Þjóðviljinn - 16.06.1954, Blaðsíða 1
*
Miðvtkudagur 16. jání 1954 — 19. árgangur — 131. tölublað
Skrifsfofur söfnunarinnar verSa opnar til kl. 11 i kvöld
Yáum
í kvöld!
Með stærsta átaki söfnunarinnar getum við
tilkynnt fullan sigur í blaðinu á morgun
Okkur vantar 97.000 kr. til að ná markinu — og í
dag er 16. júní! Söfnunarnefndin skorar á alla sós-
íalista um allt land að einbeita orku sinni til þess
að ná íullum .sigri þegar í kvöld — til þess að hægt
verði að tilkynna hann í blaðinu á morgun, 17. júní
á 10 ára aímæli lýðveldisins. Til þess þarf stærra
átak en nokkru sinni fyrr í þessari glæsilegu söfn-
un og enginn má sitja hjá. En okkur a að vera þetta
kleift með sameinuðu átaki, og þá væri sigurinn
fullkomnaður.
Skriístofur söfnunarinnar á Þórsgötu 1 verða opn-
ar til kl. 11 í kvöld, og eru allir áhugamenn beðnir
að hafa sem bezt samband við þær. Sími 7510.
Upphaflega gerði söfnunar-
nefndin sér vonir um að loka-
markinu yrði náð með því sem
inn kæmi 17. júní —tíminn var
það naumur og upphæðin það
há að ekki var talið veita af
hverjum degi. Söfnunin hefur
hins vegar gengið svo vel að
tök eiga að vera á því að ná
markinu einum degi fvrr en á-
formað var. Við höfum áður
sýnt það í þessari söfnun, að
við getum náð meiri árangri en
dæmi eru til með snöggum á-
hlaupum. Hæsta talan sem
náðzt hefur til þessa er rúm
60.000 kr. og okkur ber að
ljúlta verkinu með stærra á-
taki en nokkru sinni fyrr. Það
hefur ævinlega verið háttur
okkar í söfnunum, og sízt ber
sósíalistum að bregða þeim
vana sínum í þessari sókn sem
þegar er orðin bæði ,,íslands-
met og heimsmet" eins og Vísir
komst að orði.
Friðrik er í
þriðja sæti
t slceyti til útvarpsins í gær
var skýrt frá því að í tóífta
umferð á skákmótinu í Tékkó-
slóvalíiu hefði Friðrik Ólafsson
unnið Guðmund Pálmason. Hef-
nr Friðrik þá átta og liáli'an
vinning og er í þriðja sæti.
Fyrsta og annað sæti skipa
Pacliman og Szabo með níu og
hálfan vinning hvor.
Islendingarnir töpuðu bið-
skákunum í elleftu umferð,
Friðrik fyrir Sliwa og Guð-
mundur fyrir Szabo.
P.ins og útvarpið gat um í gær
hefur danski taflmeistarinn Eigil
Pedersen ritað fréttagrein um
skákmótið í Prag í Berlingatið-
indi. Sú grein snýst að veruiegu
leyti um Friðrik Ó afsson, sem
hefur komið mönnum þar syðra
he’dur betur á óvart með snja lri
taf'mennsku. Nefnir Pedersen
einkum skákirnar við Ciocaltea
og Barcza. Áhorfendur, sem voru
margir fögnuðu þessum tafilok-
Framh. á 6. síðu
11 þús. kr. frá Sandgerði
I gær bættust okkur 38.000
kr. Verulegur hluti af þeirri
upphæð, eða 11.000 kr., var frá
Sandgerði, sem þannig hefur
tryggt sér mjög myndarlegan
sess í þessu átaki. Framlögin
frá Reykjavík voru einnig fjöl-
mörg og góð, og mætti segja
af þehn margar sögur um hug
og sjálfsvirðingu íslenzkra sós-
íalista í þessu starfi. En þótt
þessi upphæð sé há þurfum við
að gera meira en að tvöfalda
hana í dag. Árangurinn veltur
á því að allir grandskoði síð-
ustu möguleika sína til starfa,
það er komið undir þínu starfi
og mínu hvort sigur vinnst. Sig-
urlaunin eru mikil og hver ein-
asti sósíalisti á Xslandi \c.rður
að geta sagt að hann hali per-
sónulega unnið fyrir þeim.
Hver maður til starfa 1 dag.
Vinnum sigur í kvöld.
¥esturifeldin slítcz
viðræðum um Kóreu
Neita að ræða tillögu um hlutleysi og
aivopnun landsins
Vesturveldin slitu í gær viðræðum í Genf um samein-
ingu Kóreu.
í upphafi fundarins um Kór-
eu lagði Nam II, utanríkisráð-
herra Norður-Kóreu, fram til-
lögur um ráðstafanir til að fyr-
irbyggja að stríð blossaði upp
á ný og greiða götu samein-
ingu landsins.
Fækkað í herjum,
engin bandalög
Tillögurnar eru á þá leið, að
fækkað skuli í herjum Norður-
og Suður-Ivóreu niður í 100.000
menn. Allt erlent herlið skal
Framhald ó 6. sihu
Mynd frá Guatemala. Eldfjall í baksýn
Dulles hvetur til stjórnar-
by Itingar í Guatemala
Dulles, utani'íkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti i gær
íbúa Mið-Ameríkuríkisins Guatamala til að steypa stjórn
landsins af stóli.
Dulles komst svo að orði við
blaðamenn í gær að enginn vafi
væri á því lengur að kommún-
istísk ógnarstjórn ríkti í Guate-
mala. Kvaðst hann sannfærður
um að yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar vildi binda sem
fyrst endi á það ástand með því
að losa sig við núverandi ríkis-
stjórn.
Ríkisstjórn Guatemala, sem er
ein af örfáum lýðræðislega kjörn
um ríkisstjórnum í Mið- og Suð-
ur-Ameríku, tók sér nýlega al-
ræðisvald í mánuð meðan verið
væri að uppræta samsæri um
að steypa henni af stóli með
vopnaðri uppreisn. Að samsær-
inu standa stórjarðeigendur sem
njóta bandarísks stuðnings.
Hefur Bandaríkjastjórn sýnt
Guatemala fullan fjandskap síð-
an nokkru af lendum banda-
ríska auðfélagsins United Fruit
var skipt milli landbúnaðar-
yerkamanna.
Dulles kvað stjórn Bandaríkj-
anna vera að bera saman ráð
sín við stjórnir allra Ameríku-
ríkja um að kalla saman heims-
álfuráðstefnu til að ræða aðgerð-
ir gegn Guatemala.
Churchill forsætisráðherra
skýrði brezka þinginu frá því i
gær að Eden utanríkisráðherra
og Sjú Enlæ, utanríkisráðherra
Kína, liefðu samið um það með
sér í Genf að fullt stjórnmála-
samband skuli tekið upp á
næstunni milli Bretlands og
Kína.
Bretar viðurkenndu alþýðu-
stjórn Kína árið 1950 og hafa
síðan haft sendifulltrúa í Pe-
king en engin kínversk sendi-
sveit hefur verið í London. Nú.
kemur kínversk sendisveit
þangað innan skamras og síð-
en munu löndin skiptast á sendi-
herrum.
Churchillog Edená
fursd Eisenhowers
Reyna að greiða úr öngþveitinu, sem
Vesturveldin eru kamin í
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Bretlands fara
til Bandaríkjanna í næstu viku í boði Eisenhowers forseta.
Churchill f orsætisráðherra1
skýrði brezka þinginu frá þessuj
i gær. Hann kvaðst myndi fljúga
vestur um haf ásarnt Eden utan-
ríkisráðherra á fimmtudaginn í
næstu viku og dvelja i Washing-
ton fram á mánudag.
Hvað á að koina í staðinn?
Dulles utanrikisráðherra sagði
blaðamönnum í Washington að
viðræðurnar við Bretana yrðu ó-
formlegar og ekki bundnar við
beina dagskrá. Hann taldi víst
að rætt yrði um stofnun hernað-
arbandalags Vesturveldanna í
Austur-Asíu og hvað komi eigi
í staðinn fyrir Vestur-Evrópuher-
inn ef hann fæst ekki stofnaður.
Djúpstæður ágreiningur
Reutersfréttastofan sagði í gær
að verkefni brezku og banda-
rísku stjórnmálamannanna yrði
Framh. á 5. síðu
903.000
Ein milljón króna fyrir 17. júní
'Vl millj.
~ % millj. |-
-% millj.
1 millj.|
^903.000