Þjóðviljinn - 30.05.1954, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagyr 30. mai 1-á;-i.
Flutt í samfelldri áagskrá á hátíð audsdjTuuhreyfingariimar 23. maí 1954
sem haldin var tiJ mítmfag&r mi M ára afmæli lýðveldiskosningamia
Fjú kjörstaö lýöveldiskosninganna í Reykjavík.
Þann 17. júní 1941 fór fram
kjör ríkisstjóra samkvæmt á-
lyktun Alþingis. 1 embættið
var kjörinn Sveinn Björnsson.
Þótti flestum sú skipan eðli-
leg og sjálfsögð, þar eð
Sveinn Björnsson hafði gegnt
þýðingarmiklum störfum fyr-
ir þjóðina, og sá íslendingur,
af' forustumönnum að telja,
sem f jarst stóð dægurþrasi og
úlfúðarmálum innanlands.
,í maí 1942 gerði Alþing þá
breytingu á stjórnarskránni,
að samþykkja mætti til fulln-
aðar á einu þingi aðeins
stjórnarskrárbreytingu um
lýðveldi á íslandi í stað kon-.
■ungdæmis. Kjósendur í land-
inu yrðu þó að fallast á breyt-
inguna með atkvæðagreiðslu.
Alþingiskosningar fóru fram
í október 1942, en þá
skeði einmitt sá atburður,
sem þingmenn höfðu óttast,
að truflað gæti árið 1941. Á
kosningadaginn, eftir að kjör-
sókn var hafin, komu Þjóð-
verjar á rannsóknarflugi til
Isiands. Flugu tvær þýzkar
flugvélar yfir nágrenni
Reykjavíkur og Hafnarfjarð-
ar. Merki um árásarhættu var
gefið, svo að kosningar hættu
í bili, en hófust að nýju,
þegar hættan var liðin hjá.
Upp úr miðjum janúar 1944
kom lýðveldisstjórnarskráin
til umræðu á þingi.
Alþing ályktaði að lýsa yf-
ir því:
„— að niður sé fállinn
samningur sá, sem fólst í
dansk-íslenzkum sambands-
íögum frá 1918.
Ályktun þessa skal leggja
undir atkvæði allra kosn-
ingabærra manna í landinu
til samþykktar eða synjun-
ar, og skal atkvæðagreisðlan
vera Ieynileg. Ályktunin tek-
ur gildi, er Alþing hefur
samþykkt hana að nýju, að
afstaðinni þessari atkvæða-
greiðslu“.
Eftir nokkurt þóf og mis-
munandi skoðanir var álykt-
unin samþykkt, að viðhöfðu
nafnakalli, með 51 samhljóða
atkvæðum. Einn þingmaður
var fjarverandi sökum veik-
inda.
Fimm manna nefnd var
kjörin til þess að liafa yfir-
stjórn atkvæðagreiðslunnar
um sambandsslitin. I henni
; sátu: Arngrímur Kristjáns-
son, Eyjóífur Jóhannsson,
Haildór Jakobsson, Jens
HólmgeirssOn og Sigurður
Óiaso2i.
Þann 29. apríl auglýsti yfir-
kjörstjórnin, að atkvæða-
gréiðsla utan kjörstaða hæf-
ist 2. maí, en 20.-23. maí átti
þjóðaratkvæðagreiðslan að
fara fram.
Hófst þá hið umfangsmikla
starf, er snertí skipulagningu
atkvæðagreiðsluiiíiar. Skipað-
ar voru til undirbúnings sér-
stakar nefndir í hverri sýslu
landsins. Þeim til aðstoðar
voru svo settir eða kjörnir
nok-krir menn í hverjum
hreppi.
Hátíðanefndin efndi til sam-
keppni um hátíðaljóð. I apríl-
lok voru kunngjörð þau úrslit
í ljóðasamkeppnhini, að valin
hefðu verið Ijóð eftir Unni
Benediktsdóttur Bjarklind,
Huldu, og Jóhannes úr Kötl-
um. Tónskáldum var ætlaður
tími frá 4. maí til 1. júní tii
þess að semja lög við hátíða-
ljóðin. Valið var lag eftir
Emil Thóroddsen við kvæði
Huldu, ennfremur lag extir
Þórarin Guðmundsson við ljóð
eftir Jóhannes úr Kötlum.
Um þetta leyti barst ríkis-
stjóm íslands skeyti frá
Kristjáni konungi tíunda.
Lauk skeytinu svo: ,,Vér ósk-
um þess vegna, að áður en
úrslitaákvörðun verði tekin,
verði ríkisstjórn Islands og
þjóðinni tilkynnt, að vér get-
um ekki, á meðan að núver-
I SEFINU við syðri tjörnina
hafa álftahjón aðsetur. Þau
eru langt að komin, gefin
hingað frá Akureyri þar sem
þau höfðu búið um skeið. Ak-
ureyringar voru að sjálfsögðu
hrifnir af álftahjónunum,
kannski helzti hrifnir, því að
fyrir ónæðis sakir tókst álfta-
hjónunum aldrei að unga út,
en nú er eftir að vita hvort
hægt verður að bæla svo
niður reykvíska forvitni að
blessuð hjónin fái frið til að
koma 3ér upp afkvæmum.
Þessa dagana stendur eitt-
hvað mikið til hjá álfta-
mömmu. Hún kúrir í hólma
þéim sem útbúinn var í sef-
inu mjög ábúðarfull á svip,
álftapabbi héldur vörð um
hana af miklum gassa og það
er álit allra sem gefið hafa
parinu gaum að nú muni eitt-
hvað merkilegt vera í vænd-
um. En sá er hængur á að
annaðhvort hafa vegfarendur
ekki gert sér ljóst hvað er
á seyði eða þeim stendur al-
andi ástand varir viðurkennt
þá breytingu á stjórnarform-
inu, sem Alþing íslands og
ríkisstjóm hafa ákveðið án
samningsviðræðna við oss“.
R.íkisstjórn Islands svaraði
konungi, að hin persónulega
orðsending konungs hefði ver-
ið birt íslenzku þjóðinni, og
það með, að þjóðaratkvæða-
greiðslan muni sýna óskir
þjóðarinnar um framtíðar
stjórnarformið, en Alþing
veg á sama, því að talsverð
brögð hafa verið að því að
fuglunum sé gert ónæði. —
Hugsunarlausir strákar, for-
vitið fólk, drukknir menn hafa .
vaðið inn í helgidóm fugla-
hjónanna og gert þeim lífið
brogað.
Samkvæmt fjölda áskorana
eru það því vinsamleg tilmæli
Bæjarpóstsins, að vegfarend-
ur láti fuglana í friði, bæli.
niður of mikla forvitni sína
og reyni eftir megni að koma
í veg fyrir að aðrir geri fugl-
unum ónæði. Það væri okkur
öllum mikið gleðiefni, ef þarna
yrði fjölgun, ungarnir yrðu
stolt okkar Reykvíkinga og
nú skulum við öll reyna að
r
Mikið á seyði hjá álítamömmu — Geíið henni næði
til að unga út — Ástarbréí tii Bjöms Th. Björnssonar
annaðist framkvæmdir. Skeyt-
inu lauk svo: „Eg get full-
vissað hans hátign um það,
að hann nýtur hjá íslenzku
þjóðinni hinnar mestu virð-
ingar persónulega og danska
þjóðin hinnar innilegustu vin-
áttu“.
'k
Nú verður rakið, hvernig
Ríkisútvarpið skýrði frá fregn
um af atkvæðagreiðslunni.
20. maí.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um
niðurfellingu sambandslaga-
samningsins og stofnun lýð-
veldis á íslandi hófst í dag,
og virðist kjörsókn yfirleitt
hafa verið mikil. I 7 kjör-
deildum hefur hver kjósandi
greitt atkvæði.
21. maí.
Á fyrsta degi þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar var þátt-
taka mikil um land allt, og
í gærkvöld var vitað um 14
hreppa, þar sem hver kjós-
andi hafði greitt atkvæði, og
marga, þar sem ekki vantaði
nema örfá atkvæði til þess að
þátttakan væri 100 prósent.
í kaupstöðum mun þátttak-
an hafa verið hlutfallslega
mest á Siglufirði, eða 68
prósent. I Reykjavík höfðu
10.674 greitt atkvæði á kjör-
stað í gærkvöld, en rúm 2000
utan kjörstaðar. Mun það ná-
lægt 50 prósent. Um allt land
er mikill áhugi á því, að kjör-
sókn verði sem bezt í dag.
Landgræðslusjóður Skógrækt-
arfélags Islands vex ört. I
gærkvöld hafði safnazt í hann
aðeins í Reykjavík 55.000 kr.
★
Tilkynning:
Reykvíkingar, Hveragerði.
Reykvíkingar þeir, sem stadd-
ir eru í Hverágerði eru vin-
samlega beðnir að kjósa þar
á morgun. Kjörgögn verða
send þangað í kvöld. — Lands
nefnd lýðveldiskosninganna.
1 Skaftártunguhreppi Vest-
Framhald á 11. síðu.
vinna að því að svo megi
verða.
ic
SVO er hérna dálítið ástar-
bréf til Björns Th. Björnsson-
ar. „Kæri Bæjarpóstur. Viltu
koma á framfæri ánægju
minni fyrir síðasta þátt „Úr
heimi myndlistarinnar". Ég
er þeirrar skoðunar að Björn
Th. Björnsson sé einn þeirra
manna, sem aldrei fara er-
indisleysu í útvarpið, og hann
er naskur að hitta á efni sem
vekur áhuga áheyrenda, en
hið sama verður því miður
ekki sagt um ýmsa aðra, sem
oftar láta til sín heyra. Sam-
tal þeirra Sveins og Þorvalds
var mjög fróðlegt, einkum
þótti mér athyglisvert að
hlýða á mál Þorvalds. Þetta
samtal sannaði að svona um-
ræður geta verið skemmtileg-
ar og fróðlegar um leið, þótt
framan við hljóðnemann sé,
og minnist ég þá annarra ný-
afstaðinna viðræðna á vegum
Gísla Kristjánssonar um
starfsíþróttir m'i fyrir nokkru,
en þær voru fyrir neðan allar
hellur og ógerningur fyrir
hlustendur að skilja upp né
niður né fylgjast með hvert
umræðuefnið var. Gott út-
varpsefni er svo sjaldgæft nú
orðið að maður finnur hjá sér
hvöt til að stinga niður penna
þá sjaldan það kemur fyrir.
Með beztu kveðjum.