega eftirsóknarverð
nema fyrir þá, sem vilja fram-
reiða vín af þjónustusemi við
gesti sína fyrir hæfilega þóknun
án okurgróða.
14 skeggjaðlr
mættu til keppni
Skeggkeppni klæðskeraverk-
stæðisins Style fór fram s.l. laug-
ardagskvöld á dansleik í Sjálf-
stæðishúsinu, og voru þátttak-
endur 14.
Fyrstu verðlaun, fyrsta flokks
föt frá Style, hlutu þeir Kristinn
Morthens og Jón Hnefill Aðal-
steinsson stúdent. Önnur verð-
laun, nylonskyrtur frá Haraldi
Árnasyni, hlutu Lárus Rist og
Benedikt Kristinsson. Forstjóri
Toledo veitti Lárusi Rist einnig
sérstaka viðurkenningu, frakká:
— Dómnefndin, sem dæmdi í
keppninni var skipuð tveim kon-
um og þrem karlmönnum.
Halldór Halldórsson tek-
ur við ritstjórn Skírnis til
bráðabirgða
Prófessor Einar Ólafur Sveins-
son, sem verið hefur ritstjóri
Skírnis, tímarits Hins íslenzka.
bókmenntafélags, síðustu árin,
lætur nú af ritstjórn um tveggja
ára skeið. Halldór Halldórsson
dósent hefur verið fenginn til
að annast ritstjóm Skímis árin
1954 og 1955.
---------------------------------------
Almennur Sósíaiistafélagsfundur
í kvöld að Laugaveg 162
Samíylkingarmálin og vandamál togaraútgerð-
arinnar til umræðu
Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur almennan félags-
fund í kvöld kl. 8.30 í samkomusalnum að Laugaveg 162.
Á dagskrá fundarins eru félagsmál, samfylking verka-
lýðsins (framsögum. Eggert Þorbjarnarson) og rekstur
togaraútgerðarinnar (framsögum. Einar Olgeirsson).
Þess er vænst að flokksmenn fjölmenni á fundinn..
Framhald á 11. síðu
Banaslys á Hafnavegi við
Keflavíkurflugvöll
Herbíll ekur á ungan mann, Sturlu
Finnbogason frá Seyðisfirði
Klukkan tæplega eitt í fyrrinótt varð banaslys á Hafna-
veginum milli aðalhliðs Keflavíkurvallar og Reykjanesbrautar.
19 ára piltur, Sturla Finnbogason frá Seyðisfirði, varð fyrir
herbifreið og beið þegar bana.
Prestsskrúði Péturs í
Vallanesi f jarlægður
Verður álagning veitingahúsa
á áfengi takmörkuð við 20% ?
Neðri deild Alþingis hélt kvöldfund í gær. — Vegna raf-
magnsbilunar í miðbænum hófst fundurinn ekki fyrr en
20 mínútum síðar en boðað var eða kl. 20.20.