Þjóðviljinn - 08.04.1954, Side 6
6)1 — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 8. apríl 1954
þlÓOVIUINN
Útgefandl; Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíallstaflokkurinit
Rltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sígurður GuSmundsson.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
BlaSamenn: Asmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Siml 7500 (3 línur).
Áskriftan-erð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöiuverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.í.
_________________________________
Baráttan fyrir virkjun Efri fessa
ber árangur
Eins og skýrt var frá i blaðinu í ga'-r hefur ríkisstjómin lagt
fyrir Alþingi frumvarp um lántökuheimild til virkjunar Efri
lossa í Sogi, að upphæð allt að 100 milljónum króna. Er til þess
ætlast að frumvarpið fylgi stjómarfrumvarpi þvi scm lagt vár
íram s.l. föstudag um 10 ára áætlun í raforkumálum laudsins og
fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi.
Lántökuheimildin er ætluð stjóm Sogsvirkjunarinnar, enda
lrumvarpið flutt eftir beiðni hennar. Þó er gert ráð fyrir í frum-
varpinu að ríkisstjórnin geti ákveðið, ef hentara þykir, að
Eramkvæmdabanki íslands annist lántökuna og endurláni síðan
íéð Sogsvirkjuninni gegn gildum tryggingum.
Það er ástæða til að fagna þvi fj-rir Reykvikinga og Sunn-
lendinga yfirleitt að ríkisstjórnin og flo',.tkar ‘ltónnar hafa með
flutningi þessa frumvarps loks viðurkennt þörfitia á nýjum
virkjunarframkvæmdum í Sogi. Flutningur þéss cr tvímælalaust
árangur af þeirri einörðu og ótrauðu baráttu sém Sosialistaflokk-
urinn, og þá ekki sízt formaður hans, Einar Olgeirsson, hefur
háð f\rir framgangi þessa mikla hagsmuna- og nauðsjnjamáls
allra þeirra sem búa á orkusvæði Sogsviritjunarinnar. Rökin
iyrir nauðsyn nýrrar virkjunar í Sogi hafa verið sett svo
fkýrt fram og reynst svo mikilvæg að stjórnarvöldin hafa séð
}>ann kost vætistan að láta undan síga. Úm það ber flutningur
þessa frumvarps greinilegast vitni, þótt hinu beri ekki að gleyma
að mikið tjón er að þeirri töf sem orðið hefur á. framgangi máls-
ins, þvi öll rök hnigu að því að heppilegast hefði verið að halda
rirkjunarframkvæmdum i Sogi óslitið áfram þegar að Irafoss-
rirkjunlnni lokinni.
Einar Olgeirsson flutti þegar á Alþingi 1952 tillögu um þessa
’ántökuheimild og sýndi með skýrum rökum fram á nauðsyn
þessara framkvæmda. Tillagan var felld af sameinuðu liði
EÍjómarflokkanna. Slíku.r var skilningurinn á málinu þá.
Aftur tók Einar málið upp í frumvarpi því um rafvæðiagu
atlls landsins sem liggur fyrir yfirstandandi Alþingi. Sýndi hann
enn í greinargerð fram á þá brýnu nauðsyn að lántökulieimildín
yrði samþykkt svo unnt yrði að byrja sem allra fyrst á virkjun-
inni og henni yrði Iokið eigí síðar en 1956-1957 og þamig komið
í veg fyrir yfirvofandi rafmagnsskort. Elnn fckk málið daufar
undirtektir í liði ríkisstjórnarinnar og ekf.ú jók það á líkurnar
iyrir heillavænlegri lausn að ekkert atriði stjómarsamnings
íhalds og Framsóknar var jafn loðið og teygjanlegt eins og á-
kvæðið um fyrirgreiðslu við virkjun Efri fossa. Var full ástæða
lil að ætla að fyrir ríkisstjórninni og flokkufn hennar vekti að
láta Sogsvirkjunina nýju sitja á hakanum þótt ráðstafanir
yrðu gerðar til uíidirbúnings annarra virkjana.
Þegar þessar óglæsilegu horfur blöstu við fluttu þeir Einar
Olgeirsson og Sigurður Guðnason tillögu sína um að Sogsvirkj-
unarstjómin sjálf fengi heimild til lántökunnar með á.byrgð rík-
issjóðs og Reykjavíkurbæjar. Hlaut það eins og komið var að
teljast fullkamin lágmarkskrafa á hendur ríkisstjóraar og Al-
þingis að Sogsvirkjunin hefði lögformlega heimild til að taka
lán til fi'amkvæmdanna ur því ríkisstjómin hafði eíkki meiri á-
huga fyrir málinu en raun bar vitni.
Jafnframt þessari baráttu sósíalista á Alþingi vakti Þjóðvilj-
inn hvað eftir annað athygli á málinu og skýrði það frá hags-
jrunalegu sjónarmiði alm. og Sogsvirkjunarinnar sem fj-rir-
iækis. Og í kosningastefnuskrá sinni i síðustu þingkosningum
lagði Sósíalistaflokkúrinn sérstaka áherzlu á að málir.u yrði
hrundið í framkvæmd. Bæjarfulltrúar fktk:sins í Revkjavik
hafa og hvað eftir annað tekið málið upp á bæjarstjórnaríund-
im og lagt í tillögum og ræðum áherzlu á mikiivægi þess að
hæjarstjórnin væri vakandi í málinu og léti ekkert tækifæri ó-
notað til að tryggja að sem allra fjTst yrði ráðizt í virkjuhar-
framkvæmdimar. Allar þær tillögur hefur íhaldið drepið og
sýnt hið mesta tómlæti i málinu, þrátt fyrir augljósa og aðkall-
nndi nauðsj-n og almennan áhuga Reykvíkinga fyrir framgangi
þess.
Þetta eru í stuttu máli nokkur helztu atriði íæirrar baráttu
Sósíalistaflokksins fyrir virkjun Efri fossa í Sogi sem háð hefur
verið síðustu árin og nú liefur borið þann heillavænlega árangur
•að fullvíst má telja að lántökulieimild til virkjunarinnar verði
famþykkt á yfírstandandi Alþingi.
Barátta Bandaríkjastjómar
gegn friði í Indó Kína
Þegar svona er í pottinn búié
hefur hvorugur aðili bol-
magn til að sigra hinn. Stríð-
ið er því í raun og veru tauga-
strið þar sem markmiðið er að
þreyta andstæðinginn og sýna
honum fram á að hann geti
alls ekki unnið sigur. Þetta
þóf hefur staðið ár- eftir ár
og hafa Frakkar farið halloka
og því meira sem lengra hefur
liðið. Ef utanaðkomandi öfl
koma ekki til skjalanna er því
um tvennt að ræða, sama þófið
um ófyrirsjáanlega framtíð eða
friðargerð við samningaborðið.
Andúð fransks . almennings á
nýlendustriðínu' í Indó Kína
er ríú orðin svo megn að eng-
in ríkisstjórn getur lengur "irt
hana að vettugi. Ho Chi Minh,
forseti lýðveldisstjórnar sjálf-
stæðishreyfingarinnar, hefur
boðizt til að hefja samninga
við Frakka. Á Berlínarfundi
utanríkisráðherra fjórveldanna
í vetur var það svo ákveðið að
þau skyldu ásamt Kína, ná-
grannaríki Indó Kína, og öðr-
um hlutaðeigendum, ræða frið-
argerð á fundinum í Genf.
Fréttaritarar sem voru í Ber-
lín segja að samþykki við
samningaumleitunum úm frið í
Indó Kíría hafi verið það verð
Þorri hermanna í sjálfstæðishernum í Indó Kína eru ungi
hæmlasynir sem berjast ekln einungis fyrir því að reka Frakk
af höndmn sér heldur einnig fyrir afnámi lénsskijmlagHÍns sei
um altlaraðir hefur þjakað sveitaalþýðuna. .4 myndinni sjást liei
uienn og ÍKendur viuna sainan að ;því að þreskja kont
sem Dulles, utanríkisraðherra
Bandarikjanna, keypti Bidault,
franska utanrikisráðherrann,
til að hafna formálalaust öllum
boðum sovétsendinefndarinnar
um afvopnað, hlutlaust og sam-
einað Þýzkaland. Vitanlegt er
að Frakkar væru löngu búnir
að axla sín skinn og yfirgefa
Indó Kína ef ekki hefðu kom-
ið til bandariskar kröíur um
að þeir berðust áfram og
bandarískar vopnasendingar og
fégjafir til að standa straum af
hernaðinum har. í fjárlaga-
ræðu sinni í vetur skýrði
franski fjármálaráðherrann frá
Eriend J
iíðindi |
því að Bandaríkin greiddu nú
78% af herkostnaði Frakka í
Indó Kina. Slík fjárútiát sýna
að mikið þykir við liggja og í
ræðu i vetur skýrði Eisenhow-
er forseti Bandaríkjamönnum
frá því hvaða augum stjórn
hans litur á. striðið í Indó
Kína.
Að dómi forsetans. liggur
hvorki meira né minna við
en öll Suðaustur-Asía, eitt
mesta matvæla- og hróefnabúr
jarðarinnar. Ef alþýðunni í
Indó Kína tagkist að varpa af
sér tvöföidu oki erlendra yfir-
drottnara og innlends léns-
skipulags, myndi það verða al-
þýðu Thailands, Malakka, Indó-
nesíu, Filippseyja og Burma ó-
mótstæðilegt fordænii. Auð-
hringar Bandaríkjanna myndu
missa tökin á auðlindum þess-
ara landa. Og þar að auki gætu
Bandaríkin ekki lengur ógnað
Kína með tangarsókn frá Indó
Kína í vestri og Taivan í austri.
En franskur almenningur gefur
engan gaum að æðri herspeki
bandaríska yfirherráðsins og
eftir Berlinarráðstefnuna varð
það æ ljósara að engri ríkis-
stjórn yrði sætt í Frakklandi
nema hún gerði á fundinum í
Genf alvarlega tilraun til að
semja frið við sjálfstæðis-
hreyfingu Indó KLna. Fyrir
Bandaríkjastjórn voru því góð
ráð dýr.
Bandarísk blöð játa það full-
um fetum að vegna fylgis
almennings við sjálf stæðis-
hreyfingu Indó Kína myndi
sérhver friðargerð hafa í för
með sér valdatöku hennar. Að
sögn Dana Adams Somidt i
New York Times 28. febrúar
eru embættismenn í Washing-
ton sannfærðir um að sjálf-
stæðishreyfingin myndi vinna
glæsilegan sigur í frjálsum
kosningum í Indó Kína. Frétta-
ritarinn ber embættismenn ut-
anríkisráðuneytisins og þing-
menn fyrir því að í Genf megi
búast við „tillögum um póli-
tíska lausn sem hinir stríðs-
þreyttu Frakkar ættu erfitt
með að neita“. Bandaríkja-
stjórn hefur því tekið þá á-
kvörðun að hún verði að beita
öllum ráðum til að hindra að
vopnaviðskiptum verði hætt í
Indó Kína. Dulles utanríkisráð-
herra tilkynnti þessa ákvörð-
un í ræðu 29. marz á fundi er-
lendra fréttaritara í 'New York.
Hann iýsti yfir að Bandaríkin
myndu ekki láta það viðgang-
ast að sjáifstæðishreyfing Indó
Kína nái völdum „með hvaða
hætti sem er“ og til að fram-
íylgja þessari ákvörðun verði
beitt öllum ráðúm enda þótt
þeim kúríni að fylgja „mikil á-
hætta“. Síðustu daga hefur svo
verið að fréttast af fyrstu að-
gerðunum af hálfu Bandaríkja-
stjórnar. Hún reynir að fá
stjórnir Frakklands, Bretlands,
Ástralíu, Nýja Sjálands, Thai-
lands og Filippseyja til að lýsa
yfir með sér að gripið verði
tii sameiginlegra aðgerða ef
Framhald á 11. síðu
Nokkru áður en Arthur Rad-
ford flotaforingi varð for-
seti yfirherráðs Bandaríkjanna
að skipun Eisenhowers forseta
komst hann svo að orði að hann
væri sannfærður um það að
Bandaríkin yrðu að berjast í
háifa öld ef með þyrfti til að
hindra það að kommúnistisk
stjórn sitji að völdum í sterku
og sameinuðu Kína. Þessi hugs-
unarháttur, að gagnbylting í
Kína sé brennandi hagsmuna-
mál Bandaríkjanna, skýrir til-
tektir bandarískra ráðamanna
fyrir fundinn um Asíumál, sem
setja á í Genf 26. apríl. Þar
hefur verið ákveðið að ræða
um endanlegan frið í Kóreu og
ráðstafanir til að binda endi á
stríðið í Indó Kína. En svo
bregður við að síðustu daga
hefur af hálfu Bandaríkja-
stjórnar hver róðstöfunin rekið
aðra til að girða með öllu fyrir
þann möguleika að friður verði
saminn í Indó Kína.
H
fernaðaraðstaðan í þessu
frjósama og hráefnaauðuga
landi er þannig eftir nærri átta
ára styrjöld að nýlenduher
Frakka heldur öllum heiztu
borgunum en sjálfstæðishreyf-
ingin Viet Minh ræður yfir
mest allri landsbyggðinni.
Sjálfstæðisherinn skortir þung
vopn, skriðdreka og flugvélar,
til að geta sótt Frakka heim
í víggirtum stöðvum þeirra. Or-
ustan um virkið Dienbienphu,
sem er ekki annað en víggirt
fjallaþorp, er sú fyrsta þar
sem Viet Minh teflir fram
meira en einni herdeild gegn
öflugum, frönskum vörnum.
Aðstaða Frakka er hinsvegar
þannig að þeir eru eins og
fiskar á þurru landi. Vegna yf-
irburða í vopnabúnaði geta
þeir haldið eirístökum borgum
og takmörkuðum svæðum en
allur almenningur fylgir Viet
Minh svo að þar sem franskur
her er ekki um kyrrt nær sjálf-
stæðishreyfingin þegar í stað
yfirráðum. Frakka skortir
mannafla til að kúga milljóna-
tuga þjóð ‘ sém hefur skapað
sér her þjálfaðan í skæruhem-
aði.