Þjóðviljinn - 08.04.1954, Blaðsíða 12
ína skref i áft-
segir franska horgarablaðiS Combai
Viöleitni Bandaríkjastjórnar til aö útiloka það fyrir-
íram aö samningar run friö í Indó Kína takist á væntan-
iegri ráöstefnu í Genf hefur vakiö mikla gremju í Frakk-
landi.
Blöðin eru mjög harðorð í
garð Du’les, utanríkisiáðherra
Bandarík janna.
Iveynir að egna Kínverja
Sósíaldemókratablaðið Franc-
Tireur segir aö liótanir Dulles
í garð Kínverja séu svo æðis-
iegar að engu sé líkara cn
hann sé að reyna að egna þá
til að senda her inn i Indó
Kína svo að Bandaríkin fái
átyllu til að gera slikt liið
sama. Frönsk stjórnarvöld
verði að leggja því meira kapp
á að hindra að stríðið breiðist
út. ,
F rjálslynda borgarabla ðið
de Gaulle hótar uppreisn
gegn V- Evrópuhemum
de Gaulle hershöfðingi sagöi í gær aö stöðugt upp-
reisnarástand myndi veröa 1 Frakklandi ef samþykkt
yröi að stofna Vestur-Evrópuher.
de Gaulle, sem var foringi
frjálsra Frakka á stríðsárunum
og forsætisráðherra fyrst eftir
stríðið hafði boðað blaðamenn á
fund sinn.
Þýddi afsal fullveldis
Hershöfðinginn sagði að ef
samningarnir um Vestur-Evrópu-
her yrðu samþykktir hefði
Frakkland afsalað sér fullveldi
sínu. Það myndi þá koma í hlut
bandaríska yfirherráðsins að á-
kveða hvort og hvernig Frakk-
land yrði varið.
Þar að auki myndi Frakkland
afsala sér réttinum til að gerast
kjarnorkuveldi en það þyrfti það
að verða til að geta verið óháð
bæði Bandaríkjunum og Sovét-
ríkjunum. Hlutverk Frakklands
ætti að vera að bera sáttarorð
ó milli þessara ríkja.
de Gaulle kvað meðferð
frönsku stjórnarinnar á Juin
marskálki, sem gagnrýndi Vest-
ur-Evrópuherinn, vera til
skammar.
1. maí-nefndin
1. maínefnd verkalýðsfélag-
amia lieldur fyrsta fund sinn
aö þessu sinni n. k. föstudag
kl. 8.30 síðdegis í fundarsal
Vörubílstöðvarinnar Þróttur.
— Áríðandi er að 1. maí-
nefndarfulltrúar hinna ein-
stöku verkalýðsfélaga mæti á
fundinum.
KÍM
Aðalíundur í kvöld
★ Kínversk-íslenzka metm-
ingarfélagið heldur aðalfund d
kvöld í MÍFt-salnum Þingholts-
stræti 27, og hefsf hann kl. 9.
★ Fara þar fram venjuleg
aðalfundarstörf og umræður
um félagsmál. Kvi:kmyndasýn-
ing sem boðuð var í fundarT
boði fellur niður.
Hann kyað tíma til kominn að
leita „friðar með heiðri“ í Indó
Kína, en hvað sem því liði yrðu
Frakkar að hafá einir stjórn á
aðgerðum þar.
COMBAT kemst svo að orði
að með ógnunum utanríkis-
ráðherra Handaríkjanmi
liafi enn eitt skref verið
stigið í áttina . til þriðju
heimsstyrjaldariiinar.
Ihaldsblaðið Le Monde kvíð-
ir þvi að sríðið í Indó Kína
geti orðið upphaf atburðarásar
Framhaid á 5. ssðu
ÆFR
heldur almennan félagsfund í
kvöld í Iðuó uppi (gengið inn
frá Vonarstræti). Fnndurinn
hefst kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Haukur Helgason: Erindi
um auðvaldskreppur og
núverandi kreppuþróun í
Bandaríkjumuu.
2. Umræður um félagsmál
Æskulýðsfylkingarinnar og
pólitískt ástand æskunuar
í landinu. Framsögumaður:
Böðvar Pétursson.
Félagar eru sérstaklega á-
minntir um að fjölmenna til
þessa fundar og mæta stund-
víslega.
tuómnuiM
Fimmtudagur 8. apríl 1954 -# 19. árgangur — 82. tölubhið
Afburða sjómennska sýnd við
björgun skipshafnar á Skrúð
Sandgerði 7. apríl. Frú fréttaiitara Þjóðviljans.
Um kl. 4 í gær fékk mb. SkrúÖur, SU 21 frá Fáskrúös-
firði á sig brotsjó og brotnaöi mikiö ofan þilja, en skips-
höfn, fimm menn, bjargaöist.
Loftvarnir þýðingarlausar
á öld vetnissprengj unnar
Sprengjueyddasta borg Bretlands,
Coventry, leysir upp loftvarnaliðið
Borgarstjóm brezku borgarinnar Coventiy hefur til-
kynnt innanríkisráðuneytinu aö hún hafi leyst upp loft-
varnaliö borgarinnar.
I samþykkt sem meirihluti
Verkamannaflokksins í borgar-
stjórninni gerði gegn atkvæðum
íhaldsminnihlutans segir að
hverjum 'heilvita manni sé Ijóst
að eftir tilkomu annars eins
gjöreyðingarvopns og vetnis-
sprengjunnar séu loftvarnir
gjörsamlega þýðingarlausar, fé
og fyrirhöfn sem til þeirra væri
varið myndi vera á glæ kastað.
Til að reka á eftir banni
Coventry er sú borg Bretlands
sem langverst varð úti í loftá-
rásum Þjóðverja í heimsstyrjöld-
inni síðari.
í greinargerð fyrir samþykkt
borgarstjómarinnar segir að hún
Akureyrartog-
arar veiða í salt
Akureyri. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Allir togarar Útgerðarfélags-
ins lögðu upp afla sinn liér um
helgina.
Kaldbakur: 160 tonn.
Svalbakur: 150 tonn.
Harðbakur: 165 tonn.
Sléttbakur. rúmlega 180 tonn.
Alluv áflinn er saltaður, og
fnunu togararnir halda áfram að
veiða í salt.
Fulltrúaráðsfundur í Sósíal-
istafélagi Reykjavíkur
veröur í kvöld kl. 8.30 að Þórskaffi (Litla salnum,
gengiö inn frá Hlemmtorgi). -— Dagskrá er sú sama
sem boðuö var á fundinum sem féll niður s.l.
; fimmtudag. — Áríðandi að fulltrúar mæti vel og
í stundvíslega.
sé gerð til þess að styrkja að-
stöðu þeirra stjómmálamanna
hvar í heimi sem er sem berjast
fyrir því að kjarnorkuvopn og
önnur múgdrápstæki verði bönn-
uð með öllu.
Skipverjar voru að enda við
að draga línuna og voru að
ganga frá lestaropi bátsins, er
skipstjórinn, sem var við stýrið,
sá „hnút“ taka sig upp fyrir
aftan bátinn. Gat hann aðvarað
skipverja sína, en sjóhnúturinn
reið beint aftan á bátinn og
braut stýrishúsið þannig, að
liliðar þess einar stóðu eftir,
stýrið brotnaði, og hélt skip-
stjórinn aðeins á brotum stýris-
hjólsins í höndunum, er holskefl-
an var liðin hjá. Telur skipstjóri
það einstakt lán, að engan
mann skyldi taka út af bátnum,
er hann fór á kaf í sjó, er hol-
skeflan reið yfir.
Snarræði skipshafnarinnar
á Auðbirni
Skípshöfnin gat gert mb. Auð-
birni, sem var við veiðar skammt
frá sljTsstaðnum, aðvart og kom
hann á vettvang og tókst hon-
um með miklu snarræði að ná
skipbrotsmönnum um borð. Tel-
ur skipstjórinn á Skrúð og
skipverjar hans allir að skip-
stjórinn á Auðbimi hafi sýnt af-
burða sjómennsku, er hann lagði
að bátsflakinu í ofviðrinu án
þess að brjóta bát sinn.
Skipstjórinn á Auðbirni,
Gunnlaugur Egilsson frá Bald-
urshaga í Sandgerði, mun hafa
farið hér sína giftusamlegustu
veiðiför.
Skipverjar á Skrúð virtust
hressir eftir sjóvolkið í gær-
kvöld um kl. 10, er fréttaritari
hafði tal af þeim. Skipstjórinn,
Hans Eyjólfsson var þó nokkuð
meiddur á höfði -og tveir skip-
íhaldið felldi að bæta
kjör togarasjómaima
Eins og áður hefur verið skýrt frá flutti Guðmundur
Vigfússon svohijóðandi tillögu á fundi Útgerðarráðs
Reykjavíkur 24. marz sl.:
„Útgerðarráð sampykkir að beita sér fyrir pví
innan Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda að
teknar verði upp nú pegar samningaumleitanir
við Sjómannafélag Reykjavíkur og önnur sjó-
viannafélög um óhjákvœmilegar breytingar á nú-
gildandi kjarasamningum togarasjómanna, með
pað fyrir augum að tryggja nœgan mannafla á
togaraflotann.
Verði F.t.B. ekki við pessum tilmœlum ákveður
Útgejrðarráð að hefja sammngaumleitanir við Sjó-
mannafélag Reykjavíkur í pessu skyni f.h. Bœjar-
útgerðarinnar".
Kjartan Thors flutti frávísunartillögu og vai at-
'kvæðagreiðslu um báðar tillögurnar frestað til næsta
fundar í ráðinu, en sá fundur var haldiim í gær. Fór þá
atkvæðagreiðslan fram og samþykktu íhaMsfulltrúarnir
þrír frávisunartillögu Kjartans gegn atkv. Guðmiuidar
Vigfússonar, en fulltrúi Alþýðuflokksins sat hjá!
Þessi ábyrgðarlausa afstaða ílialdsmanna í Utgerðar-
ráði er þri furðulegri þegar þess er gætt að einn af
togurum Bæjai'útgerðarinnar, Pétur Halldórsson hefur
nú legið bundinn í iiöfn hálfan annan mánuð og sívax-
andi erfiðleikar á að koma hinum skipiuium úr höfn
vegna mannaskorts. *
verjar hans'voru einnig dálítið
meiddir, en furðu lítið eftir at-
vikum.
Mb. Skrúður var stærsti bátur
þeirra Fáskrúðsfirðinga, 38
tonn, smíðaður 1947. Eigandi
bátsins var Skrúður h. f., Fá-
skrúðsfirði, en skipstjórinn
gerði hann út í vetur.
Bátinn rak á fjörur hjá Bæj-
arskerjum í Miðneshreppi og er
hann mjög mikið brotinn.
S
Ferðafélsgs ís-
lands í kvöld
Ferðafélag íslands lieMur
skemmtifund í kvöM í Sjálf-
stæðishúsinu. Sýndar verða
tvær kvikmvndir, sem Magnús
Jóhannsson útvarpsrirki hef-
ur tekið; litmyndior Laxarækt
og þáttur úr mynd af íslenzku
fuglalífi. Einnig verðtxr sý.nd
litmynd af páskaferð 1953 tek-
in af Ásgeiri Jónssyni fi'am-
kvæmdastjóra. -— Aðgöngumið-
ar að fundinum eru til sölu í
bókaverzl. Sigfúsar F.ymunds-
sonar og ísafoM. Húsið verður
opnað kl. 20.30.
Skólahiis bremmr
í Mýrdaluum
Skólahúsið í Reynishverfi í
Mýrdal brann til kaldra kola
s.l. þriðjudagsmorgun snemma.
og varð engu bjargað nema
nokkrum borðum og stólum.
Bókasafn var geymt í skólan-
um og eyðilagðist það í eld-
inum. — Skólahúsið, sem
brann, var lítið gamalt timbur-
hús, ein kennslustofa og for-
stofa.
Hagslæður vöru-
skiptajöfnuður í
februar
Samkv. upplýsingurn Hag-
stofunnar var vöruskiptajöfn-
uðuriun i febr. hagstæður um
7 millj. 423 þús. krónur; út
voru fluttar vörur fyrir 75
mlllj. 112 þús. kr. en inn fyrir
67 millj. 689 þús. kr. I samá
mánuði í fyri'a var vörujöfn-
uðurinn óhagstæður um 5,5
millj. lcróna, þá voru fluttar
inn vörur fyrir 57.1 milljj. en
út fyrir 51.6 millj. kr.
Tvo fyrstu mánuði yfirstand-
asxdi árs hefur vöruskiptajöfn-
uðurinn verið óhagstæður um
17.8 millj. kr., inn hafa veri-ð
fluttar vörur fyrir 154 millj.
en út. fjrir 138.2 millj. kr.
Fyi'stu tvo mánuði ársins 5
fyrra var jöfnuðurimi úhag-
stæður um 31.7 millj. kr., inn-
flutninguiinn nam þá 129.7
mmillj. en útflutnmgurinn 98
tnillj. kr.